Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 13
J
MANUDAGUR 27. JULI 1998
Fréttir
DV
^ Kaup á nýju prestssetri á Skagaströnd valda óánægju meðal íbúanna:
Ibúar telja sig hafða að fíflum
-11 hús auglýst til sölu en systir oddvitans hreppti hnossið og náði að selja
og samsæriskenningum íbúanna til
fóðurhúsanna. Það var faglega staðið
að þessu máli og fagmenn fengnir til
að skoða og meta þau hús sem komu
til greina. Það er því ekkert óeðlilegt
á ferðinni. Það var fyrst boðið í annað
hús en tilboðinu var hafnað. Því var
ákveðið að kaupa þetta hús enda telj-
um við þetta mjög góð kaup. Ég veit
ekki til þess að það sé neitt samband
á milli prestssetrasjóðs og oddvita
Skagastrandar," segir Guðmundur
Þór Guðmundsson, formaður stjómar
prestssetrasjóðs, aðspurður um málið.
-RR
Mikil óánægja er meðal margra
íbúa á Skagaströnd eftir að prests-
setrasjóður keypti nýtt prestssetur
þar í síðustu viku. Konan sem seldi
prestssetrasjóði húsið er systir oddvit-
ans og dóttir fyrrverandi oddvita.
Hún hafði árangurslaust reynt að
selja húsið þar sem hún var að flytja
til Reykjavíkur.
Ellefu hús voru auglýst til sölu sem
Nýja prestssetrið á Skagaströnd sem prestssetra-
sjóður keypti á dögunum. Húsið var keypt af konu
sem er systir oddvita staðarins og dóttir fyrrver-
andi oddvita en hún hafði reynt að selja húsið tölu-
verðan tíma. Mikil óánægja er meöal margra íbúa
Skagastrandar vegna þessara kaupa.
DV-mynd Birgir
væntanlegt prestssetur enda hafa
margir íbúar Skagastrandar hug á að
flytja burt. Margir ibúanna, sem DV
ræddi við, telja það klíkuskap að kona
í valdamestu ætt Skágafjarðar hreppti
hnossið og náði að selja sitt hús.
Margir íbúar eru einnig óánægðir
með hvernig staðið var að málum og
gagnrýna Biskupsstofu og prestssetra-
sjóð fyrir að hafa ekki einu sinni
skoðað öll húsin sem vom til sölu. Þá
telja margir að óþarfi hafi verið að
kaupa nýtt prestssetur þar sem gamla
setrið hafi verið fullnægjandi íbúðar-
hús.
Samkvæmt heimildum DV fór
sóknarnefndin fram á að fá nýtt
prestssetur til að auðveldara væri að
laða nýjan prest til staðarins. I maí og
júni var auglýst í flölmiðlum eftir
prestssetri á Skagaströnd. Margir íbú-
ar Skagastrandar hugsuðu sér þá gott
til glóðarinnar og voru ellefu hús aug-
lýst til sölu.
í síðustu viku keypti prestssetra-
sjóður hins vegar húsið að Hólabraut
30 fyrir 8,2 milljónir. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Biskupsstofu vora að-
eins átta af ellefu húsum sem auglýst
voru skoðuð.
Sumarleikur Biskupsstofu
„Ég auglýsti mitt hús en það var
ekki einu sinni skoðað. Maður hefur
það auðvitað á tilfmningunni að þetta
hafi verið ákveðið fyrirfram," segir
einn íbúa Skagastrandar í samtali við
DV.
„Ég kalla þetta ekkert annað en
leikaraskap því það var alltaf vitað að
húsið að Hólabraut 30 yrði keypt. Það
er skítalykt af þessu máli,“ segir ann-
ar Skagstrendingur sem er mjög ósátt-
ur við gang mála.
Annar viðmælandi
DV, sem auglýsti hús
sitt til sölu, segir: „Það
hefur verið óánægja
meðal íbúa hér á Skaga-
strönd út af þessu máli.
Það myndaðist óþarfa
spenna á milli margra
íbúa sem vildu selja. Eft-
ir á flnnst manni þetta
bara hafa verið sýndar-
mennsku hjá Biskups-
stofu. Ég held að það
hafi aldrei staðið til að
kaupa annað hús en
þetta. Mörgum ibúum
líður eins og þeir hafi
hreinlega verið hafðir
að flflum,“ segir Skag-
strendingurinn. Sá hef-
ur sent símskeyti til
Biskupsstofu þar sem hann óskar
henni til hamingju með nýja prests-
setrið og þakkar fyrir „sumarleikinn
á Skagaströnd".
Gamla húsið nógu gott
Margir Skagstrendingar vilja
meina að það hafi ekki vérið ástæða
til að kaupa nýtt hús fyrir prestinn og
gamla húsið hafl verið alveg nógu
gott. Skagstrendingar benda á að hús-
ið sé nú auglýst til sölu fyrir 6,5 millj-
ónir. „Það er ansi há upphæð ef það
var ekki íbúðarhæft," segir einn við-
mælenda DV.
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson,
nýskipaður sóknarprestur á Skaga-
strönd, sagði í samtali við DV að hann
hefði ekki sett fram neinar sérstakar
óskir eða kröfur varðandi húsnæði og
hann hefði alveg getað sætt sig við
gamla prestssetrið.
22 hús eru til sölu á Skagaströnd og
mörg hús munu standa tóm á næst-
unni þar sem íbúar þeirra eru að
flytja burt. Hvernig gengur að selja er
hins vegar önnur saga. „Ég held að
flestir ætli að flytja þó þeir geti ekki
selt hús sín,“ segir einn af viðmælend-
um DV á Skagaströnd.
„Ég kannast aðeins við óánægju
einhverra íbúa Skagastrandar vegna
þessa máls en ég vísa allri gagnrýni
Toyota Corolia 1600 XLi '97,
rauður, rafdr. rúður, samlæs., 2 x
air bag., ek. 25 þús. km.
Verð 1.250.000.
Land Rover Discovery V-8 3500i
'91, livítur, 7 manna, 2 toppl.,
rafdr. rúður, saml.. álfelgur,
dráttarb.. kom á götuna '94. Ek.,
91 þús. km. ekki tjónabíll.
Verð 1.590.000.
Fiat Bravo SX160016 V '98, svartur,
breyttur af Impetus, ABS, spoiler,
álfelgur o.fl. Ek. 15 þús. km. Einn með
öllu. Verð 1.590.000. Ath. skipti.
BIVIW730Í '87, svartur, 17“
álfelgur, þjófav., smurbók. ABS,
rafdr. rúður, dúndur græjur, ek.
aöeins 116 þús. km.
Verð 1.340.000.
Renault Megane RT Classic '9
steingrásans., 4 d., ssk.,
viðarmælaborð, fjarst. útv/segulb.,
rafdr. rúður, fjarst. saml., álfelgur, ek.
23 þús. km.Verð 1.420.000.
/’// B o!iCi
Funahöfða 1
Sími 587-7777 Fax 587-3433
Bráðvantar bíla,
tjaldvagna og fellihýsi.
Huseign tíl sölu!
Til sölu er á Skagaströnd einbýlishús 134 að stærð. V el við haidin eign
ásamt glæsilegum garði og útsýni yfír 4 sýslur í góðu skyggni. Helstu
kostir eignarinnar eru: Myndi henta einkar vei sem prestbústaður, er
miðsvæðis milli vinnustaða prests, þ.e. kirkju og Jdrkjugarðs, Aðeins 40
metra vegalengd til núverandi sóknamefndarfonnanns. F.inrig hentar
staðsetning eignarmnar vel fyrir flóttafóli, ÍOO meöarfrá þjóðveginum
úr bænum. Gæti einnig hentað vel garðyrkjufræðingj, sem mnnái sóma
sér vel í garðinum og jafnframt nágrannagörðum og stutt er í skógrxkt
Skagstrendinga. Tilboð í eignina óskast fyrir 10. maf. 124% þagmælskn
heitið að hætd sannra Skagstrendinga.
Uppiýslngar í síma 452 2656 á mílH kl.17 og- f 9.
íbúi á Skagaströnd setti þessa augiýsingu í blaöið Gluggann sem dreift er
inn á öll heimili í Austur-Húnavatnssýslu.
í GALTAIÆ KJARSKÖGI
Verslunarmannahelgin 31. júlí • 3. ágúst
íiiit'*1
nk*1
AÐGONGUMEDI
A MOTIS0L
SCHEVIMG
SA6A KLASS
MALADRENGIRNir
SPUR
DÓRA OG BEMMI
STREETBALL
GÖTULEIKHÚS
ELDGLEYPIR
SÖNGVARAKEPPNI
PALMI MATTHÍASSOf
TÖFRAMAÐUR
TÉVOLÍ
LEIKTÆKJALAND
HESTAR
Frítt fyrir börnin
Sætaferóir BSÍ og SBK
ý forsala til 29. júlí
4- í Seglagerðinni og Everest
G ó ð a
FLUGELDAR
VARÐELDUR
0.M.FL
skemmtun
Munið,
Kvöldvökur
Barnaböll
Ökuleikni
Veitingahús
Verslun
íssala
Gæsla
I afsláttur í forsölu
f