Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
Hestar
Sá víðförulasti fékk
veglegustu verðlaunin
Hans F. Kjerúlf kom með Laufa í
töltkeppnina og Flugu, dóttur Laufa,
í fimmgangsgreinarnar alla leið ifá
Reyðarfirði á íslandsmótið á Akra-
nesi og fékk mesta umbun knapa er
hann sigraði í töltkeppninni og fékk
eftirsóttustu verðlaun í hestaíþrótt-
um.
Hans vann þar sín fyrstu gull-
verðlaun en Laufi hefur áður verið
ábyrgur fyrir íslandsmeistaratitli,
árið 1996, er Þórður Þorgeirsson
stýrði honum til sigurs.
Hans er sextándi knapinn sem
verður íslandsmeistari í tölti. Sigur-
björn Bárðarson hefur oftast orðið
íslandsmeistari, fjórum sinnum, og
Olil Amble og Þórður Þorgeirsson
tvisvar sinnum.
Hans var eini knapinn á íslands-
mótinu af Austurlandi.
Ásgeir S. Herbertsson sigraði í
fjórgangi á Farsæl, í íjórða skiptið í
röð. Það er einstakt að sami knapi
sigri svona oft í röð á sama hesti því
hann fær nýja keppinauta á hverju
ári en hefur lagt þá alla til þessa.
Sigurður Sigurðarson sigraði í
tölti á Kringlu á íslandsmótinu 1997.
Nú kom hann Kringlulaus en vann
þess í stað fimmganginn á Prins.
Töluverður sveigjanleiki þar á
ferðinni.
Þórður Þorgeirsson sigraði í 150
metra skeiði annað árið í röð á Lútu
á góðum tima og eftir harða baráttu
við Sigurbjörn Bárðarson á Snar-
fara. Þeir voru á sama tíma en Þórð-
ur var með betri tima úr öðrum
spretti.
Þetta var síðasti opinberi sprettur
Lútu í 150 metra skeiði því hún fer
nú undir Svart frá Unalæk sem hef-
ur fengið 10,0 fyrir skeið. Lúta hefur
fengið 9,5 svo afkvæmið verður
væntanlega skeiðlagt í framtíðinni.
Hugsanlega verður Lúta lögð á
kappreiðum á Vindheimamelum
um verslunarmannahelgina i 250
metra skeiði, svona til að sjá hvað
hún getur gert í þeirri grein.
Frábærir tímar náðust í 250
metra skeiði og voru fimm hestar í
verðlaunasætum undir 23 sekúnd-
um.
Bendill og Ragnar Hinriksson
náðu mjög góðum tíma, 21,9 sek., og
er Bendill liklegur til að slá íslands-
metið í framtiðinni.
Sigurbjöm Bárðarson haföi held-
ur hægt um sig en sigraði þó í gæð-
ingaskeiði í níunda skipti og nú á
Snarfara.
Hann varð einnig stigahæstur
knapa í 14. skipti í röð, eða allt frá
árinu 1984, er Erling Sigurðsson
fékk flest stigin.
Nokkrir knapanna lögðu í meiri
þrautagöngu en aðrir í opnum
flokki.
Sveinn Ragnarsson varð í 4.-6.
sæti í fimmgangi og hrapaði í B-úr-
slit í bráðabana.
Hann vann sig upp í A-úrslitin og
varð í 2. sæti.
Erling Sigurðsson vann sig úr B-
úrslitum í 2. sæti í slaktaumatölti.
Hans F. Kjerúlf, íslands-
meistari í tölti, á Laufa.
DV-myndir E.J.
Siguröur Siguröarson sigraði nú í fimmgangi á Prinsi.
Skagamenn
Umsjónarmenn íslandsmótsins að
Æðarodda á Akranesi fengu mörg prik
fýrir framkvæmd mótsins sem var
með ágætum.
Þrátt fyrir mestu skráningu á ís-
landsmóti til þessa tóku þeir vart feil-
spor og standa uppi með pálmann í
höndunum.
Skráning var töluvert meiri en á
undanfómum Islandsmótum en það
skyggði á gleðina að um það bil fjórð-
ungur knapa mætti ekki til keppni og
margir létu ekki vita af sér.
Hugsanlega getur síðasti skráning-
ardagur hafa haft áhrif á skráninguna
en þessi dagur var einmitt lokadagur
landsmótsins og skráðu margir knapar
sig á íslandsmótið til vonar og vara.
Knapar frá suðvesturhomi landsins
vora fjölmennastir og fengu flest verð-
launin.
Knapar komu frá 23 félögum.
Fiestir knapanna komu ffá Fáki,
Verðlauna
dreifing
Félag Gull Silfur Brons
Fákur 10 7 2
Hörður 9 4 8
Sörli 4 3 4
Dreyri 3 4 0
Freyfaxi 2 00
Sleipnir 1 2 0
Gustur 1 1 2
Geysir 1 11
Smári 1 0 0
Þytur 1 00
Faxi 0 1 0
Andvari 0 0 2
Máni 0 0 1
tæplega fjörutíu, og þeir fengu einnig
flest gullverðlaunin.
Harðarmenn vora einnig fjölmennir
og sigursælir og þeir veittu Fáksmönn-
um harða keppni í gullverðlaunasöfn-
uninni.
Knapar frá Herði vora stigahæstir í
þremur keppnisflokkum af Sórum.
Keppnin var harðari en oft áður.
Ungir og kappsamir knapar tjölduðu
því sem til var og má nefha sem dæmi
að í fimmgangi fúUorðinna vora skráð-
ir að minnsta kosti sjö hestar sem hafa
verið dæmdir sem stóðhestar og tólf 1.
verðlauna hryssur.
Enn skora
Guðmar Þ. Pétursson fer mikinn eft-
ir sigur í fimmgangi ungmenna.
Flestir ís-
landsmeist-
aratitlar
Sigurbjörn Bárðarson 83
Guðmar Þ. Pétursson 31
Sigurður V. Matthíasson 24
Sigríður Pjetursdóttir 15
Tómas Ragnarsson 15
Davíð Matthíasson 13
Reynir Aðalsteinsson 12
Viðar Ingólfsson 12
Haraldur Snorrason 11
Magnea R. Axelsdóttir 11
Þórður Þorgeirsson 10
Hjömý Snorradóttir 9
Sævar Haraldsson 9
Halldór Victorsson 8
Ragnar E. Ágústsson 8
Stigahæstu knapar í hverjum flokki.
Frá vinstri: Kristján Magnússon,
Siguröur St. Pálsson,
Guðmar Þ. Pétursson
og Sigurbjörn Bárðarson.