Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1997, Síða 56
FRETTASKOTIÐ
SlMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 3. MAÍ1997
Þjóðkirkjan:
Sonur biskups
til Hong Kong
Óánægja er meðal presta vegna
fyrirhugaðrar ferðar á vegum þjóð-
kirkjunnar til Hong Kong. Biskup
er sagður hafa beitt þrýstingi til að
sonur hans, séra Skúli Sigurður
Ólafsson, yrði einn sendimanna
kirkjunnar. Séra Gunnar Krist-
jánsson hafði vilyrði utanríkis-
nefndar kirkjunnar til að verða
einn sendimanna en Kirkjuráð,
undir forsæti biskups, hefur hafn-
að fjárveitingu til að kosta för
hans.
„Ég er formlega búinn að draga
mig út úr þessu,“ segir Séra Gunn-
ar Kristjánsson.
Sú hugmynd er uppi á Biskups-
stofu að Kjalarnesprófastsdæmi
fjármagni for séra Gunnars en
hann það ekki koma til greina.
1 „Vegna breyttra aðstæðna þar
sem ég er nú prófastur þar get ég
ekki þegið fé til fararinnar úr hér-
aðssjóði," segir hann.
Herra Ólafur Skúlason neitar í
samtali við DV að hafa haft áhrif á
málið.
- sjá fréttaljós á bls. 19
Evróvisionkvöld:
Örtröð í
áfenginu
„Það er búið að vera óvenjumik-
ið að gera í allan dag og það liggur
við að maður hafi ekki séð annað
eins,“ sagði starfsmaður ÁTVR við
DV undir kvöld í gær. Greinilegt
er að margir ætla að gera sér glatt
Evróvisionkvöld í kvöld. Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson verður síðastur
keppenda á svið og vonandi að
landinn verði búinn að hita sig vel
upp áður en að því kemur.
-sv
Lýst eftir Ottó
Lögreglan í
Reykjavík og á
Akranesi lýsir
eftir Ottó
Sveinssyni,
fertugum íbúa
að Vallarbraut
1 á Akranesi.
Ottó er dökkur
yfírlitum,
dökkhærður,
173 sentímetrar á hæð og 78 kíló.
Hann sást síðast í Reykjavík á milli
7 og 8 liðinn sunnudag. Þá var hann
klæddur í brúnan leðurjakka og
ljósar buxur. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um ferðir Ottós eru
beðnir að snúa sér til lögreglu í
Reykjavík og á Akranesi.
-sv
Ríkisstjórn íslands:
Hrókeringar
fram undan
- Friörik sagður á leiö út
Heimildir DV innan stjómar-
flokkanna greina frá því að í
vændum séu breytingar á ríkis-
stjórninni á næstu vikum. Friörik
Sophusson fjármálaráðherra
hætti ráðherradómi en í hans stað
taki Geir H. Haarde sæti í ríkis-
stjóminni.
Talið er líklegast að Friðrik
Sophusson taki við stöðu forstjóra
Landsvirkjunar en einnig hefur
verið nefndur sá möguleiki að
hann taki við sem bankastjóri
hins nýja Fjárfestingarbanka at-
vinnuveganna. Samkvæmt heim-
ildum DV myndu framsóknar-
menn hins vegar gjaman vilja sjá
Þorstein Ólafsson, sem starfar hef-
ur hjá Norræna fjárfestingarbank-
anum, í hinum nýja bankastjóra-
stóli.
Spyröu Davíö, hann ræöur
Við það að Geir H. Haarde taki
við ráðherraembætti losnar staða
þingflokksformanns Sjálfstæðis-
flokksins en heimildarmenn
blaðsins telja að Sigríður Anna
Þórðardóttir taki við henni af
Geir.
Þetta var borið undir þau Sig-
riði Önnu og Friðrik í gær. Sigríð-
ur Anna kvaðst ekkert hafa heyrt
um málið. Hið sama sagði Friðrik
en bætti við: Spyrðu Davíð, hann
ræður. DV tókst ekki að ná tali af
Davíö í gær vegna málsins.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
stjómarmaður í Landsvirkjun,
segir að ekkert sé farið að ræða
það innan stjómarinnar hver taki
við forstjórastöðunni af Halldóri
Jónatanssyni sem samkvæmt svo-
kallaðri 95 ára reglu hefur rétt til
fullra eftirlauna, kjósi hann að
láta af störfum. Halldór er 65 ára
gamall. DV spurði Sighvat Björg-
vinsson, sem orðaður hefur verið
við stöðuna ásamt hópi embættis-
og stjómmálamanna, hvort hann
yrði næsti forstjóri Landsvirkj-
unar. „Ég er formaður Alþýðu-
flokksins," var svar Sighvats.
- sjá fréttaljós á bls. 4. -SÁ
Páll Óskar Hjálmtýsson var í góöum félagsskap í gær þegar hann æföi flutning sinn á laginu Minn hinsti dans fyrir
Eurovision-söngvakeppnina sem verður háö í Dyflinni í kvöld.
Símamynd Reuter
Metró og Þýsk-íslenska:
Öllum sagt
upp en
ekki lokað
- segir framkvæmdastjóri
„Þetta er bara rökrétt framhald af
þeirri hagræðingarvinnu sem átt
hefur sér stað frá því að við keypt-
um fyrirtækið. Við sögðum upp
10-12 starfsmönnum um mánaða-
mótin,“ segir Lúðvík Matthíasson,
framkvæmdastjóri Metró og Þýsk-
íslenska.
Frá því að eigendaskiptin áttu sér
staö fyrir um ári hafa verslanir
Metró mnnið saman við önnur fyr-
irtæki. Þær hafa þannig verið gerð-
ar að sjálfbærum einingum sem
stýrt er af eigendum sínum. Engar
uppsagnir áttu sér stað í verslunun-
um enda að litlu leyti i eigu upphaf-
legra eigenda.
„Það er ekki rétt að hér eigi að
fara að loka. Fyrirtækið hefur
smám saman verið að minnka og
komast í eðlilegra og samkepnis-
hæfara umhverfi. Framhaldið er
óráðið en mun liggja fyrir áður en
þriggja til sex mánaða uppsagnar-
frestur starfsfólksins rennur út,“
segir Lúðvík. -sv
Frá slysstaö í gær.
DV-mynd S
Trukkur valt
Átján hjóla trukkur valt á Höfða-
bakkabrúnni um klukkan 17.30 í
gærkvöld. Engin meiðsl urðu á fólki
en nokkurt rask á umferðinni þar
sem loka þurfti götunni á meðan
verið var að ná bílnum á hjólin aft-
ur. Nokkrar skemmdir urðu á bíln-
um sem var fullur af jámi. Ekki er
vitað um orsök slyssins.
-sv
Of mikill
hraði
Lögreglan í Kópavogi kvartaði
undan of miklum hraðakstri í gær.
Á annan tug bílstjóra hafði verið
stöðvaður við radarmælingar í bæn-
um undir kvöld og fannst mönnum
hraðinn yfirleitt of mikill.
-sv
L O K I
Veðurútlit:
Áfram vet-
ur nyrðra
Fólk fyrir norðan og austan
er ekki sloppið við veturinn
enn. Þar má búast við stöku élj-
um á morgun og mánudag.
Bjart veröur sunnan- og vestan-
lands. Hiti verður 0-8 stig að
deginum en víða hætt við næt-
urfrosti.
Veðrið í dag er á bls. 57
Ope
Astra
Verð frá 1.259.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfba 2a Sími:S25 9000