Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 2
'k iz méWr LAUGARDAGTIR 15. JÚNÍ 1996 Ólíkar frásagnir tyrkneskra Qölmiöla af máli Sophiu Hansen og dætranna: Stuttar fréttir Faðirinn er eins og djöfullinn sjálfur - segirH'rj álsly ndu blaði en í öðrum er talað um endanlegan ósigur íslands „Faöirinn er eins og djöfullinn sjálfur,“ sagði í stríösfyrirsögn í tyrkneska dagblaðinu Sabah í gær þar sem sagt var frá réttarhöldun- um í máli Sophiu Hansen og dætra hennar. Blað þetta tekur yfirleitt ekki afstöðu eftir trúarskoðunum og er þekkt fyrir tæpitungulaust tal. Ekki eru allir tyrkneskir fjölmiðl- ar þó svo harðorðir í garö Halims Als. í einu blaða bókstafstrúar- manna er t.d. sagt að systurnar séu nú „loksins hamingjusamar". Það er sagt að fimm ára baráttu sé lokið með endanlegum ósigri íslands. Öll þrjú blöð bókstafstrúarmanna tala um sigur trúarinnar og fóður- ins og nefna ekki að Sophiu var dæmdur réttur til að umgangast dætumar í tvo mánuði á hverju ári. Hin hófsamari blöð fjalla öll ítar- lega um málið og þar er gangur þess fyrir rétti rakinn í smáatriðum. Þar er skýrt dregið fram að Halim hafi ítrekað brotið gegn úrskurðum um umgengni dætranna og Sophiu. Þá er það talið mjög óheiðarlegt af hálfu Halims að koma í réttinn með dætumar slæðuklæddar í stór- um hópi stúlkna þannig að þær væm óþekkjanlegar. í Húrriet, einu stærsta blaöi Tyrklands, er þetta kallað slæðuleikur og þar er spurt: „Hvers konar framkoma er þetta gagnvart börnunum, móðurinni og réttinum?" í fleiri blöðum er framkoma Halims gagnrýnd og einnig látinn í ljós ótti við að hann stingi af með stúlkumar. í bæði Millet og Túrkiye er því spáð að Halim fari í felur þeg- ar komi að því að Sophia fái bömin og þar er skorað á stjómvöld að koma í veg fyrir að slíkt gerist. í Millet er einnig rætt við tvo lög- menn sem segja að málsmeðferð dómarans hafi tæpast verið réttmæt. Þá telja þeir það umtalsverðan sigur fyrir Sophiu að umgengnisréttur í tvo mánuði skyldi viðurkenndur. í frjálslyndari blööunum er einnig lögð áhersla á að á íslandi ríki trúfrelsi og að ekki þurfi að ótt- ast að íslenska kirkjan beiti sér fyr- ir að stúlkurnar verði kristnaðar. Slíkt og þvOíkt þekkist ekki. -GK Utanríkisráðherra: Munum tryggja Sophiu um- gengnisrétt- inn Tveir ungir piltar stálu hjólastól í Þjóðarbókhlöðunni: Þjófarnir myndaðir í öryggiskerfinu - síðast sást til þeirra við Þjóðminjasafnið með stólinn Sophia Hansen. „Viö krefjumst þess að sjálfsögöu að farið verði eftir úrskurði dóm- stóla og tyrknesk. stjómvöld hafa skyldum að gegna í þeim efnum í samræmi við mannréttindasáttmála Evrópu. Viö munum að sjálfsögðu tryggja þann umgengnisrétt sem hún hefur fengið dæmdan," sagöi Halldór Ásgrimsson utanríkisráð- herra í samtali við DV í gær, að- spurður um hver viðbrögð utanrík- isráðuneytisins og stjómvalda yrðu í máli Sophiu Hansen. Halldór er staddur á ráðstefnu um málefni Bosníu og Hersegovínu sem stendur yfir í Flórens á Ítalíu. „Ég fundaöi um mál Sophiu með aðstoðarutanríkisráðherra Tyrk- lands sem er á ráðstefnunni hér í Flórens og hann hefur heitið því að ríkisstjórn Tyrklands muni tryggja að þetta mál fái eðlilega meðferð og úrskurðinum verði fylgt. Það ríkir að vísu einhver óvissa um hvað ger- ist ef málinu verður vísað til hæsta- réttar en ég mun verða áfram í sam- bandi við þennan aðila sem ég má leita til og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að málið sé í eðlilegum farvegi," sagði Halldór. -RR „Það sást síðast til strákanna við Þjóðminjasafnið þar sem þeir voru með hjólastólinn á undan sér. Viö höfum hins vegar myndir af þeim úr öryggiskerfinu," segir Hjalti Jó- hannesson, gæslumaður í Þjóðar- bókhlöðunni, í samtali við DV. Skömmu fyrir hádegi laugardags- ins 8. júní komu tveir pörupiltar inn í anddyri bókhlöðunnar og tóku þar traustataki hjólastól sem þar er hafður viö lyftu til aö auðvelda fótl- uðum aðgang að bókasafninu. Stóll- inn er metinn á um 100 þúsund krónur. Öryggiskerfi er í húsinu og tók það sjálfvirkt myndir af piltunum. Lögreglu er því kunnugt um hvern- ig þeir líta út en enn hafa þeir ekki komið í leitirnar þrátt fyrir eftir- grennslan. Stóllinn er og ófundinn. „Þetta er bara tilgangslaust hrekkjabragð því stóllinn er einskis virði fyrir svona náunga. Það er ekki hægt að koma honum í verö. Það er því óskiljanlegt hvers vegna svona er gert og við mælumst til að Hjalti Jóhannesson, gæslumaður í Þjóðarbókhlöðunni, við öryggiskerfið sem geymir myndir af hjólastólaþjófunum. DV-mynd ÞOK strákarnir skili stólnum," segir arbókhlöðunni. Ólafur Guðnason, húsvörður í Þjóð- -GK Piltarnir koma inn í Þjóöarbókhlöðuna. Annar er greinilega með gleraugu. Hann er hér við stól- inn. Þú getur svaraö þessari spurningu meö þvt aö hringja í síma 9041996. 39,90 kr. mínútan 1 Ástþór Magnússon :JÍ: Quörún Agnarsdóttir 3 Quörún Pótursdóttir 4 Ólafur Ragnar Qrímsson 5 Pótur Hafstein Fomm 904 1996 Hvaða frambjóðanda vilt þú sem forseta íslands? Þetta er dagleg atkvæðagreiösla en ekki skoöanakönnun j rödd FOLKSINS 904 1600 •mmmjrUE 4 V€ Er sýnt of mikið frá EM í knattspyrnu í ríkissjónvarpinu? Karlrembuhlaup Um leið og Kvennahlaup ÍSÍ; verður hlaupiö í Hveragerði á morgun fer fram árlegt Karl- rembuhlaup á vegum ungmenna- félagsins Hamars. í fyrra hlupu 100 karlar. 490 kandídatar Háskóli íslands brautskráir 490 kandidata í Laugardalshöll 17. júní, auk 67 sem lokið hafa viðbótamámi. Athöfhin hefst kl. 13.30 með ræðu rektors. Nýr sigiingastjóri Hermann Guðjónsson, vita- og hafnarmálastjóri, hefur veriö ráöinn forstjóri Siglingamála- stofnunar íslands. Breyttar strætóleiðir Stjórn SVR hefur ákveðið i breytingar á leiðakerfinu frá 15. ágúst nk. Meginbreytingar felast í aukninni ferðatíðni á mestu annatímunum, þ.a. að morgni og síðdegis á virkum dögum og á laugardögum. Forsetaefni í Perlunni JC á íslandi og Rikisútvarpið efna til fundar í Perlunni í dag kj. 14 með forsetaframbjóðend- unum. Fundinum verður útvarp- að beint. Krafa um gjaldþrot Auglýsingastofan Eureka hefur krafist gjaldþrotaskipta hjá Friðarlandi, rekstrarfyrir- tæki Ástþórs Magnússonar for- setaframbjóðanda. Stöð 2 greindi frá þessu. íslenskt efni vestra Bandarísk sjónvai'psstöð hef- ur ákveðið að sýna tíu klukku- stundar langa þætti vikulega í sumar um Island. Myndbær hf. gerði þættina fyrir kennslusjón- varpið SCOLA í Bandaríkjunum í vetur. 1.200 hafa kosið í gær höfðu ríflega 1.200 manns kosið utan kjörfundar hjá sýslumannsembættum landsins vegna forsetakosninganna 29. júni. Samkvæmt Bylgjunni er þetta svipuð kjörsókn og í síð- ustu kosningum. Toyota í útflutningi Toyota, P. Samúelsson, hefur hafið útflutning á sérútbúnum jeppum frá íslandi. Frá þessu er greint í fréttabréfi Útflutnings- ráðs. Sjóður flytur Samvinnusjóður íslands, sem starfar sem fjárfestingarbanki, flytiu' sig um set eftir helgi frá Ingólfsstræti í Sigtún 42. Sumarhús sem útihús Nefnd, sem fjallað hefur um málefni sumarhúsaeigenda, legg- ur til að sumarhús verði í fram- tíðinni skattlögð sem útihús en ekki sem sambærilegar eignir í Reykjavík. Bylgjan greindi frá. Esso veitir styrki Olíufélagið, Esso, hefur ákveð- ið að veita Styrktarfélagi vangef- inna og Vímuvarnarskólanum 1 milljónar króna styrk hvoru. Tvö tonn af smokkum íslendingar fluttu inn 2,2 tonn af smokkum á síðasta ári fyrir 9 milljónir króna. Bylgjan greindi frá þessu. Berlínarflug Flugleiðir hetja áætlunarflug til Berlínar á þriðjudag. Sam- kvæmt Bylgjunni verða Flugleið- ir i samvinnu við flugfélagið LTU um þessa leið. Tennur rifnar úr Tannlæknir, sem deildi við sjúkling sinn um greiðslur, fór til hans á vinnustað og reif úr honum gervitennurnar. Þetta koma fram á Stöð 2 -bjb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.