Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1998, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 Ftjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG EUN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Seintekinn sóðagróði Stjómmálamenn og fréttamenn hafa rætt, aö hversu miklu leyti tekiö hafi verið tillit til „sjónarmiða íslands“ á loftmengunarráðstefnunni í Kyoto. Eiga þeir þá við, að hve miklu leyti samþykkt hafi verið, að íslendingar fái undanþágu til að auka mengun andrúmslofts síns. Sérstakt hugarfar þarf til að líta svo á, að það séu „sjónarmið íslands“, að loftmengun fái að aukast meira hér á landi en annars staðar, samkvæmt sérstakri und- anþágu frá Kyoto. Þetta er auðvitað hugarfar sóðans, hvort sem hann svíður undan nafngiftinni eða ekki. Sóðamir verja mengunina með því að segja hana hag- kvæma. Með sömu rökum má segja, að ekki taki því að þvo upp heima hjá sér, af því að leirtauið verði strax skítugt aftur. Það sé óarðbær vinna að vaska upp og að það séu „sjónarmið íslands“, að ekki sé vaskað upp. Sóðagróðinn verður hins vegar seintekinn. Ljóst er, að reikningsdæmið er flóknara en sóðamir vilja vera láta. Á vogarskálamar þarf að leggja ýmsan kostnað, sem fylg- ir hinum séríslenzka sóðaskap, sem nú hefur fengið al- þjóðlega viðurkenningu á fjölþjóðaþingi í Kyoto. Samkvæmt niðurstöðum ráðstefnunnar getur loft- mengunarréttur gengið kaupum og sölum. Þess vegna mun skapast alþjóðlegt markaðsverð á rétti til loftmeng- unar. Á þeim forsendum er unnt að verðleggja kostnað við loftmengun frá fyrirhugaðri stóriðju á íslandi. Þar með hefur fengist alþjóðlegur mælikvarði á kostn- að við loftmengun, sem setja þarf inn í kostnaðardæmi stóriðjunnar, jafnvel þótt þjóðin fái frían aðgang að vondu útblásturslofti upp að vissu marki, í samræmi við gengi „sjónarmiða íslands“ í sóðaskap. Við sleppum ekki frá slíkum kostnaðarreikningi, þótt sú leið verði valin að hafha stóriðju og leggja í þess stað rafmagnskapal til útlanda. Sjónmengun og lífsgæðatap af völdum hálendisrasks orkuvera er líka kostnaður, þótt erfiðara sé að meta upp á krónu, hver hann sé. Komið hefur fram, að mannvirki í annars ósnortnu víðerni, fela í sér lífsgæðatap þjóðarinnar og minni ferða- mannatekjur en annars yrðu. Eðlilegt er, að þetta tjón af völdum orkuvera verði metið til fjár og sett inn í kostn- aðardæmi fyrirhugaðra orkuvera. Komið hefur fram erlendis, að kostnaði ríkja af völd- um mengunarvama fylgja líka hreinar tekjur. Bezta dæmið um það er Þýzkaland, sem hefur tekið forustu í umhverfismálum og selur núna búnað og þekkingu í um- hverfismálum til útlanda fyrir háar fjárhæðir. Þetta getum við líka gert. Ef við tökum til dæmis for- ustu í notkun vetnis í samgöngutækjum, höfum við ekki bara kostnað af framkvæmdinni, heldur einnig tekjur af sölu búnaðar og þekkingar á þessu sviði til annarra ríkja, sem skemmra verða á veg komin. Þannig koma tekjupóstar á móti kostnaðarpóstum um- hverfisvemdar, ef rétt er á málum haldið. Það er því eng- an veginn hreint tap af hreinlæti eins og ætla mætti af tali og skrifum stjómmálamanna og fréttamanna, sem hampa sóðaskap sem „sjónarmiðum íslands“. Fyrsta skrefið í rétta átt er, að menn svíði undan sann- leikanum. Þegar ráðstefnan í Kyoto og niðurstöður henn- ar em orðnar tilefni langra kafla í áramótagreinum tals- manna séríslenzks réttar til sóðaskapar, er ljóst, að þátta- skil hafa orðið í stöðu umhverfismála í þjóðlífinu. Hér eftir verður ekki unnt að tefla fram fullyrðingum um arðsemi orkuvera, stóriðju, fiskiskipa og samgöngu- tækja, án þess að sóðakostnaðurinn sé talinn með. Jónas Kristjánsson nýjum lögum um háskóla er alvarlega vegið aö sjálfstæði íslenskra háskóla, að sögn greinarhöfundar. Opnað fyrir skóla- gjöld í nýjum háskólalögum segir: „í sérlögum, ■■■ ......—....... samþykktum eða KÍallarÍnil skipulagsskrám hvers lllll háskóla skal setja regl- ur um hvernig háttað skuli gjaldtöku af nem- endum vegna náms við viðkomandi skóla. í sérlög hvers ríkishá- skóla skal setja reglur um öflun sértekna með gjaldtöku fyrir þjón- ustu er skólarnir bjóða.“ Hér er alveg skýrt að orði kveðið um það að skólarnir geta í samþykktum eða skipulagsskrám ekki síður en í sérlögmn - „Þannig er almennt vegið aö sjálfstæöi háskólanna sem mennta- og rannsóknarstofnana. Annaö meginatriöiö sem olli því aö stjórnarandstaöan snerist gegn háskólafrumvarpinu var sú staöreynd aö þar er opnaö fyrir þaö aö skólagjöld veröi notuö til aö þess aö standa undir rekstri skóianna.” Svavar Gestsson alþingismaöur í DV fyrir áramótin var fullyrt í þversíðufyrirsögn og tilvísun á forsíðu aö dregið hefði verið úr valdi menntamálaráðherra með af- greiðslu Alþingis á háskólafrum- varpinu. Þetta er rangt; staðreynd- in er sú að með nýju háskólalög- unum hefur vald ráðherra verið stóraukið frá því sem verið hefur. Það gerist í fyrsta lagi með því að ráðherra eigi í framtíðinni að skrifa upp á rektora háskólans og í öðru lagi með því að ráðherra getur án takmörkunar tilnefnt þá sem honum sýnist í háskólaráð allra háskólanna. Þannig er almennt vegið að sjálfstæði háskólanna sem mennta- og rannsóknarstofnana. Annað meginatriðið sem olli því að stjómarandstaðan snerist gegn háskólafmmvarpinu var sú stað- reynd að þar er opnað fyrir það að skólagjöld verði notuð til þess að standa undir rekstri skólanna. Það er opnað fyrir þennan möguleika og eina leiðin til að koma í veg fyr- ir hann er sú að í sérlögum um hvem skóla verði beinlínis tekið fram að það komi ekki til greina að skólagjöld verði notuð i þessu skyni. Það var reyndar gert í hinum nýju lögum um kennaraháskólann sem samþykkt vom fyrir áramót og við studdum þingflokkur Ai- þýðubandalagsins og óháðra eins og aðrir stjómarandstöðuflokkar. Alveg skýrt aö oröi kveöiö 1 hinum nýju lögum um háskóla sem Alþingi setur - lagt á skóla- gjöld að geðþótta. Þegar málið var til meðferðar á Alþingi sóm stjóm- arflokkamir þessa túlkun af sér með eindregnum hætti; en þeir svardagar duga ekki. Það sem nú þarf að gerast er því tvennt. í fyrsta lagi verður hver skóli fyrir sig að taka ákvörðun um að hann mimi ekki nota þessa lagagrein til þess að knýja á um innheimtu skólagjalda til að standa undir al- mennum rekstri. í öðm lagi verður að beita sér fyrir því á Alþingi að lagaá- kvæði framtíðar- innar um hvem skóla fyrir sig taki algerlega af tvímæli í þessum efnum. Þær grundvall- arbreytingar sem gerðar hafa verið á lögum um há- skóla em háska- legar fyrir sjálf- stæði mennta- og rannsóknarstofn- ana og fyrir jafii- rétti til náms. Þessum ákvæð- um þarf að breyta við fyrsta tæki- færi. Svavar Gestsson Skoðanir annarra Aðhald á verðbréfamarkaði „í Morgunblaðinu í gær var frá því skýrt, aö Verð- bréfaþing hefði tekiö til athugunar viðskipti í nokkrum fyrirtækjum síðustu daga liðins árs. Bein- ist athugun Verðbréfaþings að því að kanna hvort þessum viðskiptum hafi verið ætlað að hafa áhrif á lokaverð ársins. Jafhframt kom fram, að Verðbréfa- þing hefði þegar ákveðið að vísa nokkrum þessara mála til bankaeftirlits til frekari meðferðar. Þetta aukna aðhald Verðbréfaþings er afar mikil- vægt og líklegt til þess að stuðla að heilbrigðum við- skiptaháttum með hlutabréf. Menn hafa haft vissar áhyggjur af þvi, að með ýmsum hætti væri reynt að hafa áhrif á verð hlutabréfa, m.a. með viðskiptum sem væru sýndarviðskipti." Úr leiðara Mbl. 4. jan. Áhrif sveitarstjórnarkosninga „Sigur samfylkingarframboða í vor myndi þannig tvímælalaust virka sem vítamínsprauta í viðræðun- um um sameiginlegt framboð sömu afla á landsvísu. Á sama hátt kann það að sprengja þær viðræður í loft upp ef sameiginlegu A-flokka framboðin ná ekki tilætluðum árangri. Það er því meira í húfl í vor en meirihluti í stjómun einstakra bæjarfélaga." Elías Snæland Jónsson í Degi 3. jan. Varnagli Davíðs „Forsætisráðherra slær nú vamagla sem ekki hef- ur verið sleginn svo eftir hafi verið tekið áður, varð- andi stóriðju: „Þegar stórákvarðanir um nýtingu vatnsafls og varma verða næst teknar, þarf að rikja um þær sem víðtækust sátt meðal þjóðarinnar og við landið, sem okkur er treyst fyrir." Ráðherra gerir sér væntanlega grein fyrir að gangi alþjóðlegar kröf- ur um hertar mengunarvarnir eftir verða orkulind- ir landsins miklu verðmætari en áður. En meginat- riði er, að forystumenn landsins beri gæfu til að gefa fyrirheiti forsætisráðherra um sátt lands og þjóðar að raunverulegu inntaki í stefnu sinni.“ Stefán Jón Hafstein í leiðara Dags 3. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.