Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Side 6
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
6
í Bílrúðufilmur
Setjum litaða filmu í bílrúður.
Sun-Gardfilma m/ábyrgð.
Vönduð vinna.
Ásetning með hitatækni.
Fréttir
Tugmilljónir í uppkaup á völdum íbúðum á snjóflóðasvæði í ísaQarðarbæ:
Galopin reglugerð
Gerir glerið 300% sterkara.
Vörn gegn innbrotum- fárviðri-
jarðskjálfta.
Tryggingafélögin mæla
með filmunni.
sólar (og öryggisfilma)
á rúður húsa
Stórminnkar hita, glæru og upplitun
Eykur öryggi gegn innbrotum, fárviðri
og eldi.
GLÓI hf.
sólar- og öryggisfilma.
Dalbrekku 22,
Símar 544 5770 & 544 5990
Ford Mondeo st. '94, ssk., vínrauöur,
ek..79 þús. km. Verö 975.000.
Ford Escort st. '98, 5 g., grænn, ek. 9
þús. km. Verö 1.350.000.
Honda Prelude EX '92, ssk., 2 d., ek. 60
þús. km. Verö 1.250.000.
Honda CRV RVSI '98, ssk., 5 d., ek. 3 þús.
km. Verö 2.580.000.
Honda Accord '83, ssk., 4 d., ek. 170 þús.
km. Verö 100.000.
Honda Accord '87, ssk., 4 d., ek. 178 þús.
km. Verö 370.000.
Honda Clvic GLi '91, ssk., 4 d., ek. 63 þús.
km. Verö 570.000.
Honda Civic LSi '95, 5 g., 3 d., ek. 48 þús.
km. Verö 1.350.000.
Honda Civic LSi '97, 5 g., 4 d., ek. 5 þús.
km. Verö 1.450.000.
Hyundai Accent '96, 5 g., 4 d., ek. 31 þús.
km. Verö 770.000.
BMW 518i '88, ssk., 4 d., ek. 100 þús. km.
Verö 430.000.
BMW 518i '91, ssk., 4 d., ek. 129 þús. km.
Verö 1.050.000.
Daihatsu Charade '91, 5 g., 5 d., ek. 110
þús. km. Verö 350.000.
Daihatsu Charade '92, 5 g., 3 d., ek. 105
þús. km. Verö 340.000.
Mazda 323 F '92, 5 g., 5 d., ek. 75 þús. km.
Verö 720.000.
Mazda 323 GLXi '92, ssk., 4 d., ek. 66 þús.
km. Verö 750.000.
MMC Lancer 4x4 '96, 5 g., 5 d., ek. 62 þús.
km. Verö 1.250.000.
MMC Lancer 4x4 '91, 5 g., 5 d., ek. 135
þús. km. Verö 680.000.
Nissan Sunny STW '95, 5 g., 5 d., ek. 34
þús. km. Verö 1.090.000.
Opel Astra STW '97, 5 g., 5 d., ek. 30 þús.
km. Verö 1.280.000.
Renault 19 '94, 5 g., 4 d., ek. 47 þús. km.
Verö 860.000.
Toyota Carina GLí '94, ssk., 4 d., ek. 60
þús. km. Verö 1.200.000.
Toyota Hilux SR5 '91, 5 g., 2 d., ek 89 þús.
km. Verö 980.000.
[RjHONDA
NOTAÐIR BÍLAR
Vatnagöröum 24
Sími 520 1100
- sem kveður á um að kaupa megi treysti íbúar sér ekki að búa í húsum sínum
Ákveöiö hefur veriö aö Ofanflóöasjóöur láni ísafjarðarbæ tugmilljónir til að kaupa upp íbúöir. Lánin eru veitt á grund-
velli reglugeröar sem kveöur á um aö kaupa megi hús af fólki sem ekki treystir sér til aö búa þar áfram. Nýlega voru
tilbúnir varnargaröar ofan við Flateyri sem kostuðu rúmlega 400 milljónir króna. Þrátt fyrir garðana fara uppkaupin
fram. Nú stefnir í málaferli vegna þeirra sem ekki er keypt af en meöal þeirra húsa sem hafnað var er raöhúsaendi
sem stendur eftir af 6 íbúða raöhúsi sem snjóflóðiö mannskæöa eyðilagöi 1995. DV-myndir Rögnvaldur
Ágreiningur er nú uppi um gildis-
svið reglugerðar sem fjallar um lán-
veitingar til sveitarfélaga vegna
íbúðakaupa á snjóflóðasvæði í fram-
haldi af því að ísafjarðarbær hefur
samið við eigendur fjögurra húsa á
snjóflóðasvæðinu á Flateyri um að
bærinn kaupi húsnæði þeirra fyrir
33,6 milljónir króna. Ofanflóðasjóð-
ur hefur þegar veitt samþykki sitt
fyrir kaupunum og Byggingarsjóður
ríkisins mun síðan veita ísafjarðar-
bæ lán fyrir kaupunum samkvæmt
heimild í umræddri reglugerð, þótt
aðeins ein umsókn hafi verið lögð
fram formlega hjá Byggingarsjóðn-
um.
í reglugerðinni sem hér um ræðir
felst heimild fyrir Byggingarsjóð
ríkisins að veita sveitarstjóm lán til
íbúðakaupa á svæði þar sem tjón
hefur orðið af völdum snjóflóða eða
skriðufalla og íbúar treysta sér ekki
til að búa í íbúðarhúsnæði sínu.
Lánið til sveitarstjómarinnar getur
numið allt að 90% af kaupverði
íbúðarinnar og er það bundið því
skilyrði að ekki sé raunhæft að
íbúðin seljist á frjálsum markaði.
Reglugerðin er galopin og ekki er
kveðið á um neinar hreinar línur til
samþykkis uppkaupum húsa, aðrar
en þær að íbúar treysti sér ekki að
búa í húsunum. Deilumar sem nú
eru uppi lúta að því að aðeins nokk-
ur hús á hættusvæðinu hafa verið
keypt upp en ekki öll. Hafa nokkrir
húseigendur farið þess á leit við
bæjaryflrvöld að þau kaupi einnig
hús þeirra en enn sem komið er hef-
ur ekki verið greitt úr því máli.
Kaupin á íbúðunum fjórum era
gerð með ákveðna reglugerð í huga
sem veitir Byggingarsjóði ríkisins
heimild til að veita sveitarstjóm-
um tímabundið lán til íbúðar-
kaupa á svæðum þar sem tjón hef-
ur orðið af völdum snjóflóða og
íbúar treysta sér ekki lengur til að
búa í ibúðarhúsnæði sínu. Þá er
það enn fremur skiiyrði að sala
húsnæðisins sé ekki raunhæf á
frjálsum markaði. Hafa kaup þessi
verið í gangi á síðustu vikum.
Samkvæmt heimildum DV keypti
Ofanflóðasjóður einnig þrjú hús á
Flateyri um síðustu áramót en um
þau kaup fer ekki eftir reglugerð-
inni.
Húsin á aö selja aftur
Reglugerðin var sett í þeim til-
gangi að auðvelda sveitarfélögum
að kaupa upp hús á snjóflóðasvæði.
Uppkaupin á húsunum í ísafjarðar-
bæhafa hins vegar sætt harðri
gagnrýni og bent hefur verið á að
um 400 milljónum hafi verið varið í
byggingu varnargarða á sama
svæði. Varnargarðamir era nú til-
búnir í sama mund og verið er að
kaupa undan þeim húsin. Að sögn
Magnúsar Jóhannessonar, ráðu-
neytisstjóra í umhverfisráöuneyt-
inu, sem einnig á sæti í Ofanflóða-
sjóði, er hugmyndin sú að hægt
verði að nýta þessi hús síðar og
sveitarfélagið setji þau þá í sölu.
„Þarna var um að ræða flmm til sex
hús á hættusvæðinu á Flateyri sem
íbúamir höfðu misst alla trú á að
búa í vegna sífelldra rýminga.
Ákveðið var að kaupa þau af þeim
þar sem nokkuð liði þangað til
vamargarðarnir yrðu tilbúnir og
mun varla um það að ræða að reglu-
gerðin eigi að gilda víðar en á Flat-
eyri.“
Samkvæmt reglugerðinni er
Byggingarsjóði heimilt að lána
sveitarstjóm til kaupa á húsi á snjó-
flóða- og skriðusvæði en sveitar-
stjórn ber að endurgreiða lánið um
leið og hún selur húsið. Ef hús selst
ekki innan flmm ára er það hins
vegar keypt með stuðningi Ofan-
flóðasjóðs af sveitarfélaginu og ann-
aðhvort eyðilagt eða nýtt til sumar-
dvalar. -kjart
Hús á snjóflóðasvæði á Flateyri fást ekki keypt upp þrátt fyrir loforð:
Gengið fram hjá tveimur
lögfræðingur kannar stöðu eigendanna
Hjallavegur 2, ysta húsið í raðhúsa-
lengju þeirri sem snjóflóðið á Flateyri
sópaði burt 26. október 1995, er ekki
meðal þeirra húsa sem ísafjarðarbær
hefúr fengið lán til að kaupa af íbúum
sínum. Ástæðan er sú að Ofanflóða-
sjóður flokkar húsið, sem nú stendur
eitt eftir, eingöngu sem styrkingar-
hæft og telur það ekki uppfylla nauð-
synleg skilyrði til þess að ísafjarðar-
bær fái lán til að kaupa upp húsið.
Lán eins og hér um ræðir er veitt
með heimild í reglugerð sem á að gera
sveitarfélögum kleift að kaupa íbúðar-
húsnæði á svæðum þar sem veruleg
hætta er á snjólflóðum og skriðufóll-
um og íbúamir treysta sér ekki til að
búa lengur í yegna slíkrar hættu. Fyr-
ir liggur að eigendur hússins að
Hjallavegi 2 treysta sér engan veginn
til að búa í því lengur og er málið nú
í athugun hjá lögfræðingi þeirra. Að
sögn Halldórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra ísafjarðarbæjar, hafa bæjaryflr-
völd farið þess á leit við Ofanflóðasjóð
með bréfi 29. júní að hann endurskoði
flokkun sina og samþykki húsið sem
uppkaupahæft. Því erindi hefur ekki
enn verið svarað.
Gengiö fram hjá fleiri húsum
Hjallavegur 2 er ekki eina húsið
sem ekki hefur fengist keypt upp sam-
kvæmt reglugerðinni.
Húsið við Unnarstíg 6 hefúr heldur
ekki fengiö samþykki Ofanflóðasjóðs
en þrátt fyrir það hefur Ofanilóðasjóð-
ur þegar samþykkt uppkaup á húsi
við Unnarstíg 4 sem er næsta hús við
hliðina.
Hjallavegur 2 er eina íbúöin sem eftir stóö af 6 íbúða raöhúsi eftir aö snjó-
flóðið féll haustiö 1995.
Ofanflóöasjóöur fellst ekki á aö kaupa Unnarstíg 6 þrátt fyrir aö eigendur
treysti sér ekki til aö búa þar.
Hreppsnefnd Flateyrarhrepps fal-
aöist upphaflega eftir því í desem-
ber 1995 að Ofanflóðasjóður keypti
bæði húsin og hefur allar götur síð-
an verið til viðræðu um að þau hús
yrðu keypt. í greinargerð sem unn-
in var fyrir bæjarstjóra ísafjarðar-
bæjar, Kristján Þór Júlíusson, í apr-
íl 1997 og síðar var afhent félags-
málaráðuneytinu kemur fram að
eigendur umræddra húsa hafl alltaf
haft 100% ástæðu til að trúa því að
mál þeirra yrðu leyst með því að
hús þeirra yrðu keypt upp, aúk þess
sem málið yrði unnið hratt og vel.
Samkvæmt heimildum DV fengu
eigendumir, sem sjálfir vilja ekki
tjá sig um málið, munnleg loforð
fyrir að hús þeirra yrðu keypt upp.
13 mánuðum síðar era hús þessi
enn óseld.
Ekki er Ijóst hvaða forsendur ráða
því að Hjallavegur 2 og Unnarstígur 6
fást ekki keypt upp. Gunnar Torfason,
verkfræðingur og starfsmaður Ofan-
flóðasjóðs, segir sér ekki vera kunn-
ugt um að formleg beiðni hafi komið
frá ísafjarðarbæ um uppkaup á þess-
um húsum, né þá að eigandi Hjalla-
vegar vildi selja hús sitt. „Það liggur
hins vegar fyrir óformleg viljayfirlýs-
ing sveitarstjómar þessa efnis og ég
held að Ofanflóðasjóður muni ekki
standa í vegi fyrir kaupum á þessum
húsum ffekar en öðrum," sagði Gunn-
ar. -kjart
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
I
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
i
(
(
i
í