Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 31
LAUGARDAGUR 3. MAI 1997 39 ■ Hvar endast peningarnir best? Sló»raK8W* «9.1 mmmmi ®°.« BúigáHRtp 52.8 TéhkJand 54 54,2 wm. Ungyeijaland 55,1 Eistland 59,5 L«ttlaiyf8IM|l63'9 TyrklantMMH66’5 MaltlWMí67.8 58.5 ®68,9 Makedónía 72 78,2 W#78"4 Portúgai 79.5 a 84,8 tfVY,?,;: 86,1 HollarvdMWM86’1 ■MHHICR68'5 '■KSmborg -;1«B93,3 :hmmhi 94's :iwi^imiw—mjfrrwnT »6,i mÉHÉMMHni97-3 Austurrtkl 'MM 98.7 Frakkland SÉMÍSM99’3 S4MMMM1(k> Rnnland 103,6 DanmörK TMMÉHHM j118.9 Rússland MMMMM122'9 ísiand 124,7 127,8 ^.2 0 20 40 60 80 100 120 140 Truflanir Miklar truflanir hafa orðið á innanlandsflugi í Frakklandi vegna verkfalls flugmanna hjá Air France-flugfélaginu, sem starfar einungis innanlands. Truflanimar hafa aðallega ver- ið á flugleiðunum París-Nice, París-Marseilles og París-Tou- louse. Verkfall flugmanna fé- lagsins er vegna ráðagerða um yfirtöku flugfélagsins Air Inter á Air France. Andsnúnir samfloti Breska flugfélagið British Airways hefur undanfarið lok- að innritunarborðum sínum á Charles de Gaufle-flugvellinum við París á sama tíma og Air Al- gerie-flugfélagið afgreiðir sína farþega frá Alsír. Hryðjuverk bókstafstrúarmanna frá Alsír hafa verið algeng undanfarin ár og British Airways hefur engan áhuga á að stofna öryggi sinna flugfarþega í hættu með sam- floti við Air Algerie. Á Charles de Gaulle-flugvelli er sama færi- bandið notað fyrir farangur far- þega Air Algerie og British Air- ways. Air Algerie hóf flug aftur til Parísar í síðustu viku eftir tveggja ára hlé. Samstarf Breska flugfélagið British Midland og þýska flugfélagið Lufthansa ætla að hefja sam- starf á flugleiðunum London- Köln- Róm. British Midland mun útvega flugvélar á þessar flugleiðir en bæði flugfélögin selja miða í þessar ferðir. Þann fyrsta apríl gengu í gildi þær reglur innan EES, að öllum flugfélögum landanna er heim- ilt að fljúga á flugleiðum innan Evrópusambandsins. Fjöldi flugfélaga innan EES hafa uppi áform um viðlíka samstarf. Evrópa: Hvar endast peningarnir best? Nánast allir ferðamenn velta því fyrir sér hvað þeir fái mikið fyrir peninginn í því landi sem ferðast er til. I mörgum tilfellum er það sá þáttur sem ræður því hvert ferðinni er heitið hjá ferðamanninum. Það gefur auga leið að það er betra að vera ferðamaður í landi þar sem meðaltalsmáltíðin kostar 1.000 krón- ur, eða þar sem punga þarf út 3.000 krónum á manninn. í sænska blaðinu Expressen birt- ist nýverið á ferðasíðum blaðsins at- hyglisvert línurit þar sem reiknað- ur var út kostnaðurinn í öllum lönd- um Evrópu. ísland kemur ekki vel út úr þeim samanburði eins og sjá má á töflunni hér til hliðar, eins og vænta mátti, enda er verðlag hér- lendis með þvi hærra sem gerist í álfunni. Peningar ferðamanna end- ast best i þeim löndum sem fyrir lok kalda stríðsins voru fyrir austan ,jámtjaldið“. Slóvakía ódýrasta landið Ódýrasta land álfunnar er Slóvakía, en þar fást 2,5 krónur fyr- ir hverja eina sem eytt er á íslandi (124,7 deilt með 49,1). Undantekning- in frá þeirri reglu er þó Rússland sjálft, en þar er verðlagið svipað og á íslandi. Spánn er ódýrasta landið í vesturhluta Evrópu og verðlag í Bretlandi er á svipuðum nótum. Nokkuð kemur á óvart að írland er töluvert dýrara en Bretland. Norð- menn era ríkasta þjóð Evrópu en verðlagið er einnig hæst í þvi landi, þó ekki muni miklu á því og íslandi. Fyrir utan Noreg, er það aðeins Sviss sem telst vera dýrara land en ísland. Notaðar voru umfangsmiklar reikniaðferðir til að fá út þessar töl- ur. Alþjóðlega fyrirtækið „Employ- ment Conditions Abroad“ (ECA), með höfuðstöðvar í London, reiknar út framfærslukostnað í einum 300 löndum heims. Reiknaður er kostn- aður á einum 114 vörum eða þjón- ustu í hverju landi og framfærslan reiknuð út frá því. Blaðamenn Expressen notuðu flest- ar þessar tölur í sína útreikninga, en felldu þó út þá liði sem ólíklegt er að komi við pyngju ferðamannsins. Þar á meðal er kostnaður af þvottavélum, heimilishjálp, bíldekkjum og kæli- skápum svo eitthvað sé nefht. Til við- bótar reiknaði Expressen út verð á hótelherbergjum eða öðrum gististöð- um. Útkoman sést síðan á grafinu hér til hliðar. ÍS Látrabjarg skoðað frá sjó DV, Tálknafirði: Nýstofnað er fyrirtækið Bjargsýn ehf. i eigu Odds Guðmundssonar á Patreksfirði og Bjama Andréssonar á Tálknafirði. Það hefur fest kaup á 23 tonna báti til siglinga með ferða- menn í útsýnisferðir. Aðaláherslan verður lögð á að bjóða ferðir upp undir Látrabjarg og skoða bjargið frá sjó. Þá geta ferða- menn valið um ferðir sjálfir - óskað eftir að fara á einhvem eða ein- hverja ákveðna staði. Sumarið fer að einhverju leyti í þreifingar á því hvernig starfseminni verði best háttað i framtíðinni. Báturinn, sem tekur 28 manns, var áður í eigu Tollgæslunnar. Ráð- gert er að ferðir hefjist sem fyrst enda fer í hönd sá tími sem er hvað áhugaverðastur til að skoða Látra- bjarg meðan á varpi sjófugla stend- ur. -KA ATH. okkar lága verð Á nýju myndbandi Saga film er íslandi lýst í hnotskurn á 24 mínútum. Neðanjarðargöng Borgarbúar í Hong Kong hafa beðið lengi eftir því að neð- anjarðargöng undir borginni verði tekin í notkun til að létta á umferðarþunganum í borg- inni. Umferð er óvíða þyngri á jarðarkringlunni en í Hong Kong. Göngin voru óhemjudýr, kostuðu um 70 milljarða króna, og ætlunin er að ná því fé til baka að stórum hluta með því aö rakka vegfarendur um toll. Landkynning: Island í hnotskurn Þegar ísland er kynnt erlendis er mest áhersla lögð á fallegt landslag, eldfjöll, hveri og jökla. Margir vilja þó vita meira um sögu landsins og daglegt líf íslendinga. Nýtt land- kynningarmyndband Saga film, sem nefnist Iceland in a Nutshell eða ís- land í hnotskurn, kemur til móts við þessa þörf með víðtækri umfjöllun um land og þjóð. Á myndbandinu er íslandi lýst í hnotskurn á 24 mínútum, allt frá jarðfræðilegum uppruna til skemmtanalífs íslendinga. Meðal annars er fjallað um landnám, at- vinnuvegi, menntun og menningu landsmanna. Margar faflegustu nátt- úruperlur landsins prýða mynd- bandið en einnig era helstu þéttbýl- isstaðir landsins kynntir í máli og myndum. Iceland in a Nutshell er þegar til á ensku, dönsku og þýsku en á næst- unni verður myndbandið einnig gef- iö út á frönsku og spænsku. Handrit myndarinnar er eftir Ara Trausta Guðmundsson og kvikmyndataka í höndum Sigmundar Arthúrssonar. Vinnslan á myndbandinu tók þrjú ár en þetta er þriðja landkynningar- myndband Saga film. Fyrsta mynd- bandið kom út árið 1989 og síðan kom myndbandið Iceland, a Land for All Seasons út árið 1991. Það myndband var mjög vinsælt, bæði meðal erlendra ferðamanna og til landkynningEur erlendis. -ÍS Tegund Ökuljós Afturljós Ökuljós Carade '88 5.900 4.600 Opel Kadett '85 4.900 Golf '84-'91 2.800 4.400 Mazda 323 '86-'87 6.600 Golf '92 8.900 5.900 Corolla '86-'87 5.500 Escort‘87-'91 5.100 3.700 Corolla '90-'92 6.600 L200 '87 3.400 Corolla '93 7.800 Hi Lux '89-'92 3.400 Lancer'85-'87 6.400 Isuzu pickup '88 3.400 Pathfinder '87 6.400 Nissan pickup '87 3.400 Trooper 7.400 Fiat Uno '89 4.300 Citroen BX 6.300 Fiat Uno '90 6.400 Peugeot309 6.600 Peugeot 205 4.600 Regata 6,100 Sunny '86-'89 7.400 og fleiri gerðir GS varahlutir Hamarshöfða 1 Reykjavík - Sími - 567 67 44

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.