Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 46
54
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
afmæli
Sigríður Árnadóttir kennari, Arn-
arbæli, Grímsneshreppi, er níræð í
dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist að Oddgeirshól-
um í Flóa og ólst þar upp. Hún
stundaði nám við Héraðsskólann á
Laugarvatni 1930-32 og lauk kenn-
araprófi frá KÍ 1934.
Sigríður kenndi við bamaskóla í
Vestmannaeyjum 1934-41, við barna-
skóla að Ljósafossi 1957-59, var þar
skólastjóri 1961-62 og stundaði
heimakennslu um skeið.
Sigríður var ritari Ungmennafé-
lagsins Baldurs í Hraungerðishreppi
í nokkur ár, formaður Kvennafélags
Grímsneshrepps 1967-78 og sat í full-
trúaráði KRFÍ um árabil. Hún sat í
ritnefnd fyrir ritið Gengnar slóðir,
50 ára minningarrit Sambands
sunnlenskra kvenna, 1978 og í rit-
nefnd Ársrits SSK 1983-85. Þá skrif-
aði hún greinar i blöð.
Fjölskylda
Sigríður giftist 25.10. 1941 Guð-
mundi Kristjánssyni, f. 5.3. 1903, d.
15.6. 1991, bónda í Amarbæli. Hann
var sonur Kristjáns Sigurðssonar, f.
4.6. 1870, d. 15.10. 1943, bónda í Arn-
arbæli, og k.h., Guð-
rúnar Jónsdóttur, f.
4.11. 1874, d. 7.12.
1940, húsfreyju.
Böm Sigríðar og
Guðmundar era Elín,
f. 4.10. 1942, meina-
tæknir og húsmóðir í
Reykjavík, gift Jósef
Skaftasyni lækni og
eiga þau eina dóttur;
Kristín Erna, f. 9.10.
1943, íþróttakennari,
sjúkraþjálfari og hús-
Sigríöur Árnadóttir.
Kristján Briem, f. 28.8.
1918, bóndi í Oddgeirshól-
um og síðar á Selfossi;
Ólöf Elísabet, f. 31.1. 1920,
húsmóðir á Selfossi, en
maður hennar er Jón
Ólafsson.
Foreldrar Sigríðar voru
Ámi Árnason, f. 24.7. 1877,
d. 10.5. 1936, bóndi í Odd-
geirshólum, og k.h., Elín
Steindórsdóttir Briem, f.
20.7.1881, d. 30.8. 1965, hús-
freyja.
móðir í Reykjavík, en
maður hennar er Jónas Ellasson og
eiga þau einn son; Guðrún Ema, f.
9.10. 1943, kjólameistari í Reykjavík
og kennari við Iðnskólann í Reykja-
vik; Ámi, f. 1.9. 1945, starfsmaður
við vinnuvélar, búsettur í Arnar-
bæli.
Systkini Sigríðar: Steindór, f. 17.6.
1904, d. 1.4. 1906; Steindór Briem, f.
3.10. 1908, d. 4.8. 1937; Katrín, f. 26.5.
1910, húsfreyja í Hlið í Gnúpverja-
hreppi, gift Steinari Pálssyni; Ólaf-
ur, dó frumvaxta; Ólafur, f. 23.5.
1915, d. 19.5. 1996, bóndi í Oddgeirs-
hólum og siðar á Selfossi, var
kvæntur Guðmundu Jóhannsdóttur;
Guðmundur, f. 27.8. 1916, bóndi í
Oddgeirshólum en kona hans er Ilse
Árnason, f. Wallmann; Jóhann
Ætt
Árni var sonur Árna, b. í Dalbæ,
Gunnarssonar. Móðir Árna í Odd-
geirshólum var Katrín, systir Sunn-
evu, móður Sigurðar Guðnasonar,
alþm. og formanns Dagsbrúnar.
Önnur systir Katrínar var Guðrún,
langamma Jóhanns Hjartarsonar
stórmeistara. Katrín var dóttir
Bjama, b. í Tungufelli, Jónssonar og
Katrínar Jónsdóttur, systur Þóru,
langömmu Halls Símonarsonar og
Sigríðar, móður Friðriks Ólafssonar
stórmeistara. Móðir Katrínar var
Katrín Jónsdóttir, b. í Reykjadal, Ei-
ríkssonar, ættföður Bolholtsættar-
innar, Jónssonar.
Elín var systir Jóhanns Briem,
prests á Melstað. Elín var dóttir
Steindórs Briem, prests i Hruna, Jó-
hannssonar Briem, prófasts í Hruna,
bróður Jóhönnu, móður Tryggva
Gunnarssonar bankastjóra og ömmu
Hannesar Hafsteins. Bróðir Jóhanns
var Ólafur timburmeistari, afi Val-
gerðar, ömmu Davíðs forsætisráð-
herra. Annar bróðir Jóhanns var
Eggert, sýslumaður á Reynistað,
langafi Gunnars Thoroddsens forsæt-
isráðherra. Jóhann var sonur Gunn-
laugs Briems, ættöður Briemsættar-
innar. Móðir Steindórs var Sigríður
Stefánsdóttir, hreppstjóra i Oddgeirs-
hólum í Flóa, Pálssonar og Guðríðar
Magnúsdóttur, vicelögmanns á Með-
alfelli, Ólafssonar.
Móðir Elínar var Kamilla Sigríð-
ur, dóttir Rasmusar Peters Hall,
verslunarmanns í Reykjavík, frá
Frederikssund á Sjálandi, og k.h.,
Önnu Margrétar Nörgárd.
Sigríður tekur á móti gestum í
safnaðarheimili Seljakirkju í dag
milli kl. 15.00 og 18.00. Gjafir og
blóm eru vinsamlega afþökkuð en
Sigríður minnir þess í stað á söfnun
handa Kristínu Gísladóttur, ekkju
Elíasar Amar Kristjánssonar báts-
manns sem fórst við björgunarstörf.
Framlög eru lögð inn á bankareikn-
ing nr. 115405-440000 hjá SPRON í
Skeifunni.
Bjarni Steingrímsson
Bjarni Stein-
grímsson, verka-
maður hjá Nes-
fiski, Kirkjubraut
24, Innri-Njarð-
vík, er fertugur í
dag.
Bjarni Steingrímsson.
Bjarni fæddist
á Hólmavík en
ólst upp á Stað í
Steingrímsfirði
við öll almenn
sveitastörf. Hann var í barnaskóla
á Klúku í Bjarnarfirði á aldrinum
níu til þrettán ára.
Bjarni hóf fiskvinnslustörf við
Frystihús Hólmavíkur er hann var
fjórtán ára, vann hjá Vegagerði rík-
isins um skeið og síðan hjá Rarik.
Hann flutti til Reykjavíkur 1975 og
stundaði þar verslunarstörf hjá
Byggingarvöruverslun SÍS 1975-79.
Bjarni flutti til Keflavíkur 1979
og starfaði þar við Hraðfrystihús
Keflavíkur til 1988 er fyrirtækið
hætti störfum. Hann hóf þá störf
hjá Gæðafiski í Njarðvík og var þar
bílstjóri þar til fyrirtækið hætti,
vann tvö ár hjá Þurrkfiski á
Reykjanesi en hefur starfað
hjá Nesfiski frá 1993.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 10.3. 1979
Guðmundínu Láru Guð-
mundsdóttur, f. 19.12. 1959, d.
16.8. 1995, húsmóður og
sjúkraliða. Hún var dóttir
Guðmundar Pálssonar, vél-
smiðs 1 Reykjavík sem er lát-
inn, og k.h., Ölgu Guðmunds-
dóttur húsmóður.
Börn Bjarna og Guðmund-
ínu Láru em Brynja Ósk Bjarna-
dóttir, f. 15.12. 1983, nemi og fisk-
vinnslustúlka; Birgir Óttar Bjarna-
son, f. 2.6. 1986; Börkur Óðinn
Bjarnason, f. 22.2. 1989.
Systkini Bjarna eru Magnús
Steingrímsson, f. 24.5. 1955, bóndi á
Stað í Steingrímsfirði; Kristín
Steingrímsdóttir, f. 28.3. 1962,
sjúkraliði við Sjúkrahúsið á Hólma-
vík; Loftur Hilmar Steingrímsson,
f. 17.7. 1963, verkamaður, búsettur í
Keflavík; Finnbogi Steingrímsson,
f. 17.7.1963, d. 13.8.1993, starfaði við
hótelrekstur í Danmörku.
Foreldrar Bjarna: Steingrímur
Bergmann Loftsson, f. 21.8. 1925, d.
13.5.1977, bóndi á Stað í Steingríms-
firði, og k.h., Ásta Bjarnadóttir, f.
13.11. 1934, húsfreyja, nú búsett á
Hólmavík.
Eftir lát Steingríms giftist Ásta
seinni manni sínum, Margeiri
Steinþórssyni, f. 19.8. 1932, lengst af
bílstjóra og verslunarmanni hjá
Kaupfélagi Steingrimsfjarðar á
Hólmavík.
Ætt
Steingrimur var sonur Lofts, b. í
Vík og í Hafnarhólmi, Torfasonar,
b. í Asparvík, Björnssonar, b. í Hlíð
í Kollafirði, Jónssonar, b. í Heiðar-
bæ, Jónssonar. Móðir Lofts var
Anna Bjarnveig Bjarnadóttir.
Móðir Steingríms var Hildur
Gestsdóttir, b. í Hafnarhólmi, Krist-
jánssonar, vinnumanns á Kleifum,
Jóhannessonar. Móðir Gests var
Margrét Pálsdóttir í Reykjavík
Jónsssonar. Móðir Hildar var Guð-
rún Árnadóttir, b. í Hafnarhólmi,
Jónssonar, b. á Fitjum, Hannesson-
ar. Móðir Árna var Guðrún Jóns-
dóttir. Móðir Guðrúnar Árnadóttur
var Hildur Guðbrandsdóttir.
Ásta er dóttir Bjarna, b. á Tyrð-
lingsmýri, Borgarssonar, í Borgars-
húsi við Berjadalsá, bróður Einars,
langafa Kristjáns Arasonar, fyrrv.
handboltakappa. Borgar var sonur
Bjarna, b. á Breiðabóli í Skálavík,
bróður Kristjáns, langafa Páls, afa
Páls Þorsteinssonar, auglýsinga-
stjóra DV, og Steindórs Hjörleifs-
sonar leikara, föður Ragnheiðar
leikara. Bjarni var sonur Ebenezar,
b. í Innri- Hjarðardal, Guðmunds-
sonar, b. í Amardal, Bárðarsonar,
ættföður Arnardalsættarinnar, 111-
ugasonar. Móðir Borgars var Hall-
dóra Borgarsdóttir, að Skarði,
Höskuldssonar. Móðir Bjarna á
Tyrðlingsmýri var Guðný Pálsdótt-
ir.
Móðir Ástu er Guðbjörg Sigurð-
ardóttir, b. í Vonarholti, Magnús-
sonar, b. þar, Sakaríassonar, b. á
Heydalsá, Jóhannssonar, prests í
Garpsdal, Bergsveinssonar, prests á
Stað í Grindavík, Hafliðasonar,
prests á Hrepphólum, Bergsveins-
sonar. Móðir Sigurðar var Guðrún
Sigurðardóttir, b. á Borgum, Jóns-
sonar. Móðir Guðbjargar var
Kristrún Jónsdóttir, Guðbrands-
dóttir.
Bjarni er að heiman á afmælis-
daginn.
Útfararstofa
Líkkistuvinnustofa
Eyvindar Árnasonar
Stofnuð 1889
D.H. Ósvaldsson
Vesturhllíð
S. 551-3485
(Sólarhringsþjónusta)
Jónína Kristjánsdóttir
Jónína Kristjánsdóttir, Garðavegi
12, Keflavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Jónína er fædd á ísafirði og ólst
þar upp. Hún var í Húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli 1940-41. Jónína
flutti til Reykjavíkur 1945 og vann
þar við saumaskap og framreiðslu-
störf til 1954 er hún flutti til Kefla-
vikur.
Jónína byrjaði að leika með Leik-
félagi Keflavíkur 1963 og var enn
fremur formaður félagsins í nokkur
ár. í kjölfarið fór hún að afla sér
þekkingar á sviði leiklistar og leik-
stjómar á fjölmörgum námskeiðum
sem sótt voru á ýmsum stóðum á
Norðurlöndum. Hún varð síðan leik-
stjóri og hefur leikstýrt 20 leikritum
víðs vegar um landið.
Jónína var formaður BÍL, Banda-
lags íslenskra leikfélaga, 1972-81, í
stjórn Norræna áhuga-
leikarasambandsins,
Nordisk Amatör Teatör-
rod NAR 1974-82, tók þátt
í stofnun Menningarsam-
bands aldraðra á Norður-
löndum, Samnordisk
Pensonist Kultur, og í
stjórn þess 1982-91, for-
maður Félags eldri borg-
ara á Suðurnesjum í tvö
ár frá stofhun þess og
gjaldkeri í stjóm Lands-
sambands aldraðra.
Fjölskylda
Jónína giftist 7.5. 1942 Jóni Jóns-
syni, f. 28.3. 1914, d. 7.10. 1945, frá
Ljárskógum.
Jónína giftist 1946 Jóhanni Pét-
urssyni, f. 18.2. 1918, fyrrum vita-
verði. Þau skildu 1948.
Jónína giftist 1954 Sigfúsi Kristj-
ánssyni, f. 17.8.1924, yfirtollverði.
Sonur Jónínu og Jóns er
Hilmar Bragi, f. 25.10.1942,
matreiðslumeistari, maki
Elín Káradóttir, ráðskona
að Bessastöðum, þau eiga
tvö börn, Jón Kára við-
skiptafræðing og Gyðu
Björk tækniteiknara.
Sonur Jónínu og Jó-
hanns er Magnús Brimar,
f. 18.6. 1947, flugstjóri,
maki Sigurlína Magnús-
dóttir Wíum, þau eiga
þrjú böm, Magnús Brim-
ar Wíum, Sunnu Kristínu og Jó-
hann Pétur.
Börn Jóntnu og Sigfúsar eru
Hanna Rannveig, f. 9.8. 1951, hús-
móðir i Hafnarfirði, maki Ágúst
Pétursson rafeindavirki, þau eiga
fjögur börn, Stefán Pál, Ásdísi
Björgu, Ásgeir Sigurð og Gunnar
Inga; Drifa Jóna, f. 8.7. 1954, forseti
bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, maki
Óskar Karlsson brunavörður, þau
Jónína Kristjánsdóttir.
Til hamingju með
afmælið 3. maí
80 ára_________________
Kristín Árnadóttir,
Hlíf I, Torfnesi, ísafirði.
Klemens Kristmannsson,
Langholtsvegi 140, Reykjavík.
75 áxa
Þorgeir Pétursson,
Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík.
70 ára
Rannveig Ólafsdóttir,
Búlandi 32, Reykjavík.
Sigríður Ólafsdóttir,
Kirkjubraut 56, Höfii í Homa-
firði.
Skúli Magnússon,
Geitlandi 12, Reykjavík.
60 ára
Hreinn Hermannsson,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Loftur Andri Ágústsson,
Norðurfelli 1, Reykjavík.
Guðmundur M.J. Bjöms-
son,
Huldulandi 38, Reykjavík.
50 ára
Kristín Björnsdóttir,
Laufásvegi 16, Stykkishólmi.
Magnea Gestsdóttir,
Háarima 1, Djúpárhreppi.
Hún tekur á móti gestum að
heimili sínu í kvöld, eftir kl.
20.
Hólmfríður Ámadóttir,
Lálandi 13, Reykjavík.
Magnús K. Sigurjónsson,
Suðurgötu 33, Reykjavík.
Þorsteinn Aðalbjörnsson,
Norðurgötu 30, Sandgerði.
Bjami Kristinsson,
Amarheiði 18, Hveragerði.
40 ára
Hervör Lilja Þorvaldsdóttir,
Skúlagötu 9 A, Borgamesi.
Guðmundur Ólafur Ingólfs-
son,
Sörlaskjóli 5, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum í
veitingahúsinu Rauða ljóninu,
Eiðistorgi, í kvöld, milli kl. 20
og 22.
Margrét Sigurðardóttir,
Smáratúni 43, Keflavík.
Margrét Sigríður Halldórs-
dóttir,
Smiðjuvegi 19, Kópavogi.
Álfheiður S. Guðmundsdótt-
ir,
Starengi 6, Selfossi.
Aðalheiður Einarsdóttir,
Lautasmára 49, Kópavogi.
Helgi Bjarnason,
Aðalgötu 2, Súðavík.
Margrét Kristjánsdóttir,
Hlíðarhjalla 69, Kópavogi.
Benóný Guðjónsson,
Holtsgötu 43, Sandgerði.
Lára Guðmundsdóttir,
Kelduhvammi 24, Hafnarfirði.
Arnar Sigmarsson,
Fjallalind 143, Kópavogi.
Ólafur Sævar Elísson,
Klapparbraut 14, Garði.
eiga þrjú börn, Daníel, Rakel Dögg
og Kára Örn; Sjöfn Eydís, f. 2.2.1956,
skrifstofumaður i Hafnarfirði, maki
Jóhann Ólafur Hauksson, aðalbók-
ari hjá Flugfélagi íslands, þau eiga
tvö börn, Tómas Tandra og Kristínu
Köru; Snorri Már, f. 27.10. 1957.
Langömmuböm Jónínu era fjög-
ur, Alfa Karitas, Ásgeir Valur,
Hlynur Smári og Guðmundur Karl.
Systkini Jónínu: Hanna, f. 12.8.
1918, d. 1935; Margrét, f. 1.2. 1921,
húsmóðir í Reykjavík; Magnús, f.
10.1. 1925, d. 1941; Rebekka, f. 14.6.
1932, fararstjóri, búsett í Kópavogi.
Foreldrar Jónínu voru Kristján
Einarsson, f. 5.1. 1894, d. 24.3. 1979,
sjómaður á ísafirði, og Katrín Hólm-
fríður Magnúsdóttir, f. 5.10. 1897, d.
12.3. 1990. Kristján var fæddur í
Fremri-Hattardal í Álftafirði og
Katrín Hólmfríður var fædd í Purk-
ey á Breiðafirði.
Jónína verður að heiman á af-
mælisdaginn.