Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Qupperneq 30
38
LAUGARDAGUR 3. MAI1997
Svartfuglaveiði, hvalaskoðun og sjóstangaveiði:
Vildu ekki meiða fiskinn
Svartfuglaveiöin gengur mest út á aö reyna aö hitta fuglinn áöur en hann nær aö kafa. Ef svartfuglinn nær aö kafa,
veröur aö fylgjast vel með þegar hann kemur upp aftur og ná strax miöi á hann. DV-myndir ÍS
Afþreyingarmöguleikar fyrir
ferðamenn verða sífellt fjölbreyti-
legri hérlendis. Hafið umhverfis ís-
land er gjöfult og hefur fram að
þessu að mestu verið vettvangur
fyrir sjómenn til að draga björg í bú.
Menn eru hins vegar að vakna til
vitundar um þá möguleika sem haf-
ið býður til afþreyingar þar sem
hægt er að sameina aðdrætti og
áhugamál.
Sjóstangaveiði er núorðið hægt að
stunda víða við strendur landsins
og fjölgar sífellt þeim aðilum sem
bjóða upp á ferðir á sjóstöng. Það
eru jafnt útlendingar sem íslending-
ar sem eru sólgnir í slika skemmtan
sem sjóstöngin er. Einn hinna fjöl-
mörgu aðila sem býður upp á
sjóstangaveiði hér við land er Gísli
B. Ámason á Akranesi, en hann er
með bátinn Eldingu II, 27 fet á lengd
og hefur nóg að gera við að sinna
eftirspurninni. Gísli lætur sér ekki
nægja að vera einungis með
sjóstangaveiði, hann er einnig með
hvalaskoðun á sínum snærum og
svartfuglaveiði á Faxaflóanum.
„Útlendingar eru duglegir að
koma í sjóstöngina hjá mér og eru
spenntir fyrir hvalaskoðuninni
einnig, en fram að þessu hef ég ein-
ungis farið með Islendinga í svart-
fuglaskytteríið. Ég á ekki byssu
sjálfur og hef reyndar aldrei veirð
byssumaður. Ég hef aldrei skotið
svartfugl sjálfur, en fæ stundum í
soðið hjá þeim sem veiða hjá mér,“
sagði Gísli.
Fara á hverju ári
Blaðamaður DV átti þess kost að
komast í ferð með tveimur reyndum
svartfuglaskyttum með Eldingu,
Bjarka Karlssyni og Arnari B. Vign-
issyni. Þeir fóru á svartfugl með
Gísla síðastliðið vor og ekki kom
annað til greina en að fara að
minnsta kosti eina ferð aftur á líð-
andi vori. Bjarki og Amar eru báð-
ir búsettir í Reykjavík og það voru
mikil þægindi að geta tekið Akra-
borgina upp á Skaga og gengið þar
beint um borð í Eldingu. Innan við
hálftíma eftir að Akraborgin lagðist
að bryggju, var sportveiðin hafin á
fullu. Gísli vissi hvar bestu veiði-
svæðin voru og stefnan var fljótlega
tekin út í Syðra-Hraun í Faxaflóan-
um, um 20 km frá Akranesi. Dýpi er
ekki mikið í Syðra-Hrauni og svart-
fuglinn heldur mikið til á því svæði
því hann getur kafað til botns eftir
æti á þessum slóðum.
„Hópur beint framundan klukkan
eitt um 60 metra í burtu,“ sagði Am-
ar og Gísli var fljótur að taka við
sér. Eldingu var á örskotsstundu
siglt upp að hópi af langvíu og bátn-
um snúið þannig að skytturnar
gætu skotið frá hægri hlið bátsins.
Þannig gekk veiðin fyrir sig, skimað
eftir fugli, leiðbeiningar kallaðar til
stýrimannsins og stefnan tekin eftir
klukkunni. Arnar og Bjarki voru
greinilega báðir þaulvanir og hittu
jafnan fuglinn í fyrsta skoti þó öldu-
gangur væri nokkur. 1 sumum til-
fellum þurfti nokkur skot til og oft
náði fuglinn að bjarga sér.
Svartfuglaveiðin gengur mest út á
að reyna að hitta fuglinn áður en
hann nær að kafa. Ef svartfuglinn
nær að kafa, verður að fylgjast vel
með þegar hann kemur upp aftur og
ná strax miði á hann. Oftast liggja
2-5 fuglar í valnum og þá er um að
gera að vera fljótur að grípa til háfs-
ins.
Veiðigleðin skein af skyttunum
og oft mikill hamagangur í öskj-
unni. Amar og Bjarki gættu þess þó
vel að aldrei væri nein hætta á ferð-
um í meðferð skotvopnanna. Ef ann-
ar bátur sást í sigti, hættu menn
samstundis að skjóta og sigldu frá
hvor öðrum. Menn vilja ógjarnan
trufla hvor annan, hvort sem um er
að ræða svartfugl eða sjóstöng.
Skytturnar vildu helst aðeins elt-
ast við álkuna og langvíuna og
höfðu oft ekki fyrir því að skjóta á
lundann þó að hann væri í sigtinu.
Lundinn er helmingi minni fugl og
því ekki eftir eins miklu að slægjast.
Vilja vera lengur
„Ég var með ákveðið kerfi á
svartfuglaskytteríinu I fyrra, þá
bauð ég upp á þriggja tíma túra fyr-
ir 4.000 krónur á manninn. Menn
héldu margir að þeir gætu ekki ver-
ið lengur en vildu gjaman bæta við
tíma. Ég breytti þess vegna fyrir-
komulaginu og nú miða ég við að
verðið sé 1350 krónur á mann fyrir
hvem klukkutíma og geta menn þá
verið lengur en þrjá tíma ef þeir
vilja. Tíminn vill vera fljótur að líða
og túrar geta verið upp í allt að 5
tírnum," sagði Gísli.
„Það hefur aldrei klikkað að
menn fái svartfugl í þessum ferðum,
en magnið er auðvitað misjafnt eins
og gengur. Það telst ágætis veiði ef
menn eru að fá uppundir 100 fugla á
þriggja tíma túr. Ljóst er að ef menn
era heppnir með veiði, geta þeir náð
vel upp í kostnað og jafnvel umfram
það ef þeir koma fuglinum i verð.“
Þetta er fjórða sumarið sem Gisli
er með Eldingu II í þessum ferðum,
en hann byrjaði þó ekki á svart-
fuglaveiðinni fyrr en sumarið 1996.
„Fram að því hafði aðal áherslan
hjá mér verið á sjóstöngina, en
einnig nokkuð á hvalaskoðunina
sem sífellt er að færast í vöxt. Ég hef
reyndar aðeins farið með íslendinga
í svartfuglinn.
Það er ekki langt að fara eftir
svartfuglinum út frá Akranesi. Ég
er ekki nema 15-20 mínútur að sigla
hérna út í Syðra-Hraun i Faxaflóan-
um, en þar er oft mikið af fugli. Það
er oft ansi mikið að gera í svartfugl-
inum, enda stendur tímabilið ekki
lengi yfir. Því lýkur þann 10. maí og
ég hef varla undan að sinna eftir-
spuminni á þeim tíma. Sjóstöngin
varir hins vegar allt fram í miðjan
september. Menn hafa verið að biðja
mig um að fara að vetri til, en ég hef
ekki lagt í það, ég vil aðallega
standa í þessu yfir sumartimann,"
sagði Gísli.
Mikil upplifun
„Ég fór eitt sinn með hóp af
Frökkum í sjóstangaveiði og allar
forsendur voru fyrir hendi til að
gera túrinn ánægjulegan. Fljótlega
stefndi þó í óefni því konumar í
hópnum voru eitthvað viðkvæmar
fyrir flskinum og vildu ómögulega
vera að drepa þá. Ég var í vandræð-
um út af þessu en hafði séð hval
stuttu áður koma úr kafi og ég
ákvað að stefna í þá átt sem mér
sýndist hann vera að fara.
Ég var ekki búinn að sigla nema
fimm mínútur þegar hvalur kom
upp rétt við hliðina á bátnum. Hann
var ansi stór en ég er ekki viss um
hvaða tegund það var. Sá hvalur
gerði sér það að leik að hringsóla í
kringum bátinn í heilar tuttugu
mínútur við mikla hrifningu Frakk-
anna. Þeir fengu þama reynslu lífs
síns og héldu varla vatni af hrifn-
ingu.
Annars má segja að þessi hópur
Frakka hafi verið undantekning frá
reglunni. Yfirleitt finnst útlending-
unum það mikið ævintýri að kom-
ast í sjóstangaveiði og ekki spillir
fyrir ef hægt er að draga nokkur
hundruð kíló á örfáum klukku-
stundum. Því eru útlendingarnir
ekki vanir. Ég fæ héma fólk af ótrú-
lega mörgu þjóðerni, Þjóðverja,
Belga, ítali, Frakka, Norðmenn,
Svía, Dani, Finna, Eistlendinga svo
einhverjir séu nefndir. Ég hef aldrei
lent í neinum vandamálum með
munnleg samskipti, ég tala ágæta
ensku og það bjarga sér flestir á því
máli.“
Báturinn lengdur
Báturinn Elding II er smíðaður
hjá Mótun árið 1981. Hann var upp-
haflega 23 fet en var lengdur og er
nú 27 fet. „Ég keypti Eldingu II árið
1991 og þurfti að hafa heilmikið fyr-
ir því að standsetja hann. Hann
hafði legið við bryggju við Suður-
eyri í 3 ár og ekki einu sinni verið
lensaður á þeim tíma.
Ég tók hann alveg í gegn og var
búinn að því 1994 og byrjaði þá í sjó-
stönginni. Ég skipti um vél í bátn-
um og er nú með Volvo Penta sem
er 200 hestöfl. Hún skilar allt að
35-40 mílna hraða þegar best lætur,“
sagði Gísli.
Á stíminu i land var tækifærið
notað og gert að fuglinum og er það
nokkur kúnst. I þessu tilfelli voru
vanar hendur að verki og fuglinn
allur hamflettur og báturinn vel
þrifmn þegar komið var að bryggju
í Akraneshöfn. Arnar taldi að aflinn
væri um sjö tugir, en Bjarki taldi að
hann væri nær hundraðinu. Þá fé-
lagana munaði ekkert um að gefa
Gísla 10 fugla í soðið.
-ÍS
Á stíminu í land var tækifærið notað
og gert aö fuglinum og er það nokk-
ur kúnst.
Um borð í bátnum Eldingu II er nákvæmt GPS-tæki sem er mikið öryggisat-
riði og auðveldar allar staösetningar.
Létt á reglum
Rekstraraðilar breskra spila-
víta varpa nú öndinni léttar
vegna þess að reglur um spila-
víti hafa verið rýmkaðar mjög
: að undanförnu. Kvartað hafði
verið undan því að Bretar væru
orðnir langt á eftir kollegum
sínum í Evrópu og að þeir væru
að tapa i samkeppninni um það
fé sem almenningur eyddi í
þess konar starfsemi.
Methraði
Ný Boeing 777 þota setti nýtt
hraðamet á flugi í kringum
hnöttinn í síðustu viku. Hún
flaug með viðkomu á einum
stað á 42 klukkustundum, 6
klukkustunda skemmri tíma en
áður hafði náðst fyrir þá tegund
flugvéla. Flogið var frá Seattle í
kringum hnöttinn með við-
komu í Kuala Lumpur. Boeing-
þotan flaug að meðaltali 885
kílómetra á klukkustand.
Nýir
ferðatékkar
Til þess að reyna að klekkja á
fölsurum hefur fyrirtækið
American Express gefið út nýj-
ar tegundir ferðatékka sem eiga
að vera öruggari í notkun en
þeir eldri. Mjög eiíitt er að falsa
nýju tegundina og tékkarnir
eru einnig auðveldari fyrir
bankamenn. Ferðatékkarnir
nýju era fyrir upphæðirnar 50,
100, 500 og 1.000 dollara. Áætlað
er að þeir komi í notkun utan
Bandaríkjanna í september
næstkomandi.
Litlir
og stórir
Bandaríska flugmálaeftirlitið
hefur tilkynnt að undangeng-
inni rannsókn að smærri flugfé-
lög í landinu geri ekki minni
öryggiskröfur en þau stærri.
Ástand flugvéla og þotna, sem
flytja á milli 10 og 30 farþega, er
yfirleitt mjög gott í Bandaríkj-
unum.
Hlutfall
pantana
Boeing-flugfélagið hefúr yfir-
burðastöðu gagnvart keppinaut-
um sínum. Á árinu 1995 voru
70% pantana um nýjan flugvéla-
kost hjá flugfélögum heims við
Boeing. Markaðshlutdeild Air-
bus var þá 15% og McDonnell
Douglas 10%.
Fleiri
karlmenn
Samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem gerð var á hótel-
um víða um heim notar um
þriðjungur allra karlmanna
(33%) minibarinn á hótelher-
bergi sínu en aðeins 19%
kvenna.
Gleymska
í sömu könnun kom fram að
um 46% ferðamanna telja sig
hafa gleymt að pakka einhverju
| heima sem nauðsynlegt er að
hafa meðferðis á ferðalagi. Um
1% aðspurðra í könnuninni við-
urkenndi að hafa einhvem tíma
gleymt að taka bamið með í
ferðalagið. Einnig kom fram að
um 64% farþega í flugi brydd-
uðu upp á samræðum við sætis-
félaga sína sem eru að öllu leyti
ókunnir. í 27% þeirra tilfella,
kemst á eitthvert viðskiptasam-
band milli þeirra.