Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Side 12
LAUGARDAGUR 3. MAI 1997
Heiðraður eftir 44 ára starf á Vellinum:
Var á leið út í heim en varð ástfanginn í Keflavík
DV, Suðumesjum:________________
„Þessi tími hefur bæði verið góð-
ur og skemmtilegur. Það er mjög
gott að vinna fyrir Bandaríkja-
menn,“ segir Trausti Björnsson sem
lét af starfi framkvæmdastjóra
verslunardeildar Varnarliðsins,
Navy Exchange, á Keflavíkurflug-
velli. Hann lét af störfum sökum
aldurs 23. mars en þá hafði hann
unnið hjá versluninni í 44 ár.
Trausti segir að Bandaríkjamenn
styðji við fólk sem þeim líkar vel
við. Fólk er látið bera ábyrgð á
starfi sínu og miskunnarlaust látið
fara ef það stendur sig ekki.
Trausti hóf störf hjá Varnarliðinu
1. ágúst 1952. Hann byrjaði á hótel-
inu og lagernum. 23. mars 1953 frétti
Trausti að það vantaði menn í
vinnu hjá verslun Varnarliðsins.
Hann sótti um og fékk starfið.
Trausti var ráðinn fyrir 1950 krónur
á mánuði og þá var dollarinn 4 ís-
lenskar krónur en í dag eru 27 dalir
1950 krónur. Hann starfaði fyrst hjá
landhernum, sem var með flugvöll-
inn á sinni könnu, síðan tók flug-
herinn við og nú síðast starfaði
hann hjá sjóhernum sem rekur
verslunina Navy Exchange.
Heiðraður
Mikil veisla var haldin Trausta
til heiðurs nýlega. Hún fór fram í yf-
irmannsklúbbnum á Vellinum. Þar
var samankominn fjöldi gesta til að
samfagna Trausta á þessum tíma-
mótum. Æðstu yfirmenn Varnar-
liðsins þökkuðu hon-
um fyrir vel unnin
störf. Trausti fékk
margar glæsilegar
gjafir og símskeyti
voru lesin upp í
veislunni. Þau voru
frá yfirmönnum í
Bandaríkjaher, sem
eru farnir af landi,
en höfðu átt góðar
stundir hjá Trausta 1
versluninni. Jack
Crotty, yfirmaður
Navy Exchange á
Vellinum, sagði að ef
Trausti ynni 40
klukkustundir á
viku þá hefði hann
unnið 91.250 klukku-
stundir hjá verslun-
inni. Trausti hefur
þjónað 242 þúsund
manns á Vellinum
og 4316 starfsmenn
hafa unnið hjá hon-
um.
Lítil sala fyrst
Trausti segir að
salan í versluninni
hafi verið mjög lítil fyrstu árin. Hún
jókst þó með árunum eftir því sem
hermönnum og fjölskyldum þeirra
fjölgaði á Keflavíkurflugvelli.
Trausti segir að salan hafi verið
mest áramótin 1989-1990 þegar
Berlínarmúrinn féll. Þá var selt fyr-
ir 20 milljónir dollara sem umreikn-
ast í dag í 1,4 milljarða. Á þeim 44
Æöstu yfirmenn Varnarliösins þökkuöu Trausta fyrir
glæsilegar gjafir.
árum sem Trausti starfaði hjá versl-
uninni fór veltan í um 44 milljarða.
Þegar mest var unnu hjá Trausta
110 manns en í dag eru starfsmenn
einum þriðjungi færri.
„Þegar ég byrjaði þá var bara eín
gata á Vellinum. Landherinn var
með sex skriðdreka sem þeir æfðu
sig á innan Vallar og utan. Þá var
vel unnin störf. Hann fékk margar
DV-mynd ÆMK
hægt að telja fjölskyldur hermanna
á fingrum annarrar handar. Þegar
herinn var við æfingar á þessum
tíma var lítið að gera í verslun-
inni,“ segir Trausti.
Sumarföt frá Kúbu
Margt hefur gerst á þessum árum
sem Trausta þykir eftirminnilegt.
„Við fengum einu sinni nokkra
gáma fulla af sumarvörum sem áttu
að fara til Kúbu. Kúbverjar fengu í
staðinn vetrarfötin sem áttu að
koma hingað. Það hefði verið gam-
an að sjá svipinn á þeim þegar þeir
opnuðu gámana,“ segir Trausti
Björnsson.
Verslun Varnarliðsins hefur feng-
ið þrisvar sinnum hin eftirsóttu
Bingham-verðlaun og að auki verið
útnefnd nokkrum sinnum.
„Verðlaun þessi eru veitt best re-
knu versluninni það árið. Þetta er
eins og fyrir kvikmyndaiðnaðinn að
fá óskarinn," sagði Trausti.
En af hverju fór Trausti að vinna
hjá Vamarliðinu? „Ég er ættaður að
norðan, Húnavatnssýslu, og var á
leiðinni út í hinn stóra heim til að
skoða mig um. Ég var nýkominn úr
skólanum. Mig vantaði peninga og
stoppaði í Keflavík til að vinna mér
inn fyrir farinu og fór því að vinna
á Vellinum. Eftir að ég var nýkom-
inn til Keflavíkur, 1952, þá hitti ég
eiginkonu mína, Áslaugu Hilmars-
dóttur, og hef verið í Keflavík síðan
en ekkert varð úr fór minni út í
heim,“ sagði Trausti Bjömsson með
bros á vör. Trausti hefur nóg að
gera i framtiðinni, meðal annars i
garðræktinni á heimili sínu að
Smáratúni 40 i Keflavík. Hann og
eiginkona hans eiga margverðlaun-
aðan garð sem hefur vakið mikla at-
hygli bæjarbúa.
-ÆMK
erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Michael Ondaatje:
The Engiish Patient.
2. John Grlsham:
Runaway Jury.
3. Jilly Cooper:
Apassionata.
4. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
5. Nick Hornby:
Hlgh Fldellty.
i 6. Graham Swlft:
Last Orders.
7. Tom Clancy & Steve Piecenlk:
Op Centre: Acts of War.
8. Tom Sharpe:
The Mldden.
9. Seamus Deane:
Readlng In the Dark.
10. Cllve Cussler:
Shock Wave
Rit almenns eölis:
1. The Splce Glrls:
Girl Power.
2. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
3. Nick Hornby:
Fever Pltch.
4. Paul Wllson:
A Little Book of Calm.
5. The Art Book.
6. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
7. Herodotus:
Tales From Herodotus.
8. Labour Party Minlfesto 1997.
9. Richard E. Grant:
Wlth Nails.
10. Will Huttonn:
The State to Come.
Innbundnar skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Partner.
2. Wllbur Smlth:
Birds of Prey.
3. Raymond E. Felst:
Rage of a Demon Klng.
4. Patrlcla D. Cornwell:
Hornet's Nest.
5. Arthur C. Clarke:
3001: The Flnal Odyssey.
Innbundin rit almenns eðlls:
1. Tlm Smit:
The Lost Gardens of Heligan.
2. Jean-Domlnique Bauby:
The Divlng-Bell and the Butterfly.
3. Dava Sobel:
Longitude.
4. Scott Adams:
The Dilbert Prlnclple.
5. Wlllllam Dalrymple:
From the Holy Mountain.
(Byggt á The Sunday Times)
1470 leikrit
Alþena, höfuöborg Grikklands. Þangaö hafa nú borist 1470 leikrit
viös vegar úr heiminum. Símamynd Reuter
Stærsta alþjóð-
lega leikritasam-
keppni sögunnar
stendur nú yfir á
vegum menningar-
málastofnunar
Onassis-sjóðsins í
Aþenu. Úrslit verða
tilkynnt í haust og
eru vegleg verðlaun
í boði.
Samkeppnin var
auglýst fyrir meira
en ári og skilafrest-
ur handrita er
runninn út.
„Við reiknuðum
með að það yrðu
samin 200-300 ný
leikrit vegna þess-
ara fyrstu Ólympíu-
leika menningar-
innar,“ sagði fram-
kvæmdastjóri On-
assis-sjóðsins, Paul
Ioannides, í nýlegu
blaðaviðtali. „Það þyrmdi því yfír
okkur þegar við fengum fimm sinn-
um fleiri handrit. Og þátttakan er
svo sannarlega alþjóðleg."
Það fór svo að lokum að 1470
handrit bárust í samkeppnina frá
höfundum í 76 löndum.
Bandarisku leikritin eru flest, eða
254, en 174 komu frá Ítalíu, 114 frá
Þýskalandi og 113 frá Argentínu
sem reyndist stofnanda sjóðsins,
skipakóngnum Aristoteles Ónassis,
vel á hans yngri árum - en þar tókst
honum fyrst að koma undir sig fót-
unum sem skipaeigandi.
Að sögn framkvæmdastjórans
bárust í keppnina handrit frá öllum
ríkjum Evrópu og frá fjölmörgum
höfundum í Afríku, Asíu, Mið-Aust-
urlöndum, Suður-Ameríku og Ástr-
alíu. Hann sagði að verkin væri ým-
ist eftir kunna eða óþekkta höfunda.
Handritin eru ýmist samin eða þýdd
á eitt af sex helstu tungumálum
Evrópu.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Sextíu dómnefndarmenn
Síðustu mánuðina hafa sextíu
gagnrýnendur og sérfræðingar frá
nokkrum löndum farið yfír leikrit-
in. Þeir munu halda því starfi áfram
þar til í ágúst næstkomandi, en þá
eiga dómnefndir að hafa lokið störf-
um.
Að sögn framkvæmdastjórans er
unnið eftir flóknu skipulagi sem á
að tryggja óhlutdrægni í mati á
handritunum og trúnað við höf-
undana. Dómnefndarmennirnir
verða að skila skriflegu áliti um
hvert þessara nær fimmtán hund-
ruð handrita og rökstyðja niður-
stöðu sína í hverju
einstöku tilviki.
Gagnrýnandinn
Jan Kott, sem er
kunnur leikhús-
maður, segir að
þessi samkeppni sé
mesta alþjóðlega
átakið sem gert hafi
verið til að hvetja
höfunda til að
semja leikrit fyrir
svið.
Ólympíuleik-
ar menning-
arinnar
Af hálfu Onassis-
sjóðsins er þetta
fyrsta skref í þá átt
að efna til Ólympíu-
leika menningar-
innar, eins og for-
seti sjóðsins, Stelios
Papadimitrou, orðar það í nýlegu
viðtali. Ætlunin er að halda hlið-
stæða samkeppni í öðrum listgrein-
um á komandi árum.
Aristoteles Onassis stofnaði sjóð-
inn til minningar um son sinn sem
lést árið 1973. Eftir andlát skipa-
kóngsins árið 1975 hefur sjóðurinn
annast rekstur allra eigna Onassis-
veldisins. í samræmi við erfða-
skrána er verulegum hluta tekn-
anna varið til menningar- og mann-
úðarmála af ýmsu tagi og eru þá
gjarnan háar fjárhæðir í spilinu.
Fyrstu verðlaun i þessari leikrita-
samkeppni eru þannig 250 þúsund
bandarískir dalir (um 17 milljónir
íslenskra króna), önnur verðlaun
200 þúsund dalir (um 14 milljónir)
og þriðju verðlaun 150 þúsund dalir
(um 10 milljónir). Afhending verð-
launanna á að eiga sér stað í sept-
ember.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Runaway Jury.
2. Robln Cook:
Invaslon.
3. Dean Kootz:
Ticktock.
: 4. Ursula Hegl:
Stones From the River.
5. Mlchael Ondaatje:
The English Patlent.
6. Wally Lamb:
She's Come Undone.
7. Catherine Coulter:
The Wild Baron.
S. Susan Isaacs:
Llly Whlte.
9. Julle Garwood:
The Wedding.
10. Steve Perry:
Shadows of the Emplre.
11. Tom Clancy & Steve Pieczenlk:
Acts of War.
12. Joseph Wambaugh:
Floaters.
13. Mario Puzo:
The Last Don.
14. LaVyrle Spencer:
The Camden Summer.
15. Sharyn McCrumb:
The Rosewood Casket.
Rit almenns eölis:
1. Andrew Well:
Spontaneous Heallng.
2. Mary Plpher:
Revivlng Ophella.
3. Jonathan Harr:
A Clvll Action.
4. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
5. Vincent Bugliosi:
Outrage.
6. Carmen R. Berry & T. Traeder:
Girlfrlends.
7. James McBrlde:
The Color of Water.
8. Jon Krakauer:
Into the Wlld.
9. Kathleen Norris:
The Cloister Walk
10. Carl Sagan:
The Demon-Haunted World.
11. Howard Stern:
Prlvate Parts.
12. J.D. Plstone & R. Woodley:
Donnie Brasco.
13. Kay Redfield Jamison:
An Unquiet Mlnd.
14. Mary Karr:
The Llar's Club.
15. Danaiel Jonah Goldhagen:
Hltler’s Wllling Executioners.
(Byggt á New York Times Book Review)