Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 6
s iItlönd LAUGARDAGUR 18. MAI 1996 stuttar fréttir Vísað úr landi Bretar ákváðu að vísa fjórum | rússneskum sendiráðsmönnum úr I landi þegar fréttist að Rússar mundu gera slíkt hið sama við fjóra Breta í Moskvu. Styðja Jeltsín Leiðtogar sjálfstæðra ríkja fyrrum Sovétlýðvelda, sem óttast að glata sjálf- stæði sínu nái kommúnistinn Gennady Zjúganov kjöri sem forseti, ákváðu að styðja Borís Jeltsín til endurkjörs. Niðurstöður skoöana- kannana stangast á. Vernda rétt sinn Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagðist ekki vilja í viðskiptastríð við Kin- verja en að Bandaríkjamenn mundu verja hagsmuni sína hvað varðar höfundarréttarmál. Fóru yfir landamærin Sjö norður-kóreskir hermenn fóru aðeins yflr landamærin að Suður-Kóreu en sneru aftur þegar suður-kóreskir hermenn skutu við- vörunarskotum. Varar við Kúrdum Mesut Jilmas, forsætisráðherra Tyrklands, varaði Þjóðverja að taka við kúrdískum flóttamönnum en þeir væru njósnarar Verka- mannaflokks Kúrdistans sem bann- aður er í Tyrklandi. Æfingar grenna Læknar sem þinga á Spáni sögðu líkamsæflngar lykilinn að því að grennast. Miðstöð falsara Belgía er að verða miðstöð fals- ara en lega landsins lokkar að inn- flutning alls kyns eftirlíkinga, alft frá geislaplötum til skófatnaðar. Styðja Peres Leiötogar minnihluta- hóps araba í ísrael hvöttu araba tii að veita Símoni Peres at- kvæði sitt i þingkosning- unum 29. maí. Kosið aftur Talsmenn nýrrar ríkisstjóm- ar hindúa á Indlandi, sem stendur tæpt gagnvart boðaðri vantrauststillögu í þinginu síð- ar í mánuðinum, segja aö Ind- verjar gætu þurft að ganga til kosninga á ný takist andstæð- ingum ætlunarverk sitt. Dole hættir Bob Dole, væntanlegur for- staframbjóðandi repúblikana, sagði þingsæti sínu lausu svo að hann geti helgað sig kosn- ingabaráttunni. Reuter Eldsneyti á heimsmarkaði: Enn lækkar bensínið 455 kílóa þungur maöur aö niðurlotum kominn: Fluttur úr húsinu með gaffallyftara Gríðarlega feitur maður sem veg- ur ein 1000 pund eða 455 kíló var fluttur af heimili sínu í New York og lagður inn á sjúkrahús. Til að ná manninum út úr húsinu heima hjá sér var ekki annað til ráða en að taka rúðu og gluggakarm úr og not- ast við gaffallyftara. Maðurinn, Michael Hebranko, er svo Ula á sig kominn vegna offitu að hann getur ekki gengið. Hann þjáist af hjartveiki, drepi í holdi, samfölln- um æðum og vatni í lungum. Hebranko, sem vó um 318 kíló á tímabili, náði að létta sig í 90 kíló og var þá talsmaður megrunargúrús- ins Richards Simmons. En síðastlið- in tvö ár hefur hann stöðugt hætt við sig. „Ég féll eins og hver annar. Þetta er ekki auðvelt," sagði Hebranko sem telur offitu sína vera sjúkdóm á sama hátt og eiturfíkn. „Þegar ég byrja að borða get ég ekki hætt. Hebranko hefur verið bundinn við sófann á heimili sínu undan- famar vikur. Hann hefur ekki getað staðið í fætuma nema hálfa mínútu í einu og notast við súrefnisgrímu til að geta dregið andann. Hann hef- ur vaflð sig lökum þar sem hann kemst ekki í nein föt, enda er mitt- ismál hans 110 tommur eða 279 sentímetrar. Flutningur Hebrankos úr húsi sínu dró að fjölda áhorfenda. Hann var settur á kröftugar börur eins og þær sem notaðar em til að flytja hvali. Sjúkraflutningamenn höfðu æft sig fyrir flutningana með því að notast við 500 kílóa steypuklossa. Offita Hebrankos kemur sérfræð- ingum Alþjóða heilbrigðisstofnunar- innar, WHO, ekki á óvart. Á ráð- stefnu þeirra á Spáni í vikunni var fullyrt að offita væri eins og illviðr- áðanleg farsótt og heilsugæslustöðv- ar yrðu fyrir offituflóðbylgju sem helst mætti líkja við hamfarir. Meira en helmingur ibúa sumra ríkja eru of feitir og þjást af hjartasjúkdóm- um, heilablóðfollum og sykursýki. Þá hefur offita að auki ýmis sálræn vandamál í för með sér. Reuter Múgur og margmenni fylgdist með þegar Michael Hebranko, 455 kílóa maður, var fluttur af heimili sínu í New York með gaffallyftara. Taka þurfti rúðu og gluggakarm úr til að koma honum út. Símamynd Reuter Romano Prodi bretti upp ermarnar á Ítalíu: Ný ríkisstjorn a mettíma Romano Prodi, verðandi forsætis- ráðherra ítaliu og fyrrum formaður stærstu iðnfyrirtækjasamsteypu landsins, setti nýtt met í gær þegar hann tilkynnti um myndim nýrrar ríkisstjómar 12 tímum eftir að hann fékk stjórnarmyndunarumboðið. Honum tókst það sem hann ætlaði sér, að mynda ríkisstjóm innan 24 tíma. Hann lét hjátrúna ekkert þvælast fyrir sér en ftölum stendur stuggur af fostudeginum beri hann upp á 17. dag mánaðarins á sama hátt og aðrir telja fostudaginn 13. óheilladag. Prodi, sem er raunsær hagfræðingur, hefur þar með mynd- að 55. ríkisstjórn Ítalíu frá stríðslok- um og tekiö að sér erfiðasta starf í landinu. Hann hefur aldrei setið á þingi en sat um skamma hríð í rík- isstjóm. Prodi seg- ist hafa staö- ið við öll sín loforð til þessa: Mynd- að ríkis- stjórn á met- tíma, en venjulega tekur það margar vik- ur, skipað fleiri konur en karla í ráðherrastóla, tekið tillit til hinna ýmsu arma bandalags Olífutrjánna, sem hann leiddi til sigurs yfir Frels- isfylkingu Silvios Berlusconis í þingkosningunum og haldið jafn- vægi milli norður- og suðurhluta landsins. Kommúnistar lengst til vinstri hafa lofað ríkisstjóm Prodis stuðn- ingi sínum. Á stefnuskrá hans er að koma lagi á ríkisfjármálin, minnka atvinnuleysi og stefna að þátttöku í evrópsku myntbandalagi. Þá leggur hann áherslu á endurbætur á stjómarskránni svo koma megi á langþráðum pólitískum stöðugleika í landinu. Við Prodi blasir að gera smækk- aða útgáfu af fjárlögum sem gilda eiga út árið og að semja við Norður- deildina sem hefur það efst á stefnu- skrá sinni að kljúfa Ítalíu í tvo hluta. Hefð er fyrir vantrauststil- lögu á nýja ríkisstjóm mjög fljótt eftir myndun henar og hefur slík til- laga verið boðuð á þriðjudag eða miðvikudag. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis | Verð á eldsneyti á heimsmarkaði hélt áfram að lækka í vikunni. Hrá- olíutunnan fór af stað niður á við og sem fyrr fylgdi bensínið fast á eftir. Á skömmum tíma hefur 95 og 98 oktana bensín á erlendum mörkuð- um lækkað mn tæp 5 prósent, eða svipað og hráolían. Dow Jones hlutabréfavísitalan í Wall Street virtist á hraðri uppleið þegar viðskiptum lauk á fimmtu- dag. Talan var að nálgast sögulegt met en þetta hefur gerst um leið og Nasdaq- vísitalan hefur slegið hvert metið á fætur öðra. Svipuð þróun hefur verið í öðram helstu kaup- höllum heims, hlutabréfaverð er greinilega að hækka eftir lægð um nokkum tíma. -Reuter DV Óvænt sjón mætti ísraelsk- um hermönnum ísraelskir hermenn, sem geng- ust inn á að leyfa kvenkyns her- manni að veita sér munngælur, svo fremi sem þeir létu binda fyr- ir augun á sér urðu heldur en ekki hissa þegar einn þeirra kíkti. Honum til furöu sá hann karlkyns liðsforingja veita nefnda þjónustu. ísraelsk dagblöð segja að orðrómur hafi gengið í tiltekinni herstöð um að kvenkynshermað- ur mundi veita nefnda þjónustu ókeypis ef þiggjendur hennar samþykktu að láta binda fyrir augun. Að sögn var það til að særa ekki blygðunarsemi „henn- ar“. Fjöldi hermanna lét til leið- ast. Herlögreglan rannsakar nú máliö. 1 á móti 24 að hin gagnorða Anna Mjöll sigri Norskir veðbankar meta mögu- leika íslenska lagsins í Söngvakeppni Evrópu, sem fram fer í Ósló í kvöld, ekki mikla. Segja þeir möguleikana á sigri Önnu Mjallar og Sjúbídú vera 1 á móti 24. Svíar séu mun líklegri, með möguleikana 2 á móti 7, eða Bretar með 1 á móti 4. Talið er að um 300 milljónir Evrópubúa muni fylgjast með keppninni í sjónvarpi. Norðmenn hafa lagt mikið undir til að gera hana sem glæsilegasta og hafa svolitið meira „tempó“ til að höfða betur til kynslóðar tónlist- armyndbandanna. í fréttaskeyti Reuters er fjallað um þá reglu að hver þátttakandi verði að syngja á eigin tungumáli. það geri að verkum að fæstir textarnir skilj- ist. En hin gagnorða Anna Mjöll hafi séð við því að hluta með text- anum: „Shoobedoo, shoobedoo, is understood from Skagastroend to Timbuktu." Ákærðir fyrir háö um Tudjman Tveir króatískir blaðamenn verða dregnir fyrir dóm i júní, ákærðir fyrir að hæðast á Franjo Tudjman forseta. Blaðamennim- ir starfa við tímaritið Feral Tri- bune en málssóknin á hendur þeim þykir hafa kastað Ijósi á einræðistilhneigingar stjórn- valda þrátt fyrir lýðræðislega stjórnarskrá. í grein þeirra var hæðst að þeirri hugmynd Tudjmans að vilja endurjarðsetja króatíska fasista við minningar- athöfn um fórnarlömb þeirra meðal gyðinga og Serba. Blaðamennirnir eru ákærðir fyrir að hafa gert Tudjman tor- tryggilegan gagnvart lögum og þeir eiga yfir höfði sér þriggja ára fangelsi i samræmi við ný lög sem segja að ekki megi ófrægja leiðtoga. Halda skrá yfir barnaníðinga Michael Howard, innanríkisráð- herra Breta, segir að Bretar séu reiðubúnir að hálda skrá yfir barn- aníðinga svo lögregla geti fylgst með ferðum þeirra og gerðum. Howard tilkynnti þetta í kjölfar lífstíðarfangelsisdóms yfir tveimur barnaníðingum sem fundnir voru sekir um að hafa rænt, nauðgað og síðan myrt níu ár dreng. Howard segir lagafrumvarp um eftirlit með barnaníðingum nær fúllbúiö en þaö er unnið í náinni samvinnu við lögreglu og félags- málayfirvöld. Með skránni vonast yfirvöld að fá fleiri tækifæri til aö notast við DNA-próf. Reuter mmaaummmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.