Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Síða 31
LAUGARDAGUR 3. MAI 1997
39 ■
Hvar endast peningarnir best?
Sló»raK8W* «9.1
mmmmi ®°.«
BúigáHRtp 52.8
TéhkJand 54
54,2
wm.
Ungyeijaland 55,1
Eistland 59,5
L«ttlaiyf8IM|l63'9
TyrklantMMH66’5
MaltlWMí67.8
58.5
®68,9
Makedónía 72
78,2
W#78"4
Portúgai 79.5
a 84,8
tfVY,?,;: 86,1
HollarvdMWM86’1
■MHHICR68'5
'■KSmborg -;1«B93,3
:hmmhi 94's
:iwi^imiw—mjfrrwnT »6,i
mÉHÉMMHni97-3
Austurrtkl 'MM 98.7
Frakkland SÉMÍSM99’3
S4MMMM1(k>
Rnnland 103,6
DanmörK TMMÉHHM j118.9
Rússland MMMMM122'9
ísiand 124,7
127,8
^.2
0 20 40 60 80 100 120 140
Truflanir
Miklar truflanir hafa orðið á
innanlandsflugi í Frakklandi
vegna verkfalls flugmanna hjá
Air France-flugfélaginu, sem
starfar einungis innanlands.
Truflanimar hafa aðallega ver-
ið á flugleiðunum París-Nice,
París-Marseilles og París-Tou-
louse. Verkfall flugmanna fé-
lagsins er vegna ráðagerða um
yfirtöku flugfélagsins Air Inter
á Air France.
Andsnúnir samfloti
Breska flugfélagið British
Airways hefur undanfarið lok-
að innritunarborðum sínum á
Charles de Gaufle-flugvellinum
við París á sama tíma og Air Al-
gerie-flugfélagið afgreiðir sína
farþega frá Alsír. Hryðjuverk
bókstafstrúarmanna frá Alsír
hafa verið algeng undanfarin ár
og British Airways hefur engan
áhuga á að stofna öryggi sinna
flugfarþega í hættu með sam-
floti við Air Algerie. Á Charles
de Gaulle-flugvelli er sama færi-
bandið notað fyrir farangur far-
þega Air Algerie og British Air-
ways. Air Algerie hóf flug aftur
til Parísar í síðustu viku eftir
tveggja ára hlé.
Samstarf
Breska flugfélagið British
Midland og þýska flugfélagið
Lufthansa ætla að hefja sam-
starf á flugleiðunum London-
Köln- Róm. British Midland
mun útvega flugvélar á þessar
flugleiðir en bæði flugfélögin
selja miða í þessar ferðir. Þann
fyrsta apríl gengu í gildi þær
reglur innan EES, að öllum
flugfélögum landanna er heim-
ilt að fljúga á flugleiðum innan
Evrópusambandsins. Fjöldi
flugfélaga innan EES hafa uppi
áform um viðlíka samstarf.
Evrópa:
Hvar endast peningarnir best?
Nánast allir ferðamenn velta því
fyrir sér hvað þeir fái mikið fyrir
peninginn í því landi sem ferðast er
til. I mörgum tilfellum er það sá
þáttur sem ræður því hvert ferðinni
er heitið hjá ferðamanninum. Það
gefur auga leið að það er betra að
vera ferðamaður í landi þar sem
meðaltalsmáltíðin kostar 1.000 krón-
ur, eða þar sem punga þarf út 3.000
krónum á manninn.
í sænska blaðinu Expressen birt-
ist nýverið á ferðasíðum blaðsins at-
hyglisvert línurit þar sem reiknað-
ur var út kostnaðurinn í öllum lönd-
um Evrópu. ísland kemur ekki vel
út úr þeim samanburði eins og sjá
má á töflunni hér til hliðar, eins og
vænta mátti, enda er verðlag hér-
lendis með þvi hærra sem gerist í
álfunni. Peningar ferðamanna end-
ast best i þeim löndum sem fyrir lok
kalda stríðsins voru fyrir austan
,jámtjaldið“.
Slóvakía ódýrasta landið
Ódýrasta land álfunnar er
Slóvakía, en þar fást 2,5 krónur fyr-
ir hverja eina sem eytt er á íslandi
(124,7 deilt með 49,1). Undantekning-
in frá þeirri reglu er þó Rússland
sjálft, en þar er verðlagið svipað og
á íslandi. Spánn er ódýrasta landið í
vesturhluta Evrópu og verðlag í
Bretlandi er á svipuðum nótum.
Nokkuð kemur á óvart að írland er
töluvert dýrara en Bretland. Norð-
menn era ríkasta þjóð Evrópu en
verðlagið er einnig hæst í þvi landi,
þó ekki muni miklu á því og íslandi.
Fyrir utan Noreg, er það aðeins
Sviss sem telst vera dýrara land en
ísland.
Notaðar voru umfangsmiklar
reikniaðferðir til að fá út þessar töl-
ur. Alþjóðlega fyrirtækið „Employ-
ment Conditions Abroad“ (ECA),
með höfuðstöðvar í London, reiknar
út framfærslukostnað í einum 300
löndum heims. Reiknaður er kostn-
aður á einum 114 vörum eða þjón-
ustu í hverju landi og framfærslan
reiknuð út frá því.
Blaðamenn Expressen notuðu flest-
ar þessar tölur í sína útreikninga, en
felldu þó út þá liði sem ólíklegt er að
komi við pyngju ferðamannsins. Þar
á meðal er kostnaður af þvottavélum,
heimilishjálp, bíldekkjum og kæli-
skápum svo eitthvað sé nefht. Til við-
bótar reiknaði Expressen út verð á
hótelherbergjum eða öðrum gististöð-
um. Útkoman sést síðan á grafinu hér
til hliðar. ÍS
Látrabjarg skoðað frá sjó
DV, Tálknafirði:
Nýstofnað er fyrirtækið Bjargsýn
ehf. i eigu Odds Guðmundssonar á
Patreksfirði og Bjama Andréssonar
á Tálknafirði. Það hefur fest kaup á
23 tonna báti til siglinga með ferða-
menn í útsýnisferðir.
Aðaláherslan verður lögð á að
bjóða ferðir upp undir Látrabjarg og
skoða bjargið frá sjó. Þá geta ferða-
menn valið um ferðir sjálfir - óskað
eftir að fara á einhvem eða ein-
hverja ákveðna staði. Sumarið fer
að einhverju leyti í þreifingar á því
hvernig starfseminni verði best
háttað i framtíðinni.
Báturinn, sem tekur 28 manns,
var áður í eigu Tollgæslunnar. Ráð-
gert er að ferðir hefjist sem fyrst
enda fer í hönd sá tími sem er hvað
áhugaverðastur til að skoða Látra-
bjarg meðan á varpi sjófugla stend-
ur. -KA
ATH.
okkar lága verð
Á nýju myndbandi Saga film er íslandi lýst í hnotskurn á 24 mínútum.
Neðanjarðargöng
Borgarbúar í Hong Kong hafa
beðið lengi eftir því að neð-
anjarðargöng undir borginni
verði tekin í notkun til að létta
á umferðarþunganum í borg-
inni. Umferð er óvíða þyngri á
jarðarkringlunni en í Hong
Kong. Göngin voru óhemjudýr,
kostuðu um 70 milljarða króna,
og ætlunin er að ná því fé til
baka að stórum hluta með því
aö rakka vegfarendur um toll.
Landkynning:
Island í hnotskurn
Þegar ísland er kynnt erlendis er
mest áhersla lögð á fallegt landslag,
eldfjöll, hveri og jökla. Margir vilja
þó vita meira um sögu landsins og
daglegt líf íslendinga. Nýtt land-
kynningarmyndband Saga film, sem
nefnist Iceland in a Nutshell eða ís-
land í hnotskurn, kemur til móts við
þessa þörf með víðtækri umfjöllun
um land og þjóð.
Á myndbandinu er íslandi lýst í
hnotskurn á 24 mínútum, allt frá
jarðfræðilegum uppruna til
skemmtanalífs íslendinga. Meðal
annars er fjallað um landnám, at-
vinnuvegi, menntun og menningu
landsmanna. Margar faflegustu nátt-
úruperlur landsins prýða mynd-
bandið en einnig era helstu þéttbýl-
isstaðir landsins kynntir í máli og
myndum.
Iceland in a Nutshell er þegar til
á ensku, dönsku og þýsku en á næst-
unni verður myndbandið einnig gef-
iö út á frönsku og spænsku. Handrit
myndarinnar er eftir Ara Trausta
Guðmundsson og kvikmyndataka í
höndum Sigmundar Arthúrssonar.
Vinnslan á myndbandinu tók þrjú
ár en þetta er þriðja landkynningar-
myndband Saga film. Fyrsta mynd-
bandið kom út árið 1989 og síðan
kom myndbandið Iceland, a Land
for All Seasons út árið 1991. Það
myndband var mjög vinsælt, bæði
meðal erlendra ferðamanna og til
landkynningEur erlendis. -ÍS
Tegund Ökuljós Afturljós Ökuljós
Carade '88 5.900 4.600 Opel Kadett '85 4.900
Golf '84-'91 2.800 4.400 Mazda 323 '86-'87 6.600
Golf '92 8.900 5.900 Corolla '86-'87 5.500
Escort‘87-'91 5.100 3.700 Corolla '90-'92 6.600
L200 '87 3.400 Corolla '93 7.800
Hi Lux '89-'92 3.400 Lancer'85-'87 6.400
Isuzu pickup '88 3.400 Pathfinder '87 6.400
Nissan pickup '87 3.400 Trooper 7.400
Fiat Uno '89 4.300 Citroen BX 6.300
Fiat Uno '90 6.400 Peugeot309 6.600
Peugeot 205 4.600 Regata 6,100
Sunny '86-'89 7.400 og fleiri gerðir
GS
varahlutir
Hamarshöfða 1 Reykjavík - Sími - 567 67 44