Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
/
Fréttir
Húsbíll með bý
flugu að fyrirmynd
„Ég tel að bíllinn sé tákn um helstu
auðlindir sem íslendingar eiga í dag,
vistvæna orkugjafa og mannauð,"
sagði Hjálmar Ámason alþingismað-
ur í gær þegar afhjúpaður var vist-
vænn húsbíll sem fimm nemendur
Myndlista- og handíðaskóla íslands
hafa hannað og smíðað. Bjöm Bjama-
son menntamálaráöherra afhjúpaði
bílinn í Nauthólsvík í gær.
Útlit bilsins er afar sérstætt en
grunnhugmyndin er byggð á útliti og
likamsgerð býflugu. BíIIinn átti að
vera umhverfisvænn og í akstri á að
fara sem minnst fyrir honum. Á tjald-
stað bæði lengist hann hins vegar,
breikkar og hækkar. Hann er knúinn
rafmagni en hönnuðimir ganga út frá
því að í honum verði efnarafall sem
framleiðir orkuna sem knýr hann
áfram.
Tilurð þessa bíls er sú að árið 1997
bauð Stokkhólmsborg Myndlista- og
handíðaskólanum að taka þátt í sam-
keppni um gerð húsvagns eða húsbíls
ásamt 14 öðrum listaskólum í tilefni
af því að Stokkhólmur er menningar-
borg Evrópu í ár. Bíllinn verður sýnd-
ur ásamt hinum 14 bílunum og vögn-
unum í Stokkhólmi 15.-24. ágúst. Sér-
stök dagskrá verður tengd umhverfis-
vænum bilum og taka myndlistar-
nemamir þátt í henni og sýna bílinn
víös vegar um borgina.
Hjálmar Árnason alþingismaður ásamt myndlistarnemunum sem hönnuðu húsbílinn frumlega fyrir aftan þá. DV-mynd S
Hönnuðfrnir Sigriður Heimisdóttir
og Sigurjón Pálsson höfðu umsjón
með hönnun og smíði bílsins en hann
er byggður á undirvagni lítils rafknú-
ins sendibíls af Subarugerð sem
Hjálmar Ámason alþingismaður út-
vegaði frá Finnlandi. Að sögn Þórdís-
ar Aðalsteinsdóttur, eins nemend-
anna sem hönnuðu og smíðuðu bil-
inn, er yfirbygging hans úr trefia-
plasti og er í nokkrum hlutum. Á
fialdstað færast hliðar bílsins út, þak-
ið er opnað og nýtt loft úr fisléttum en
þéttum loftbelgjadúk myndar nýtt þak
og innanrými margfaldast.
Smíði bílsins hefur tekið sjö mán-
uði. Þeir sem hönnuðu og smíðuðu
bílinn era, auk Þórdísar, þau Guð-
mundur Lúðvík Grétarsson, Sigríður
Pálsdóttir, Guörún Margrét Jóhanns-
dóttir, Þorgerður Jörundsdóttir og
Jón Öm.
Kostnaður við verkefnið hefur
verið rúmar þrjár mifljónir, að sögn
Hjálmars Ámasonar alþingis-
manns. Auk Stokkhólmsborgar hafa
veitustofiianir Reykjavíkur styrkt
verkefnið myndarlega en því til við-
bótar hafa fiögur ráðuneyti, Lands-
bankinn, Landsvirkjun, Samskip og
Olíufélagið hf. styrkt það með ýms-
um hætti. -SÁ
Mikil fjölgun þeirra sem stunda kajakasiglingar:
Slys eru fátíð
Þeir Baldur Pétursson og Þorsteinn Guðmundsson, formað-
ur kajakafélagsins Brokeyjar, taka sig vel út í bátunum, hvort
sem er á láði eða legi. DV-mynd Hilmar Þór
Mikil aukning hefur orðið í
kajakasiglingum nú í sumar, m.a. í
Nauthólsvík. Að sögn Þorsteins
Guðmundssonar, formanns kajaka-
félagsins Brokeyjar, stimdar fólk á
öllum aldri kajakaróðra. Þó eru
flestir ræðaramir karlmenn á aldr-
inum 30-50 ára.
Þorsteinn segir að slys séu fátíð
meðal kajakamanna og öryggisbún-
aður þeirra sé mikill. Hann telur
því ekki að kajakaróður sé hættu-
legri íþrótt en margt annað. „Við
eram í heilgöllum sem eiga að þola
mikinn kulda og svo erum við að
sjálfsögðu í flotvestum. Okkar ör-
yggisbúnaður er mun meiri heldur
en t.d. þeirra sem róa árabátum.
Við eram líka í góðu sambandi við
þau fyrirtæki sem leigja og selja
kajaka og þau benda fólki oft á að
koma til okkar til að læra undir-
stöðuatriðin. Við kennum fólki hér í
Nauthólsvíkinni á sumrin en erum
í Laugardalslauginni á vetuma."
Góðærið hefur áhrif
Kajakafélagið Brokey er tuttugu
ára gamalt um þessar mimdir. Þor-
steinn kann ekki neina eina skýr-
ingu á þeirri fiölgun félaga sem orð-
ið hefur í sum-
ar én nefiiir þó
tvennt: „Ég
held einfald-
lega að fólki
spái alltaf
meira og meira
í það að njóta
náttúrannar og
því vill það ein-
hvers konar af-
þreyingu sem
býður upp á ná-
lægð við nátt-
úrana. Einnig
gæti góðærið
spilað inn í.
Fólk hefur nú
e.t.v. meiri tíma til að hugsa um
eitthvað annað en brauðstritið."
-GLM
Þjóðin er vitlaus
Gallup hefur efnt til
skoðanakönnunar og
birt niðurstöður henn-
ar. Spurt var um af-
stöðu þjóðarinnar til
fiskveiðistjórnunarinn-
ar, kvótans og veiði-
leyfagjalds. Næstum
þrír fiórðu aðspurðra
segjast á móti kvótan-
um og með veiði-
leyfagjaldi. Þessi niður-
staða gengur þvert á þá
stefnu sem ríkt hefúr
hjá stjómvöldum og
öllum málsmetandi
mönnum sem hafa vit á
sjávarútvegi. Þeir eru
með kvóta og á móti
gjaldi.
Þessi könnun segir
auðvitað ekki neitt.
Nema þá það eitt
hversu nauðsynlegt
það er að hafa ríkisstjórn sem hefur vit fyrir
þjóðinni og eiga sér máttarstólpa i stórmálum
sem hafa þrek til að gera rétt þótt þjóðin haldi að
verið sé að gera rangt.
Hvert stórmennið á fætur öðru, allt frá forsæt-
isráðherra niður í blaðafufltrúa Landssambands
islenskra útvegsmanna, hefur bæði í ræðu og riti
ítrekað margsinnis að kvótinn sé forsenda fyrir
góðærinu og að veiðileyfagjald mundi fara með
dreifbýlið og sjávarútveginn á hausinn.
Það hefur meira að segja verið sýnt fram á að
OECD telji fiskveiðistefnu íslendinga þá bestu í
heimi. Og margir fleiri í útlöndum hafa sagt það
og Þorsteinn Pálsson hefur sagt það og Halldór
Ásgrímsson hefur sagt það og Davíð hefur sagt
það, og þegar þessir menn segja að fiskveiðistefn-
unni megi ekki breyta þá hafa þeir rétt fyrir sér.
Enda era þetta mennimir sem hafa innleitt góð-
ærið til lands og sjávar og þeir njóta gífurlega
vinsælda og hvers vegna ætti þá að taka mark á
einhverri fljótfæmislegri og raglingslegri könn-
un hjá GaUup?
Af hverju ættu þeir aö hafa rangt fyrir sér í
fiskveiðistjómun þegar þeir hafa rétt fyrir sér í
öOum öðrum málum sem snerta þjóðarhag?
Dagfari treystir á að ráðamenn og máttarstólp-
ar láti ekki bugast við þessa skoðanakönnun.
Hún er ómarktæk og sannar bara það sem Dag-
fari og þeir máttarstólpamir hafa aUtaf sagt, að
þjóðin hefur ekki vit á svona málum. Könnunin
sannar að almenningur fylgist ekki með og veit
ekki hvað honum er fyrir bestu.
Hins vegar má segja að þessi könnun sé atlaga
að þjóðarhag og nú verður Davíð að tala við Þor-
stein og Þorsteinn við HaUdór og HaUdór við
Davíð og saman verða þeir að bera saman bækur
sínar við máttarstólpana í sjávarútveginum og
allir verða þeir síðan á ganga á fund Hannesar
Hólmsteins tU að finna mótleik gegn GaUupkönn-
uninni og þeirri fáránlegu niðurstöðu sem hún
kemst að.
Fiskveiðistjórnuninni verður ekki breytt.
Stjórnendum landsins verður ekki breytt. Nú er
það helst til ráða að breyta þjóðinni eða breyta
um þjóð. Svona vitleysu geta menn ekki hlustað
á.
Dagfari
Stuttar fréttir r»v
Stjóri Sinfóníunnar
Þröstur
Ólafsson hag-
fræðingur var
ráðinn fram-
kvæmdasfióri
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
á sfiórnarfúndi
hljómsveitar-
innar á laugardag. Þröstur hefur
störf þann 1. september næstkom-
andi.
Aðrir umsækjendur
Aðrir umsækjendur um starfið
vora Amór Jónsson, Ármann Öm
Ármannsson, Ásgeir Eiríksson,
Btjánn Ingason, Jóhanna E.
Sveinsdóttir og Siguröur Gústavs-
son. Samkvæmt fréttatilkynningu
frá sfióm Sinfóníuhljómsveitar-
innar fékk Þröstur Ólafsson þrjú
atkvæði en Amór Jónsson tvö at-
kvæði.
Endaði á Ijósastaur
Ung stúlka, sem grunuð er um
ölvun, ók á ljósastaur í Ártúns-
brekku í Reykjavík á sjötta tíman-
um á laugardagsmorgun. Sam-
kvæmt heimildum Bylgjunnar
meiddist stúlkan lítið en fiarlægja
þurfti bifreiðina með kranabíl.
Ljósastaurinn skemmdist einnig
mikiö.
Skilar átta milljörðum
Fjárlög þessa árs gera ráð fyrir
því að sala hlutabréfa ríkisins í
ýmsum fyrirtækjum skili 7,7
milljörðum króna. Þegar hefur
verið selt fyrir rúman milljarö.
Búast má við því að sala á hlutum
rikisins í Islenskum aðalverktök-
um og Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins í haust skili því sem
á vantar og rúmlega það.
Mikilvægt að selja
í fréttum
Rikisútvarps-
ins kom fram
að formaður
nefndar um
einkavæðingu,
Hreinn Lofts-
son, er á þeirri
skoðun að eitt
mikOvægasta verkefni einkavæð-
ingar sé salan á viðskiptabönkum
í eigu ríkisins. Það skýrist á
næstu vikum hvort leitað verður
heimfldar Alþingis um sölu á hlut
ríkisins i Búnaðarbanka og
Landsbanka.
Vilja á Akranes
Þrettán af tuttugu starfsmönn-
um Landmælinga íslands hafa
þegar samþykkt að starfa í nýjum
höfuðstöðvum fyrirtækisins á
Akranesi samkvæmt heimOdum
RÚV. Starfsemi þar hefst formlega
um næstu áramót.
Örtröð á Laugaveginum
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík virðist ríkja mikil stemning á
Laugaveginum. Opnað var fyrir
bilaumferð eftir endurbætur á
milli Frakkastígs og Barónsstígs á
laugardag og hefur bílaumferð
veriö gífurleg. Að sögn lögregl-
unnar hefúr hún þó gengið stórá-
faflalaust fyrir sig.
Samkeppni
Þór Gunnarsson, formaður
Sambands íslenskra sparisjóða,
segir í Morgunblaðinu að forystu-
menn Landsbankans óttist vel-
gengni sparisjóðanna á síðustu
áram. Því hafi verið reynt að gera
eignarfyrirkomulag þeirra tor-
tryggOegt í nýlegri skýrslu Lands-
bankans.
Aðskilnaður
Hjálmar
Ámason al-
þingismaöur
veltir því upp í
grein í Morg-
unblaðinu
„hvort ekki sé
tímabært að
skOja að röd og
kirkju og þar meö afhema opin-
bera ríkistrú með beinum afskipt-
um Alþingis og ríkissfiómar af
hinni lúthersku kirkju“. Hjálmar
vifl umræðu um þessi mál. -JP