Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Page 50
58 fywikmyndir
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 M-9~\T
Stjörnubíó - Svindlið mikla:
Guðlast? **
Mér hefur sjaldan verið komið eins lítið
á óvart. Svindlari kemur til Los Angeles,
eltir samviskusaman garðyrkjumann (sem
var reyndar vel skiljanlegt) sem er ást-
fanginn af giftri bardömu sem ræður
svindlarann til að svindla peninga út úr
höltum eiginmanni sínum, með hjálp
ákveðins trés og ... hvern hefði grunað:
sæta samviskusama garðyrkjumanninn.
Það verða ekki veitt nein verðlaun fyrir
rétta ágiskun á endinum á þessu öllu sam-
an. Annars ætti íslenska kirkjan kannski
að læra af þeim praktísku prestum sem
þama urðu (óvart) þátttakendur í svindli. Tréð, nefnilega, er blessað af
presti og vex (eða réttara, vex ekki) við kirkju, og tilgangurinn er sá að eig-
inmaðurinn eygi von um kraftaverk (afheltist) og baði það peningum. Prest-
urinn veit vel að vöxtur trésins er ekkert kraftaverk heldur bara svindlari
sem skiptir því út á nóttunni fyrir stærra tré; en hann veit líka að munur-
inn á sannleikanum og því sem fólk er tilbúið að trúa skiptir ekki öllu máli
og að þar sem kirkjuna vantar peninga (líka) þá er það svindlarinn sem í
raun er eins konar kraftaverk! Þetta eru prestar sem kunna að nýta sér
tækifæri. Mér líkaði þetta, verð bara að segja það. Því miður líkaði mér fátt
annað, nema náttúrlega sæti og vel vaxni (og dálítið væmni) garðyrkjumað-
urinn. Hann fær hálfú stjömuna. Tréð fær þessa heilu.
Leikstjóri og handritshöfundur: Marcus De Leon. Kvikmyndataka: Jaques
Haitkin. Tónlist: Mark Mothersbaugh.
Aöalleikarar: Lara Flynn Boyie, Peter Dodson, Danny Nucci og Luca
Bercovici. Úlfhildur Dagsdóttir.
Regnboginn - Basquiat:
Listir og listamenn irk
Myndin Basquiat segir frá samnefnd-
um listamanni sem byrjar feril sinn sem
19 ára veggjakrotari en endar sem uppá-
hald Andys Warhols. 27 ára er hann dá-
inn úr eiturlyfjaneyslu. Leikstjórinn og
handritshöfundurinn Julian Schnabel var
vinur Basquiats og einsetti sér að gefa
sanna mynd af lifi hins unga listamanns.
Útkoman getur vel verið „sönn“, en hvort
hún er sönn þessum svarta listamanni er
annað mál. Schnabel setur listamanna-
samfélagið upp sem hreina yfirborðs-
mennsku og tiigerð, gagnstætt hreinleika
og einlægni Basquiats. Það er næstum óhugnanlegt að sjá hvernig þetta
snýst í höndunum á honum, því útkoman einkennist einmitt af allri þeirri
tilgerð og yfirborðsmennsku sem hann er að gagnrýna. Því meira sem reynt
er að gera stflinn persónulegan og listrænan, því fjarlægari verður myndin
og maðurinn Basquiat. Þetta er í sjálfu sér áhugavert, því þarna birtist á
hvíta tjaldinu undarleg endurgerð á stöðu ungs óþekkts svertingja meðal
frægra hvítra manna, þar sem lítt þekktur leikari Jeffrey Wright (Basquiat)
heldur sínu meðal stórstjama eins og David Bowie (Andy Warhol), Dennis
Hopper (Bruno Bischofberger), Gary Oldman (Albert Mflo), Michael Wincott
(Rene Ricard) og Christopher Walken (blaðamaður). Áhugavert vissulega,
en ekki beint það sem tryggir gæði í hefðbundnum skilningi. Annars er ein-
valalið leikaranna dálítið ráðvillt í öllu þessu. Wright sjálfur er góður, en
Oldman, Wincott og Hopper virðast dálítið týndir um leið og Walken og
Bowie taka málið fosturn tökum og spila tilgerðina upp og eiga þar með
bestu senurnar. Sérstaklega skemmtir Bowie sér greinilega stórvel sem
Warhol og á einhvern sinn besta leik til þessa. Kynþáttaþátturinn er tekinn
fóstum tökum, svo fóstum að þau fijósa í sporunum og verða ekkert annað
en enn eitt púslið í gervimennskumyndina; og sjálf listin, listin var bara
ansi góð, hefði ekki verið best að setja bara upp almennilega slidessýningu?
Leikstjóri og handritshöfundur: Julian Schnabel. Kvikmyndataka: Ron
Fortunado. Tónlist John Cale.
Aðallleikarar: Jeffrey Wright, David Bowie, Dennis Hopper, Gary Oldman
og Courtney Love. Úlfhildur Dagsdóttir
Laugarásbíó/Háskólabíó/Bíóhöllin - Lygari lygari:
Sannleikurinn sagna bestur **
Jim Carrey hefúr oft verið líkt við
Jerry Lewis þegar hann var upp á sitt
besta og skilaði frá sér mörgum vinsælum
kvikmyndum sem voru á mörkum fárán-
leikans, og þvi er ekki að neita að Jerry
Lewis kemur upp í huga manns þegar
Jim Carrey er í ham í Liar Liar. í mynd-
inni leikur hann lögfræðinginn Fletcher
sem á ekki í vandræðum með að sneiða
fram hjá sannleikanum hvort sem það er
i starfi eða einkalfli. Hann lendir þvi
heldur betur í vandræðum þegar ósk son-
ar hans rætist, en sú ósk gengur út á það
að faðir hans geti ekki annað en sagt satt í heilan sólarhring. Má segja að líf
Fletchers sé lagt í rúst á þessum sólarhring.
Jim Carrey er þannig gamanleikari að annaðhvort meðtekur maður hann
eða ekki. í Liar Liar á hann það til að ofleika allsvakalega og kemst yfirleitt
upp með það, en fer að vísu stundum yfir mörkin. Það er sameiginiegt með
öllum vinsælustu kvikmyndum Jims Carreys að heildarramminn er veikur,
einstaka atriði mjög fyndin og fellur Liar Liar vel inn í þessa formúlu. Það
er mjög skemmtflegt að fylgjast með Jim Carrey berjast við að reyna að
segja ósatt orð. Andlit hans tekur á sig ýmsar myndir í tilraunum hans, en
þessi fáránleikaatriði mega ekki vera of löng, eins og lokaatriðið á flugvell-
inum er. Vert er að geta þess að eftir að myndin endar eru sýndar öðruvísi
útgáfur af atriðum i myndinni, sem sýnir að Jim Carrey á stundum erfitt
með að halda sig innan ramma handritsins, á það til eins og allir góðir
grínistar að bregða á leik og impróvisera.
Leikstjóri: Tom Shadyac. Handrit: Paul Guay og Stephen Mazur. Kvik-
myndataka: Russell Boyd. Tónlist: John Debney.
Aöalleikarar: Jim Carrey,, Maura Tierney, Jennifer Tilly, Swoosie Kurtz
og Cary Elwes. Hilmar Karlsson
Lygari, lygari í þremur kvikmyndahúsum:
A
Oforbetranlegur lygari
segir sannleikann
Vinsælasta kvikmynd það sem af er
árinu í Bandaríkjunum er nýjasta
kvikmynd Jims Carreys, Liar Liar,
en þar nær Carrey heldur betur að
rétta úr kútnum eftir ófarimar með
The Cable Guy, sem sumir sögðu að
væri líkkistunagli í líkkistu hans. í
Liar Liar er Carrey í miklum ham
sem Fletcher Reede, metnaðargjarn
lögfræðingur sem er í lífsgæðakapp-
hlaupi og lætur ekki sannleikann
hindra sig í að vinna mál fyrir rétti.
í réttarsalnum er hann mjög sann-
færandi og á létt með að tala alla
upp úr skónum, enda óforbetran-
legur lygari sem gerir engan mun
á hvað er satt og hvað ósatt.
Þessar lygar lenda einnig á
syni hans sem tekst þó í einn
dag að láta föður sinn segja
sannleikann og ekkert annað
en sannleikann. Allt í einu
er kjafturinn á Fletcher,
sem hefúr bjargað honum á
lífsleiðinni, orðinn það sem
bakar honum ekkert nema
vandræði.
Mótleikarar Jims Carreys í
Liar Liar eru Jennifer Tilly,
Swoosie Kurtz, Amanda
Donohoe, Maura Tierney og
Cary Elwes. Jim Carrey seg-
ir um Fletcher: „Hann er
náungi sem lýgur til að
komast af í harðri sam-
keppni. Hann verður að
sigra hvað sem það kost- Fletcher
ar til að hann geti haldið valdandi
uppi þeim lífsstíl sem
hann liflr. Það er ekki
hægt að segja að hann geri margt
rétt og kemur það í bakið á hon-
um.“
Byrjaði að skemmta
öorum 15 ára gamall
Handritið að Liar Liar var skrifað
með Jim Carrey 1 huga, en hann
fékk þó ekkert að vita af því
strax og fékk sent til sín full-
klárað handrit. Universal
treysti á það að Jim Car-
rey vfldi vinna aftur með
Tom Shadyac, en þeir
höfðu slegið í gegn í
Ace Ventura: Pet Det-
ective. Sú mynd var
stökkpallurinn fyrir
Carrey. í kjölfarið
fylgdu The Mask, Dumb
& Dumber og Ace
Ventura: When Nature
Calls, allt kvikmyndir
sem nutu gífurlegra vin-
sælda og gerðu Jim Car-
rey að kvikmyndastjömu.
Er hann nú í hópi út-
valdra sem geta farið fram á
20 milljónir dollara fyrir leik í
einni kvikmynd. Þá er vert að
geta frammistöðu hans í Bat-
man Forever þar sem hann
var sannkallaður senu-
þjófur. Þrátt fyrir
að The Cable
Guy
fengi afleita dóma og ekki
mikla aðsókn ef miðað er
við fyrri kvikmyndir Car-
reys, þá er það sú kvik-
mynd sem gerði það að
verkum að aðgangseyr-
ir að kvikmyndum með
honum fór yfir einn
milljarð dollara.
Jim Carrey fæddist í
sjónvarpsstöðinni
í seríunni
Duck Fact-
ory. Fyrsta
hlutverk
Carreys
í kvik-
mynd
var í
Once
Bitt-
en,
þar
sem
hann
lék á
móti
Lauren
Reede (Jim Carrey) ásamt syni sínum Max (Justin Cooper) sem verður þess
að faðir hans neyðist til að segja eingöngu sannleikann.
Kanada og byrjaði að skemmta í
næturklúbbum á Toronto-svæðinu
fimmtán ára gamall. Árið 1981
ákvað hann að setjast að í Los Ang-
eles og fékk fljótt vinnu í frægum
klúbbi sem heitir Comedy Store.
Vinsældir hans þar leiddu til þess
að hann fékk
hlutverk
á NBC-
Hutton. í kjölfarið komu lítil hlut-
verk í The Dead Pool, Earth Girls
Are Easy og Peggy Sue Got Married.
Hæfíleikar hans sem gamanleikara
komu samt best í ljós í hinni vin-
sælu sjónvarpsseríu In Living
Color, þar sem hann bjó til margar
persónur sem urðu vinsælar hjá
sjónvarpsáhorfendum.
Gullkálfurinn Tom
Shadyac
Tom Shadyac hefur aðeins leikstýrt
þremur kvikmyndum en ailar hafa
þær náð gífurlegum vinsældum og
eftir hina miklu sigurgöngu Liar
Liar er Shadyac nú í þeirri aðstöðu
að geta nánast ákveðið laun sín
sjálfur. Kvikmyndir hans þrjár eru,
auk Liar Liar, Ace Ventura: Pet Det-
ective og The Nutty Professor. Má
með sanni segja að hann hafi bjarg-
að andliti tveggja stórgrínista,
Eddies Murphys og Jims Carreys,
með því að taka þá upp á arma sína.
Tom Shadyac var tuttugu og tveggja
ára gamall þegar hann fluttist til
Los Angeles og ári síðar varð hann
yngsti brandarahöfundur sem Bob
Hope hefur ráðið til sín. Með fram
skrifum stundaði Shadyac kvik-
myndanám við UCLA-háskólann og
vákti prófverkefni hans, stuttmynd-
in Tom, Dick and Harry, mikla at-
hygli. Var hann strax að námi
loknu ráðinn til 20th Cent-
ury Fox og fékk
vinnu bæði við
að skrifa og
leikstýra sjón-
varpskvik-
myndum. Með
fram öllu
þessu vann
Shadyac
einnig sem
„stand-up“
grínisti á ýms-
um klúbbum
og hefur sjálf-
sagt gott vega-
nesti úr þeirri
vinnu í gerð
gamanmynda."
Jim Carrey þykir takast vel upp í hlutverki hins útsmogna lögfræöings, Fletchers Reede, í Liar Liar.
-HK