Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 8
/
Útlönd
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
Stuttar fréttir r>v
Lögregluþjónar féllu í þinghúsinu í Washington:
Morðinginn
' batavegi
Obuchi lofar
skattalækkun-
um á næstunni
Keizo Obuchi, verðandi forsæt-
isráðherra Japans, hefur sagt
Madeleine Alhright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að hann sé
staðráðinn í að lækka skatta fljót-
lega og auka ríkisútgjöld til að
hressa upp á japanskt efnahagslíf.
Bandarískir embættismenn
skýrðu frá þessu í gær.
Obuchi og Albright ræddust við
á Filippseyjum þar sem þau sitja
fund samtaka ríkja í Suðaustur-
Asíu.
Embættismennirnir sögðu að
Obuchi hefði sagt Albright að-
hann ætlaði að lækka skatta um
42 milljarða dollara og auka út-
gjöld ríkisins um 70 milljarða
dollara.
Starr vill Clin-
ton í vitnastúku
Líklegt þykir að Bill Clinton
Bandaríkjaforseti beri vitni fyrir
ákærukviðdómi sem rannsakar
hvort hann hafi framið ljúgvitni
þegar hann þvertók fyrir að hafa
átt í kynferðislegu sambandi við
lærlinginn Monicu Lewinsky.
Lögmenn Clintons vonast eftir að
samkomulag náist við saksóknar-
ann Ken Starr.
er a
Maðurinn sem drap tvo lögreglu-
þjóna í skotárás í bandaríska þing-
húsinu í Washington á fóstudag er á
batavegi á sjúkrahúsi. Hinn 41 árs
gamli fyrrum geðsjúklingur, Russell
Eugene Weston, hlaut fjölda skot-
sára þegar lögreglan svaraði í sömu
mynt. Hann hefur nú verið ákærður
fyrir morð og á yfir höfði sér dauða-
refsingu.
Þingmenn í Washington báru í
gær lof á lögregluþjónana tvo sem
féllu þegar Weston reyndi aðj brjóta
sér leið inn í þinghúsið og kölluðu
þá hetjur. Minningarathöfn um þá
verður haldin í þinghúsinu í vik-
unni. Lögregluþjónarnir hétu John
Gibson, 42 ára, þriggja bama faðir,
og Jacob „J.J.“ Chestnut, 58 ára,
fimm bama faðir.
Tuttugu og fjögurra ára gömul
kona, Angela Dickerson, sem var í
Nyrup ekki með
fé í endurbætur
Ósætti er komið upp milli
Pouls Nyrups Rasmussens, for-
sætisráðherra Danmerkur, og
Jonathans Motzfeldts, formanns
heimastjórnarinnar á Grænlandi,
um fjárframlög dönsku stjórnar-
innar til endurbóta á opinberum
húsakosti á Grænlandi. Nymp
var í heimsókn þar um helgina.
Þegar Poul Nyrup var sýnd nið-
umidd skólabygging i Qaqortoq
sagði hann einfaldlega: „Hún lítur
ekkert verr út en margar danskar
skólabyggingar."
Grænlenska heimastjórnin tel-
ur að á næstu flmm árum verði
að gera við byggingar fyrir um 26
milljarða íslenskra króna.
skoðunarferð um þinghúsið og
særðist í árásinni, fékk að fara
heim af sjúkrahúsi í gær.
Dick Gephardt, leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings, sagði að kistur lögregluþjón-
anna yröu í þinghúsinu þar sem al-
menningur gæti vottað þeim virð-
ingu sína.
Weston var vel þekktur meðal
bandarískra löggæsluyfirvalda og
Clinton forseta var talin stafa ein-
hver ógn af honum, að vísu ekki
mikil. Weston hafði búið í bjálka-
kofa í Montana. Hann var lagður
inn á geðsjúkrahús gegn vilja sín-
um. Hann sagðist hafa vitneskju um
eitthvað misjafnt í fari Clintons.
Heimildarmenn segja að Weston
hafi verið einfari og að hann hafi
borið kala til stjórnvalda. Dan
Nichols, talsmaður lögregluliðs
þinghússins, sagði í gær að talið
væri að Weston hefði verið einn að
verki en rannsókn skotárásarinnar
væri enn í gangi. Talsmaðurinn
Blóðug árás Rauðu kmeranna í
nyrsta hluta Kambódíu vörpuðu
skugga á þingkosningarnar sem
fóru fram í landinu í gær. Að öðru
leyti var ótrúlega friðsælt í landinu
og kjósendur flykktust á kjörstaði
til að velja sér leiðtoga.
Sjö óbreyttir borgarar, tveir
stjórnarhermenn og einn skæruliði
féllu í árásinni. Ekki var talið að
hún mundi hafa nokkur áhrif á
gang kosninganna.
Leifamar af Rauðu kmerunum,
sem voru undir stjórn Pols Pots
heitins, halda til í hæðunum við
landamærin að Taílandi.
Hun Sen, leiðtogi núverandi
stjómar, vonast til að Kambódíski
þjóðarflokkur hans (CPP) haldi
völdum eftir kosninarnar. Hun
Send rændi völdum af helsta keppi-
sagði að fleiri einkennisklæddir lög-
regluþjónar yrðu I þinghúsinu frá
og með deginum i dag.
Lögreglan hefur lokað veginum
að kofa Westons í Montana. Margir
nágranna hans vora hissa á að
hann hefði átt þátt í árás eins og
þeirri sem hann gerði í þinghúsinu.
Gamli skólastjórinn hans sagðist
muna vel eftir honum, hann hefði
verið góður strákur, meðalnáms-
maður.
„Hann lenti ekki í neinu klandri,
ekki í framhaldsskólanum. Ég hefði
aldrei trúað þessu upp á Rusty,“
sagði skólastjórinn fyrrverandi.
Dagblaðið Miami Herald sagði frá
því að Weston hefði talið að alrikis-
stjórnin hefði komið fyrir jarð-
sprengjum á landareign hans í
Montana. Faðir hans sagði í viðtali
við blaðið að Weston væri geðsjúk-
ur og að hann hefði flækst á milli
Montana, þar sem hann leitaði að
gulli, og heimilis fjölskyldunnar í
Illinois.
naut sinum og með-forsætisráð-
herra, Norodom Ranariddh prins, í
júlí á síðasta ári.
Ranariddh ætlar að reyna að end-
urtaka óvæntan sigur flokks síns,
FUNCINPEC, í kosningunum árið
1993.
Hun Sen ítrekaði í gær að hann
mundi segja af sér þegar í stað ef
flokkur hans tapaði kosningunum.
Ranariddh lýsti ánægju sinni með
kjörsóknina og sagðist viss um að
flokkur hans mundi fara með sigur
af hólmi.
Um 5,4 milljónir manna voru á
kjörskrá. Kosið var um 122 þingsæti
og voru 39 flokkar í framboði. Taln-
ing atkvæða hófst í morgun en end-
anleg úrslit verða ekki kunn fyrr en
næstkomandi laugardag. í dag kann
þó að verða ljóst hvert stefnir.
Enginn vill vera hjúkka
Aldrei hafa færri nemendur
sótt um að læra hjúkrunarfræði í
Danmörku en fyrir næsta skólaár.
Ljóst er að ekki tekst að fylla öll
pláss, einkum í skólum úti á
landsbyggðinni. Danska blaðið
Aktuelt sagði frá þessu í gær.
Afmæli í
Sergei Kírij-
enkó, forsætis-
ráðherra Rúss-
lands, varð 36
ára í gær. Hann
hefur aðeins
setið á forsætis-
ráðherrastóli í
fjóra mánuði og
hafa þeir reynst honum nokkuð
erfiðir. Víst þykir að komandi
mánuðir reynist honum einnig
þungir í skauti. Helsta afrek hans
til þessa er að sannfæra vestræna
fjármálamenn um að hann geti
hrint efnahagsumbótum í fram-
kvæmd.
Tuttugu myrtir í Alsír
Uppreisnarmenn bókstafstrú-
aðra múslíma myrtu tuttugu
manns í tveimur aðskildum árás-
um aðfaranótt sunnudagsins.
Sendinefnd á vegum SÞ er nú í
Alsír að kynna sér ástandið.
Vopnahlé á enda
Ezer Wizman, forseti Israels,
batt enda á 25 daga gamalt vopna-
hlé í deilu sinni við Benjamin
Netanyahu forsætisráðherra í
gær þegar hann varaði við átök-
um við Palestínumenn vegna þrá-
teflisins í friðarferlinu.
Líknarmorð rannsökuð
Frönsk hjúkrunarkona ku hafa
játað að hafa aðstoðað um 30
manns yím móðuna miklu. Konan
reyndi að fyrirfara sér þegar hún
frétti að hún væri undir smásjá
yfirvalda.
Vénstre á fleygiferð
Vinsældir íhaldsflokksins
Venstre í Danmörku hafa aukist
mjög að undanfórnu og nýtur
hann nú mests fylgis allra flokka,
ef marka má kannanir.
Blásýrumorö í Japan
Japanska lögreglan hefur hafið
umfangsmikla rannsókn á blá-
sýrueitruðum karrí- og hrís-
grjónarétti. Fjórir létust og tugir
eru veikir.
Vopnin kvödd í Bissá
Stjórnvöld í Afríkuríkinu
Gíneu-Bissá og uppreisnarmenn
sömdu um vopnahlé í gær og
féllust á að hefja viðræður til að
binda enda á borgarastríð sem
hófst fyrir 50 dögum.
Fagnar fundarboði
Leiötogi Tsjetsjena, sem vilja
losna undan yfirráðum Rússa,
fagnar boöi Jeltsins Rússlandsfor-
seta um viðræður viö Kíríhenkó
forsætisráðherra.
Blair stokkar upp
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, mun væntanlega
kynna fyrstu uppstokkun stjórnar
sinnar í dag.
Bhutto hvergi bangin
Benazir
Bhutto, leiðtogi
stjórnarand-
stöðunnar í
Pakistan, sneri
heim í gær og
gerði lítið úr
fréttum þess
efnis að hún
yrði senn handtekin vegna ásak-
ana um spillingu. Bhutto sagðist
hvergi bangin. Eiginmaður henn-
ar er í fangelsi í Pakistan og sviss-
nesk yfirvöld hafa ákært hann
fyrir peningaþvætti.
Fannst lifandi
Austurrískur námamaður sem
var innilokaður i samfallinni
námu í rúma viku náðist aftur
upp á yflrborð jarðar síðdegis í
gær, heill á húfi. Björgunarmenn
fundu hann fyrr um daginn.
15% afslánur
15% afsláttur af öllum vörum*
Verslið ódýrt fyrir verslunarmannahelgina.
Regnfatnaður, flíspeysur o.fl. á frábæru verði.
SPORTVORUVERSLUNINI
SPARTA
Laugavegi 49 • Sími 551 2024J
*ekki af tilboðsvörum
Jane Margret Dow frá Arlington í Virginíu leggur blóm á tröppur þinghúss-
ins í Washington þar sem geöveikur maöur skaut tvo lögregluþjóna til bana
á föstudag. Símamynd Reuter
Arás varpar skugga á
kosningarnar í Kambódíu
Moskvu