Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
7
Drengjabankinn
1 viöskiptalíflnu eru menn enn að
taka bakföll yfir ótrúlegri sölu Sig-
urðar Gísla Pálmasonar og fjöl-
skyldu á Hagkaupi til Drengjabank-
——i ans og Kaupþings.
\ Innan Hagkaups
stóðu menn á önd-
jr W\ inni þangað til búið
p 'i’H var að skrifa undir
\ ' 4 og voru ekki seinir
\* GU' Æ að skála í kampa-
\&.. mi i jol kyldan
yB'' M þykir hafa selt á
gM—------^ hárréttum tíma og
fengið ótrúlega
gott verö. Margir telja hins vegar að
Bjarni Ármannsson og félagar í
Drengjabankanum taki mikla
áhættu með að biða með sölu á bréf-
um í hinum nýja fyrirtæki fram á
haust. Samkeppnisaðilar eru á fljúg-
andi ferð og menn benda á að Eirík-
ur Sigurðsson í 10-11 búðunum rífi
til sín aukna hlutdeild á markaðn-
um. Það kunni því að reynast þraut-
in þyngri að selja í haust...
Nýr varaformaður
Friðrik Sophusson er varla fyrr
horfinn af vettvangi pólitíkurinnar
en sjálfstæðismenn eru famir að
velta fyrir sér hugsanlegu varafor-
mannsefni. Nýr
varaformaður verð-
ur kjörinn á lands-
fundi flokksins í
byrjun mai-s og
hafa nöfn Bjöms
Bjarnasonar og
Geirs Haarde
heyrst öðrum
nöfnum oftar í
því samhengi. Nafn
Vilhjálms Egilssonar heyrist nú æ
oftar nefnt til sögunnar. Telja marg-
ir aö fulltrúar flokksins af lands-
byggðinni muni fylkja sér að baki
Vilhjálmi en hann þykir manna lík-
legastur í að sætta þau ólíku sjónar-
mið sem ríkt hafa í flokknum meðal
landsbyggðarmanna og þeirra sem
koma af höfuðborgarsvæðinu. Staða
Vilhjálms í Verslunarráðinu mun
koma að góðum notum í þessu
máli...
Slagari í Iðnó
Leikritið Rommí setti allt á annan
endann þegar Leikfélag Reykjavíkur
tók það til sýninga fyrir nokkrum
ámm. Vinsældir leikritsins voru
ótrúlegar og var það
sýnt nær fjögur ár
samfleytt í Iðnó þar
sem þau Sigríður
Hagalín og Gísli
Halldórsson þóttu
fara á kostum í að-
alhlutverkunum.
Nú er í undirbún-
ingi ný uppfærsla
á þessu leikriti í Iðnó
og eru leikararnir ekki af verri end-
anum. Gengið hefur verið frá því
Guðrún Ásmundsdóttir og Erling-
ur Gíslason fari með aðalhlutverk-
ið en leikstjórnin verður í höndum
Magnúsar Geirs Þórðarsonar.
Slegist um sæti...
Mikil átök eru í uppsiglingu í Al-
þýðubandalaginu í Reykjavík en þar
á bæ munu menn fljótlega fara að
takast á um hverjir muni skipa sæti
flokksins á sameigin-
legum framboðslista
vinstri flokkanna i
Reykjavik. Innan
raða alþýðubanda-
lagsmanna óttast
menn helst að
Bryndís Hlöðvers-
dóttir taki stefn-
una á fyrsta sæti en hún mun
nú sækja fast að listaskipan verði
ákveðin í prófkjöri. Telja menn harð-
an prófkjörsslag við Svavar Gests-
son ekki vel til þess fallinn að halda
friðinn í flokknum og vona nú sem
mest að Bryndís sætti sig við annað
sætið. Flestir er að vísu sammála um
að Svavar sé fyrir fram sterkari í
fyrsta sætið en í prófkjöri getur þó
alltaf brugðið til beggja vona...
Umsjón Kjartan Björgvinsson
Netfang: sandkom @ff. is
Fréttir
Fleiri strákar en stelpur slasast á leikskólum:
strákarnir
sig ítrekaö
Sömu
meiða
Á árunum 1990-1996 voru 213 börn
(130 drengir (61%) og 83 stúlkur
(39%)) lögð inn á Sjúkrahús Reykja-
víkur eftir að hafa slasast í skólum
og/eða dagvistun. Um er að ræða 2%
allra barna. Fjöldi þeirra sem meiða
sig án þess að þurfa að leita læknis-
aðstoðar er margfalt meiri.
Sem dæmi má nefna að á tíma-
bilinu slösuðust 407 0-4 ára drengir
en 295 stúlkur eftir að hafa dottið.
37 drengir og 24 stúlkur fengu að-
skotahlut í auga og 53 drengir og 25
stúlkur fengu áverka frá öðrum
vegna ofbeldis. Hins vegar
klemmdust fleiri stelpur. Þær voru
110 en drengirnir 102.
Það sem af er þessu ári hafa 5
strákar og 1 stelpa af leikskólanum
Heiðarborg þurft að leita til heilsu-
gæslustöðvar vegna meiðsla. Börn-
in eru á aldrinum 1-6 ára. „Einn
strákurinn hlaut sprungu á sköfl-
ung,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir að-
stoðarleikskólastjóri, „annar var
með blæðingu og bólgu í nefi, þar
sem annar strákur hafði sparkað í
nefið á honum, sá þriðji fékk
sprungu í hönd þar sem annar
hafði sparkað í hann, sá fjórði datt
á gluggakistu og skarst á höfði og
sá fimmti meiddist á baki þegar
hann datt af dúkkuborði. Stelpan
gleypti pening."
Ingibjörg segir að strákar séu
líka í miklum meirihluta þegar um
minni meiðsl er að ræða. „Þetta er
um ein stelpa á móti um sjö strák-
um.
Þeir eru náttúrlega fyrirferðar-
meiri að eðlisfari. Þeir eru meira í
fótbolta og grófari leikjum. Stelp-
urnar dunda sér meira.“
í sumum tilfeflum eru það sömu
strákarnir sem meiða sig endurtek-
ið og nefnir Ingibjörg að það séu
einn til tveir strákar sem fái oft gat
á höfuðið. „Ég vil taka fram að það
eru fleiri strákar en stelpur í leik-
skólanum."
-SJ
NU GETUM VIÐ BOÐIÐ TAKMARKAÐAN FJOLDA
■ ■i.. ■
'''V<
\\ \ ■—
ÍL ^
M ií'ÍL M
BALENO SEDAN
ÁLFELGUR - HEILSÁRSDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI
Vökva/veltistýri • Rafmagn í rúðum og speglum
2 loftpúðar • Aflmikil 16 ventla vél • Dagljósabúnaður
Styrktarbitar í hurðum • Samlitaðir stuðarar
Hæðarstillanleg kippibelti • Upphituð framsæti
í,/sK
í SUMA«;
BALENO
SEDAN EXCLUSIVE
frá 1.265.000 kr.
$ SUZUKI
—-------
I
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf.: Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og buuélasalan hf„
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. ísafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG
bílakringlan, Gröfinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.