Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1998, Qupperneq 47
I LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 iafmæli * Karl P. Maack húsgagnasmíða- meistari, Skipholti 50, Reykjavík, verður áttræður á morgun. Starfsferill Karl fæddist við Nýlendugötuna í Reykjavík og ólst upp í Vesturbæn- um. Hann lauk prófi frá Gagnfræða- skólanum í Reykjavík 1936, lærði húsgagnasmíði hjá Guðmundi Grímssyni húsgagmasmíðameist- ara, lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykjavík 1941 með hæstu einkunn sem gefin var það árið, lauk sveins- prófi í sinni grein og öðlaðist meist- araréttindi 1946. Karl stofnaði, ásamt Sigurgeiri Gíslasyni og Guðmundi Gíslasyni, fyrirtækið Húsgögn Co 1943. Hann starfrækti fyrirtækið með þeim í meira en hálfa öld eða þar til fyrir tveimur árum. Karl gekk snemma í Húsgagna- meistarafélag Reykjavíkur, var kos- inn í stjóm þess um 1950 og sat sam- fellt í stjórn þess til 1972, var oft for- maður samninganefndar félagsins og formaður þess á árunum 1963-71. Hann var kjörinn heiðursfélagi arf- taka þess félags, Félags húsgagna- Karl P. Maack og innréttinga framleið- enda 1981. Karl stóð fyr- ir því í sinni formanns- tið að tekin var gæða- merking íslenskra hús- gagna. Karl er félagi í Tenn- is og badmintonfélagi Reykjavikur, sat í bygg- ingarnefnd húss félags- ins við Gnoðavog, var kosinn heiðursfélagi TBR 1985, var formaður Badmintonsambands ís- lands 1972-76 og lengi dómari í þeirri íþrótta- grein. Hann hefur verið virkur fé- lagi í Skíðadeild KR frá því á fjórða áratugnum, hefur setið í stjórn deildarinhar og tekið þátt í bygg- ingu allra skíðaskála KR í Skálafelli nema þess sem hann opnar form- lega á áttræðisafmælinu. Hann leik- ur enn badminton og fer á skíði. Fjölskylda Eiginkona Karls var Þóra Run- ólfsdóttir, f. 31.10. 1919, d. 2.3. 1994, húsmóðir. Hún var dóttir Runólfs Sigurjónssonar, verkamanns í Reykjavik, og k.h., Guð- rúnar Þorbjörnsdóttur húsmóður. Böm Karls og Þóru: Pétur K. Maack, f. 1.1. 1946, verkfræðiprófess- or við HÍ, kvæntur Sól- eyju Ingólfsdóttur og eiga þau þrjár dætur; Runólfur K. Maack, f. 15.11. 1949, verkfræð- ingur og framkvæmda- stjóri í Rvík, kvæntur Stefaníu Kjartansdótt- ur og eiga þau einn son; Gunnar Maack, f. 14.3. 1954, d. 8.7.1994, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri í Rvík, kvænt- ur Eygló Baldursdóttur og eignuð- ust þau tvo syni. Systkini Karls: Pjetur Andreas Maack, f. 24.2. 1915, d. 1944; Aðal- steinn Maack, f. 17.11. 1919, húsa- smíðameistari; Viggó E. Maack, f. 4.4. 1922; Elisabet Thorsteinsson, f. 23.2. 1925, húsmóðir. Foreldrar Karls vom Pjetur Andreas Maack, f. 11.11. 1892, skip- stjóri í Reykjavík, og k.h., Halffríð- ur Maack, f. 7.6.1885, húsmóðir. Ætt Pjetur var sonur Pjeturs Maack, pr. á Stað í Grunnavík Þorsteins- sonar, kaupmanns á Skipaskaga Guðmundssonar. Móðir Pjeturs Þorsteinssonar var María Pétursdóttir. Móðir Péturs Andreas var Vigdís Einarsdóttir, b. í Neðri-Miðvík í Að- alvíkurhreppi Friðrikssonar, Halls- sonar. Móðir Einars var Katrín Jónsdóttir. Móðir Vigdísar var Ragnhildur Jóhannesdóttir, b. í Skáladal, og Rannveigar Ólafsdóttur frá Læk. Hallfríður var dóttir Hallgríms Benediktssonar, b. í Eiðaþinghá og Elísabetar Jónsdóttur sólargangs, Guðmundssonar. Móðir Elísabetar var Ingibjörg Sigurðardóttir frá Heiðarseli Benediktssonar, og Ingi- bjargar Einarsdóttur frá Bót. Karl býður öllum vinum og vandamönnum til kaffisamsætis í gamla KR-skálnum í Skálafelli, sunnudaginn 15.2. milli kl. 14.00 og 18.00. Karl P. Maack. Ingigerður Eiríksdóttir Ingigerður Eiríksdóttir, húsfreyja að Skipum í Stokkseyrarhreppi, er sjötug í dag. Starfsferill Ingigerður fæddist á Löngumýri á Skeiðum og ólst þar upp. Hún var í barnaskóla á Skeiðum, var einn vet- ur á húsmæðraskóla og var ráðs- kona hjá bróður sínum í Brautar- holti einn vetur. Fjölskylda Ingigerður giftist 7.1. 1950 Jóni Ingvarssyni, f. 28.8. 1912, bónda að Skipum. Hann er sonur Ingvars Hannessonar, bónda að Skipum, og Vilborgar Jónsdóttur húsfreyju. Böm Ingigerðar og Jóns eru Gísli Vilhjálmur, f. 2.2. 1950, skipstjóri í Þorlákshöfn, kvæntur Herdísi Jónu Hermannsdóttur og era böm þeirra Ingigerður, f. 5.7. 1976, Hermann Þór, f. 31.1. 1978 og Axel Már, f. 3.9. 1983; Móeiður, f. 28.7. 1953, húsmóð- ir í Reykjavík en maður hennar er Ólafur Benediktsson, bifreiðastjóri hjá Fóðurblöndunni hf og era börn þeirra Benedikta, f. 13.3. 1973, Jón Ingi, f. 14.5.1976, Kristín Ósk, f. 17.1. 1981 og Óli Ben, f. 3.3. 1991; Ragn- heiður, f. 30.10. 1962, húsmóðir en hennar maður er Vilhjálmur Vil- mundarson bakari og eru börn þeirra Stella Sigríður, f. 10.1.1995 og Eiríkur Bjöm, f. 10.8. 1996. Systkini Ingigerðar: Ágúst Eiríks- son, f. 7.10. 1916, garðyrkjufræðing- ur og bóndi á Löngumýri, var kvæntur Emmu Guðnadóttur sem er látin og eru böm þeirra átta; Elín, f. 29.10. 1917, húsfreyja á Votumýri, gift Eiríki Guðnasyni og era böm þeirra þrjú; Þor- steinn, f. 13.4. 1920, d. 1.10. 1978, yfirkennari í Reykja- vík, var kvæntur Solveigu Helgadóttur Hjörvar og áttu þau einn kjörson auk þess sem hún á þrjú börn; Páll, f. 16.7. 1921, fyrrv. að- stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, kvæntur Svan- fríði Gísladóttur og eiga þau þrjú böm; Sigurður, f. 16.6. 1926, d. 24.11. 1981, vélamaður hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík. Fósturbróðir Ingigerðar er Bald- vin Árnason, f. 17.6. 1939, iðnaðar- maður á Selfossi. Foreldrar Ingigerðar vora Eiríkur Þorsteins- son, f. 6.10. 1886, d. 25.7. 1979, búfræðingur og bóndi á Löngumýri á Skeiðum, og k.h., Ragn- heiður Ágústsdóttir, f. 9.3. 1889, d. 26.2. 1967, húsfreyja. Ingigerður og Jón taka á móti gestum í Reykjavík á afmælis- daginn. Upplýsingar um samkomustaðinn eru veittar símleiðis. Ingigerður afþakkar vinsamlegast allar afmælisgjafir. Pétur Svavarsson Pétur Svavarsson tannlæknir, Meistara- völlum 15, Reykjavik, er fimmtugur á morgun. Starfsferill Pétur fæddist að Ásvallagötu í Reykjavík og ólst upp í vesturbæn- um til tíu ára aldurs er hann fluttist í Laugar- nesið. Hann lauk stúd- éntsprófi frá MR 1968 og cand. odont-prófi frá HÍ 1975. Með námi vann Pétur Pétur Svavarsson. við landmælingar hjá Vegagerð ríkisins. Hann var tannlæknir á ísafirði frá 1975-84 þegar hann hóf rekstur eigin tann- læknastofu sem hann rak þangað til 1985. Síð- an þá hefur hann rekið tannlæknastofu á Eiðis- torgi á Seltjarnamesi. Fjölskylda Sambýliskona Péturs frá 1989 er Auður Ragn- arsdóttir, f. 10.9. 1953, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á bamadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur. Foreldrar henn- ar vora Ragnar Kristjánsson, yfir- tollvörður í Reykjavík, f. 1.3.1917, d. 13.3. 1988, og Jóhanna Jóhannsdótt- ir, húsfreyja í Reykjavík, f. 29.5. 1921, d. 30.8. 1989. Sonur Péturs og Auðar er Pétur Jóhann Pétursson, f. 3.12.1990. Pétur var áður kvæntur Önnu Pálsdóttur, meinatækni og kynning- arfulltrúa NLFÍ. Þau skildu 1986. Böm þeirra eru Ingibjörg Hanna, f. 26.4. 1970, nemi í fatahönnun í Ut- recht í Hollandi; Hrafnhildur, f. 1.4. 1977, stúdent frá MH. Systkini Péturs era Ágúst, f. 29.6. 1949, tæknifræðingur í Göppingen í Þýskalandi, og á hann þrjú börn; Sigurður, f. 14.1.1954, framkvæmda- stjóri Máls og menningar, kvæntur Guðrúnu Svansdóttur líffræðingi og eiga þau tvö börn; Sigrún, f. 26.4. 1960, aðstoðarmaður tannlæknis, gift Mána Arngrími Amgrímssyni bifvélavirkja og eiga þau þrjár dæt- ur. Foreldrar Péturs eru Svavar Júlí- usson, f. 15.10. 1920, d. 27.8. 1976, verkstjóri, og Hanna I. Pétursdóttir, f. 8.8.1926, skrifstofumaður, búsett í Reykjavík. Stefán Orn Stefánsson Stefán Örn Stefánsson, vélaverk- fræðingur og framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Stefán Öm Stef- ánsson ehf., Valhúsabraut 21, Sel- tjarnarnesi, verður sextugur á morgun. Starfsferill Stefán fæddist í Traðargerði á Húsavík, Suður-Þingeyjarsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1958, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá HÍ 1961 og vélaverkfræðiprófi frá DTH 1964. Stefán var vélaverkfræðingur við Olíuhreinsunarstöð Dansk Esso í Kalundborg 1964-66, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins á Seyðisfirði 1966-69, deildarstjóri tæknideildar Flugfé- lags íslands 1969-72 en hefur rek- ið eigin verkfræðistofu frá 1972. Ásamt störfum við verkfræði- stofuna hefur Stefán endurskipu- lagt ýmsar af helstu fiskimjöls- verksmiðjum landsins og unnið að þróun framleiðslu hágæðafiskimjöls. Fjölskylda Stefán kvæntist 15.2. 1961 Gunnþórunni R. Þórhalldóttur húsmóður, f. 21.5.1941. Foreldrar Stefáns: Stefán Halldórsson, f. 25.9. 1899, d. 9.11. 1940, verkamaður á Húavík, og k.h., Jónína Stefán Örn Stefánsson. Brynjólfsdóttir, 12.9. 1906, húsmóðir. Þau hjónin taka á móti ættingjum, vinum og samstarfsmönnum á afmælisdaginn í Sunnu- sal Hótel Sögu kl. 16-19. 111 hamingju með afmælið 15.febrúar 85 ára Kristinn Ólafsson, Hænuvík Innri 2, Vesturbyggð. 80 áxa Enuna Hansen, Barmahlíð 33, Reykjavík. Júlía Guðrún Jónsdóttir, Vestri-Tungu, Vestur-Landeyjahreppi. 75 ára Baldvin Ágústsson, Hringbraut 88, ReyKjavík. 70 ára Karl Kristinsson bifreiöarstjóri, Bugðulæk 20, Reykjavik. Eiginkona hans er Bjarndís Friðriksdóttir. Þau verða að heiman á afmæl isdaginn. 60 ára Sveinn Vilhjálmsson, Ártröð 14, Egilsstöðum. 50 ára Edda Hörgdal Stefánsdóttir, Þóroddsstaö, Ljósavatns hreppi. Emma Ásgeirsdóttir, Steinum 7, Djúpavogshreppi. Hjalti Einarsson, Grófarseli 9, Reykjavík. Hjálmar Ágústsson, Langsstöðum, Hraungerðis hreppi. Ingibjörg Magnúsdóttir, Þrastarhólum 10, Reykjavík. Kristín Ó. Sigurðardóttir, Lindargötu 62, Reykjavík. Ólafur Eggertsson, Vestmannabraut 58b, Vestmannaeyjum. Ragnar Jónsson, Dalshöfða, Skaftárhreppi. Sigmundur Rafn Einarsson, Laugargötu 2, Akureyri. Sigriður Sigurjónsdóttir, Norður-Flankastöðum, Sandgerði. Sævar Björn Gunnarsson, Blikahólum 4, Reykjavík. Víðir Björnsson, Vörðu 12, Djúpavogshreppi, 40 ára Edda Elísabet Kjerulf, Fljótaseli 12, Reykjavík. Guðrún B. Tryggvadóttir, Suðurlandsbraut, Rafstöð 6, Reykjavík. Hanna Björk Hilmarsdóttir, Bakkaseli 12, Reykjavík. Jón Stefán Ingólfsson, Höfðagötu 12, Grenivík. Kristján Hauksson, Áshamri 75, Vestmannaeyjum. Sigrún Edda Hringsdóttir, Austurströnd 2, Seltjarnamesi. Steinþór Gunnarsson, Merkjateigi 2, Mosfellsbæ. Ægir Magnússon, Goðheimum 23, Reykjavík. öW mil/i hlmin, - , 6 Oq . Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.