Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1997, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Sandkorn i>v
Bankaráösmenn ákveöa kaup og kjör bankastjóranna:
Fá laun í hlutfalli af
bankastjóralau nu nu m
- greiðslur til bankastjóra fyrir stjórnarsetur í endurskoöun
„Það er ekki viðskiptaráðherra
sem ákveður laun bankastjóra ríkis-
bankanna. Það eru bankaráðin sem
kosin eru af Alþingi sem taka
ákvörðun um kaup og kjör banka-
stjóranna. Einu áhrifin sem við-
skiptaráðherra hefur af þessum
málum er reglugerð frá tímum
Matthíasar Bjarnasonar, sem við-
skiptaráðherra, um að bankaráðs-
mannalaunin skuli vera ákveðið
hlutfall af launum bankastjóranna,"
sagði Finnur Ingólfsson viðskipta-
ráðherra i samtali við DV.
Hann sagðist hafa átt fund með
formönnum bankaráða Landsbank-
ans og Búnaðarbankans þar sem
rætt var um greiðslurnar sem
bankastjórar fá fyrir fundarsetu eða
stjómarsetu í fyrirtækjum sem
bankarnir eiga í. Formennirnir
hafa verið að skoða þau mál.
„Ég tel að þessar greiðslur séu
óeðlilegar og eigi að leggjast af. Mitt
álit er að það eigi að móta svipaða
reglu og mótuð hefur verið fyrir
ráðuneytisstjórana. Kjaranefnd ák-
vað þeim laun en þeir geta ekki tek-
ið greiðslu fyrir setu í stjómum,
nefndum og ráðum sem þeir sinna í
vinnutímanum," sagði Finnur.
Hann bendir á að stutt sé í að
gerð verði formbreyting á ríkis-
bönkunum.
„Allavega formaður bankaráðs
Búnaðarbanka er mér sammála um
að rétt sé að gera breytingu á launa-
uppbyggingu bankastjóra um leið
og formbreytingin á sér stað,“ sagði
Finnur Ingólfsson. -S.dór
íslensku tónlistarverðlaunin 1997:
Upp að helgi
I Morgunblaðinu var á dögun-
um sagt frá þeirri hugmynd Þór-
arins Viðars
Þórarinsson-
ar, fram-
kvæmda-
stjóra VSÍ,
að „færa“
sumardaginn
fyrsta til
haustsins og
gefa þá
launafólki frí
á mánudegi í
staðinn.
Mogginn
upplýsti í
þessu sam-
bandi að sumardagurinn fyrsti
væri alltaf á fimmtudegi „upp að
helgi“, eins og það var orðað, og
þá vita menn það að styttist í
helgina þegar kominn er fimmtu-
dagur. í þessu sambandi er vert
að geta þess að launafólk fær
ágætis frí um páskana í lok næsta
mánaðar því skírdagur er þá á
fimmtudegi, föstudagurinn langi
veröur að þessu sinni á fóstudegi
„upp að helgi“ og svo kemur
páskahelgin í kjölfarið með mánu-
daginn „upp að helgi“ sem 2. dag
páska. Ekki amalegt frí það.
Fjölbreyttur hópur tón-
listarmanna tilnefndur
Eins og sagt hefur verið frá hér í
DV verða íslensku tónlistarverð-
launin 1997 afhent með pompi og
prakt á Hótel Borg á fimmtudag.
Þangað til mun DV fjalla daglega
um þá sem eru tilnefndir til verð-
launanna.
Bassaleikari ársins
Fimm eru tilnefndir sem bassa-
leikari ársins 1997. Eiður Amarsson
hefur leikið með Sniglabandinu og
Todmobile en stjarna síðarnefndu
hljómsveitarinnar hefur skinið
bjart að undanförnu. Jakob Smári
Magnússon hefur spilað með SSól
og Bubba Morthens sem gaf út nýja
plötu á árinu er nefnist Allar áttir.
Sú plata seldist vel, en ekki eins vel
og margar fyrri plötur Bubba hafa
gert. Hin fomfræga hljómsveit
Mezzoforte nýtur krafta bassaleik-
arans Jóhanns Ásmundssonar en
sveitin gaf nýlega út plötuna Mon-
key Fields. Jóhann var valinn
bassaleikari ársins í fyrra. Ef hægt
er að tala um hljómsveit sem hefur
staðið undir væntingum þá er það
Botnleðja sem var valin bjartasta
vonin i fyrra. Þaðan kemur bassa-
leikarinn Ragnar Páll Steinarsson.
Að síðustu má nefna Róbert Þór-
hallsson en hann spilaði í söng-
leiknum vinsæla Stone Free og með
sönggyðjunni Emilíönu Torrini.
Gítarleikari ársins
Guðmundur Pétiu'sson var valinn
gítarleikari ársins í fyrra en þeir
sem eru tilnefndir nú eru Eðvarð
Lárusson sem leikið hefur með ýms-
um djassveitum, Friðrik Karlsson
Mezzofortemaður, Guðmundur Pét-
ursson sem lék með Emilíönu Torr-
ini og í Stonefree, Kristján Krist-
jánsson (betur þekktur sem KK) og
Akureyri:
Stórtjón á
slippkantinum
DV, Akureyri:
Bráðabirgðaviðgerð á viðlegu-
kanti Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri er lokið. Stórtjón varð þegar
15-20 metra hluti af viðlegukant-
inum féll niður á miðvikudag.
Talið er að ástæðuna megi
rekja til þess að vélar skips sem lá
við kantinn voru keyrðar í nokk-
uð langan tíma og að þrýstingur-
inn frá skrúfú skipsins hafi grafið
undan kantinum með þeim afleið-
ingum að hann féll niður.
Skemmdin er við enda kantsins
og hefur lítil áhrif á starfsemi
stöðvarinnar.
-gk
*]*]
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birtmeð fyrirvara um prentvillur.
Auður Ósk Einarsdóttir, Hermann Abrahamsen, Lára Bogen,
Laugarnesvegi 108, Austurvegi 12, Aðalgötu 13,
Reykjavík Hrísey Blönduósi
Bjarni Sævar Róbertsson, Ingvar L. Guðjónsson, SigurðurG. Sigurðsson,
Norðurbraut 35A, Heiðarbraut 31, Ásgarði 73,
Hafnarfirði Keflavik Reykjavík
Geirlaug Egilsdóttir, Jón Sæmundsson, Tinna Traustadóttir,
Skjólbraut 7A, Kirkjubraut 17, Brekkubæ 37,
Kópavogi Njarðvík Reykjavík -■ ■ —-—n
P R I M Si S N
Todmobilekempan Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson. Eins og I öðrum flokk-
um er erfitt að sjá hver þessara
færu tónlistarmanna muni hreppa
titilinn, keppnin er jöfn og spenn-
andi.
Hljómborðsleikari ársins
Eftirfarandi eru tilnefndir
sem hljómborðsleikari árs-
ins: Eyþór Gunnarsson,
Jón Ólafsson, Kjartan
Valdemarsson, Máni
Svavarsson og
Pálmi Sigurhjart-
arson. Eyþór Gunn-
arsson hefur eins
og kunnugt er gert
garðinn frægan með
Mezzoforte og einnig
spilað á plötu Bubba
Morthens, All-
ar áttir.
Eyþór var valinn hljómborðsleikari
ársins i fyrra. Jón Ólafsson vann
náið með Em-
ilíönu
Torrini, úr
því sam-
starfi varð
metsölu-
platan Mer-
maim. Kjart-
an Valde-
marsson tók
þátt í endurreisn
Todmobile, Máni
Svavarsson starf-
aði með Stefáni
Hilmarssyni við
gerð plötunnar Eins
og er. Síðast en ekki
síst spilaði Pálmi Sig-
urhjartarson með fé-
lögum sínum í Snigla-
bandinu. -JHÞ
Guömundur Pétursson var valinn gítarleikari ársins í fyrra. DV-mynd GS
Innbrot við Boðagranda:
Skrifstofubúnaði og
skiptimynt stolið
Brotist var inn í veiðarfærafyrir-
tækið Ingvar og Ara við Boða-
granda í fyrrinótt. Skrifstofubúnaði
að verðmæti hundruð þúsunda
króna var stolið, þ.á.m. tölvu, tveim-
ur prenturum, ljósritunarvél og
faxtæki. Einnig var hirt skiptimynt
upp á um 10 þúsund krónur.
Þjófarnir komust inn með því að
brjóta upp hurð og aka bíl inn í bíla-
afgreiðslu fyrirtækisins. Þar var
góssinu komið fyrir í rólegheitum.
RLR rannsakar málið og enginn
hafði verið tekinn vegna þess síð-
degis í gær.
Viskílyktin
Meira af þeim vinnuveitenda-
sambandsmönnum, eða um þá
öllu heldur.
Aðalsteinn
Baldursson,
verkalýðsfor-
kólfur frá
Húsavík,
sagði á opn-
um fundi um
kjaramálin á
Ákureyri í
siðustu viku
frá „glasa-
gangi" í höf-
uðstöðvum
vinnuveit-
enda í Garða-
strætinu. Aðalsteinn sagði að þeg-
ar frumvarpið um stéttarfélög og
vinnudeilur var samþykkt á Al-
þingi hefði mikið verið fagnað í
Garðastrætinu. Þar hetði ríkt há-
tíðarstemning. Hins vegar hefði
ekki verið neinn hangikjötsilmur
í húsinu en vel hefði lyktað af
viskíi þegar skálað hefði verið
fyi’ir nýju lögunum um allt húsið.
Svartur færi
betur
I hagyrðingaþætti í blaðinu
Feyki á Sauðárkróki segir frá því
aö Vigfús
Pétursson í
Hægindi hafl
sett saman
visu eftir að
fréttir bárust
af þvi að er-
lendur mað-
ur hefði
fundið bleik-
an smokk
við Snorra-
laug í Reyk-
holti. Hinir
svokölluðu
gárungar
voru fljótir til að eigna séra Geir
Waage smokkinn og þá varð þessi
vísa til hjá Vigfúsi:
Bleika smokka brúka þeir,
byrjar snemma vetur.
Svartur færi séra Geir
sennilega beiur.
Boðorðum
fækkar
í umræddum hagyrðingaþætti i
Feyki er ekki látið þar við sitja
gagnvart
klerkastétt-
inni og segir
þar að svo
virðist sem
allur vindur
sé nú úr
svokölluðum
biskupsmál-
um. Meðan
loftvogin hafi
stigið nokk-
uð hátt i
þeirri um-
ræðu á sin-
um tíma hafi
hins vegar komist á loft eftirfar-
andi kveðskapur sem blaðið birti
nafnlausan:
Kætist lund hjá klerkonuin,
hjá konum fá að hátta.
Biskup fækkar boðorðum,
brátt úr tiu í átta.
Umsjón: Gylfi Krístjánsson
-bjb