Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Síða 51
Basquiat í Regnboganum:
Svartur myndlistarmaður
í veröld hinna hvítu
Árið 1981, þegar Jean- Michael
Basquiart var nítján ára, sló hann í
gegn og varð einhver eftirsóttasti
myndlistarmaður New York borgar
næstu árin og fór frægð hans víða.
Sýningar hans voru stórviðburðir i
menningunni í New York og stærstu
söfnin, þekktir safnarar og forríkir
einstaklingar keyptu verk hans. 1988
dó hann, 27 ára að aldri. Hann hafði
lifað hratt þessi fáu ár meðan frægð-
arsólin lék um hann. í minningar-
orðum í New York Times var hon-
um lýst sem James Dean myndlist-
arheimsins. Þrátt fyrir miklar vin-
sældir og mikla hæfileika var
Basquiat þjáður af einmanakennd,
sjálfstortímingu og var haldinn
þeirri trú að fólk meðtæki hann
ekki eins og hann var. Jean-Michel
Basquiat er fyrsti þeldökki mynd-
listarmaðm’inn sem slær rækilega i
gegn í veröld þar sem hvítir ráða.
Kvikmyndin Basquiat er byggð á
ævi þessa listamanns og er leikstjóri
og handritshöfundur Julian Schna-
bel sem er þekktur myndlistarmað-
ur. Er þetta fyrsta tilraun hans í
kvikmyndagerð og segist hann gera
myndina til að heiðra félaga sinn og
kollega. Schnabel tekur sér höfunda-
leyfi í sumum atriðum og blandar
saman persónum sem voru sam-
ferðamenn Basquiats og diktar
einnig upp nokkra persónur sem þó
eru byggðar á fólki sem umgekkst
Basquiat.
í hlutverki Basquiat er þekktur
sviðsleikari, Jeffrey Wright, en
hann hefur meðal annars fengið
Tony-verðlaunin eftirsóttu fyrir leik
sinn á sviði, David Bowie leikur
hinn umdeilda listamanna, Andy
Warhol, Michael Wincott leikur
skáldið Rene Ricard og veitinga-
húsaeigandinn Michael Chow leikur
sjáifan sig. Aðrir leikarar eru Gary
Oldman, Elina Lowensohn, Benico
del Torto, Christopher Walken,
Willem Dafoe og Courtney Love.
Kvikmyndin er ekki bein ævisaga
Basquiats. Schnabel segir að mynd-
in sé alveg eins um lífsmunstur
Basquiats og félaga hans: „Flest það
sem er í myndinni hefur gerst, það
sem ekki er sannleikanum sam-
kvæmt er vonandi rétt lýsing á
þeirri veröld sem Basquiat lifði í,“
segir Julian Schnabel, en hann og
Basquiat tilheyrðu sömu klíku
menningarvita í New York. Schna-
bel vann í sex ár að gerð myndar-
innar og segir að það sem hafi drif-
ið hann áfram hafi verið öll sú vit-
leysa sem skrifuð var og sögð um
Jean-Michel Basquiat: „Ég vildi að
Basquiat fengi réttlát eftirmæli og
enginn miðill er sterkari til að koma
þessu á framfæri en kvikmyndin."
Julian Schnabel hélt sína fyrstu
málverkasýningu í Mary Boone gall-
eríinu í Soho í New York árið 1979.
Vöktu verk hans strax mnikla at-
hygli og hafa málverk hans og skúlp-
túar verið á sýningum um allan
heim. Mörg þekktustu söfn Banda-
ríkjanna eiga verk eftir hann og má
geta þess að farandsýning með
verkum Schnabels og Jean-
Michel Basquiats hefur
farið víða og fengið af-
bragðsdóma.
Hlutverk Jean-
Michel Basquiat er
fyrsta aðalhlutverk
Jeffreys Wrights í
kvikmynd. Hann
hefur í mörg ár
leikið á sviði í
New York en
uppskar
fyrst laun
erfiðis síns
þegar hann
fékk hlut-
verk hjúkr-
unarmanns-
ins Roy Cohns
1 leikritinu Ang-
els in America.
Fékk Wright mörg
verðlaun fyrir leik
sinn í þessu verki
Hann hefur meðfram
leikhúsum leikið í
nokkrum sjónvarps-
myndum og var í
litium hlutverkum
í kvikmyndunum
Jumpin’ at the
Boneyars og Fait-
hful.
-HK Jeffrey Wright leikur myndlistarmanninn Jen-
Michel Basquiat.
Stjörnubíó - Einnar nætur gaman
Að mætast á brú
Einhvers staðar leyndist þarna góð
hugmynd. Sú að taka ástarævin-
týrið fyrir í öfugri röð: byija á giftingu
og enda á ást og alsælu. Ekki svo slæmt,
sérstaklega þar sem fólk hefur löngum
velt vöngum yflr framhaldinu af hinum
klassíska ævintýraendi: „Og það var sleg-
ið upp brullaupi og unnust þau heitt og
voru hamingjusöm til æviloka." Matthew
Perry (úr Friends) leikur fremur hversdags-
legan ungan mann á uppleið sem á einnar næt-
ur gaman með mexíkóskri stúlku, gerir hana
ólétta og giftist henni, án þess að vita með
vissu hvort eilífa hamingjan sé tryggð.
Ekki veit stúlkan það heldur, en hún
hefur allavega sínar hugmyndir um
málið. Aðalvandamálið er að handrit-
ið er ekki nógu gott, vantar byggingu
og þéttingu og býður upp á fátt í stað-
inn, þ.e. fyrir utan röð af smellnum
senum um miðbikið. Það sem heldur
þessari mynd á floti er hvað hún er lít-
ið tilgerðarleg miðað við margt af
sama toga. Salma Hayek, sem leikur
Isabel hina mexíkósku er sérstaklega
skemmtileg og hressileg kvenper-
sóna og það er virkilega áhugavert
að sjá að það þarf mexíkóska stúlku
til að sýna sjálfstæða konu, meðan sú
bandaríska ljóshærða er með eindæm-
um einföld í hugsun. Alex Whitman
(Perry) er heldur ekki sá stereotýpíski uppi
sem iðulega skríður upp á ameríska skjái, en
hann er einfaldlega ekki nógu sætur til að
halda manni (eða konu) við efnið. En sam-
spil og mótsagnirnar milli þessara tveggja
heima, mexíkóska og bandaríska, eiga sinn
þátt í að skapa skemmtilega stemningu án
þess að berja mann utan með boðskap. Ó,
og brúin sem tákn-bákn fyrir heimana tvo
var virkilega flott.
Leikstjóri: Andy Tennant. Handrit: Kather-
ine Reback. Kvikmyndataka Robbie Green-
berg. Tónlist: Alan Silvestri. Aðalleikarar:
Matthew Perry, Salma Hayek, Jon Tenney,
Thomas Milian og Jill Clayburgh. -ÚD
Le Clnquleme Element, nýjasta kvlkmynd Luc Besson er opnunarmynd hátíöarinnar. Luc Bes-
son er hér fyrlr mlörl mynd vlö gerö myndarinnar en meö aöalhlutverklö fer Bruce Willls.
Kvikmyndahátíðin í Cannes:
Pær keppa um gullpálmann
Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst 7. maí og stendur til 18. maí. Búiö er aö
tilkynna hvaöa kvikmyndir munu hljóta þann heiður aö fá aö keppa í aðal-
keppninni og eru þær tuttugu talsins. Þó er ekki alveg búiö aö loka fyrir list-
ann, ein til tvær myndir gætu bæst viö, þótt þaö sé ólíklegt. Hér á eftir fer
listi yfir þær kvikmyndir sem keppa um hinn eftirsótta gullpálma:
Helti Leikstjóri Land
The lce Storm Ang Lee Taiwan
II principe di Hombourg di Einrich Von Kleist Marco Bellocchio Italía
Call it Love Nick Kassavetes Bandaríkin
The Sweet Hereafter Atom Egoyan Kanada
Funny Games Michael Haneke Austurríki
L.A. Confidential Curtis Hanson Bandaríkin
La femme defendue Philippe Harel Frakkland
Unagi Shohei Imamura Japan
Assassins Matthieu Kassovitz Frakkland
Nil By Mouth Gary Oldman Bretland
Kiny et Adams Idrissa Quedraogo Burkina Faso
Western Manuel Poirier Frakkland
La Tregua Francesco Rosi Ítalía
Happy Together Wong Kar-Wai Hong Kong
The End of Violence Michael Winterbottom Bretland
Keep Cool Zhang Yimou Kína
Le Cinquieme Element Luc Besson Frakkland
Enn vinnur hún
til verðlauna!
Sýnd í samvinnu við Fjárvang hf
ÍTTT^
FJÁRVANGUR
BAFTA VERÐLAUN (Bresku Óskarsverðlaunin)
l»nr á meðal
BESTA MYNDIN
ÓSKARSVERÐLAUN
l»ar á meðal
K
L'á
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
l»ar á meðal
BESTA MYNDIN
DIRECTORS GUILD AWARDS
ANTHONY MINGHELLA
PRODUCERS GUILD AWARDS
SAUL ZAENTZ
G .
r
y H J