Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 36
DV augl. Rogna 44 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 JLj’V DV % M ■ w Þú faerð allar upplýsingar um stöðu þína í leiknum og stöðu efstu liðanna í síma 904 1015 Verð 39,90 mínútan Snnviniuilsriir Lmásín 'gjg (PRÓTTADEILD 0enning Menningaróvitar á listahátíð Tónleikar voru haldnir í Háskóla- bíói sl. fímmtudagskvöld. Þar kom fram kanadíski fiðluleikarinn Corey Cerovsek en hann lék einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands. Á efnis- skránni var fiðlukonsert í D- dúr op. 77 eftir Johannes Brahms og ball- etsvítan Eldfuglinn eftir Igor Stra- vinsky. Stjórnandi var Robert Hend- erson. Corey Cerovsek hefur greinilega verið undrabarn. Aðeins níu ára gamall hlaut hann fyrstu verðlaun í kanadiskri tónlistarkeppni og skaut þannig heilum þrjú þúsund hljóð- færaleikurum ref fyrir rass. Samt er hann enginn aulalegur fagidíót eins og oft vill brenna við þegar undra- börn eru annars vegar. Hann er nefnilega virðulegur doktor i stærð- fræði þótt hann sé aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall. Svo er hann líka hinn ágætasti píanóleikari. Nú mætti samt ætla að svo ungur listamaður ætti lítið erindi við grafalvarlegan og háleitan fiðlu- konsertinn eftir Brahms. Það er nefnilega ekki nóg að vera flinkur með fullkomna tækni; tónlistin eftir Brahms krefst mikils listræns þroska sem venjulega kemur ekki fram fyrr en síðar. En Corey Cerov- sek sýndi samt mikinn aga í spila- mennskunni; hver tónn var greini- lega úthugsaður og var útkoman ein- staklega falleg. Að vísu var stemn- Corey Cerovsek. Jara og Einar gera góð kaup! Nú geröu þau Jara og Einar góð kaup. Þau keyptu Siemens þurrkara sem var auglýstur í smáauglýsingum DV síðastliðinn laugardag. Hann er 4ra ára gamall og þau fengu hann á aðeins 26.000 kr. en nýr kostar um 60.000 kr. Þessa dagana eru þau að flytja inn í íbúðina sína og eru byrjuð að koma nýju hlutunum fyrir. Þau vantar enn allt milli himins og jarðar, s.s. séfeborð, borðstofuborð og stóla, hornskáp með gleri, náttborð, bókahillur, þurrkare, vesk, blöndunartœkL eldhúsviftu, standlampa, sjónvarp, örbylgjuofn, blóm o.fl. DV gefur þeim 300.000 kr. í brúðargjöf til að byggja upp framtíðarheimili sitt með hlutum sem þau finna í gegnum smáauglýsingar DV. Þau eiga 214.500 kr. eftir. Hvað kaupa þau nœst? Nú er tími til að selja! Smáauglýsingar 550 5000 ingin eyðilögð þegar fjölmargir menningaróvitar þurftu endilega að klappa á milli þátta en slíkt gerir maður einfaldlega ekki. Verk eins og fiðlukonsertinn eftir Brahms er ein órjúfanleg heild þó hann sé í nokkrum köflum. Ef klappað er á milli þáttanna er eins og klippt sé á þráðinn og áheyrandinn tapar ein- beitingunni. Afleiðingin er sú að flutningurinn fær á sig yfirborðslega blæ. Tónlist Jónas Sen Eftir hlé lék Sinfóníuhljómsveit ís- lands svo Eldfuglinn eftir Stravin- sky. Því miður var túlkun hljóm- sveitarstjórans, Roberts Hendersons, dálítið bragðdauf fyrst framan af og var þá stemningin eins og í sápu- óperu. Eldfuglinn fer óneitanlega hægt af stað en það er samt óþarfí að inngangurinn sé tóm leiðindi. Sem betur fór jókst krafturinn þegar á leið og var margt glæsilega gert. Þetta voru því nokkuð góðir tón- leikar. Kannski var hápunktur þeirra aukalagið sem Corey Cerov- sek lék eftir fiðlukonsertinn, en það var .„Recitatif og Scherzo" eftir Kreisler. Fiðluleikarinn lék þá gamminn geisa og var spilamennsk- an svo yfirgengileg að maður stóð á öndinni. sviðsljós Tom Cruise stígur um borð í þyrluna til að forðast ösina í New York. Tom Cruise í þyrlu í vinnuna Leikarinn og hjartaknúsarinn Tom Cruise er orðinn hundleiður á allri umferðinni í New York og nennir ekki að leggja á sig að keyra í vinnuna á morgnana. Hann hefur heldur betur fundið upp á betri lausn sem felst í því að ferðast í þyrlu í vinnuna. Tíminn er að sjálf- sögðu dýrmætur fyrir stórleikarann en hann vinur að gamanmynd Jerry McGuire. Cruise halaði inn sex milljónir Bandaríkjadala fyrir hlut- verk sitt í Mission Impossible. Það er því ekki spuming um peninga hvort Cruise getur farið með þyrlu í vinnuna. Tom Cruise og eiginkona hans, leikkonan Nicole Kidman, gerðu með sér samning þegar þau ættleiddu börnin tvö aö einungis annað þeirra ynni í einu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.