Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 20
20
yfirheyrsla
LAUGARDAGUR 18. MAI1996
Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi í DV-yfirheyrslu:
ekki von á erfiðleikum
í samstarfi við Davíð
„Menn fæðast ekki sem forsetar, sem betur fer,“ segir Ólafur Ragnar m.a. í yfirheyrslu DV. DV-mynd GVA
- Af hverju fórstu í framboð?
„Þessi ákvörðun hafði ekki verið
á vegakorti okkar hjónanna. Hins
vegar höfðu margir samband við
okkur, fyrst i desember og janúar,
en síðan af miklum þunga í febrúar
og mars. Það var fólk úr öllum
landshlutum og stjómmálaflokkum
og flestum starfsstéttum þjóðfélags-
ins. Smátt og smátt fórum við að
hlusta á þau sjónarmið sem komu
fram í þessum samtölum. Þær við-
ræður færðu okkur að lokum að
þessari niðurstöðu. Það hefur ávaUt
verið hluti af minni lífssýn að láta
gott af sér leiða. Margir nefndu að
með þessari ákvörðun gæti ég orðið
að liði fyrir land og þjóð á næstu
árum,“ ________________________
- Hvaða kosti telur þú að for-
seti þurfí að bua yfir?________
„Þeir eru æði margir. Fyrst og
fremst tel ég mikUvægt að forsetinn
hafi reynslu og þekkingu á lífshátt-
um þjóðarinnar, sögu og menningu.
Ég held líka að það hjálpi að þekkja
vel stjómskipun landsins og starfs-
hætti sem tiðkast í stjómkerfinu."
- Hverjar verða þínar áherslur
á Bessastöðum, náir þú kjöri?
„Það era fyrst og fremst þrír
þættir sem ég mun hafa að leiðar-
ljósi. Sá fyrsti snýr að virðingu fyr-
ir stjómskipun landsins, ákvæðum
í stjómarskrá um skyldur forseta-
embættisins og grundvaUarreglum
lýðræðis og þingræðis sem móta
okkar stjómskipun. Þessir þættir
hafa verið í föstum skorðum og ég
tel mikUvægt að þeir verði það
áfram. í öðm lagi tel ég mikUvægt
að forsetinn sé virkur þátttakandi í
þjóðlífinu. Hann á ekki að einangra
sig á Bessastöðum eða láta stíf form
binda sig um of. Forsetinn á að geta
tekið þátt í lífi þjóðarinnar, í gleði
og sorg. í þriðja lagi tel ég mikU-
vægt að forsetinn styrki sess íslend-
inga í heimi hraðra breytinga. Við
vorum lengi vel minnsta þjóðin i
Sameinuðu þjóðunum, nutum þeirr-
ar sérstöðu á ýmsan hátt. Sérstaöa
okkar er ekki lengur jafn sjálfgefin.
Við þurfum, bæði forsetinn, aðrir
ráðamenn og þjóðin öU, að leitast
við að tryggja hag okkar í veröld-
inni. Forsetinn getur gert það með
því að opna dyr fyrir fjölmarga að-
Ua, bæði í atvinnulífi og menningar-
lífi, þjóðinni tU hagsbóta."___
- Hvaða álit hefur þú á þeim
mikla kostnaði sem endurbæt-
urnar á Bessastöðum hafa haft í
för með sér?___________________
„Bessastaðastofa er ekki aðeins
formlegt aðsetur forsetans heldur
bygging á mjög sögufrægum stað.
Ég taldi nauðsynlegt að endurbæta
stofuna sjálfa. Ég þekki minna til
annarra endurbóta. Hitt er alveg
Ijóst að það má ekki haga málum
þannig á Bessastöðum að þegar
þjóðin liti þangað detti henni helst i
hug eyðsla. Það verður leiðarljós
bæði mitt og Guðrúnar að gæta hófs
í hvívetna á Bessastöðum þannig að
þjóðin geti borið virðingu fyrir þvi
sem þar fer fram.“
- Hver er áætlaður kostnaður
við þitt framboð?_____________
„A þessu stigi er erfitt að meta
það. Við settum okkur það markmið
að halda honum í algjöru lágmarki.
Ef hægt verður að forðast auglýs-
ingastríð þá er ég þeirrar skoðunar
að þaö sé hægt að halda kostnaðin-
um vel innan við þau mörk sem
nefnd hafa verið. Þær tölur sem
menn hafa nefnt, 20 til 30 milljónir,
em alltof háar. Okkar markmið er
að halda kostnaðinum töluvert inn-
an við þau mörk. Ég vona að það
takist."
- Hvemig er fjármögnuninni
háttað og hverjir leggja til pen-
inga?__________________________
„Við höfum opnað sérstakan
reikning í Landsbankanum þar sem
einstciklingar og aðrir aðilar geta
lagt inn framlög til kosningabarátt-
unnar. Við tökum einnig á móti
framlögum á kosningaskrifstofum
okkar, bæði í miðstöðinni í Reykja-
vík og úti um allt land. Hugsunin er
sú að almenningur í landinu og aðr-
ir geti lagt sitt af mörkum.“__
- Er þetta farið að skila sér?
„Já, það hafa æði margir komið á
kosningamiðstöðina og lagt fé í
kosningasjóðinn. Einnig finnum við
fyrir áhuga um landið þar sem við
höfum verið. Mér hefur fundist
gaman að hitta nokkuð marga aldr-
aða íslendinga sem hafa sagt frá því
að hafa lagt í kosningasjóð Ásgeirs
Ásgeirssonar, Kristjáns Eldjárns,
Vigdísar Finnbogadóttur og nú vilj-
að leggja í minn sjóð.“
Öll gerum við
einhver mistök
- Telurðu eitthvað í þinni for-
tíð sem stjórnmálamanns sem
gæti skaðað þig sem forseta?
„Nei, það held ég ekki. Aður en ég
tók þessa ákvörðun velti ég því fyr-
ir mér hvort störf mín frá fyrri tíð
kynnu að skapa einhverja érfið-
leika. Ég var sannfærður um að það
væri ekki að minni hálfu. Spuming-
in væri hvort það myndi vera í
huga þjóðarinnar. Auðvitað gerum
við öll einhver mistök í okkar störf-
um. En ég tel ekki að mín séu þess
eðlis að það eigi að vera mér hindr-
un. “
Yfirheyrsla
Bjöm Jóhann Bjömsson
- Sæmir það þjóðhöfðingja að
hafa f sinni þingmannstíð sagt
forsætisráðherra búa yfir skít-
legu eðli?_____________________
„A vettvangi stjómmálanna faUa
oft á tíðum orð í hita leiksins, það
er eðli stjómmálabaráttu og þannig
var í þessu tilviki. Þau hafa hins
vegar ekki haft þau áhrif að við
Davíð Oddsson höfum ekki getað átt
góðar samræðustundir eða starfað
saman að sameiginlegum verkefn-
um. Það gerðum við bæði áður fyrr,
þegar ég var fjármálaráðherra og
hann borgarstjóri, og á síðari ámm
eftir að ummælin féllu. Á undan-
fömum mánuðum hef ég m.a. í um-
boði hans og borgarstjóra verið að
vinna að undirbúningi hátíðarhalda
í tilefhi af 10 ára afmæli leiðtoga-
fundarins i Höföa. Ég tel að ummæl-
in muni ekki skapa erfiðleika í sam-
starfi okkar Davíðs.“
Erfiðasta ákvörðunin
- Nú áttir þú sem fjármálaráð-
herra stóran þátt f því að setja
umdeild bráðabirgðalög á opin-
bera starfsmenn sem höfðu m.a. í
för með sér að kjör þeirra rým-
uðu. Telurðu þig hafa stuðning
þeirra í dag?__________________
„Þessi ákvörðun var einhver sú
erfiðasta sem ég hef nokkurn tím-
ann þurft að taka. Þeir tveir kostir
sem við mér blöstu vom báðir á
þann veg að það var ekki hægt að
ná niðurstöðu þannig að hún yrði
talin farsæl. Annars vegar að láta
kjarasamninginn standa og hleypa
þjóðinni inn í gamla tíma óðaverð-
bólgu og efnahagslegs óstöðugleika
og hins vegar að breyta samningn-
um á þann hátt sem gert var og
reyna að varðveita það sem okkur
var að takast að skapa í fyrsta sinn
í áratugi; efnahagslíf án verðbólgu
og með stöðugleika. Ég taldi að þeir
hagsmunir væm mikilvægari en
hinir. Ákvörðunin var sömuleiðis
erfið þvi ég gerði mér grein fyrir
því að ég myndi bera hana með mér
alla ævi.“_____________________
- I tíð þinni sem fjármálaráð-
herra varstu gagnrýndur fyrir
kaup á gagnagrunni, sem lítið
gagnaðist fyrir rfkið, og skulda-
bréf af hinu gjaldþrota fyrirtæki
Svörtu og hvítu og nánast gefið
Þormóð ramma. Þú óttast ekki
upprifjun á þessum málum í
kosningabaráttunni?____________
„Sjálfsagt munu einhverjir reyna
að gera það, eins og dæmi hafa sýnt
í blöðum. Þessi mál em ólík í eðli
sínu. Hvað Svart á hvítu varðar þá
var það mál hluti af kerfi sem haföi
tíðkast um árabil í fjármálaráðu-
neytinu, að ríkið gekk ekki að fyrir-
tækjum vegna skulda heldur reyndi
að veita gjaldfresti til að leyfa þeim
að starfa sem lengst. Ég sannfærðist
um það eftir nokkum tíma í fjár-
málaráðuneytinu að þetta kerfi var
rangt. Þannig að ég tók þá ákvörðun
á öðra ári mínu í ráðuneytinu að
leggja þetta kerfi niöur. Varðandi
Þormóð ramma þá var um að ræða
fyrirtæki sem ríkið haföi tapað á
hundruðum milljónum um árarað-
ir. Það var skynsamlegt fyrir ríkið
að selja það öðrum, bæði til að
tryggja fyrirtækið í sessi og efla at-
vinnulíf á Siglufirði. Reynslan sýnir
að þetta er einhver árangursríkasta
aðgerð sem gerð hefur verið i að
breyta rikisfyrirtæki í einkafyrir-
tæki. Hún hefur tekist með þeim
hætti að atvinnulífið á Siglufirði
hefur aldrei verið traustara í 30 ár.“
- Eftir því var tekið á Alþingi
siðustu mánuðina áður en þú tU-
kynntir framboð að þú lést lítið á
þér bera, ekki sist í umdeildum
málum, sitjandi í stjórnarand-
stöðu. Varstu búinn að ákveða
framboð strax í haust?“_________
„Nei, það er víðs fjarri. Astæðan
fyrir því að ég hagaði störfum mín-
um í þinginu á annan hátt en áður
var einfaldlega fólgin í þeim þátta-
skilum sem urðu í mínu lífi þegar
ég lét af forystu í Alþýðubandalag-
inu. Ég ætlaði mér ekki að vera
ökumaður sem sæti í aftursætinu
og héldi áfram að stýra. Það væri
eðlilegt að skapa nýrri forrystu
svigrúm til að gera sig gildandi.“
Þjóðin sækir sér forseta
- Fylgi við þig hefur mælst allt
yfir 70 prósent í undanförnum
skoðanakönnunum. Hvemig
skýrirðu þetta mikla fylgi?_____
„Skýringin er ef til vill sú að
hvað sem líður vangaveltum fjöl-
miðla eða forystumanna í þjóðfé-
lagsmálum þá sé þið samofið vitund
þorra íslendinga að hver og einn
beri persónulega ábyrgð á þvi að
TClja forseta. Með ákveðnum hætti
hafi sú skoðun myndast hjá fólki að
þjóðin sæki sér forseta inn á ákveð-
ið svið. Þjóðin sótti forseta á svið
þjóðmála þegar Ásgeir Ásgeirsson
var valinn, hún sótti hann í Þjóð-
minjasafhið þegar Kristján Eldjárn
var valinn og hún sótti hann í heim
menningar og lista þegar Vigdís
Finnbogadóttir var valin. En hvert
sem þjóðin sækir forsetann þá bygg-
ist það fyrst og fremst á einstakling-
um og eiginleikum hans til að axla
þessa ábyrgð. Það er enginn vett-
vangur í okkar þjóðfélagi sem í
sjálfu sér elur menn upp til að vera
forseti. Heldur er það hið persónu-
lega samband þjóðarinnar annars
vegar og einstaklinganna sem i
framboði em hins vegar sem ræður
úrslitum. Menn fæðast ekki sem for-
setar á íslandi, sem betur fer.“
- Verði af ffamboði Jóns Bald-
vins, óttastu að það eigi eftir að
spilla fyrir þinu framhoði?_____
„I ljósi minnar eigin reynslu þá
tel ég að sérhver einstaklingur,
hvort sem það er Jón Baldvin eða
annar, eigi sjálfsagðan rétt að fá að
vega það og meta ásamt fjölskyldu
sinni hvort hann eða hún tekur
ákvörðun um að fara í framboð. Það
er á engan hátt við hæfi að ég eða
aðrir séu að fjalla um það. Ég mun
hins vegar hafa það að leiðarljósi
gagnvart öllum frambjóðendum, að
ég lít ekki á þá sem mótframbjóð-
endur mina heldur meðframbjóð-
endur í því sameiginlega verkefni
íslensku þjóðarinnar að velja sér
forseta.“_______________________
- Fagnarðu þá framboði Jóns
Baldvins?_______________________
„Eg tek enga persónulega afstöðu
til þess eða annars framboðs. Það er
hvorki sæmandi né eðlilegt í mín-
um huga.“_______________________
-Ertu sigurviss?_____________
„Eg hef ekki metið hlutina með
þeim hætti. Hins vegar þykir mér
mjög vænt um þann mikla stuðning
sem fram hefur komið, sérstaklega
breiddina í þeim stuðningi. Ég tek
þeim örlögum sem úrslit kosning-
anna munu fela í sér, hver svo sem
þau kunna að verða.“ -bjb