Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1997, Page 14
14 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1997 óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoóarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimaslöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Forystunni gefið langt nef Ungt fólk sem aðhyllist jafnaðarmennsku og félags- hyggju nennir ekki lengur að bíða eftir atvinnustjóm- málamönnum sem kenna sig við sömu stefnu. Langtím- um saman hefur sameining jafnaðarmanna og félags- hyggjufólks verið rædd en án árangurs. Á vinstri væng stjómmálanna hafa menn verið sundraðir og komið fram í mörgum áhrifalitlum smáflokkum. Tilraunir hafa verið gerðar til sameiningar en þær hafa mistekist. Flokkamir hafa klofnað vegna átaka for- ystumanna. Klofningsbrotin hafa þá talið sig boðbera sameiningar jafnaðarmanna. Það hefur þó ekki gengið eftir. Jafnaðarmenn og félagshyggjufólk hefur aðeins komið fram undir enn fleiri merkjum. Flokksbrota þess- ara hefur aðeins beðið beisklegur aldurtili. Smáflokkar þessir hafa í raun aðeins verið hækjur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sitt á hvað í land- stjórninni frá því að núverandi flokkakerfi komst á. Stundum dugði stærri flokkunum einn lítill til fylgilags en þess utan þurfti fleiri. Forystumenn smáflokkanna gripu fegins hendi molana sem féllu af borðum hinna raunverulegu valdaflokka. Þeir komust þá um stund að kjötkötlunum og náðu að pota nokkrum flokksgæðing- um í feit ríkisembætti. Minna fór fyrir stefnubreytingu af þeirra völdum. Reynslan sýnir að forystumenn félagshyggjuflokka ná ekki að sameina flokka sína í einn jafnaðarmannaflokk. Þar skortir bæði getu og vilja. Þeir sem hafa komist á toppinn una glaðir við sitt. Þeir eiga nokkuð trygga þing- mannsstöðu og jafnvel ráðherrastöðu endrum og sinn- um. Það hentar því ekki þeirra hagsmunum að breyta. Þetta veit það unga fólk sem um helgina efndi til stofn- fundar Grósku, samtaka jafnaðarmanna og félagshyggju- fólks. Það bíður ekki lengur og unir ekki lengur því kraðaki sem er á vinstri væng stjómmálanna. Það vill athafnir í stað orða. í yfirlýsingu stofnfundar Grósku er flokkakerfi gærdagsins send kveðja. Ekkert skal um það fullyrt hvemig tilraun unga fólksins tekst. Hún er þó öðmvísi en fyrri sameiningartilraunir jafiiaðarmanna. Vera kann að með þessum hætti verði ráð- in tekin af ráðamönnum flokkanna. Þeir hafa setið eftir og standa frammi fyrir því hvort þeir eigi að stökkva á þann vagn sem er að fara af stað eða sitja einir eftir. Tilraunin er einnig athyglisverð fyrir þær sakir að löngu er tímabært að stokka upp íslenska smáflokka- kerfið. Fari svo að þessi öfl nái að sameinast einfaldar það þá kosti sem í boði em. Það yrðu í meginatriðum nýr jafnaðarmannaflokkur, vinstra megin miðjunnar, Framsóknarflokkurinn á miðjunni og Sjálfstæðisflokk- urinn hægra megin hennar. Sumir hefðu kosið að fá Framsóknarflokkinn inn í félagshyggjuflokkinn og búa þannig við tveggja flokka kerfi. Það er þó ekki líklegt að það gerist. Áherslur og ágreiningsefni em önnur innan flokka og milli flokka en áður var. Nú er fremur deilt um sjávar- útvegsmál og Evrópumál en til dæmis afstöðu til Atl- antshafsbandalagsins sem áður skipti mönnum í flokka. í stofnyfirlýsingu Grósku er farið fram á fordómalausa umræðu um Evrópumál og að þjóðinni gefist tækifæri til þess að segja til um aðild að Evrópusambandinu. Þá eru Gróskufélagar sammála um að vera ósammála um Atl- antshafsbandalagið. Þeir gera sér ekki rellu út af göml- um ágreiningsmálum. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hverjir stökkva á vagninn, komist hann á skrið. Jónas Haraldsson Siguröur A. segir tónmenntakennslu vísast virkasta uppeldistækí sem skólar eigi völ á. - Myndin er tekin í Suzuki-tónskólanum. Ráð gegn afbrotum menntafræðslu í grunn- skólum fullnægt, sem er vitaskuld fjarstæða. Víðast hvar er tón- menntakennsla látin niður falla við tólf ára aldur, þó lög mæli ský- laust fyrir um að hún skuli veitt öllum börn- um uppað fjórtán ára aldri. Er löngu kominn tími til að þessum frek- legu lagabrotmn linni, enda stuðla þau að aug- ljósu og óviðunandi misrétti í samfélaginu, meðþví þeim bömmn einum er gert kleift að stunda reglulegt tónlist- arnám sem eiga sæmi- lega efnaða foreldra og „Endaþótt tónlistarlíf á íslandi hafí staðið með miklum blóma undan■ farna áratugi, og þá fyrst og fremst fyrir framtak sérhæfðra tónlistar■ skóla um land allt, þá er almennur skilningur á mikilvægi tónmennta- fræðslu einkennilega frumstæður.“ Kjallarinn Sigurður A. Magnússon rithöfundur Kurt Masur, sem er aðalstjómandi tveggja helstu hljómsveita verald- ar, Gewandhaus í Leipzig og Phil- harmonic Symphony Orchestra of New York, kvað uppúr með það í sjón- varpsviðtali vestan- hafs fyrir tveimur ámm, að ef hverj- um grunnskóla væri séð fyrir tveimur hæfum tónmenntakennur- un mætti fækka lögregluþjónum um tvo í hverju skóla- hverfi. Þessi hressilega stað- hæflng kann að þykja nokkuð dirfskufull og jafn- vel langsótt, en ætli hún sé ekki nær sanni en margur hyggur? Endaþótt tón- listarlíf á íslandi hafi staðið með miklum blóma undanfarna ára- tugi, og þá fyrst og fremst fyrir framtak sérhæfðra tónlistarskóla um land allt, þá er almennur skilningur á mikilvægi tón- menntafræðslu einkennilega frumstæöur, ekki síst hjá ýmsum forráðamönnum skólanna. Ég hef haft spumir af skólastjórum sem telja tónlist einhverskonar auka- getu eða viðhengi við námsskrána sem þarflaust sé að leggja sérstaka rækt við, enda er hún einatt látin víkja fyrir myndmennt, hand- mennt og öðrum námsgreinum. í mörgum skólum er alls enga tón- menntakennslu að hafa, en í öðr- um er hún í skötulíki. Til dæmis telja sumir skólastjórar, að með því að stofna lúðrasveit eða æfa söngkór sé ákvæðum laga um tón- geta því sótt sérhæfða og dýra tón- listarskóla. Hverfa frá kennslu Hitt segir líka sína mælsku sögu, að það unga hugsjónafólk, sem sérhæfir sig í tónmennta- kennslu, á svo erfitt uppdráttar vegna vanskilnings og ömurlegra launakjara, að margt af því hverf- ur frá kennslu til annarra starfa eftir tvö eða þrjú ár. í þessu efhi skera íslendingar sig úr meöal norrænna þjóða og raunar flestra þjóða norðan Alpafjalla, þarsem tónmenntakennsla nýtur mikillar virðingar og er launuð í samræmi við þaö, að ekki sé minnst á lönd einsog Japan, þarsem litið er á tónmenntakennslu sem undir- stöðu almennrar menntunar. Þann skilning hafa vestrænar þjóðir raunar haft allt frá tímum Forn- Grikkja, sem töldu tónlistar- nám vera undirstöðu allrar frek- ari menntunar. Hefur þessi forni skilningur verið ítrekaður og stað- festur með margvíslegum tilraun- um og rannsóknum á þessari öld. Einn margra frumkvöðla á því sviði var ungverski tónsmiðurinn og uppeldisfrömuðurinn Zoltán Kódaly sem braut blað í sögu tón- menntakennslu með solfakerfi sínu. Tiiraunir hans og rannsókn- ir leiddu ótvírætt í ljós, að tónlist væri einhver áhrifaríkasti hvati sem völ væri á til að örva náms- getu og tryggja góðan árangur í skóla. Brýnna viðfangsefni í þjóðfélagi, þarsem sérdrægni, eiginhagsmunapot og ófyrirleitin samkeppni eru sett í öndvegi er tónmenntakennsla kannski brýnna viðfangsefni en nokkur önnur námsgrein, meðþví hún byggir á samhug og samstarfi þarsem allir taka virkan þátt í að njóta, túlka og skapa, ekki einung- is með rödd og fingrum, heldur með öllum líkamanum, afþví tón- list er ekki síður tjáð og túlkuð með látbragði og dansi en söng og hljóðfæraslætti. Hópvinna í tón- listamámi er tvímælalaust væn- legasta leið sem hugsast getur til að samhæfa sundurleitar bekkjar- deildir og fá þær til að vinna sam- an með einum hug að þeim verk- efnum sem fyrir eru tekin. Þess- vegna er það nánast glæpsamlegt að hérlendir skólar skuli gera henni svo lágt undir höfði sem raun ber vitni. Ég fullyrði að unglingavanda- málið svonefnda yröi þeim mun auðveldara viöfangs sem meiri rækt væri lögð við tónmennta- kennslu í skólum landsins. Kurt Masur hafði lög að mæla þegar hann tengdi skort á tónmenntum við afbrot unglinga. Sigurður A. Magnússon Skoðanir annarra Stríösöxin munduð „En nú er svo komið i menningarumfjöllun okkar, að það þykir sjálfsagt að viku eftir viku, mánuð eft- ir mánuð og ár eftir ár sé hnýtt og jafhvel sparkað í helstu leikara þjóðarinnar í umfjölíun um leiklist - oft mjög svo ómaklega og jafnvel af hreinum dóna- skap í framsetningu og orðavali. Ef hins vegar ein- hver úr leikhúsheiminum vogar sér að anda út úr sér aðfinnslu eða athugasemdum um gagnrýnand- ann Jón Viðar rýkur ekki bara hann sjálfur og rit- stjóri hans upp til handa og fóta. Sjálft útvarpsráð snýst til varnar og fjölmiðlaheimurinn mundar stríðsöxina." Stefán Baldursson í Mbl. 17. jan. Sami loddarahátturinn „Ég efast ekki um að formenn þessara félaga vilji ekki að þessi launastefna gildi í öðrum félögum. Þeir hafa bara ekkert með það að gera. Þeir hafa hafnað samfloti innan Alþýðusambandsins. Þrátt fyrir áskoranir okkar hafa þeir hafnað því að móta ein- hverja heildstæða launapólitík. Það er hugsanlegt að tala um að bæta kjör lágtekjuhópa ef öll hreyfingin stendur saman um það. Hins vegar er það óhugsandi þegar hvert félag og hvert samband fer fram með sín sérmál og sinna félagsmanna einna að leiðarljósi. Þetta er því sami loddarahátturinn og stundum áður.“ Þórarinn V. Þórarinsson í Alþbl. 17. jan. Pólitískar upphrópanir „Sem betur fer eru margir í þessu landi sem hafa raunverulegan áhuga á því að bæta nám og kennslu. Gaspur og einfaldar pólitískar upphrópanir eru ekki líklegar til árangurs í þessu mikilvæga máli. Fólk vill heyra umræðu sem einkennist af hlutlægni, raunsæi og framsýni. Það gerir sér grein fyrir að vandinn er margþættur og að skoða þurfi allar hlið- ar hans.“ Börkur Hansen i Mbl. 17. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.