Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Síða 27
Gjafavara í Mjódd Sími 587 2570 Urval af fallegri gjafavöru við öll tækifæri Svnaiandi Rósifnar kojn^raítur LAUGARDAGUR 3. MAI 1997 Söngvari hljómsveitarinnar Platters hugfanginn af íslandi Pálmi í púlinu Stuttar og síðar kápur fyrir langömmuna, ömmuna, mömmuna og ungu stúlkuna. Léttar sumar - £ I ‘ og heilsársúlpur með eða án hettu. Söngvari hljómsveitarinnar Platters er staddur hér á landi í annað sinn. Hljómsveitin hélt tónleika á Hótel ís- landi í febrúar en Harold Burr heillað- ist svo af landi og þjóð að hann ákvað að koma aftur. „Áhorfendur voru frábærir þegar við spOuðum í vetur. Þið eigið mjög öfluga tónlistarmenn. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar er ein sú besta sem ég hef leikið með. Ég hitti fólk þegar ég var hérna síðast og hef áhuga á að spila hér oftar. Mér fínnst mjög áhugavert að koma hingað. Ég fór upp í sveit og fór þar á hestbak og skoðaði fjósið hjá Jóni Valgarðssyni og Heiðrúnu Sveinbjöms- dóttur á Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðar- strandarhreppi," segir Harold sem er búfræðingur að mennt en býr í Los Angeles. Harold fannst skemmtilegt að riða ís- lenskum hestum. Hann fer aftur á hest- bak í dag. Móttökumar í sveitinni vom frábærar og hann tók mynd af rjómapönnukökunum sem Heiðrún bakaði handa honum. Þær voru eitt það mesta lostæti sem hann hafði smakkað. Blaðamann fýsti að vita hvernig þessu væri háttað með hljómsveitina Platters. Það er svo óralangt síðan lög- in hennar voru vinsæl að meðlimir hennar geta tæplega verið á lífi enn þá. Skýringin er sú að eiginkona og dóttir eins upphaflegu meðlima Platters á einkarétt á nafninu og ber hljómsveitin það áfram með nýjum meðlimum. Reynt er að halda Platters-andanum eins og hann var. Auk þess eru ein- göngu sungin lög sem Platters gerði vinsæl. „Ég er ævintýramaður og finnst gam- an að uppgötva nýja staði. Það er kalt á íslandi en það er að minnsta kosti frá- brugðið Los Angeles. Þar er alltaf sól og hiti. Maður getur líka orðið leiður á því. Ég er mest hissa á því að strákam- ir hérna bíða í röðinni á Kaffi Reykja- vík í þunnum jökkum á veturna," segir Harold. Harold segist hafa hitt mikið af góðu fólki á ferðum sínum til íslands. Það hefur þau áhrif að hann hefur áhuga á að eyða hér einhverjum tíma. Hann hef- ur komist í samband við íslenska tón- listarmenn og hefur áhuga á að starfa með þeim. -em „Mér fannst tími til kominn að fara að hreyfa mig aftur,“ segir Pálmi Gestsson leikari. Pálmi sést nokkrum sinnum í viku lyfta lóð- um í World Class og hann púlar og puðar mikið. Pálmi byrjaði að púla aftur eftir nokkurt hlé fyrir rúmum tveimur mánuðum. Hann segist aðallega reyna að halda sér við en fimm til átta kíló hafi samt horfið á þess- um tíma. Fyrir nokkrum árum grennti Pálmi sig um mörg kíló. Hann segist taka sér tak með jöfnu millibili og eiga auðvelt með það. „Það er lífsspursmál að vera í góðu formi í mínu starfi þar sem ég vinn mjög mikið,“ segir Pálmi sem skokkar stundum auk þess að lyfta lóðum. -em Pálmi svitnar mikiö þegar hann lyftir lóðum nokkrum sinnum í viku. Harold Burr, söngvari hljómsveitarinnar Platters. DV-mynd E.ÓI tm Wí Kennarar óskast! Að Heiðarskóla vantar 3-4 kennara í almenna grunnskólakennslu næsta skólaár. Upplýsingar veitir skólastjóri í símum 433-8920 eða 433-8884. Skólinn er rekinn af eftirtöldum sveitarfélögum: Hvalfjaröar- strandarhr., Skilmannahr., Innri Akraneshr. og Leirár- og Melahr. Skólinn er einsetinn grunnskóli með mötuneyti og skólaakstur. í Heiðarskóla er unnið metnaðarfullt skólastarí og skólinn er vel út búinn. Nemendur eru um 115. Heiðarskóli er í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík og til Akraness eru um 19 km. Ódýr húsaleiga! Tilboðsslá Alltaf eittthvað nýtt Allt á kr. 5000 Opið laugardaga kl. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.