Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 29
28
LAUGARDAGUR 15. JUNI 1996
LAUGARDAGUR 15. JUNI 1996
Kraftmikil kjarnorkukona í forstjórastól:
Vélstjóri
brunni
„Ég á tvenns konar vinnuklæðnað
- buxnadragt og samfesting - og kem
til með aö halda áfram að nota hann
til skiptis eftir því sem hentar. Mér
liður vel í samfestingnum og það er
þægilegt að geta gengið hvenær sem
er inn í verksmiðjuna. Mér fmnst
eðlilegt að ég sé í sömu fötum og aðr-
ir innan fyrirtækisins. Áður fyrr
gengu yfirmenn ekki í samfestingum
en mér finnst það sjálfsagt. Þetta er
ákveðinn öryggisfatnaður og viö eig-
um að bera sama öryggisbúnað og
aðrir,“ segir nýbakaður forstjóri ál-
versins, Rannveig Rist.
Rannveig hefur verið ráðin for-
stjóri ÍSAL frá og með næstu áramót-
um þar sem Christian Roth, fráfar-
andi forstjóri, hefur óskað lausnar
frá störfum. Fátt hefur vakið jafn
mikla athygli í vikunni og ráðning
þessarar 35 ára kjamakonu sem ekki
hefur farið troðnar slóðir í atvinnu-
lífinu. Rannveig er með 4. stigs vél-
stjórapróf, sveinspróf í vélvirkjun,
B.S.-próf i vélaverkfræði og M.B.A.-
próf í alþjóðaviðskiptum frá San
Francisco. Hún hefur starfaö sem
stundakennari við Háskóla íslands.
Rannveig er einnig formaður stjórn-
ar Lýðveldissjóðs frá árinu 1991.
Rannveig fæddist í Reykjavík 9.
maí 1961. Hún ólst að mestu upp í
Breiðholtinu og starfaði með foður
sínum, Sigurjóni Rist vatnamælinga-
manni, á unglingsárunum. Faðir
hennar lést árið 1994. Móðir Rann-
veigar er María Sigurðardóttir, kenn-
ari við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. Systir Rannveigar er Bergljót
Rist sem er nemi í dýralækningum í
Kaupmannahöfn. Eiginmaður Rann-
veigar er Jón Heiðar Ríkharðsson,
vélaverkfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins. Eiginmannin-
um kynntist Rannveig þegar þau
voru bæði við nám í verkfræðideild-
inni. Þau giftu sig fyrir níu árum og
eiga dætumar Guðbjörgu og Maríu
sem eru sjö og þriggja ára.
„Ég starfa í karlaveldi en öll veldi
bregðast við með mótspymu gegn
innrás. Mér finnst eðlilegt að karl-
menn séu forvitnir og fari hægt í sak-
imar þegar kona ryðst inn á þeirra
svæði. Ég lít ekki á það sem tor-
tryggni eða illvilja. Karlarnir eru
mjög góðir starfsfélagar," segir Rann-
veig.
Rannveig hefur starfað hjá ÍSAL
frá árinu 1990. Hún hefur undanfarin
ár verið deildarstjóri í steypuskálan-
um, annarri af tveimur framleiðslu-
deildum ÍSAL, og talsmaður fyrir-
tækisins. Rannveig kom því í gegn að
aftur var komið á sambandi við fjöl-
miðla. Ekki em fordæmi fyrir því að
kona gegni forstjórastöðu í svo stóm
iðnfyrirtæki hér á landi og ekki vitað
um aðra kvenkyns forstjóra hjá
ÍSAL. Rannveig var ráðin í starfið
vegna hæfileika sinna sem stjórnandi
og skipuleggjandi.
Boðið starf hjá ÍSAL
Aðspurð um launin sagöi Rannveig
alvernu
- saumaði brúðarkjólinn um borð í togara
að það segði sig sjálft að þau kæmu
til með að hækka umtalsvert þegar
hún tæki við forstjórastöðunni. Hún
vill þó ekki nefna neinar tölur.
„Upphaflega var mér boðið starf
hjá ÍSAL. Ég hef ekki sótt fast að fá
þessi störf. Ég var ekki ráðin í for-
stjórastarfið sérstaklega vegna þess
að ég er kona. Það ræður enginn for-
stjóra af þeim sökum. Ég geri mér
fyllilega grein fyrir því að það er
óvanalegt að svo ung kona setjist í
forstjórastól," segir Rannveig.
Rannveig hafði hugsað sér að hasla
sér völl í sjávarútveginum. Hún var
frá byrjun ákveðin í að starfa við
tækni eða vélar og menntaði sig í
samræmi við það.
Kemur til dvranna eins
og hún er klædd
„Rannveig hefur aldrei
farið troðnar
slóðir
neinu sem
hún ger-
ir. Það
kom mér
ekki á
óvart að hún
hlyti for-
stjóra-
stöð-
una
Kvennaskólanum og Menntaskólan-
um við Sund.
Að sögn Sigríðar hefur Rannveig
alltaf átt auðvelt með mannleg sam-
skipti og það hefur átt stóran þátt í
velgengni hennar í starfi. Henni þyki
frami sinn sjálfsagður því vanmeta-
kennd sé ekki til í hennar orðabók.
Hún komi til dyranna eins og hún er
klædd hverju sinni og sé ekkert öðru-
vísi í fjölmiðlum en í hinu daglega
lífi. Hún reykti hvorki né drakk þeg-
ar hún var yngri og var í alla staði
fyrirmyndarunglingur sem foreldr-
amir þurftu ekki að hafa áhyggjur af.
Óð fljót og ár í æsku
Á meðan vinkonur Rannveigar
pössuðu börn óð hún ár og fljót með
föður sínum. Sigríður Árnadóttir seg-
ir að
það
fljót fyrirfinnist vart hér á landi sem
Rannveig hefur ekki séð leið yfir.
„Ég fór í fyrsta sinn yfir Sprengi-
sand þegar ég var nokkurra mánaða.
Pabbi tók mig oft með sér til vinnu
þegar ég var lítil en síðar vann ég
með honum við dýptarmælingar.
Fjallaferðir þóttu meira mál á þess-
um tíma heldur en þær þykja núna.
Mér fannst þetta mjög spennandi
tími. Það var skemmtilegt að kynnast
landinu á þennan hátt því við ferðuð-
umst um allt land saman. Eftir að
hafa unnið með pabba þykir mér eng-
in vinna erfið. Ég áttaði mig ekkert á
því hvað vatnamælingamar voru erf-
iðar fyrr en ég fór á sjóinn. Við
vatnamælingarnar bjuggum við
stundum í bílunum og sváfum úti. Ég
geri lítið að því að fara á fjöll núorð-
ið en get farið að huga að því þegar
stelpurnar mínar verða eldri,“ seg-
ir Rannveig.
Gallalaus
kona?
„Ég man
ekki eftir því
að Rannveig
hafi neina
galla. Hún
er stór-
mynd-
arleg
kona
til
orðs
verinu
höfðu
séð
þetta
fyrir.
Stöðu-
veiting-
in kom
þó fyrr
en búist
var við,‘
segir Sig-
ríður
Árnadóttir,
fréttamaður
hjá Ríkisútvarp-
inu og vinkona
Rannveigar í 23
ár, skólasystir úr
Rannveig
ósamt
vinnufélög-
unum
Helgu Sig-
uröardóttur,
Viggó Mar-
onssyni,
Kolbeini
Sigurjóns-
syni trúnað-
armanni og
Halldóri
Björnssyni.
skemmtileg, glaðlynd og er aldrei
með sorg eða sút. Einnig er hún lið-
tæk prjóna- og saumakona. Hún hef-
ur ekki komist svona langt á frekju
en hún kemst á lipran hátt þangað
sem hún ætlar sér. Hún er mjög
ákveðin og nær yfirleitt því marki
sem hún setur sér. Rannveig blandar
geði við alla, háa sem lága, en býr
ekki í fílabeinsturni," segir Sigríður
Árnadóttir.
Þeir sem kynni hafa haft af Rann-
veigu í gegnum tíðina virðast vera á
einu máli um ágæti hennar. Kjark
hennar og þor ber oft á góma og það
er samdóma álit samstarfsfélaga
hennar að hún sé mjög góður stjórn-
andi, létt í skapi og hlæi hátt og mik-
ið. Lýsingarorð eins og ákveðin,
kjarkmikil og dugleg eru mjög algeng
þegar Rannveigu ber á góma. Sumir
segja að hún geti gert flest það sem
hana langar til. Glaðlyndi og kímni
er þó aldrei langt undan og hún er
oftast nær til í að sprella. Enginn sem
DV ræddi við var tilbúinn að benda á
galla í fari hennar en hún er talin
hörð í horn að taka og lætur engan
vaöa ofan í sig. Að sögn sumra á
Rannveig ekki í vandræðum með að
taka erfiðar ákvarðanir. Hún er sögð
hlý persóna og næm fyrir tilfinning-
um annarra.
„Það er gott að leita til Rannveigar
því maður kemur ekki að tómum kof-
unum þar. Ég tel hana mjög hæfan og
góðan stjómanda og manneskjan á
bak við stjórnandann er einnig góð.
Hún virðist yfirveguð yfir stöðuveit-
ingunni og lætur sér ekki bregða,"
segir Guðbjartur Sigurðsson, formað-
ur starfsmannafélags ísal.
Brautryðjandinn
Úr Menntaskólanum við Sund út-
skrifaðist Rannveig sem stúdent árið
1980. Á sama tíma stundaði hún nám
í Vélstjóraskólanum. Hún er nokkurs
konar brautryðjandi á sínu sviði þar
sem hún varð fyrst kvenna til að taka
sveinspróf í vélvirkjun og fyrsta kon-
an sem gegnt hefur yfirmannsstöðu
hjá íslenska togaraflotanum. Hún
hefur í gegnum tíðina unnið að
mestu með karlmönnum en lítt kom-
ið nálægt störfum í kvennahópi.
Sjö togarar létu úr höfn
án Bannveigar
„Mér gekk illa að fá pláss á sjónum
vegna þess að ég er kona. Sjö togarar
létu úr höfn með vélstjóra með minni
réttindi en ég hafði. Ég held að skip-
stjórar hafi alls ekki áttað sig á því
að ég væri með fullgild réttindi. Ég
átti vísa ráöningu sem háseti eða
kokkur. Vélstjórafélagið útvegaði
mér að lokum pláss sem fyrsti vél-
stjóri á Óskari Halldórssyni. Eftir
það var leiðin greiö og búiö að hrista
nýjabrumið af,“ segir Rannveig.
Höröur Guðbjartsson, skipstjóri á
Guðbjarti ÍS-16, sem réð Rannveigu
til starfa sem fyrsta vélstjóra, segir
hana vera ljóngáfaða og koma mjög
Starfsfélagi Rannveigar, Kolbeinn Sigurjónsson, segir að tankarnir virðist litlir
í samanburöi viö hana. DV-myndir GS
vel fyrir og vera góða í umgengni.
„Rannveig var fyrsti kvenkyns vél-
stjórinn sem ég var með á sjó. Það
kemur mér ekki á óvart að hún skuli
vera komin í þessa stöðu. Hún kemur
áreiðanlega til með að standa sig vel
í þessu starfi. Það kæmi mér ekkert á
óvart að hún yrði forseti þegar aldur
færðist yfir hana. Ég varð ekki var
við að hún hefði neina galla en hún
er dugleg og ábyggileg í starfi. Það er
hægt að treysta henni til alls,“ segir
Hörður.
Saumaði brúðarkjólinn
um borð
„Ég óska henni innilega til ham-
ingju með starfið. Hún er vel að
þessu komin. Ég man sérstaklega eft-
ir því þegar við vorum á Guðbjarti að
hún var að sauma brúðarkjólinn um
borð á frívaktinni. Okkur strákunum
fannst þetta mikið framtak hjá henni
og það var mjög skemmtilegt að fylgj-
ast með,“ segir Hörður. Að sögn
Harðar stóð hún sig prýðilega í vél-
stjórastarfinu. Rannveig segist sjálf
hafa verið lengur á Guðbjarti ef hún
hefði ekki farið að eignast börn og í
framhaldsnám. Rannveig hélt utan til
MBA-náms í San Francisco þar sem
hún nam alþjóðaviðskipti.
„Ég ætlaði að verða skipstjóri en
mér fannst það ekki ganga upp eftir
að ég stofnaði fjölskyldu. Þess vegna
ákvað ég að fara í nám sem gerði það
að verkum að ég gæti unnið í landi
og sinnt fjölskyldunni," segir Rann-
veig.
Rannveig hefur einnig starfað sem
vélvirki hjá Frystikælaverkstæði
Sveins Jónssonar, sem vélvirki hjá
Landsvirkjun og vélstjóri hjá fyrrum
Hraðfrystihúsi Patreksfjaröar.
Fer ekki
í manngreinarálit
Ráðningin kom fáum á óvart í ál-
verinu og starfsmenn voru yfirleitt
ánægðir með að hafa fengið konu í
forstjórastólinn. „Hún getur verið
mjög ákveðin kona þótt hún sé oftast
nær létt. Hún er skemmtilegur félagi
á þorrablótum og öðrum skemmtun-
um og fer ekki í manngreinarálit.
Rannveig kemur til dyranna eins og
hún er klædd. Ég efast ekki um að
hún sé vinsæl meðal þeirra starfsfé-
laga sem hafa kynnst henni og unnið
með henni,“ segir Guðbjartur.
„Mér líkar mjög vel að vinna með
Rannveigu. Hún er góður stjórnandi
og oftast létt yfir henni. Þó getur hún
verið alvarleg á milli eins og góðum
stjórnanda sæmir,“ segir Friðrik
Jónsson, fulltrúi framleiðslu- og áætl-
unardeildar.
Að sögn Guðbjarts kemur Rann-
veig vel fram við starfsmennina.
Hann bendir líka á að án þess að
hann viti það fyrir víst búist hann
við að einhverjir séu á móti ráðning-
unni eins og gerist og gengur i stór-
fyrirtækjum.
Aðspurð hvort hún væri pólitísk
sagðist Rannveig engan áhuga hafa á
því í bili. Hún segist hafa skoðanir
eftir málefnum en alls ekki flokks-
pólitískum og hefur hingað til ekki
upplýst aðra en kjörseðilinn um hvað
hún hefur kosið. Hún hefur ekki til-
einkað sér nein sérstök baráttumál
og segist ekki vera ofstækismaður að
einu né neinu leyti.
Utivera heillar
Rannveig gefur sér tíma til þess að
sinna aðaláhugamáli sínu sem er fjöl-
skyldan.
„Ég er mikið fyrir útiveru og áður
en ég eignaðist börnin ferðaðist ég
mjög mikið. Það er erfiðara að ferð-
ast með lítil börn. Við hjónin erum
eins og allir aðrir að reyna að sam-
ræma vinnu og fjölskyldu. Ég vinn
enga eftirvinnu því mér finnst að
maður eigi frekar að skipuleggja dag-
inn svo vel að maður geti unnið í
vinnutímanum það sem þarf að
gera,“ segir Rannveig.
-em
37
Jónas Kafnar,
alþm. og bankastjóri
Ólafur Ólafsson
landlœknir
Jón Bjarnason,
læknir á
Kleppjárnsreykjum
Ólafur Bjarnason,
hreppstjóri í
Brautarholti
*
Ur frændgarði
Rannveigar Rist
Bjarni Pálsson,
pr. í Steinnesi
Guðrún Jónsdóttir,
húsfr. á Akri í Þingi
Elísabet
Sigurðardóttir,
húsmóðir í Rvík
Sigurður Árnason,
vélstjóri í Rvík
Ingibjörg
Sigurðardóttir,
húsfrcyja í Hænuvík
Ingibjörg Ólafsdóttir,
húsfreyja í Otradal
Sigurður
Sigurðsson
Arni Jónsson,
útvegsb. í Hænuvík
við Patreksfjörð
Jón Guðmundsson
Þuríður Pétursdóttir,
húsmóðir í Reykjavík
Pétur Jónsson,
b. á Brúsastöðum
í Þingvallasveit
Helga Guðmundsdóttir,
húsfr. á Brúsastöðum
væntanlegur
forstjóri Isal
Árni Mathiesen,
alþm. og dýralæknir
Margrét
Sigurjónsdóttir,
húsm. á Akureyri
Siguijón I
áS
Fnjóskadal
Anna Þorkelsdóttir,
húsfr. á Sörlastöðum
Loftur
Guðmundsson
Ijósmyndari
Þorkell Þorkelsson
veðurstofustjóri
Þorkell Pálsson,
b. í Flatatungu
í Skagafirði
Jakobína Jakobsdóttir,
húsfr.
í HvammsvíkíIQós
Ingibjörg
Jakobsdóttir,
ljósmóðir í Botni
Guðbjörg
Guðmundsdóttir,
húsfr. á Valdastöðum
Jakob Guðlaugsson,
b. á Valdastöðum
Sigrún Þorgilsdóttir,
húsm. í Hafnarfirði
Þorgils Guðmundsson,
íþróttakennari í
Reykholti
Jóhann P.J. Rist,
b. í Botni í Eyjafirði
Guðmundur
Sveinbjörnsson,
b. á Valdastöðum, Kjós
Petrina Regína Rist,
húsfr. í Bygggarði
Sveinbjörn
Guðmundsson,
b. í Bygggarði
Jórunn Isleifsdóttir, Björg Gísladóttir, Gísli Björnsson, sjómaður á Bakka í Reykjavík Björn Guðlaugsson,
húsm. í Reykjavík húsm. í Hafnarfirði b. á Bakka
Birgir ísleifur
Gunnarsson
seðlabankastjóri
Sigurður Björnsson,
bæjarvcrkfræðingur
í Kópavogi
Björn Símonarson,
kennari á Hólum
í Hjaltadal
Steingrímur
Baldursson, ,
prófessor við HI
Margrét
Símonardóttir,
húsfr. í Miklabæ
Anna Björnsdóttir,
húsfreyja í Miklabæ
Pálína Björnsdóttir,
Ijósmóðir að
Syðri-Brekkum
Margrét Pálsdóttir,
húsfr. að Hofsstöðum
t
DV