Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Page 6
6
Neytendur
Stóraukin þjónusta á
sviði hjálpartækja
Stoðtækni Gísla Ferdinands-
sonar ehf. hefur gert samning við
Tryggingastofnun rikisins og í
kjölfarið mun þjónusta á sviði
hjálpartækja aukast til muna.
Samningurinn felur í sér að
Stoðtækni Gísla Ferdinandssonar
ehf. smíðar og útvegar stoðtæki
svo og þjónustar einstaklinga sem
eru slysa- og/eða sjúkratryggðir
samkvæmt lögum um almanna-
tryggingar.
Fyrirtækið hyggst hafa mikið
úrval ýmiss konar stoðtækja á
boðstólum og eins verður móttök-
um fyrir viðskiptavini fjölgaö bæði
í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Nú þegar hefur verið opnuö
móttaka í nýju Læknastöðinni í
Álftamýri 5 og í byrjun mars mun
fyrirtækið flytja starfsemi sína úr
Lækjargötu og í Uppsali í Kringl-
unni 8-12.
Hvað á að gera við
gömul jólakort?
Síðustu
misseri
hefur ver-
ið nokkur
umræða
um hvað
fólk geti
gert við
gömul
jólakort.
Borgar-
skjalasafn Reykjavíkur hefur sent
frá sér tilkynningu þess efnis að
safnið taki við gömlum jólakort-
um og tækifæriskortum hvers
konar til varðveislu. Borgar-
skjalasafninu þykir fengur að
handgerðum jólakortum, kortum
með Ijósmyndum og kortum sem
mikið er skrifað inn í.
Safnið áskilur sér þó rétt til
þess að farga kortum sem berast í
mörgum eintökum. Þá tekur safn-
ið til varðveislu skjöl einstak-
linga, félaga og fyrirtækja.
Tekið er við kortum og skjölum
í Skúlatúni 2, 1. hæð, alla virka
daga en sérstakur kassi verður í
anddyrinu fram til 16. janúar.
Jólagjöfinni skilað
í desemberblaði Neytendasam-
takanna er fjallað um rétt neytenda
til að skila gjöfum sem þeir hafa
fengið. í greininni er sagt að sú
regla gildi almennt að verslanir séu
ekki skyldugar til að taka við og
endurgreiða gallaðar vörur. Hins
vegar eiga neytendur því aðeins
rétt á fá ógallaðar vörur endur-
greiddar ef verslunin hafi gefið um
það loforð þegar varan var keypt.
Neytendasamtökin benda fólki á að
best sé að fá slíkt loforð skriflegt,
sérstaklega ef varan er dýr.
Þá er fjallað um innleggsnótur
sem fólk fær þegar það skilar
vöru. Innleggsnóturnar eru ígildi
peninga og viðskiptavinurinn á
að geta nýtt hana hvenær sem er
í versluninni ef annað er ekki tek-
ið fram á henni, til dæmis að ekki
megi nota hana á útsölum.
Rafmagnsöryggið
á oddinn
Félag raftækjaheildsala hefur
sent frá sér yfirlýsingu vegna full-
yrðinga um að ástand rafmagnsör-
yggismála hafi versnað í kjölfar
nýs fyrirkomulags sem gekk í gildi
í upphafi síðasta árs. Með hinum
nýju lögum um rafmagnsöryggi
verða innflytjendur raffanga að
geta framvísað vottorðum um upp-
runa og eiginleika þeirrar vöru
sem þeir flytja inn. Það er mat fé-
lagsins að markaðseftirlit með raf-
fóngum hafi aldrei verið virkara
og betra en nú. Það felst ekki síst í
því að nú bera innflytjendur og
framleiðendur ábyrgð á sinni vöru
og sæta refsingu gerist þeir brot-
legir við settar reglur um öryggi
raffanga. í yfirlýsingunni segir
ennfremur að félagið telji slíka
ábyrgð árangursríkari og hag-
kvæmari leið til að stuðla að
auknu rafmagnsöryggi en opinbert
eftirlit og prófun á hverju því raf-
fangi sem flutt er til landsins.
Verðmyndun
á vínberjum
Nýlega hafði maður samband við
neytendasíðuna vegna rauðra vín-
berja sem hann hafði keypt í versl-
unum Hagkaups í desembermánuði.
Fyrst keypti hann ber 8. desember í
Kringlunni sem kostuðu 349 kr. kg.
Næst keypti hann ber í Hagkaupi í
Garðabæ 18. desember sem kostuðu
449 kr. kg og 20. desember keypti
hann rauð vínber í sömu verslun
sem kostuðu 698 kr. kg. Verðhækk-
unin frá 8.-20. desember er því
100%.
kr./kg Rauð vínber
349
300
8. des. 18. des. 20. des.
DV kannaði hjá Hagkaupi hvað
ylli þessum verðhækkunum. Að
sögn Jóns Schevings, markaðsstjóra
matvöru, felst verðmunurinn fyrst
og fremst í gæðum og flutningaleið-
um. Mikill munur
væri á berjunum eft-
ir uppruna þeirra og
oft erfitt fyrir neyt-
endur að gera á teg-
undunum nokkurn
greinarmun nema að-
eins með því að
smakka á þeim.
Vínberin, sem
keypt voru 8. og 18.
desember, voru am-
erísk en nú er þeirri
uppskeru lokið og
uppskera á Cape vín-
berjum frá Suður-
Afríku í algleymingi.
Fyrsta sendingin af
Cape-berjunum náði
í verslanir Hagkaups
rétt fyrir jólin og
kostaði fyrsta send-
ing þeirra 698 kr. kg.
Þau væru alltaf tals-
vert dýrari en ber
annars staðar frá
enda um langan veg
að fara.
„Það er ekkert mál
að bjóða miklu ódýr-
ari vínber en það
væri þá á kostnað
gæðanna. Hjá Hag-
kaupi er farin sú leið
að bjóða neytendum
meiri gæði þó að það
kosti meira því það
er okkar reynsla að
fyrir það vilja neyt-
endur borga,“ sagði
Jón að lokum.
Cape-vínber koma til landsins um langan veg og
þykja feiknagóð. Til aö njóta gæðanna þarf oft að
borga meira, ekki síst þegar um viðkvæma matvæla-
vöru er að ræöa.
Laxasúpa að
hætti Sigga Hall
Að lokinni kjötveislu jólahátíöar-
innar er ekki úr vegi að hafa matar-
æðið aðeins léttara og velja sér auð-
meltari rétti. í nýju matreiðslubók-
inni „Að hætti Sigga Hall“ er að
finna uppskrift að dúndurgóðri
laxasúpu, ekki endilega neitt megr-
unarfæði en þó ívið léttari í maga
en reykt hangilæri.
Laxasúpan mikla úr Kjósinni
U.þ.b. 8-12 punda lax, flakaður og
tilsnyrtur. Beinagarður, haus
(tálknin fjarlægð) og afskurður er
notað í grunnsoðið.
Grunnsoð
Beinagarðurinn og
afskurðurinn af laxinum
1-2 gulrætur, eftir stærð
2 græn epli
y2 blaðlaukur, skorinn
3 sellerístilkar
li-paprika, eftir stærð
1/3 tsk. timjan
3-4 lárviðarlauf
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. milt karrí
3 dl hvítvín
2 1 kjúklingasoð
1- 2 msk. smjör
Súpan
Grunnsoð
smjörbolla (100 g hveiti,
150 g smjör)
y21 ijómi
3 cl púrtvín
3 cl brandí eða vodka
salt og hvítur pipar úr
kvörn
hnífsoddur af kajannepipar
2- 3 rauðlaukar, eftir stærð,
skomir í báta
y2 súkkini, skorið í hálfar sneiðar
3 X 1/3 paprika, rauð, gul og
græn, skorin í strimla
1/3 blaðlaukur (græni hlutinn)
skorinn í strimla
1 sellerístilkur, skorinn I sneiðar
1 tsk. smjör
1/3 tsk. timjan
beinhreinsuð flökin af laxinum
Skerið beinin og afskurðinn niö-
ur í bita. Skerið grænmetið í grunn-
soðið í grófa bita. Bræðið smjörið í
stórum potti og látið bæði beinin og
grænmetið krauma þar ásamt
kryddinu. Hellið hvítvíninu yfir og
síðast soðinu. Látið suðuna koma
upp og fleytið ofan af alla froðu sem
kemur upp. Látið léttsjóða í 30 mín-
útur og síðan standa í aðrar 30 mín-
útur. Veiðið það mesta af innihald-
inu upp með fiskspaða og sigtið
tvisvar, fyrst í gegnum gróft sigti,
siðan í gegnum mjög fint sigti. Setj-
ið aftur yfir til suðu.
Blandið smjörbolluna (hún á að
vera frekar þunnfljótandi; þannig
fæst bæði betra bragð af smjörinu
og minni hætta er á að súpan verði
kekkjótt). Takið pottinn af suðu og
bætið smjörbollunni út í smátt og
smátt þar til æskileg þykkt er á súp-
unni. Bætið út í rjóma og bragðbæt-
ið með salti og pipar ef þarf.
Takið allt grænmetið sem á að nota
í sjálfa súpuna og léttsteikið það upp
úr smjörinu í öðrum potti. Laxaflökin
skerum viö í teninga, u.þ.b. 2x2 sm að
stærð. Rétt áður en við berum fram
súpuna bætum við grænmetinu, kaj-
annepipamum og áfenginu út i sjóð-
heita súpuna. Að síðustu setjum við
laxateningana út í og hrærum þá
mjög varlega með sleif.
Berið fram sjóðheita súpuna i
fallegri skál, helst með loki, eða
jafnvel beint úr pottinum ef hann
lítur vel út.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
Stólaslagur
Eins og Sandkorn greindi
frá er Helga Jónsdóttir borg-
arritari meðal þeirra sem vilja
verða arftaki
Steingríms
Hermannsson-
ar í Seðlabank-
anum. Fram-
sókn telur sig
„eiga“ stólinn
og Helga er af
voldugri
Framsókna-
rætt. Höfuð ætt-
arinnar er Jón Skaftason,
fyrrum þingmaður flokksins í
Reykjanesi og yfirborgarfógeti
í Reykjavík. I flokknum er
hins vegar risinn kurr vegna
þrýstings ættarinnar í þágu
Helgu. Þar segja menn aö ætt-
in hafi fengið nóg á sinn disk
þegar Framsókn tryggði eigin-
manni hennar, Helga H.
Jónssyni fréttamanni, stöðu
fréttastjóra Sjónvarpsins við
mikinn óvilja Sjálfstæðis-
flokksins ...
Gáttaþefur
Annar Kandídat úr Fram-
sókn sækir líka fast í Seðla-
bankann. Það er Þorsteinn
Ólafsson sem
forðum var hjá
Norræna fjár-
festingarbank-
anum. Hann var
líka talinn
slægjast eftir
stöðu forstjóra
nýja Fjárfest-
ingarbankans
en Finnur Ing-
ólfsson vildi heldur Bjarna
Ármannsson. Þorsteinn fékk
þó að verða stjórnarformaður
nýja bankans. Sá sem er hins
vegar heitastur er gamall úti-
bússtjóri frá Húsavík og Suð-
urnesjum og heitir Guðmund-
ur Bjamason umhverfisráð-
herra ...
Formannsskipti
Flestir bjuggust við aö Pét-
ur Reimarsson yrði formaður
stjómar Landssímans hf.. Á
síðustu stundu
var honum
skipt út fyrir
Þórarin V.
Þórarinsson,
framkvæmda-
stjóra VSÍ.
Kolkrabbinn
sem gín yfir
öllu er hins
vegar búinn
að fá augastað á Landssíman-
um. Þá er kominn aðgangur að
ljósleiðaranum og hægt að búa
til þriðju sjónvarpsstöðina
sem kolkrabbanum hefur mis-
tekist til þessa. Ein skýring-
in,er að Þórami sé betur
treystandi en Pétri til aö
einkavæða símann hratt en ...
Dagur í klípu
Dagur er í vondum málum.
Blaðið birti um helgina stór-
viðtal Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur við
Helga Hjörvar,
framkvæmda-
stjóra Blindra-
félagsins. Helgi
er félagi í Al-
þýðubandalag-
inu og í próf-
kjöri Reykja-
víkurlistans
hann talinn eiga möguleika á
að fella annaðhvort Guðrúnu
Ágústsdóttir eða Árna Þór
Sigurðsson sem eru borgár-
fulltrúar flokksins í dag.
Stuðningsmenn þeirra vilja nú
fá jafn stór viðtöl við Áma og
Guðrúnu. Sama gildir auðvit-
að um frambjóðendur annarra
flokka sem bíða eftir að Dagur
hringi og panti stórviðtal...