Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1998, Blaðsíða 40
VimiÍMgstöIur laugardaginn: 27. 06,
Jókertölur
vikuntiar:
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1. 5 af 5 1 25.499.550
2. 4 af 5+®££ 7 211.250
3. 4 af 5 274 9.310
4. 3 af 5 9.662 610
>rV
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ1998
Áreksturinn var haröur. Þrír bílar skullu saman. Myndin sýnir oltinn jeppa á veginum og fólksbíl utan vegar.
DV-mynd G. Bender.
Arekstur í Noröurárdal í gær:
Farþegi slasaðist en tvö hross sluppu ómeidd
Harður þriggja bíla árekstur
varð við Dalsmynni í Norðurárdal í
. gærkvöldi þegar tveir jeppar, báðir
^ með kerrur, og fólksbíll skullu sam-
an á um 80 tO 90 km hraða. Tildrög
slyssins virðast hafa verið þau að
fólksbíllinn fór yfir á öfugan vegar-
helming, lenti þar á öðrum jeppan-
um, sem kastaðist þá yfir á hinn
jeppann sem kom úr sömu átt og
fólksbíllinn. Annar jeppinn var með
hestakerru sem í voru tveir hestar.
Þá sakaði ekki. Engin alvarleg
meiðsl urðu á fólki en einn farþegi
skarst í andliti og var fluttur á
heilsugæslustöðina i Borgarnesi þar
sem gert var að sárum hans. Báðir
jepparnir eru talsvert skemmdir en
fólksbíllinn minna.
Lífeyrissjóðir
sameinast
Lífeyrissjóðir arkitekta og
tæknifræðinga hafa sameinast
og myndað Lifeyrissjóð arki-
tekta og tæknifræðinga. Samein-
ingin var samþykkt á aðalfund-
um sjóðanna í vor og hefur fjár-
málaráðuneytið samþykkt reglu-
gerð hins nýja sjóðs, sem er
samin með hliðsjón af nýjum
lögum um starfsemi lífeyris-
sjóða.
Tilgangurinn með stofnun
sjóðsins er, eins og segir í frétta-
tilkynningu, að stofna hag-
kvæman lífeyrissjóð sem sam-
einar kosti séreignar- og sam-
tryggingarsjóða. Heildareignir
hins nýja sjóðs eru um 3,6 millj-
arðar króna og voru sjóðfélagar
1400 fyrsta júlí síðastliðinn.
-fin
Féll úr klettum
Dönsk ferðakona féll úr klett-
um milli Djúpalóns og Dritvikur
J* á Snæfellsnesi um áttaleytið á
laugardagskvöld. Hún brotnaði
illa á vinstra fæti og þurfti að
bera hana nokkurn spöl upp að
bílastæðum en þaðan var henni
ekið á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akranesi. -sm
Meðvitundarlítil
í Bláa lóninu
Kona af indversku bergi brot-
in fannst meðvitundarlítil I Bláa
lóninu um miðjan dag í gær.
Ekki er vitað hvað kom fyrir en
konan var flutt á Sjúkrahús
Reykjavíkur í Fossvogi. Læknir,
sem DV ræddi við, sagði að hún
■ væri ekki í lífshættu. -sm
Steingrímur J. Sigfússon ósáttur við niðurstöðu landsfundar:
Málamiðlun
tókst ekki
— fimm af átta þingmönnum með Steingrími
„Að sjálfsögðu tel ég ekki hafa
verið komið nægilega til móts við
sjónarmið okkar, enda var ekkert
komið til móts við þau,” sagði Stein-
grímur J. Sigfússon þegar DV
spurði hvort hann teldi að komið
hefði verið til móts við sjónarmið
hans á landsfundi Alþýðubandalags-
ins um helgina. „Mér fmnst það
bæði miður og óskynsamlegt að
ekki skuli hafa verið komið til móts
við sjónarmið þess fjölmenna hóps í
flokknum sem ég veit að deilir skoð-
unum með mér og öðrum sem lögðu
fram þessa tillögu. Auk þess á ég í
raun erfitt með að skilja það hvers
vegna enginn vilji var sýndur til
þess, hvorki fyrir fundinn, á hon-
um, né eftir hann. Allir sem þekkja
til í stjórnmálaflokki hljóta að sjá að
stuðningurinn, sem sjónarmið okk-
ar nutu, var umtalsverður.”
Steingrímur telur að tillaga sín
hefði fengið mun meira fylgi ef hún
hefði staðið jafnt að vígi við tillögu
formannsins. „Ef önnur tillagan er
flutt í upphafi fundar af formanni
og varaformanni flokks er fundin-
um í raun stillt upp við vegg. Það
vita auðvitað allir að í stjómmála-
flokki þar sem flokks-
hollustan er eins sterk
og í Alþýðubandalag-
inu er ekki léttasta
verk í heimi að fara að
leggja annað til. Ef
öðravísi hefði verið
staðið að málum og
mæting á fundinn ver-
ið betri er ég ekki frá
því að hlutfollin hefðu
getað orðið 60% gegn
40%. Auk þess breyttu
þeir fyrirvarar sem
síðar voru settir við til-
lögu Margrétar miklu
hér um. Fólk treysti sér frekar til að
styðja tillögu hennar eftir þá en sá
stuðningur fylgdi miklu hiki. Þarna
voru nokkrir tugir fundarmanna
hikandi í stuðningi sínum og það
fólk lítur svo á að það sé ekki búið
að gera upp hug sinn til sameigin-
legs framboðs."
Þingflokkur í uppnámi
Á landsfundinum var ljóst að
meirihluti þingmanna flokksins
studdi tillögu Steingríms. Auk
Steingríms studdi Ragnar Arnalds
tillöguna og að sögn
Steingríms gerðu
Svavar Gestsson og
Kristinn H. Gunnars-
son það einnig. Þá
hafa Hjörleifur Gutt-
ormsson og Ögmund-
ur Jónasson lýst sig
andvíga þeirri tillögu
sem samþykkt var á
landsfundinum. Þetta
eru fimm af átta þing-
mönnum flokksins
sem þýðir að aðeins
Bryndís Hlöðversdótt-
ir og Sigríður Jóhann-
esdóttir hafa stutt tillöguna, auk
Margrétar. „Ég tel að þessi niður-
staða megi vera mönnum nokkurt
umhugsunarefni. Það verður að
ætla að þingmennimir hafi tilfinn-
ingu fyrir því hvernig landið liggur
í flokknum og í þeirra kjördæmum.
Annars er athyglisvert að núna eft-
ir fundinn slá formaður flokksins og
aðrir miklu fleiri vamagla en í und-
irbúningi fundarins þar sem reynt
var að telja fólki trú um það að allt
væri meira og minna klappað og
klárt.” -kjart
Flórída:
íslendingar yfir-
gefa heimili sín
íslendingar búsettir á Flórída
hafa ekki farið varhluta af skóg-
areldunum sem þar geisa um
þessar mundir. Þórir S. Gröndal,
ræðismaður íslands á Flórída,
sagði í samtali við DV í gær að
a.m.k. einum íslendingi, Guðnýju
Fisher, hefði verið skipað að yfir-
gefa hús sitt á fimmtudaginn.
Guðný er búsett á Palm Coast í
Flórída en þar er talsverð hætta á
skógareldum enda er bærinn
byggður inni í skógi. Þar brunnu
nokkur hús núna en Þórir sagðist
ekki vita hvort hús Guðnýjar
hefði sloppið. „Það eru fjögur til
fimm heimili íslendinga á svæð-
um þar sem hætta stafar af eldun-
um. Ég hef hringt þangað reglu-
lega síðan á fimmtudaginn en
Guðný er sú eina sem ég hef náð
sambandi við. Það er líklegt að
hinar fjölskyldurnar hafi líka
þurft að yfirgefa heimili sín fyrst
svo erfltt er að ná sambandi við
fólkið í síma,“ sagði Þórir. Að
hans sögn minnkaði hættan af
eldunum nokkuð í gær vegna hag-
stæðrar vindáttar. Jafnframt er
von á rigningu þegar líða tekur á
vikuna þannig að versta hættan
virðist yfirstaðin. -KJA
Veðrið á morgun:
Þykknar
upp seinni-
partinn
Á morgun verður að mestu létt-
skýjað norðanlands og austan og
sæmilega hlýtt þar. Hins vegar
þykknar upp og fer að rigna
sunnan- og suðvestanlands þegar
liður á daginn.
Veðrið í dag er á bls. 45.