Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Page 21
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 21 Viö skiptum við n SPARISJQÐ VELSTJORA Borgartúni 18,105 Reykjavík sími 552 5252 Síðumúla 1,105 Reykjavík sími 588 5353 Rofabæ 39,110 Reykjavík sími 567 7788 Frá vél vieðingu... Þegar vélvæðing fiskibáta hélt innreið sína á íslandi varð starfsstéttin vélstjóri til sem í upphafi tengdist aðeins vélrænum búnaði bátanna. Nú er öldin önnur, bátarnir hafa breyst í tæknivædd hafskip með margþættum búnaði. Störf vélstjóranna hafa jafnframt orðið flóknari og fjölbreyttari, menntun þeirra margfaldast og hluti þeirra ber nú starfsheitið vélfræðingur. il vélfrœðings Starfssvið vélfræðinga vex stöðugt með aukinm vélvæðingu þjóðfélagsins. Vélfræðingar eru hámenntaðir með sérþekkingu á öllu því sem varðar háþróaðar vélar og tölvuvæddan tæknirekstur nútímans. Atvinnurehendur! Nánari upplýsingar veitir: Vanti ykkur traustan starfsmann með víðtæka sérmenntun á tæknisviði, bæði bóklega og verklega, þá eru þið að leita að vélfræðingi. /imfe Vélstjórafélag ÆyS| Islands Borgartúni 18,105 Reykjavík Sími: 562-9062 Síríus frá Kílhrauni vann mesta afrek kynbótasýningar í Noregi og fékk 9,5 fyrir skeið. Knapi er Aðalsteinn Aðalsteinsson. DV-mynd EJ Lélegri útkoma í Noregi en Danmörku „Útkoman var frekar döpur, tví- mælalaust lélegri en í Danmörku, eins og við var að búast,“ segir Kristinn Hugason hrossaræktar- ráðunautur um kynbótahrossadóma í Noregi nýlega. Kristinn og Víkingur Gunnarsson fóru frá íslandi aö dæma en Per Kol- næs dæmdi með þeim. Ekki var stuðst við nýja einstaklingsdóma- kerfið sem var tekið upp á íslandi í vor því þeir dæmdu saman í vinnu- hópi. Kynntir voru stóðhestarnir Kol- grímur frá Kjarnholtum, Spænir frá Efri Brú, Mozart frá Garðabæ og Hvinur og Heljar frá Vatnsleysu, sem hafa verið keyptir frá íslandi. Helsta afrek sýningarinnar vann Síríus frá Kílhrauni sem fékk 9,5 fyrir skeið. Aðalsteinn Aðalsteins- son sýndi Síríus. Átján hryssur, sex vetra og eldri, fengu fullnaðardóm og fimm þeirra 7,50 1 aðaleinkunn eða meira. Hæst stóð Harpa frá Hofsstöðum undan Þengli frá Hólum og Rauðku frá Hofsstöðum en hún fékk 7,93 fyrir byggingu, 7,74 fyrir hæfileika og 7,83 í aðaleinkunn. Ein fimm vetra hryssa fékk fullnaðardóm og 7,08 í aðaleinkunn og önnur í fjögurra vetra flokki fékk 6,59 í aðaleinkunn. Einungis einn af þeim ellefu stóð- hestum sem fengu fullnaðardóm fékk hærri aðaleinkunn en 7,75. Það var fimm vetra hesturinn Þyrill frá Miðfossum undan Klið frá Miðsitju og Gýgju frá Miðfossum. Hann fékk 8,03 fyrir byggingu og 7,67 fyrir hæfileika og 7,85 í aðaleinkunn. í sex vetra flokknum stóð efstur Hrani frá Skryseth með 7,73 í aðal- einkunn og í fjögurra vetra flokkn- um Skorri frá Kílhrauni með 7,52 í aðaleinkunn. E.J. Toyota Hilux extra cab ‘91, dísil, ek. 97 þús. km. Verð 1.550.000. í 20 ARA 1976-1996 Dodge Neon Sport ‘95, ek. 30 þús. km. Verð 1.550.000. Hyundai Pony LS ‘93, ek. 40 þús. km. Verð 720.000. Cherokee Laredo Superstar ‘90, ek. 65 þús. km. Verð 1.650.000. BÍLASALAN BRAUT HF. Borgartúni 26 S. 561-7510 og 561-7511 Fax 561-7513

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.