Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1996, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 15. JUNÍ 1996
#éfí/r
Kjarasamningar vegna Hvalfjarðarganga stranda á launatöxtunum:
Viljum aukagreiðsl-
ur inn í taxtann
- segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins
„Vinnuveitendasambandið vill
gera við okkur kjarasamning til
verkloka Hvalfjaröarganga, sem eru
3 ár. Við gerum það ekki nema að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Við höfum líka sagt, og það er yfir-
lýst stefna hjá okkur, að við munum
ekki undirrita kjarasamning þama
fyrr en launataxtar verða færðir að
greiddum launum að minnsta kosti.
Hvers konar yfirborgamir, uppbæt-
ur og eingreiðslur, sem nú tíðkast,
verði færðar inn í sjálfa launataxt-
ana. Hvað varðar Rafiðnaðarsam-
bandið verða engir kjarasamningar
undirritaðir fyrr en þetta hefúr ver-
ið gert. Enda þótt Vinnuveitenda-
sambandið hafi fært sig nær okkar
tillögum varðandi kjarasamninga
við gerð Hvalfjarðarganga í seinna
tilboði sínu vantar enn mikið upp á
að sambandið nálgist okkur hvað
launataxta varðar,“ sagði Guðmund-
ur Gunnarson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, í samtali við DV.
Þeir aöilar sem koma nærri
gangagerðinni em sammála um að
gera sérstaka kjarasamninga vegna
þeirra. Stéttarfélögin sem þama eiga
aðild að samræmdu kröfúr sínar og
sendu til Vinnuveitendasambands-
ins. Það svaraði síðan með gagntil-
boði sem verkalýðsfélögin sögðu að
væri óviðunandi. VSÍ gerði síðan
annað tiiboð síðastliðinn fimmtudag.
„í síðara tilboðinu nálgast þeir
okkur umtalsvert. Þar á ég við at-
riði hvað varðar aðbúnað á vinnu-
stað, vaktir og annað því um líkt.
Eins hefur verið tekist á um hvort
þarna sé um venjulegar byggingar-
framkvæmdir að ræða eða hvort
um er að ræða sértæka byggingar-
vinnu þar sem þarf að greiða sér-
stakar álögur fyrir erfiðustu og
hættulegustu störfin. En þeir eru
enn víðs fiarri því sem við getum
sætt okkur við hvað launin varðar,“
sagði Guðmundur Gunnarsson.
-S.dór
Körfuknattleikur:
Teitur með
tilboð frá
Grikklandi
Teitur Örlygsson, besti körfu-
knattleiksmaður íslands, hefur
fengið óformlegt atvinnutilboð frá
grisku 1. deildar félagi um að leika
með því á næsta keppnistímabili.
Gríska félagið hefur skoðað
myndband af landsleik Islands og er
jafnframt að afla sér frekari upplýs-
inga um Teit, samkvæmt heimild-
um DV.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu
og bíð eftir því hvað gerist. Þetta á
að ráðast fljótlega. Gríska deildin er
einhver sú sterkasta í Evrópu og
þar leika fyrrum NBA-stjömur á
borð við Dominique Wilkins. Eftir
að Bosman-dómurinn féll í knatt-
spymunni hafa allar dyr opnast í
öðrum greinum, í þessu tilfelli er ég
ekki talinn sem útlendingur í
Grikklandi, sem er í Evrópusam-
bandinu, og þar með eru möguleik-
amir á að komast í atvinnumennsk-
una mun meiri en áður,“ sagði Teit-
ur í samtali við DV í gær. Grikkir
eru í fremstu röð í evrópskum
körfuknattleik og bæði landslið
þeirra og félagslið hafa unniö Evr-
ópumeistaratitla á undanförnum
árum. Það yrði því mikill heiður
fyrir Teit og íslenskan körfúknatt-
leik ef hann kæmist til gríska fé-
lagsins. -ÆMK/VS
ár haída friðawökur á eftirtöldum stöðum:
LAUGARDAGUR If. JÚNÍ:
REYHAVIK
itingahúsiðArtún, mgnhöfða lf kl. 22:00
ian dansleik meo hljomsveitinm "Furstamir'
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ
hkmni verour blysfór að Keflavíkurkirkju,þar sem
sr. Ólafur OddurJonsson mun flytja friðamgvekju.
Kaffi á könnunni, allir hjartanlega velkomnir.
$SA ST ^
Lögreglan í Reykjavík hefur fengið fjögur ný mótorhjól af gerðinni Kawasaki
1000 og ieysa þau þrjú Harley Davidson hjól af hólmi. Hér er um að ræða
bandaríska útgáfu af japönsku hjólunum og hafa þau að sögn gefið góða
raun vestra. DV-mynd S
Max von
SydQW leikur
á Islandi
í næstu viku hefjast tökur hér á
landi á sjónvarpsseríunni Hestaferð
(Pony Trek) sem er samvinnuverk-
efni íslenska og flnnska sjónvarpsins
og franska kvikmyndafyrirtækisins
Quartier Latin. Þetta er leikin þátta-
röð og eru leikarar af mörgum þjóð-
emum. Þekktastur leikara er sænski
leikarinn Max von Sydow sem er án
efa frægastur norrænna leikara í dag
og er virtur beggja vegna Atlants-
hafsins en leikarar koma frá Finn-
landi, Englandi, Þýskalandi og að
sjáifsögðu eru íslenskir leikarar
einnig með. Leikstjóri er hin finnska
Titta von Martens.
Hestaferð er sex þátta sjónvarpss-
ería sem fjallar rnn nokkra erlenda
ferðamenn sem koma til íslands í
hestaferð og lenda í ýmsum ævin-
týrum og uppákomum. Meðal is-
lensku leikarana eru Edda Heiðrún
Backman, Hilmir Snær Guðnason,
Ingvar E. Sigurðsson og Öm Áma-
son. Max von Sydow er væntanleg-
ur til landsins í ágústbyrjun. -HK
Max von Sydow leikur eitt hlutverk-
ið í Hestaferð.