Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1996, Side 56
!■. —i o KÍN 1. Vertu vtífbúin(n) uinningi FRÉTTASKOTI0 r c E E s <a SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 18. MAÍ1996 Stjórnsýsluúttekt: Utanríkisráðu- neytið vantar festu Ríkisendurskoðun hefur skilað skýrslu um stjómsýsluendurskoðun á utanríkisráöuneytinu sem hófst í árslok 1994 að beiðni þáverandi ut- anríkisráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar, en tilefnið var mannaráðningar og, starfshæfni ráðuneytisins sem rhvort tveggja sætti harðri gagnrýni á þeim tíma. Ríkisendurskoðun kömst m.a. að þeirri niðurstöðu að ekki hafi gætt nægjanlegrar festu hjá ráðuneytinu í framkvæmd atriða sem snerta innri málefni ráðuneytisins. Þá tel- ur Ríkisendurskoðun að mikilvægt sé að ákveðin festa ríki í samskipt- um ráðherra og embættismanna og að þau fari í gegnum yfirstjórn ráðuneytisins, þ.e. ráðuneytisstjóra og skrifstofustjórana. Á það hafi skort. -SÁ Ungverska stúlkan: Lést samstundis Talið er að ungverska stúlkan Angéla Cseho hafi látist samstundis þegar hún hrapaði í hlíðum Búrfells fyrir hálfum mánuði. Hún virðist hafa klifrað upp í klettabeltið og hrapað nokkur hund- ruð metra. Allt bendir til að hún hafi hrapað sama kvöld og hún hafði síðast samband við sambýlis- mann sinn í síma. Það var föstudag- inn 3. maí. -GK Stúlka í vændi: Von um meðferð eftir helgi Góð von er um að stulkan, sem sagði harmsögu sina í heimi eitur- lyfja og vændis í viðtali við DV á miðvikudaginn, komist í meðferð á Vogi á mánudaginn. Hún er 17 ára gömul og hefur verið háð eiturlyfj- um í nokkur ár. Hún hefur áður far- ið i meðferð sem ekki bar árangur. Móttaka á rafgeymum móttökugjald 12 kr7kg iIpHRINGRÁSHF. ENDURVINNSLA bfother tölvu- límmiða- prentari Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443 SAMSKIPTI BRÆOR- ANNA VIROAST FREMUR TRÉNUD! Bræður á Kjalarnesi elda grátt silfur: Spólaði á traktor gegnum trjáræktarbeð - hefnd vegna girðingar sem tekin var niður „Hann ók bara hér inn í trjá- rækt sem ég er með í kringum húsið og skemmdi töluvert mikið, meðal annars ók hann yfir græð- linga og yfir tveggja metra hátt tré sem hann braut niður í mél. Þá ók hann utan i fjölmargar hríslur sem eru um og yfir tveggja metra háar, segir Gunnar Guðbjartsson í Lyngási á Kjalarnesi. Gunnar segir að svo virðist sem ökumaður traktorsins, sem er ná- granni hans og reyndar bróðir, telji sig eiga einhverra harma að hefna því að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem hann ónáði sig. „Ég veit hins vegar ekki til að ég hafi gert honum neitt,“ segir Gunnar sem kallaði til lögreglu eftir ökuferð bróðurins um garðinn og var gerð lögregluskýrsla. Gunnar náöi hluta af ökuferðinni inn á mynd- bandsupptökuvél. Þeir Gunnar og bróðir hans búa báðir i húsum sem eru á jörðinni Króki á Kjalarnesi en Gunnar kveðst vera eigandi jarðarinnar að miklum hluta og eiga m.a. meiri- hluta í húsi því sem bróðirinn, traktorsökumaðurinn, býr í. Þetta er að sögn Gunnars ekki í fyrsta sinn sem bróðirinn ónáðar hann og heimili hans því að gerður hef- ur verið fjöldi lögregluskýrslna vegna margs konar ónæðis, meðal annars símaats sem rakið hefur verið heim til bróðurins. Ólafúr, bróðir Gunnars, sagði Garðurinn að Lyngási á Kjalarnesi þar sem tveir bræður elda grátt silfur. Raskið er afleiðing þess að bróðir húsbóndans á Lyngási ók i gegnum garðinn á traktor til að hefna fyrir girðingu sem tekin hafði verið niður. DV-mynd BGS DV í gær að um væri að ræða ágreining vegna girðingar sem Gunnar rifi niður jafnharðan og hann setti hana upp en þetta mál væri ekki þess eðlis að fara með það í blöðin. Hann sagði að Gunn- ar bróðir sinn ætti ekkert tilkall til jarðarinnar og lands hennar umfram sig en jörðin væri óskipt bú í eigu átta aðila og væri búin að vera í opinberri skiptameðferð undanfarin sjö ár án þess að nið- urstaða hefði fengist. -SÁ Stúlkurnar, sem keppa um titilinn fegurðardrotting íslands á Hótel Islandi 24. maí, brugðu sér til Vestmannaeyja 15. maí. Þar héidu þær blaðamannafund um borð í Herjólfi eftir hringferð um Eyjarnar með skipinu í dásamlegu veðri. Þær voru dagstund í Eyjum og reyndu sig m.a. í sprangi og tókst vel. Þær eru 21, og hver annarri fegurri, sem keppa um titilinn, víðs vegar af landinu. Myndin var tekin um borð í Herjólfi og Heimaklettur í baksýn. DV-mynd Ómar Lyf í Hag- kaupi með haustinu — samstarf við Lyfju „Við erum að setja okkur í stell- ingar og byrja undirbúning. Við hugsum okkur þetta á svipaðan hátt og gert er í stórmörkuðum erlendis þar sem við verðum með afgreiðslu- borð inni i búðinni og lausasölulyf- in verða síðan seld í sjálfsaf- greiðslu," segir Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, en í verslun Hagkaups í Skeifunni mun fólk geta fengið lyf áður en langt um líður. Óskar sagði Hagkaup hafa gert samstarfssamning við eigendur Lyíju og að annar þeirra, Róbert Melax, hefði sótt um lyfsöluleyfið fyrir verslunina og bæri ábyrgð á faglegum þætti rekstursins. Hann sagði Hagkaup ekki koma með nein- um hætti að rekstri Lyfju, hefði ekki gert það og myndi ekki gera það. -sv Veðrið á sunnudag og mánudag: Gola eða kaldi Á sunnudag verður norðaustlæg átt, kaldi og hætt við smáskúrum við ströndina allra austast og við suðurströndina en annars hægari og léttskýj- að víðast hvar. Á mánudag verður austan- og norðaustanátt, gola eða kaldi, skýjað með köflum og hætt við smáskúrum um land allt. Hitinn verður á bilinu 4 til 15 stig, hlýjast í innsveitum suðvestanlands en kaldast við ströndina norðan til. Veðrið í dag er á bls. 61

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.