Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Qupperneq 47
UV LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 fréttir Ragnar Guðjónsson og Björn Hansson keyptu stolna miða á úrslitaleik Manchester United og Liverpool um enska bikarinn á Wembley. DV-mynd E.J. Ragnar Guðjónsson í ævintýrum á bikarúslitaleiknum á Wembley: Keypti stolinn miða fyrir 51 þúsund krónur - var hent út af leiknum en tókst að fá nýjan miða og fór aftur inn „Þetta var alveg hroðalegt. Þegar við ætluðum að komast í sætin okk- ar var okkur sagt að miðarnir væru stolnir og okkur var hent út,“ segir Ragnar Guðjónsson, knattspyrnuá- hugamaður frá Grenivík, eftir sögu- lega ferð á úrslitaleikinn í ensku bikarkeppninni á Wembley um síð- ustu helgi. Ragnar keypti far utan hjá Sam- vinnuferðum/Landsýn og greiddi fyrir 38 þúsund krónur. Hjá ferða- skrifstofunni fékk Ragnar einnig miða á leikinn og kostaði hann 51 þúsund krónur. Hjá Samvinnuferðum/Landsýn fékk Ragnar þær upplýsingar að hann gæti nálgast miðann hjá milli- göngumanni á Wembley skömmu fyrir leik. Það gerir hann og fær miðann. Með honum var einnig ís- lendingurinn Björn Hansson, sem fengið hafði miða í happdrætti og átti að ná í hann hjá sama milli- göngumanni. Sælir og glaðir hyggjast þeir fé- lagar nú sjá leik Manchester United og Liverpool en lítið varð úr skemmtun fyrsta kastið því þeir komust aldrei alla leið í sæti sín áður en þeim var hent úr og sagt að miðunum hefði verið stolið og væru þeir ógildir. Björn og Ragnar fóru nú aftur á fund mOligöngumannsins og kröfðu hann um gilda miða. Hann sagðist láta þá fá sína miða og reyndust þeir ósviknir. Komust Ragnar og Björn þá inn en misstu af upphafi leiks. Ragnari þótti þó nokkur sára- bót að „rétta liðið vann“. Ragnar og Björn voru ekki einu aðdáendurnir sem lentu í erfiðleik- um með miðana sína því hópur Suð- ur-Afríkumanna fór mörg þúsund kílómetra til að sjá leikinn en fékk þær fréttir í Englandi að miðarnir þeirra væru stolnir og þeir kæmust ekki inn. Hjá Samvinnuferðum/Landsýn fengust þær upplýsingar að um- ræddir miðar hefðu verið fengir hjá traustum milligöngumanni. Til þessa hefði hann aldrei brugðist og í þessu tilviki hefði hann útvegað gilda miða. „Okkur þykir þetta leitt en það er erfitt fyrir okkur hér á íslandi að tryggja að miðar sem við fáum hjá ábyggilegum aðilum séu gildir. Hér hefur hann lent í að kaupa stolna miða en hann bætti tjónið þegar í stað og það er fyrir mestu,“ sagði Helga Ólafsdóttir hjá íþróttadeild Samvinnuferða/Landsýnar. -E.J./-GK Heimsfrumsýning á Cartwright Skipað hefur verið í helstu hlutverk í nýju leikriti Jims Cartwrights, Stone free, sem Leikfélag íslands og Leikfélag Reykjavíkur sýna í júlí. Þetta verður heimsfrumsýning á verkinu. Með hlutverkin fara Ingvar Sigurðsson, Eggert Þor- leifsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Emilíana Torrini, Daníel Ágúst Haraldsson, Kjartan Guðjónsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og Gfsli Rúnar Jónsson. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson og tónlistarstjóri Jón Ólafsson. Hér eru aðstandendur sýningarinnar samankomnir en þess má geta að áheyrnarpróf vegna aukahlutverka fara fram í Borgarleikhúsinu um helgina. -bjb/DV-mynd ÞÖK Forsetaframbj óðendur: Me5 heimasíöur á Internetinu Síldin farin úr lögsögunni DV, Seyöisfiröi: SUdveiðin glæddist á ný síðastlið- inn sólarhring eftir nokkuð mis- jafnt gengi síðustu daga. Síldin hef- ur nú gengið norður á bóginn og er komin út úr íslenskri lögsögu að sinni. Þar fannst hún í nokkru magni á 70 80 mUna kafla í vikunni sem leið. SUdin hefur verið á töluverðu flakki fram og aftur enda verið í ætisleit. Hún er farin að fitna nokk- uð og sUdin, sem veiddist í fyrr- inótt, er að sögn stærri og bústnaðri en við upphaf veiðanna. SR-mjöl hafði tekið á móti 8000 tonnum 16. maí. -JJ Dagfari GK siglir að löndunarbryggju SR-mjöls. Hann kom með fullfermi og sögðu skipverjar að veiðihorfur væru mjög vænlegar. DV-mynd JJ Slökkviliðsmenn verða að vera í fínu formi og þess vegna sækja þeir reglu- lega líkamsræktina Mátt. Á dögunum varð árekstur tveggja bíla í næsta ná- grenni stöðvarinnar einmitt þegar slökkviliðsmenn voru þar við æfingar. Stukku þeir þegar út þegar eldur kom upp í öðrum bílnum. Eins og myndin ber með sér gafst ekki öllum færi á að fara í brækurnar. DV-mynd S Allir væntanlegir forsetafram- bjóðendur nema Guðmundur Rafn Geirdal hafa nýtt sér nýjustu tölvu- tækni og sett upp heimasíður á Internetinu þar sem framboði þeirra er hægt að kynnast nánar með alls kyns upplýsingum. Að auki eru þeir flestir með netföng fyrir tölvupóst. Guðrún Agnarsdóttir er með svo- hljóðandi veffang: http://www.saga.is/Gudrun. Agn- arsdottir Netfang Guðrúnar A. er: gudrun.agnarsdottir@saga.is Guðrún Pétursdóttir er með eftir- farandi veffang: http://www.mmedia.is/gudrun- petursdottir Netfang Guðrúnar P. er: gudrunp@mmedia.is Ólafur Ragnar Grímsson er með veffang sem hljóðar svo: http://www.centrum.is/olaf- ur.ragnar Netfang Ólafs Ragnars var ekki komið þegar þetta var ritað én var væntanlegt. Pétur Kr. Hafstein er með eftirfar- andi veffang: http://www.centrum.is/hafstein Netfang Péturs er: petur.kr.hafstein@centrum.is Að lokum skal látið fylgja með símanúmer hjá Guðmundi Rafni Geirdal sem er 587-8921 eða -22. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.