Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Side 46
54 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 afmæli Sigríður Árnadóttir kennari, Arn- arbæli, Grímsneshreppi, er níræð í dag. Starfsferill Sigríður fæddist að Oddgeirshól- um í Flóa og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1930-32 og lauk kenn- araprófi frá KÍ 1934. Sigríður kenndi við bamaskóla í Vestmannaeyjum 1934-41, við barna- skóla að Ljósafossi 1957-59, var þar skólastjóri 1961-62 og stundaði heimakennslu um skeið. Sigríður var ritari Ungmennafé- lagsins Baldurs í Hraungerðishreppi í nokkur ár, formaður Kvennafélags Grímsneshrepps 1967-78 og sat í full- trúaráði KRFÍ um árabil. Hún sat í ritnefnd fyrir ritið Gengnar slóðir, 50 ára minningarrit Sambands sunnlenskra kvenna, 1978 og í rit- nefnd Ársrits SSK 1983-85. Þá skrif- aði hún greinar i blöð. Fjölskylda Sigríður giftist 25.10. 1941 Guð- mundi Kristjánssyni, f. 5.3. 1903, d. 15.6. 1991, bónda í Amarbæli. Hann var sonur Kristjáns Sigurðssonar, f. 4.6. 1870, d. 15.10. 1943, bónda í Arn- arbæli, og k.h., Guð- rúnar Jónsdóttur, f. 4.11. 1874, d. 7.12. 1940, húsfreyju. Böm Sigríðar og Guðmundar era Elín, f. 4.10. 1942, meina- tæknir og húsmóðir í Reykjavík, gift Jósef Skaftasyni lækni og eiga þau eina dóttur; Kristín Erna, f. 9.10. 1943, íþróttakennari, sjúkraþjálfari og hús- Sigríöur Árnadóttir. Kristján Briem, f. 28.8. 1918, bóndi í Oddgeirshól- um og síðar á Selfossi; Ólöf Elísabet, f. 31.1. 1920, húsmóðir á Selfossi, en maður hennar er Jón Ólafsson. Foreldrar Sigríðar voru Ámi Árnason, f. 24.7. 1877, d. 10.5. 1936, bóndi í Odd- geirshólum, og k.h., Elín Steindórsdóttir Briem, f. 20.7.1881, d. 30.8. 1965, hús- freyja. móðir í Reykjavík, en maður hennar er Jónas Ellasson og eiga þau einn son; Guðrún Ema, f. 9.10. 1943, kjólameistari í Reykjavík og kennari við Iðnskólann í Reykja- vik; Ámi, f. 1.9. 1945, starfsmaður við vinnuvélar, búsettur í Arnar- bæli. Systkini Sigríðar: Steindór, f. 17.6. 1904, d. 1.4. 1906; Steindór Briem, f. 3.10. 1908, d. 4.8. 1937; Katrín, f. 26.5. 1910, húsfreyja í Hlið í Gnúpverja- hreppi, gift Steinari Pálssyni; Ólaf- ur, dó frumvaxta; Ólafur, f. 23.5. 1915, d. 19.5. 1996, bóndi í Oddgeirs- hólum og siðar á Selfossi, var kvæntur Guðmundu Jóhannsdóttur; Guðmundur, f. 27.8. 1916, bóndi í Oddgeirshólum en kona hans er Ilse Árnason, f. Wallmann; Jóhann Ætt Árni var sonur Árna, b. í Dalbæ, Gunnarssonar. Móðir Árna í Odd- geirshólum var Katrín, systir Sunn- evu, móður Sigurðar Guðnasonar, alþm. og formanns Dagsbrúnar. Önnur systir Katrínar var Guðrún, langamma Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara. Katrín var dóttir Bjama, b. í Tungufelli, Jónssonar og Katrínar Jónsdóttur, systur Þóru, langömmu Halls Símonarsonar og Sigríðar, móður Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Móðir Katrínar var Katrín Jónsdóttir, b. í Reykjadal, Ei- ríkssonar, ættföður Bolholtsættar- innar, Jónssonar. Elín var systir Jóhanns Briem, prests á Melstað. Elín var dóttir Steindórs Briem, prests i Hruna, Jó- hannssonar Briem, prófasts í Hruna, bróður Jóhönnu, móður Tryggva Gunnarssonar bankastjóra og ömmu Hannesar Hafsteins. Bróðir Jóhanns var Ólafur timburmeistari, afi Val- gerðar, ömmu Davíðs forsætisráð- herra. Annar bróðir Jóhanns var Eggert, sýslumaður á Reynistað, langafi Gunnars Thoroddsens forsæt- isráðherra. Jóhann var sonur Gunn- laugs Briems, ættöður Briemsættar- innar. Móðir Steindórs var Sigríður Stefánsdóttir, hreppstjóra i Oddgeirs- hólum í Flóa, Pálssonar og Guðríðar Magnúsdóttur, vicelögmanns á Með- alfelli, Ólafssonar. Móðir Elínar var Kamilla Sigríð- ur, dóttir Rasmusar Peters Hall, verslunarmanns í Reykjavík, frá Frederikssund á Sjálandi, og k.h., Önnu Margrétar Nörgárd. Sigríður tekur á móti gestum í safnaðarheimili Seljakirkju í dag milli kl. 15.00 og 18.00. Gjafir og blóm eru vinsamlega afþökkuð en Sigríður minnir þess í stað á söfnun handa Kristínu Gísladóttur, ekkju Elíasar Amar Kristjánssonar báts- manns sem fórst við björgunarstörf. Framlög eru lögð inn á bankareikn- ing nr. 115405-440000 hjá SPRON í Skeifunni. Bjarni Steingrímsson Bjarni Stein- grímsson, verka- maður hjá Nes- fiski, Kirkjubraut 24, Innri-Njarð- vík, er fertugur í dag. Bjarni Steingrímsson. Bjarni fæddist á Hólmavík en ólst upp á Stað í Steingrímsfirði við öll almenn sveitastörf. Hann var í barnaskóla á Klúku í Bjarnarfirði á aldrinum níu til þrettán ára. Bjarni hóf fiskvinnslustörf við Frystihús Hólmavíkur er hann var fjórtán ára, vann hjá Vegagerði rík- isins um skeið og síðan hjá Rarik. Hann flutti til Reykjavíkur 1975 og stundaði þar verslunarstörf hjá Byggingarvöruverslun SÍS 1975-79. Bjarni flutti til Keflavíkur 1979 og starfaði þar við Hraðfrystihús Keflavíkur til 1988 er fyrirtækið hætti störfum. Hann hóf þá störf hjá Gæðafiski í Njarðvík og var þar bílstjóri þar til fyrirtækið hætti, vann tvö ár hjá Þurrkfiski á Reykjanesi en hefur starfað hjá Nesfiski frá 1993. Fjölskylda Bjarni kvæntist 10.3. 1979 Guðmundínu Láru Guð- mundsdóttur, f. 19.12. 1959, d. 16.8. 1995, húsmóður og sjúkraliða. Hún var dóttir Guðmundar Pálssonar, vél- smiðs 1 Reykjavík sem er lát- inn, og k.h., Ölgu Guðmunds- dóttur húsmóður. Börn Bjarna og Guðmund- ínu Láru em Brynja Ósk Bjarna- dóttir, f. 15.12. 1983, nemi og fisk- vinnslustúlka; Birgir Óttar Bjarna- son, f. 2.6. 1986; Börkur Óðinn Bjarnason, f. 22.2. 1989. Systkini Bjarna eru Magnús Steingrímsson, f. 24.5. 1955, bóndi á Stað í Steingrímsfirði; Kristín Steingrímsdóttir, f. 28.3. 1962, sjúkraliði við Sjúkrahúsið á Hólma- vík; Loftur Hilmar Steingrímsson, f. 17.7. 1963, verkamaður, búsettur í Keflavík; Finnbogi Steingrímsson, f. 17.7.1963, d. 13.8.1993, starfaði við hótelrekstur í Danmörku. Foreldrar Bjarna: Steingrímur Bergmann Loftsson, f. 21.8. 1925, d. 13.5.1977, bóndi á Stað í Steingríms- firði, og k.h., Ásta Bjarnadóttir, f. 13.11. 1934, húsfreyja, nú búsett á Hólmavík. Eftir lát Steingríms giftist Ásta seinni manni sínum, Margeiri Steinþórssyni, f. 19.8. 1932, lengst af bílstjóra og verslunarmanni hjá Kaupfélagi Steingrimsfjarðar á Hólmavík. Ætt Steingrimur var sonur Lofts, b. í Vík og í Hafnarhólmi, Torfasonar, b. í Asparvík, Björnssonar, b. í Hlíð í Kollafirði, Jónssonar, b. í Heiðar- bæ, Jónssonar. Móðir Lofts var Anna Bjarnveig Bjarnadóttir. Móðir Steingríms var Hildur Gestsdóttir, b. í Hafnarhólmi, Krist- jánssonar, vinnumanns á Kleifum, Jóhannessonar. Móðir Gests var Margrét Pálsdóttir í Reykjavík Jónsssonar. Móðir Hildar var Guð- rún Árnadóttir, b. í Hafnarhólmi, Jónssonar, b. á Fitjum, Hannesson- ar. Móðir Árna var Guðrún Jóns- dóttir. Móðir Guðrúnar Árnadóttur var Hildur Guðbrandsdóttir. Ásta er dóttir Bjarna, b. á Tyrð- lingsmýri, Borgarssonar, í Borgars- húsi við Berjadalsá, bróður Einars, langafa Kristjáns Arasonar, fyrrv. handboltakappa. Borgar var sonur Bjarna, b. á Breiðabóli í Skálavík, bróður Kristjáns, langafa Páls, afa Páls Þorsteinssonar, auglýsinga- stjóra DV, og Steindórs Hjörleifs- sonar leikara, föður Ragnheiðar leikara. Bjarni var sonur Ebenezar, b. í Innri- Hjarðardal, Guðmunds- sonar, b. í Amardal, Bárðarsonar, ættföður Arnardalsættarinnar, 111- ugasonar. Móðir Borgars var Hall- dóra Borgarsdóttir, að Skarði, Höskuldssonar. Móðir Bjarna á Tyrðlingsmýri var Guðný Pálsdótt- ir. Móðir Ástu er Guðbjörg Sigurð- ardóttir, b. í Vonarholti, Magnús- sonar, b. þar, Sakaríassonar, b. á Heydalsá, Jóhannssonar, prests í Garpsdal, Bergsveinssonar, prests á Stað í Grindavík, Hafliðasonar, prests á Hrepphólum, Bergsveins- sonar. Móðir Sigurðar var Guðrún Sigurðardóttir, b. á Borgum, Jóns- sonar. Móðir Guðbjargar var Kristrún Jónsdóttir, Guðbrands- dóttir. Bjarni er að heiman á afmælis- daginn. Útfararstofa Líkkistuvinnustofa Eyvindar Árnasonar Stofnuð 1889 D.H. Ósvaldsson Vesturhllíð S. 551-3485 (Sólarhringsþjónusta) Jónína Kristjánsdóttir Jónína Kristjánsdóttir, Garðavegi 12, Keflavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Jónína er fædd á ísafirði og ólst þar upp. Hún var í Húsmæðraskól- anum á Staðarfelli 1940-41. Jónína flutti til Reykjavíkur 1945 og vann þar við saumaskap og framreiðslu- störf til 1954 er hún flutti til Kefla- vikur. Jónína byrjaði að leika með Leik- félagi Keflavíkur 1963 og var enn fremur formaður félagsins í nokkur ár. í kjölfarið fór hún að afla sér þekkingar á sviði leiklistar og leik- stjómar á fjölmörgum námskeiðum sem sótt voru á ýmsum stóðum á Norðurlöndum. Hún varð síðan leik- stjóri og hefur leikstýrt 20 leikritum víðs vegar um landið. Jónína var formaður BÍL, Banda- lags íslenskra leikfélaga, 1972-81, í stjórn Norræna áhuga- leikarasambandsins, Nordisk Amatör Teatör- rod NAR 1974-82, tók þátt í stofnun Menningarsam- bands aldraðra á Norður- löndum, Samnordisk Pensonist Kultur, og í stjórn þess 1982-91, for- maður Félags eldri borg- ara á Suðurnesjum í tvö ár frá stofhun þess og gjaldkeri í stjóm Lands- sambands aldraðra. Fjölskylda Jónína giftist 7.5. 1942 Jóni Jóns- syni, f. 28.3. 1914, d. 7.10. 1945, frá Ljárskógum. Jónína giftist 1946 Jóhanni Pét- urssyni, f. 18.2. 1918, fyrrum vita- verði. Þau skildu 1948. Jónína giftist 1954 Sigfúsi Kristj- ánssyni, f. 17.8.1924, yfirtollverði. Sonur Jónínu og Jóns er Hilmar Bragi, f. 25.10.1942, matreiðslumeistari, maki Elín Káradóttir, ráðskona að Bessastöðum, þau eiga tvö börn, Jón Kára við- skiptafræðing og Gyðu Björk tækniteiknara. Sonur Jónínu og Jó- hanns er Magnús Brimar, f. 18.6. 1947, flugstjóri, maki Sigurlína Magnús- dóttir Wíum, þau eiga þrjú böm, Magnús Brim- ar Wíum, Sunnu Kristínu og Jó- hann Pétur. Börn Jóntnu og Sigfúsar eru Hanna Rannveig, f. 9.8. 1951, hús- móðir i Hafnarfirði, maki Ágúst Pétursson rafeindavirki, þau eiga fjögur börn, Stefán Pál, Ásdísi Björgu, Ásgeir Sigurð og Gunnar Inga; Drifa Jóna, f. 8.7. 1954, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, maki Óskar Karlsson brunavörður, þau Jónína Kristjánsdóttir. Til hamingju með afmælið 3. maí 80 ára_________________ Kristín Árnadóttir, Hlíf I, Torfnesi, ísafirði. Klemens Kristmannsson, Langholtsvegi 140, Reykjavík. 75 áxa Þorgeir Pétursson, Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík. 70 ára Rannveig Ólafsdóttir, Búlandi 32, Reykjavík. Sigríður Ólafsdóttir, Kirkjubraut 56, Höfii í Homa- firði. Skúli Magnússon, Geitlandi 12, Reykjavík. 60 ára Hreinn Hermannsson, Gullsmára 9, Kópavogi. Loftur Andri Ágústsson, Norðurfelli 1, Reykjavík. Guðmundur M.J. Bjöms- son, Huldulandi 38, Reykjavík. 50 ára Kristín Björnsdóttir, Laufásvegi 16, Stykkishólmi. Magnea Gestsdóttir, Háarima 1, Djúpárhreppi. Hún tekur á móti gestum að heimili sínu í kvöld, eftir kl. 20. Hólmfríður Ámadóttir, Lálandi 13, Reykjavík. Magnús K. Sigurjónsson, Suðurgötu 33, Reykjavík. Þorsteinn Aðalbjörnsson, Norðurgötu 30, Sandgerði. Bjami Kristinsson, Amarheiði 18, Hveragerði. 40 ára Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Skúlagötu 9 A, Borgamesi. Guðmundur Ólafur Ingólfs- son, Sörlaskjóli 5, Reykjavík. Hann tekur á móti gestum í veitingahúsinu Rauða ljóninu, Eiðistorgi, í kvöld, milli kl. 20 og 22. Margrét Sigurðardóttir, Smáratúni 43, Keflavík. Margrét Sigríður Halldórs- dóttir, Smiðjuvegi 19, Kópavogi. Álfheiður S. Guðmundsdótt- ir, Starengi 6, Selfossi. Aðalheiður Einarsdóttir, Lautasmára 49, Kópavogi. Helgi Bjarnason, Aðalgötu 2, Súðavík. Margrét Kristjánsdóttir, Hlíðarhjalla 69, Kópavogi. Benóný Guðjónsson, Holtsgötu 43, Sandgerði. Lára Guðmundsdóttir, Kelduhvammi 24, Hafnarfirði. Arnar Sigmarsson, Fjallalind 143, Kópavogi. Ólafur Sævar Elísson, Klapparbraut 14, Garði. eiga þrjú börn, Daníel, Rakel Dögg og Kára Örn; Sjöfn Eydís, f. 2.2.1956, skrifstofumaður i Hafnarfirði, maki Jóhann Ólafur Hauksson, aðalbók- ari hjá Flugfélagi íslands, þau eiga tvö börn, Tómas Tandra og Kristínu Köru; Snorri Már, f. 27.10. 1957. Langömmuböm Jónínu era fjög- ur, Alfa Karitas, Ásgeir Valur, Hlynur Smári og Guðmundur Karl. Systkini Jónínu: Hanna, f. 12.8. 1918, d. 1935; Margrét, f. 1.2. 1921, húsmóðir í Reykjavík; Magnús, f. 10.1. 1925, d. 1941; Rebekka, f. 14.6. 1932, fararstjóri, búsett í Kópavogi. Foreldrar Jónínu voru Kristján Einarsson, f. 5.1. 1894, d. 24.3. 1979, sjómaður á ísafirði, og Katrín Hólm- fríður Magnúsdóttir, f. 5.10. 1897, d. 12.3. 1990. Kristján var fæddur í Fremri-Hattardal í Álftafirði og Katrín Hólmfríður var fædd í Purk- ey á Breiðafirði. Jónína verður að heiman á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.