Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997
Fréttir__________________________________ x>v
Fimm piltar úr hjálparsveit skáta lentu í snjóflóði í Esjunni í gær:
Örvæntingarfullur þegar
ég lá fastur í myrkrinu
- segir Gestur Pálmason, 17 ára, sem grófst um tvo metra niður í flóðinu
„Mér varð litið upp og sá snjóflóð-
ið koma á ofsáhraða. Ég flaug með
því niöur íjallshlíðina og grófst nið-
ur í snjóinn. Þar lá ég fastur í al-
geru myrkri og var örvæntingarfuil-
ur um stund. Síðan heyrði ég í félög-
um mínum vera að grafa fyrir ofan
mig og þá vissi ég að mér var borg-
ið,“ segir Gestur Pálmason, 17 ára
piltur sem grófst um tvo metra nið-
ur í snjóflóði í Grafardal í Esjunni
um klukkan hálfþrjú í gær. Gestur
slapp ómeiddur úr flóðinu en var
kaldur eftir að hafa legið um háif-
tíma grafinn í snjóinn.
Sjö félagar í Hjálparsveit skáta í
Garðabæ voru í æfingarferð þar í
gær þegar stórt snjóflóð fór skyndi-
lega af stað. Fimm piitanna lentu í
snjóflóðinu tókst fjórum að krafla
sig út úr því af sjálfsdáðum en Gest-
ur fór með því hátt í tvö hundruð
metra niður snarbratta brekkuna.
Þrír félagar hans fúndu hann hann
á um tveggja metra dýpi í snjónum
og grófu hann upp.
Piltamir tveir sem lentu utan
snjóflóðsins tilkynntu þegcU- um
slysið. Tilkynningin barst lögreglu
og landhelgisgæslu 20 mínútur fyrir
þrjú og um hálftíma síðar tilkynntu
þeir að maðurinn væri fundinn,
ómeiddur en kaldur. Þyrla landhelg-
isgæslunnar fór af stað og flaug í
um fimm hundruð metra hæð og lét
þá björgunarsveitarmenn síga niður
í flallið en lengra komst þyrlan ekki
sökum lélegs skyggnis og vonsku-
veðurs. Slysstaðurinn var um tvö
hundruð metrum hærra og þurftu
þeir að klífa þangað upp. Um 10
mínútur fyrir fjögur var lagt af stað
niður og pilturinn sem meiddist gat
fljótlega gengið sjálfúr. Þyrlan fór
aftur með lækni til móts við hópinn
og kiukkan rétt rúmlega 6 var til-
kynnt um að mennimir sem lentu í
snjóflóðinu væm komnir niður að
björgunarsveitarbílum viö rætur
fjallsins.
Héldum í vonina
„Við vorum á gangi þama uppi í
fjallinu. Aðstæöur vom orðnar
slæmar, vonskuveður og skyggni
nær ekkert, þannig að við fórum
mjög varlega. Skyndilega fór snjó-
flóðið af stað og við náðum fjórir að
komast upp úr því. Við horfðum á
eftir Gesti þjóta þama niður með
snjónum og þrír okkar fóm strax
niður á eftir honum en hinir þrír
biðu uppi í fjallinu ef eitthvað
myndi henda okkur hina. Ég verð
að viðurkenna að ég var mjög
hræddur um að eitthvað ægilegt
hefði komið fyrir hann en við héld-
um í vonina um að hann væri á lífi.
Við gengum um tvö hundmð metra
niöur og heyrðum þá í snjóflóöaýl-
unni hans. Við byrjuðum að grafa í
snjónum og fljótlega kom höfuð
hans í ljós. Hann bar sig vel ótrú-
lega vel og eftir smástund gat hann
gengið. Ferðin niður gekk ágætlega
og viö vorum mjög fegnir þegar við
komum niður fjallö," segir Jón
Heiðar Andrésson, einn félaganna,
en hann fann Gest og gróf hann upp
úr snjómun.
Þeir félagamir hittust allir í höf-
Félagarnir sex sem tóku þátt f afi grafa Gest upp úr snjónum. Frá vinstri eru þeir Danfel Karlsson, Arnar Þór Emils-
son, Hallgrfmur Örn Arngrfmsson, Ólafur V. Halldórsson, Jón Heifiar Andrésson og Þórhallur Frifijónsson. Þeir eru
allir f Hjálparsveit skáta f Garfiabæ.
DV-mynd S
Fefigarnir Þálmi Gestsson leikari og Gestur Þálmason glaöir eftir afi Gestur
komst lífs af úr snjóflóöinu í Esjunni. Hann lá grafinn í snjóinn um hálftlma
áfiur en honum var bjargafi.
uðstöðvum Hjálparsveitar skáta í
Garðabæ í gærkvöld ásamt fjölda
meðlima sveitarinnar og aðstand-
endúm. Gestur kom síðastur í hús
með foreldrum sínum, eftir stutta
dvöl á slysadeiid, og var honum vel
fagnað.
Félagamir sjö em allir um tvítugt
eða yngri og hafa verið í sveitinni í
2 ár. Þeir hafa allir tekið þátt í snjó-
flóðanámskeiði hjá sveitinni og kom
DV-mynd S
það að góðum notum.
„Það má fyllilega segja að við höf-
um fengið alvöru eldskím í þessu
slysi sem við áttum ekki von á, því
upphaflega átti þetta bara að vera
æfing,“ segir Jón Heiðar.
AIls tóku um 80 björgunarsveitar-
menn á um 20 bílum, fjöldi lögreglu-
manna auk þyrlu landhelgisgæsl-
unnar, þátt í björgunarðageröunum.
-RR
Eignaöist þrjú börn í tveimur lotum á sama árinu:
Brá svakalega
þegar ég frétti
af tvíburunum
- segir Katrín Einarsdóttir, þrítug móöir
Topp-
frammi-
staöa
- segir formaðurinn
„Það var snarræði félaganna
sem bjargaði lífi Gests og ekki síð-
ur snjóflóðaýlirinn sem hann
hafði á sér. Piltamir voru allir í
toppæfmgu og vissu hvemig átti
að bregðast við og gerðu það ná-
kvæmlega rétt í alia staði. Þetta
var toppframmistaða hjá strákun-
um,“ segir Magnús Schmidt, for-
maður Hjálparsveitar skáta í
Garðabæ um frammistöðuna í
snjóflóðinu í gær. -RR
Magnús Schmidt, formafiur Hjálp-
arsveitar skáta f Garöabæ.
DV-mynd S
„Ég verð að viðurkenna við mað-
urinn minn urðum mjög hissa þegar
okkur var tilkynnt í sónarskoðim-
inni að ég væri aftur ólétt aöeins
rúmum tveimur mánuðum eftir að ég
eignaðist bam. En þegar ég frétti síð-
ar á meðgöngunni að ég ætti von á
tvíburum brá mér vægast sagt svaka-
lega,“ segir Katrín Einarsdóttir, þrí-
tug húsmóðir í Reykjavík, sem eign-
aðist þrjú böm í tveimur lotum á síð-
asta ári.
Katrín eignaðist stúlkubam 24. fe-
brúar sl. Tveimur mánuðum síðar
varð hún aftur barnshafandi. Hún
eignaðist síðan tvíbura, stelpu og
strák, klukkan rúmlega 6 á gamlárs-
dag en þau komu í heiminn 7 vikum
á undan áætlun. Tvíburamir em nú
á vökudeild Landspítalans en em
væntanlegir heim til foreldra sinna í
næstu viku.
Gleöi í fjölskyldunni
„Þeim hefur greinilega verið svona
mikið í mun að koma í heiminn á ár-
inu 1996. Þetta er auðvitað skrýtin en
skemmtileg tilviljun að þetta skuli at-
vikast svona. Það er auðvitað mikil
gleöi í fjölskyldunni yfir þessari fjölg-
un. Ég frétti á spítalanum að fyrir
um 10 árum hefði kona á Suðumesj-
um fætt þrjú böm svona í tveimur
lotum á sama árinu. Þá frétti ég að
önnur kona heföi nýlega fætt 3 börn
með sama hætti með 11 mánaða
miilibili en þau fæddust ekki á sama
ári. Það verður alla vega nóg að gera
á næstunni með þessi þrjú litlu böm
og ljóst að ég á eftir að verða mikið
heima við,“ segir Katrín en hún átti
fyrir 10 ára dóttur. -RR
Stuttar fréttir
Hækkun launa möguleg
Formaður Dagsbrúnar segir að
með breytingu á sköttum, vísi-
töluviðmiðunum og lánamálum
megi hækka lægstu laun í 70 þús-
und krónur án þess að verðbólga
fari á skrið. Ríkisútvarpið greindi
frá.
Þjóðsögur á Netiö
Atján bama faðir í Áifheimum
og fleiri þjóðsögur em komnar á
Intemetið. Ríkisútvarpið greindi
frá.
Lifrarbólga C
Óvenjumörg tiifeili af vefrusýk-
ingu af völdum lifrarbóigu C hafa
fundist meðai þeirra sprautufikia
sem hafa komið inn á Vog undan-
farin þrjú ár. Morgunblaðið
greindi frá.
Metumferð
Flugumferð um íslenska úthafs-
flugstjómarsvæðið jókst um 8,1%
á síðasta ári.
Fer huldu höfði
íslendingur, sem dæmdur var í
fangelsi fyrir fikniefnabrot, fer
huldu höfði í Svíþjóð eftir að is-
iensk stjómvöld synjuðu honum
um náðun. Stöð 2 greindi frá.