Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Page 9
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
9
I>V
Utlönd
Júgóslavneski herinn í stórsókn í Kosovo:
Konur og börn
grátandi á flótta
Stórskotalið júgóslavneska hers- brjósti, og þegar hefur verið farið sókn sinni gegn liðsmönnum Frels-
ins hélt áfram að varpa sprengjum
sínum á stöðvar skæruliða al-
banskra aðskilnaðarsinna í Kosovo
í gær, á þriðja degi stórsóknar sinn-
ar. Skelfmgu lostnar íjölskyldur
flúðu heimaþorp sín undan fram-
sókn hermannanna.
Um fjörutíu úrvinda flóttamenn
komu í gær til þorpsins Bujance
sem er tuttugu kílómetra frá héraðs-
höfuðborginni Pristina. Fólkið kom
á vögnum sem dregnir voru af drátt-
arvélum. í fjarska mátti heyra drun-
umar í stórskotaliði júgóslavneska
hersins.
Konur og börn voru tárvot en
spennuna mátti lesa úr hverjum
drætti á andlitum karlanna í hópn-
um. Fólkið hafði flúið úr þremur
þorpum við víglínuna.
Á fjóröa hundrað flóttamanna
hefur komið til Bujance frá því sókn
hersins hófst, að því er fulltrúi
helsta stjórnmálaflokks albanska
meirihlutans í Kosovo sagði.
„Þrjú börn höfðu særst af
sprengjubrotum, á fótleggjum og
Alsírsk kona nýtur þess að kæla sig
í sjónum við Algeirsborg. Þar hefur
verið heitt síðustu daga.
Dauðrotuðust við
að sigla á bru
DV; Ósló:
Ein kona og tveir karlar létu lífið
þegar kraftmiklum smábáti var
siglt undir lága brú á Norðurmæri í
Noregi í fyrrinótt. Sex voru í bátn-
um og slösuðust tveir alvarlega, auk
þeirra sem fórust. Sjónarvottar
segja að fólkið hafi dauðrotast þegar
höfuð þess skullu á brúnni. Hásjáv-
að var og því ekki fært undir brúna
en töluverð ferð var á bátnum. Enn
hefur engin skýring fundist á af
hverju reynt var að sigla undir
brúna. Fólkið í bátnum var allt
milli tvítugs og þrítugs. Glanna-
skapur á sjó hefur kostað fjölda
mannslífa að undanfórnu. -GK
HÁRTOPPAR
Fráj BERGMANNre*
is
ogHERKLILES kj
Margit • jj
rðílokkar ■:$.
,as flrii.
Rakarastofa
Klapparstíf
með þau á sjúkrahús í Pristina,"
sagði maðurinn. Aö sögn afa barn-
anna voru þau 16, 7 og 6 ára.
Júgóslavnesku hermennirnir
njóta stuðnings serbnesku öryggis-
lögreglunnar og vopnaðra borgara í
ishers Kosovo. Opinbera júgóslav-
neska fréttastofan Tanjug talaöi
hins vegar aðeins um aðgerðir
serbnesku lögreglunnar gegn „hóp-
um blóðþyrstra hryðjuverka-
manna“ eins og þar sagði. Reuter
Þessi unga stúlka var í hópi flóttamanna sem komu til þorpsins Bujance í
Kosovo í gær. Fólkiö flúöi undan stórskotaliösárásum Serba.
n
Unglingar vilja
skýr skilaboð!
r ,
L íótó ð á
Foreldrar vita öllum betur hvað börnum þeirra er fýrir
bestu. í nýlegri könnun kemur fram að yfirgnæfandi
meirihluti þeirra vill takmarka aðgang að útihátíðum
við 16 ár og 96% þeirra vilja ekki að börn
á grunnskólaaldri neyti áfengis.
V
Við styðjum foreldra heilshugar í því að vera samtaka,
ákveðnir og elskulegir; hleypa börnum sínum ekki
eftirlitslaust á komandi útihátíðir og fara ekki „ríkið“
fyrir þau. ^
X
Við hvetjum fjölskyldur til þess að halda hópinn og
njóta ánægjulegra samvista um næstu helgi.
Foueldr’^r’ 6r*u bestir
í Por’Vörnum.
Sá.mtá.feá.. ÁfeVeönir'
og elsfeulegir.
Samtaka sveitarfélög og foreldrar
til stuönings unglingum:
mr
Reykjavik Akureyri Seltjarnarnes
Hafnarfjörður Kópavogur Húsavík
Vestmannaeyjar Egilsstaðii HornafjQrður
ísafjarðarbær Bolungarvík Akranes Arborg
Borgarbyggð Bessastaðahreppur w V
, qar vlmefni 1 Skagafiördur Mosfellsbær fallltnka
'PC3*er«mMrí ves«r< Súðavíkurhreppur www.rstandaneitunyfja.ts nn!
vr
»v