Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 T*>~V * |lagur í lífi y Dagur í lífi Þorgríms Þráinssonar: Eg missti af veislunni „Ég vaknaði þegar tæplega fimm ára gamall ísskápur lagðist nánast ofan á mig. Hann heitir Kristófer og á afmæli 4. maí. Drengurinn er svo heitfengur að hann sefur nánast nakinn og svo laumar hann sér upp í um miðja nótt. Smátt og smátt kólnar kroppurinn vitanlega og þarf því yl í morgunsárið. Kolfinna, rúm- lega sjö mánaða, tók að æfa radd- böndin um hálfáttaleytið og barði í rimlana eins og langalangafi hennar forðum. Skömmu síðar reis stórfjölskyldan úr rekkju. Það fór ekki á milli mála aö það var sumardagurinn fyrsti því hitamælirinn rétt skreið yfir núllið. Lóan leitaði skjóls og krakkar fóru á stjá í kuldagöllum. Menn hljóta að hafa verið vel hífaðir fýrr á öldum þegar þeir ákváðu að sumarið skyldi hefiast áður en vorið hélt innreið sína. Við flögguðum okkar fána eins og lög gera ráð fyrir og síðcm var haldið í ungbamasund klukkan tíu. Það er öllum foreldrum hollt að upplifa Snorra Magnússon, „foð- ur ungbamasunds á íslandi" en hann er með sitt sundhreiður í Skálatúni. Þar lagði Kristófer grunninn að sínum styrkleika frá tveggja til tólf mánaða aldri og mun bera þess merki alla tíð. Kolfinna verður vitanlega að fá að feta í sundspor hans því ung- bamasund hefúr fyrir löngu sannað gildi sitt. Mig skortir lín- ur til að telja upp kosti þess. Snorri er einstakur maður og for- eldrarnir læra eitthvað nýtt í uppeldismálum í hverjum einasta tíma. Hann er óspar á gullkomin og handleikur bömin eins og sá sem valdið hefur. Það kom í minn hlut að festa litla krílið á víde- ófilmu í sundi en það hafði staðið til lengi. Ragnhildur, konan mín, sá um fyrirsætustörfm í lauginni ásamt Kolfinnu og hinum sund- fúglunum. Dóttirin var ffemur spör á brosið allt þar til hún hafði fengið sér mjólkursopa undir lok tímans. En hún kafaði, flaug, fór í kollhnís og gerði fjölmargar þroskandi æfingar án þess að bregða svip. Kristófer fékk að bregða sér í laugina undir hið síð- asta og lék við hvum sinn fingur. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég lærði að synda 12 ára. Ég segi það engum. Engin sunnudagssteik í hádeginu leituðum við dyrum og dyngjum að einhverju matar- kyns í eldhúsinu og hringdum í kjölfar þess í nærliggjandi hús. Hvergi var sunnudagssteik á boðstólum. Ég stakk af í Laugar- dalslaugina og svamlaði um í potti númer þrjú en komst að því að það er tiltölulega illa séð að synda 50 metrana þar. Raksturinn tók skamma stund. Alltaf jafn yndis- legar þessar konur í afgreiðslunni. Að ósk hinna hungmðu staldraði ég við hjá ónafngreindum skyndi- bitastað og greip með mér ýmislegt gimilegt fyrir þau sem heima sátu. Fram að verðlaunaafhendingu var tíminn drepinn með ýmsu stússi en það var ástæðulaust að mæta of snemma. Flestir gestanna höfðu komið sér haganlega fyrir í Þjóðarbókhlöðunni þegar við skriðum inn og það var notalegt að sjá fjölskyldumar mínar þar. Bryndís systir frá Sauðárkróki hafði meira að segja gert sér ferð í bæinn. Það sem skyggði helst á þessa athöfn var að ég þurfti að krota í flestar bækumar sem gest- unum vom gefnar en þegar því lauk vom nánast allir horfnir. Ég missti af veislunni! Það sem mér þótt mest um vert varðandi verð- launin var að vinna til þeirra í skjóli nafnleyndar. Með frændum út að borða Rétt fyrir klukkan sex heimsótt- um við tengdó, Ólafíu og Eirík, í Sæviðarsundinu þar sem Kristófer horfði á bamatímann og nagaði kalda lifrarpyslu. Við hjónin af- þökkuðum veitingar enda búin að panta borð á Einari Ben klukkan níu. Þangað héldum við ásamt vin- um okkar, hjónaleysunum Sævari og Helgu, sem em sérdeilis skemmtilegir sessunautar og við- hlæjendur. Maturinn var afbragðs- góður, staðurinn notalegur og fjöldi frænda og kunningja þar fyr- ir tilviljun. Upp úr miðnætti var mál að linni og við skildum verð- launabókina eftir handa Victori, eins eigenda Einars Ben og staðar- haldara á Hótel Búðum, þar sem sagan Margt býr í myrkrinu gerist. Sævar og Helga fengu að sjálfsögðu bók og við kvöddumst aö hætti Valsmanna. Þegar við Ragnhildur vorum nánast komin upp í rúm rétt fyrir klukkan eitt var dyra- bjöllunni hringt. Okkur datt helst í hug að bamapían hefði gleymt ein- hveiju. Stóð ekki Sævar karlinn glaðbeittur með pakka handa fé- laganum, glæsilega grænt bindi og fagurbláan kertastjaka. Það er munur að geta skroppið út í búð um miðja nótt - og þurfa ekkert að borga! Hann var búinn að smella sér úr svarta samfestingnum, taka niður lambhúshettuna og fela kú- beinið þegar hann birtist með gjaf- imar. Þúsund þakkir!“ Finnur þú fimm breytingar? 409 Nafn: _ Heimlli: Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og sjöundu getraun reyndust vera: Ingibjörg Erlendsdóttir, Sveinsína Kristinsdóttir, Grýtubakka 16, Hringbraut 76, 109 Reykjavík 230 Keflavík Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þinu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti 3.995 kr. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningamir veröa sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 408 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.