Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Side 6
útlönd
LAUGARDAGUR 3. MAI 1997
stuttar fréttir
Breytt um stefnu
Franskir sósíalistar sögðu í
gær að þeir mundu breyta um
efnahagsstefnu til að hægt væri
að fjölga atvinnutækifærum án
þess að auka opinber útgjöld, ef
þeir fengju meirihluta i kosning-
unum í lok mánaðarins.
Nasistagull til Sviss
í væntanlegri skýrslu frá
bandarískum stjórnvöldum segir
að sannanir séu fyrir því að
þýskir nasistar hafi selt Sviss-
lendingum gull sem stolið var
frá fórnarlömbum heltararinnar.
Sinn Fein á þing
Gerry Adams og Martin
McGuinness, leiðtogar írska
þjóðemis-
flokksins Sinn
Fein, pólitísks
arms írska
lýðveldishers-
ins, voru
kjörnir á
breska þingið
fyrir Norður-
írland í kosn-
ingunum á fimmtudag. Sinn
Fein hefur ekki átt tvo fulltrúa á
þinginu í rúma fjóra áratugi.
Dyr NATO opnar
Klaus Kinkel, utanríkisráð-
| herra Þýskalands, fullvissaði
Slóvaka um það í gær að þótt
þeir kæmust ekki inn í NATO í
| fyrstu umferð stækkunarinnar,
, væri ekki búið að loka endan-
I lega á þá.
Widerberg látinn
Sænski kvikmyndaleikstjór-
inn Bo Widerberg lést á mið-
vikudag, 66 ára gamall. Ein fræg-
asta mynd hans er Elvira Madig-
an frá 1967.
Iranir vara ESB viö
íranskur klerkur varaði ríki
Evrópusambandsins við því að
þrýsta á írani í deilunni sem nú
geisar þeirra í milli þar sem
slíkt kynti aðeins undir andúð í
garð Vesturlanda.
Winnipeg vinnur
Flóðgarðar í Winnipeg í
Kanada stóðust áhlaup Rauðár
þegar flóðið í henni náði há-
marki í gær. Ekki er búist við að
flóðið fari að sjatna fyrr en eftir
: fimm daga.
Uppgjöf í Texas
Lykilmaður i hópi aðskilnað-
arsinna í Texas yfirgaf höfuð-
stöðvamar í gær og var umsvifa-
laust handtekinn. Lögreglan hef-
ur setið um stöðvarnar í tæpa
viku. Leiðtogi hópsins og fleiri
þráast enn við.
Sandbylur á Egyptalandi
Versti sandbylur í þrjátíu ár
gerði Egyptum lífið leitt í gær.
Einn maður lést og truflanir
urðu á flugi til og frá alþjóðaflug-
vellinum í Kaíró. Reuter
Hlutabréfamarkaður:
Spurning um áhrif
kosninganna
Tony Blair fagnaö ákaflega við komuna í Downingstræti:
Nú er kominn timi til
að láta verkin tala
búinn að skipa í helstu ráðherrastöður nýrrar stjórnar
Tony Blair, nýr forsætisráðherra
Bretlands, var varla búinn að jafna
sig eftir stórsigur Verkamanna-
flokksins á íhaldsflokknum þegar
hann vatt sér í að skipa í helstu ráð-
herraembætti stjómar sinnar í gær.
Hann sagði að stjórn sín mundi
sameina Bretland á ný eftir átján
ára valdaskeið íhaldsflokksins.
John Major, fráfarandi forsætis-
ráðherra, kom félögum sínum gjör-
samlega i opna skjöldu þegar hann
tilkynnti þeim að hann mundi segja
af sér sem leiðtogi Ihaldsflokksins
eftir fyrsta tap flokksins í kosning-
um frá árinu 1974.
Starfsmenn Verkamannaflokksins
veifuðu fánum og fögnuðu ákaflega
fyrir utan skrifstofu forsætisráðher-
rans í Downingstræti í gær. Blair lof-
aði flokksmönnum sínum stjórn sem
beitti hagsýnum leiðum til að ná
fram háleitum markmiðum.
„í átján ár, átján löng ár, hefur
flokkur minn verið í stjórnarand-
stöðu. Hann gat aðeins látið orðin
tala, ekki verkin. í dag hefur okkur
verið falin sú mikla ábyrgð sem felst
i því að stjórna landinu. Nú er búið
að tala nóg. Það er kominn tími til
að láta verkin tala,“ sagði Blair.
Blair staðfesti að varaformaður
flokksins, John Prescott, yrði að-
stoðarforsætisráðherra og að Gor-
don Brown, helsti stuðningsmaður
hans í að þoka Verkamannaflokkn-
um inn að miðju stjórnmálanna,
tæki við embætti fjármálaráðhera.
Robin Cook, rauðskeggjaður
Skoti og einhver skarpasti maður-
inn sem situr á breska þinginu,
verður utanríkisráðherra nýrrar
stjórnar.
Blindur maður tekur nú sæti í
breskri ríkisstjórn í fyrsta sinn.
Hann heitir David Blunkett og fer
með menntamál. Margaret Beckett
verður viðskipta- og iðnaðarráð-
herra.
Major yflrgaf embættisbústað for-
Tony Blair og Cherie, kona hans, veifa stuðningsmönnum sínum fyrir utan
breska forsætisráðherrans.
sætisráðherrans í Downingstræti í
síðasta sinn fyrr um morguninn til
að afhenda Elísabetu drottningu af-
sögn sína, eftir tilfinningaþrungna
kveðjuathöfn með starfsliði sínu.
„Þegar tjaldið fellur er kominn
tími til að yfirgefa sviðið,“ sagði
Major við fréttamenn.
Ekki er ljóst hvenær Major lætur
af embætti leiðtoga íhaldsflokksins.
Hugsanlegt er að hann sitji þar til í
júlí. Baráttan um eftirmann hans
hófst um leið og fréttin um afsögn
hans spurðist út.
Kenneth Clarke, fjármálaráð-
herra Majors, varð fyrstur til að
bjóða sig fram. Michael Heseltine,
fyrrverandi aðstoðarforsætisráð-
herra, og William Hague, fyrrver-
andi ráðherra málefna Wales, voru
hins vegar eftirlætismenn veð-
mangaranna.
Lokaniðurstöður kosninganna
urðu þær að Verkamannaflokkur-
Downingstræti 10, embættisbús
Símamynd Re
inn fékk 419 þingsæti, íhaldsflc
urinn 165, Frjálslyndir demókn
46 og aðrir flokkar 29. Verkamar
flokkurinn hefur því 179 sæta mt
hluta. Rer
Kabila mætti ekki
til friðarviðræðna
Laurent Kabila, leiðtogi uppreisn-
armanna í Saír, hefur hætt við þátt-
töku í alþjóðlegum friðarfundi, að
minnsta kosti um stundarsakir.
Fundurinn hafði það að markmiði
að fá hann til að ræða augliti til
auglits við Mobutu Sese Seko, for-
seta Saírs. Þetta var haft eftir heim-
ildarmönnum í Angóla í gærkvöld.
Opinber heimildarmaður i Lu-
anda sagði Reutersfréttastofunni að
Thabo Mbeki, varaforseti Suður-
Afríku, hefði haldið aftur um borð í
skipið þar sem viðræðumar áttu að
fara fram til að skýra út fyrir þeim
sem þar væru að Kabila kæmi ekki.
„Mobutu var kominn um borð í suð-
ur-afrískt herskip sem lá við
bryggju í Pointe Noire í Kongó. Nel-
son Mandela, forseti Suður-Afríku,
tók á móti honum. Mandela ætlaði
að stjórna viðræðunum.
Kabila hélt í gærkvöld aftur til
Lubumbashi. Reuter
Góð samskipti
við Bandaríkin
Thatcher biðui
Blair um að
eyðileggja ekli
ávinninginn
Talsmaður Hvíta hússins
spáði því í gær að gott samstarf
mundi takast með Bill Clinton
Bandaríkjaforseta og Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands.
„Forsetinn hlakkar til að
vinna með Blair forsætisráð-
herra,“ sagði talsmaðurinn,
Mike McCurry.
Clinton hringdi í Blair í
fyrrinótt til að óska honum til
hamingju með sigurinn. Hann
reyndi einnig að ná í John
Major en Major var ekki viðlát-
inn svona seint. Reuter
Verð hlutabréfa í London endaði í
nýju meti við lokun á fimmtudag eft-
ir afar dauðan tíma síðustu misser-
in. Flestir verðbréfasalar hafa haldið
að sér höndum þar til nú að niður-
staða er fengin í kosningar til breska
þingsins.
Kauphallir voru lokaðar í Evrópu
1. maí, alls staðar nema í London.
Þar fór FTSE-hlutabréfavísitalan 0,7
punkta upp fyrir hæsta verð ársins
frá því 11. mars, upp í 4445,0.
Nú velta menn því fyrir sér hvaða
áhrif sigur Verkamannaflokksins
muni hafa á breska hlutabréfamark-
aðinn. Sumir sögðu fyrir kosning-
arnar að FTSE gæti hugsanlega fall-
ið hratt ef Verkamannflokkurinn
sigraði. Nú er það staðreynd og þá er
að sjá hvað gerist. Dow Jones reis í
vikunni upp fyrir 7.000 punkta í
fyrsta skipti í langan tíma. Hún féll
niður í 6975,68 á fimmtudag. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
7000
v\ fj
6600^
6400
6200
6975,68
F M A M
—PTBMj | »frs,r 5-3 jrwM. £28 mmmm
2000
1500
250
$/t p
281,6
A M
í $/t F
235
225
215
205
\ 23JP
20
15 :
$/ r
tunnaF
18,02
A M
Margaret Thatcher, fyrru
forsætisráöherra Bretianc
óskaði Tony
Blair, leið-
toga Verka-
mannaflokks-
ins, til ham-
ingju með
kosningasig-
urinn í gær.
Hún varaði
hann þó við því að gera að eni
það sem hefði áunnist á átj;
ára stjórnartíð íhaldsflokksin
Thatcher sagði við frétl
menn fyrir utan heimili sitt:
Blair hefði tekist vel að fe
smáatriði stefnuskrár sinnar
meðan á kosningabaráttun
stóð. Hann hefði tileinkað s
margt af því sem hún og Jol
Major, fráfarandi forsætisrá
herra, hefðu haldið á lofti un
anfama tvo áratugi.
Konum vegn-
aði vel í kosn
ingunum
Fleiri konur en nokkru sin
fyrr náðu kjöri i kosningunu
í Bretlandi á fímmtudag. S:
degis í gær benti allt til að þir
konur yrðu um 120, hin yngs
24 ára. Á síðasta þingi sátu
konur. Karlar verða engu
síður áfram í miklum mei
hluta.
Meðal nýliða á þingi eru t'
burasysturnar Angela og Mar
Eagle sem voru kjörnar fyt
Verkamannaflokkinn. Þær e
fyrstu tvíburamir og fyrs
systurnar sem komast á þing
Reut