Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 15. JUNÍ 1996
43
iiyiglingaspjall
Helgi, Ingólfur og Tinna í badmintonmaraþoni:
Safna fé til að
æfingabúðir
„Við ætlum að fara til Danmerkur í æfingabúðir og efn-
um því til badmintonmaraþonkeppni til þess að safna fyr-
ir ferðinni með áheitum," segir Helgi Jóhannesson, 13 ára
verðlaunahafi í badminton í sínum aldursflokki, í samtali
við DV.
Helgi kynnti ásamt félögum sínum Ingólfi Þórissyni, 14
ára, og Tinnu Gunnarsdóttur, 13 ára, badmintonmaraþon-
keppni sem fyrirhuguð er í dag og á morgun í TBR. EUefu
krakkar í Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur halda
maraþonið í 32 klukkustundir til þess að safna fyrir ferð til
Danmerkur þar sem þau hyggjast dvelja í æfingabúðum í
eina viku. Um er að ræða þá krakka sem fremstir eru á
landsvísu í badminton.
„Hópurinn verður ásamt kennara í æfingabúðunum í
viku en síðan verðum við einhverja daga í Kaupmanna-
höfn. Það var eiginlega tilviljun að ég fór að æfa badmin-
ton. Pabbi og mamma settu mig á námskeið þegar ég var
fimm ára og mér fannst þetta svo gaman að ég byrjaði að
æfa á fullu,“ segir Helgi.
Krakkarnir leggja öll á það áherslu að íþróttin sé
skemmtileg og það hafi mikið að segja fyrir íþróttina að
komast í æfingabúðir einu sinni á ári. Þau telja einnig að
þeir sem stundi íþróttir haldi sig frekar frá því að reykja
og drekka og þyki neysla vímuefna fáránleg. Þau eru öll
sammála um að það sé mjög skemmtilegt að dvelja í æf-
ingabúðunum.
„Systir mín plataði mig til að fara að æfa badminton og
mér fannst svo gaman að ég fór að æfa á fullu fyrir fimm
árum. Maður verður háður því að spila badminton. Ég fór
í fyrra í æfingabúðir og ég bætti tæknina talsvert," segir
Ingólfur Þórisson, 14 ára badmintonleikari.
„Ég byrjaði á stuttu sumarnámskeiði þegar ég var fimm
ára og fannst þetta svo gaman að ég hélt áfram að æfa,“ seg-
ir Tinna Gunnarsdóttir, 13 ára badmintonleikari.
-em
Helgi, Ingólfur og Tinna eru á leið til Danmerkur í æfingabúðir til þess að bæta
tækni sína í badminton.
Demi Moore óttast að dætrum henn-
ar verði rænt.
Demi Moore
óttast
mannræningja
Leikkonan Demi Moore lifir í ei-
lífri hræðslu við mannræningja.
Sem hæst launaða leikkona
Hollywood veit hún að líf þriggja
dætra hennar gæti verið freisting
fyrir sjúkar manneskjur í Los Ange-
les.
Hræðsla Demi jókst frekar eftir
að hún lék á móti Alec Baldwin í
kvikmyndinni The Juror en þar
leikur hún konu sem verður fyrir
ónæði af brjáluðum manni.
Bruce Willis, eiginmaður hennar,
gerir einnig allt til þess að vernda
dæturnar. Hann kom sér í ónáð í
Englandi þar sem hann átti að vera
á kvikmyndahátíð en vildi fremur
verja tímanum meö ijölskyldunni í
New York.
m hliðin.
Ætla að mennta mig og stofna fjölskyldu
- segir Sólveig Lilja Guðmundsdóttir, fegurðardrottning íslands
Sólveig Lilja Guðmundsdóttir er nítján ára Njarðvík-
urmær sem var á dögunum kjörin fegurðardrottning
íslands 1996. Hún varð hlutskörpust í stórum hópi
friðra snóta og bjóst alls ekki við því að vinna. Hún
sýnir nú á sér hina hliðina.
Fullt nafh: Sólveig Lilja Guðmundsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 30. desember 1976.
Unnusti: Kristján Ásgeirsson.
Böm: Engin.
Bifreið: Peugeot.
Starf: Er starfandi í Suðumes hf.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Fara út að borða og kynnast nýju
fólki.
Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói?
Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Vera í góðra vina hópi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér
finnst leiðinlegast að rífast.
Uppáhaldsmatur: Rjómalagað pasta með
hvítlauksbrauði.
Uppáhaidsdrykkur: Egils appelsín.
Hvaða íþróttamaður stendur fremstur
í dag, að þínu mati? Teitur Örlygsson.
Uppáhaldstímarit: Vikan.
Hver er fallegasti maður sem þú
hefur séð, fyrir utan kærastann?
Pabbi.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest aö
hitta? Michael Jackson.
Uppáhaldsleikari: Robert de Niro.
Uppáhaldsleikkona: Meg Ryan.
Uppáhaldssöngvari: Björk.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Það er
enginn stjórnmálamaður í uppáhaldi.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi í Tomma og Jenna.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Þáttur Dav-
id’s Letterman.
Uppáhaidsmatsölustaður: Ítalía.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Enga sérstaka eins og er.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best?
FM 95,7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Helgi á Bros-
inu 96,7. Sóiveig Lilja
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Stöð 2.
, Uppáhaldssjónvarpsmaður: Siggi Hall.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
UMFN.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur: Astró.
Stefnir þú að ein-
hverju sérstöku í
framtíðinni? Mennta
mig og að stofna íjöl-
skyldu.
Ég ætla að vinna,
ferðast og búa mig
undir keppnina um
ungfrú Evrópu.
-em
Guðmundsdóttir er fegurst kvenna á Islandi árið 1996.
Eric Cantona:
Óska félögunum
góðs gengis
Fótboltakappinn frægi, Eric Cant-
ona, vill gjarnan njóta sveitasæl-
unnar með fjölskyldunni í Ölpunum
þegar hann á frí frá hinum harða
heimi knattspyrnunnar í Englandi.
Á ýmsu hefur gengið í lífi kappans,
nú síðast hefur það efalaust valdið
honum vonbrigðum að fá ekki að
leika með franska landsliðinu í Evr-
ópukeppninni í knattspyrnu. Cant-
ona neitar því þó með öllu og segist
óska félögum sínum alls hins besta.
„Ég er ekki skelfingu lostinn. Ég
er kominn yfir það. Og ég óska fé-
lögum mínum í franska liðinu góðu
gengi í Evrópukeppninni. Að öðru
leyti er þetta eins og að standa uppi
á þaki í New York, horfa niður og
sjá fullt af litlu fólki gangi hjá,“ hef-
ur þessi þrítugi knattspyrnumaður
sagt í viðtali við erlend blöð.
Cantona kemur úr stórri og sam-
heldinni fjölskyldu I Frakklandi en
býr með eiginkonu sinni, Isabelle,
og tveimur börnum, Raphael og Jos-
ephine, í Bretlandi enda leikur
hann með Manchester United. Hann
segist elska Frakkland og fara þang-
að eins oft og hann getur enda ekki
nema klukkutíma ferð til Parísar
með flugi.
Cantona hefur valdið miklu um-
tali fyrir framgöngu sina á fótbolta-
vellinum. Hann segir að það hafi
ekki háð fjölskyldu sinni fram aö
þessu en auðvitað hafi lífið stund-
um reynst erfitt. Fjölskyldan hafi þó
staðið vel við bakið á sér, hann hafi
stöðugt áhyggjur af þeim og þau
sjálfsagt af honum.
Eric Cantona fer með fjölskyldunni í frí þegar illa gengur á knattspyrnuvell-
inum. Hann vill þó ekki viðurkenna að sér svíði að hafa ekki verið valinn í
franska liðið fyrir Evrópumeistaramótið í knattspyrnu.