Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
Jéiklist
23
Guðbjöm Sigvaidason
solumaður
löggiltur bifreiðasaH
Ámi Sveinsson
sölumaður
Á miðvikudag var frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu nýtt leikrit eftir Ólaf
Hauk Símonarson, Meiri gaura-
gangur, í leikstjórn Þórhalls Sig-
urðssonar. Leikritið er framhald
Gauragangs sem frumsýnt var ná-
kvæmlega fjórum árum áður en
þetta leikrit var frumsýnt. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem þessi tvö nöfn
sjást í sömu leikskránni. Þessi sýn-
ing er sú níunda sem þeir félagar
setja upp saman, þar af sú sjöunda í
Þjóðleikhúsinu. Helgarblaðið náði
af því tilefni tali af þeim daginn sem
leikritið var fnunsýnt.
Þrátt fyrir að þessi stóráfangi
væri á næsta leiti virtust þeir félag-
ar afslappaðir. Generalprufan sem
var kvöldið áður hafði gengið vel,
þó svo að Þórhallur teldi að fin-
pússa þyrfti vissa hluti áður en leik-
ritið yrði lagt fyrir dóm gagn-
rýnenda og annarra leikhúsgesta.
Ekki ieiðir
Þegar þeir eru spurðir hvað þeir
hafi sett upp margar sýningar saman
telst Þórhalli til að þær séu níu með
þeirri sem nú er í gangi. „Þórhallur er
miklu talnagleggri heldur en ég,“ seg-
ir Ólafur Haukur og virðist þar með
samþykkja þessa tölu kollega síns. Af
þessum níu sýningum hafa sjö verið
settar upp í Þjóðleikhúsinu, ein í Iðnó
og ein á Húsavík. Fyrsta sýningin
þeirra saman, Milli skinns og hör-
unds, var sett upp fyrir 15 árum.
Þegar blaðamaður spyr hvort þeir
séu ekki að verða leiðir á hvor öðrum
segir Þórhallur að þessi spurning komi
alltaf upp. „Það er eins og fólk telji
sjálfsagt mál að menn endist ekki
nema árið saman,“ segir hann og bend-
ir á að það sé algengt í þessum bransa
að höfundur og leikstjóri vinni saman.
Ólafur Haukur bætir síðan við að
þeir séu nú ekki saman allt árið þó að
þeir vinni mjög mikið saman meðan á
sýningum stendur. Þar að auki líði oft
nokkur ár milli sýninga þannig að þeir
hafi tíma til að jafna sig hvor á öðrum
áður en þeir hefja aftur samvinnu.
Nýja leikritið frábrugðið
Leikritið Meiri gauragangur er
framhald leikritsins Gauragangur og
eru bæði þessi verk byggð á sam-
nefndum skáldsögum ðlafs Hauks
sem komu út fyrir nokkrum árum.
Nýja leikritið er þó í ýmsu frábrugðið
forvera þess. „Þetta leikrit er líklega
enn þá sjálfstæðara heldur en það
fyrra. Það er orðið lausara við söguna
og er í raun mjög frábrugðið i efnis-
tökum. Byggingin er allt öðruvísi, það
er knappara og hefur færri persónur.
Fyrra leikritið fór dálítið út um víðan
völl,“ segir Ólafur Haukur.
Þórhallur bætir því við að leikrit-
ið beri keim af því að aðalpersón-
umar, þeir Ormur og Ranúr, hafi
elst. „Það er oft meiri hringekja í
kringum mann þegar maður er
yngri en nú er rólegra. Þetta leikrit
er þéttara en það fyrra og í raun er
það mjög frábrugðið sögunni," segir
Þórhallur. Hann nefnir sem dæmi
að leikritið Gauragangur hafi verið
um 50-60 atriði. Þetta leikriti sé
hins vegar um 15 atriði.
Traustið mikilvægt
Ólafur segir það mjög dýrmætt í
svona samvinnu að menn treysti
hver öðrum. „Þegar menn eru bún-
ir að vinna lengi saman fer ekki
eins mikill tími i að tala út um hlut-
ina. Þá þekkja menn hver annan vel
og geta gengið beint til verks.“
Ólafur segir það alltof sjaldgæft
hér á landi að fastir kjarnar mynd-
ist í leikhúslífinu sem geta unnið
saman í friði. „Það eru þó oft dæmi
þess að leikstjórar velji alltaf sama
leikmyndahönnuð til að vinna með.
Oft myndast líka trúnaður milli
leikstjóra og leikritahöfunda. Það er
líka mjög þekkt í leikhúslífi víða að
höfundur treysti aðeins einum leik-
stjóra til að standa að frumflutningi
verka sinna."
Ólafur bætir einnig við að það sé
Brandur Gunnarsson
sölumaður
löggiltur bifreiðasali
/ammmtmiesaaiæœKSffiM i
Pétur Stefánsson 'A‘
sölumaður
löggiltur bifreiðasali I
Jon Hialmarsson
sölumaður
sólumaður
löggiltur bifreiðasali
Quðni Þór Jónsson
sölustióri
Knstja
nsdottir
anaur
Sigurður Sigmundsson
tengiliður við umboðsmenn
föggiltur bifreiðasali
Unnur Elva Amardóttir
sölumaður
Bílaþing Heklu leggur sínnlTíetnað í að hafa
starfsfólk sitt vel þjálfað. í dag eru 7 af 9
starfsmönnum okkar löggiltir bifreiðasalar
samkvæmt lögum um sölu notaðra ökutækja.
SVONA EIGA BÍLASALAR AÐ VERA !
BILAÞiN
N O T A Ð I R
Ólafur Haukur og Þórhallur Sigurðsson hafa sett upp
Fimmtán ára sa
algengt að aðrir leikstjórar taki við
leikritunum og fáist þá við þau á
öðrum forsendum. Hann er hins
vegar ekki viss um að íslenskt leik-
húslíf bjóði upp á að höfundar sjái
leikrit sín oft á sviði.
Þegar þeir eru spurðir hvort þeir
stefni að því að vinna meira saman
glottir Þórhallur og segir: „Það er
aldrei að vita. Við klárum þessa sýn-
ingu núna og vitum í raun ekkert hvað
við gerum næst. Það getur vel verið að
við vinnum þá hvor í sínu lagi.“ -HI
Ólðfur HáykWfwluónárBóh og
N&iha(llff SÍtjUfðsson káfíi ó
fninTsýníngafdatiÍnn Af
r/jímdifiili oð daema virðáSf
jjelr ftáfa gaman af snrrfStörf
inu. UV-mynd ÞÖK