Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
Macintosh inn á einkatölvumarkaðinn á ný:
Ætla að selja milljónir af iMac
þegar farnar að streyma inn pantanir á Islandi
Forráöamenn Apple eru bjartsýnir á aö hin nýja iMac muni slá í gegn þegar
hún kemur á markað í haust.
Liik|emelar
Harðasti fornleifafræðingurinn
Fyrir næstu jól kemur hún Lara Kroft
í þriðja sjnn tyrir augu leikjaunnenda.
En í þetta sinn mætir hún óvæntri
mótspyrnu á leikjamarkaönum. Sjálf-
ur Indiana Jones mun veita henni
harða samkeppni úm titilinn harðasti
fornleifafræöingur allra tíma. Það eru
snillingarnir hjá LucasArts sem munu
færa okkur leikinn Indiana Jones and
the Infernal Machine sem aö sögn
mun líta feikilega vel út. Að auki verö-
ur mikið lagt upp úr söguþræði eins
og LucasArts er von og vtsa. Verkefni
Indys verður aö ráða gátuna um Babel-
turninn áður en einhverjum Rússaó-
þokkum tekst þaö.
Unreal fyrir Makka
Stórleikurinn Unreal, sem tröllríður
PC-heiminum um þessar mundir, er
væntanlegur fyrir Macintosh óvenju
s n e m m a ,
miðað viö
flesta aðra
leiki. Hann
mun koma á
markaðinn í
haust og er
það frábær
tímasetning
fyrir Apple
þar sem nýja
iMac tölvan
fer í sölu á
sama tíma.
Unreal, sem
fetar í fót-
spor leikja
e i n s og
DukeNukem
og Quake,
þykir einstak-
lega vel heppnaöur skotleikur. Sér-
staklega er það hin óviðjafnanlega
þrívtddargrafik sem heillar skotglaða.
Final Fantasy VIII í vinnslu
Playstation-unnendur geta sett sig t
startholurnar þvt Square-fyrirtækiö,
sem hefur dælt út Rnal Fantasy-hlut-
verkaleikjunum, er með þann áttunda
í burðarliðnum og hann á að veröa
sá allra besti. Biðin mun þó að öll-
um líkindum taka hátt í ár en miðað
við þaö sem Square hefur sýnt nú
þegar frá vinnsluferlinu veröur þaö
þess virði að bíöa. Breytingar verða
talsveröar frá fyrri leikjum og sérstak-
lega verður graftk og ýmis myndræn
úrvinnsla bætt verulega.
Rándýr á móti geimveru
í haust mun koma á markaðinn leik-
urinn Alien vs Predatorfrá Rebellion-
útgáunni. Á E3-leikjasýningunni, sem
haldin var fyrir stuttu, var þetta einn
þeirra leikja sem vakti hvaö mesta
athygli. Þótt þetta sé fyrstu persónu
skot- og bardagaleikur, sem þykir nú
varla frumlegt um þessar mundir, býð-
ur hann upp á nýjungar. Þrenns kon-
ar lífverur finnast í leiknum: menn,
geimverur, eins og þær sem við höf-
um séö í samnefndum myndum, og
rándýr - Predator - eins og þaö sem
Arnold Schwarzenegger drap svo eft-
irminnilega hér um áriö. Leikinn má
svo spila út frá sjónarhorni allra
þriggia lífveranna en eins og gefur aö
skilja eru verkefnin, sem leysa þarf,
mismunandi fýrir hvert lífsform.-KJA
_______________ irsa
Bandaríkjastjórn setur úrslitakosti:
Öiyggi á Netinu
fyrir áramót
Bandarískum netfyrirtækjum
gengur illa að tryggja öryggi við-
skiptavina sinna á Netinu og
Bandaríkjastjórn er að missa þol-
inmæðina. Hún setti netverjum
úrslitakosti fyrir stuttu: „Ef ör-
yggi og upplýsingaleynd við-
skiptavina ykkar verður ekki
aukin fyrir áramót munum við
setja lög sem taka hart á þessum
málum.“
Víða er pottur brotinn hvað
þetta varðar í Bandaríkjunum.
Fyrirtæki sem selja vörur gegn-
um Netið afla oft upplýsinga um
viðskiptavinina í leiðinni. Þar
eru á ferðinni nöfn þeirra, heimil-
isföng og netföng auk ýmissa sér-
hæfðra upplýsinga sem sum fyrir-
tæki selja svo þriðja aöila án þess
að segja viðskiptavininum frá
því. Þessu þarf að hætta að mati
Bandaríkjastjórnar og því er nú
farið að hóta öllu illu til þess að
fyrirtækin sjái að sér og hefji
ástundun eðlilegra viðskipta-
hátta.
Að sögn formanns nefndarinn-
ar, sem fer með málið fyrir hönd
Bandaríkjastjórnar, eru mörg fyr-
irtæki til fyrirmyndar hvað ör-
yggi upplýsinga varðar. En önnur
standa sig illa og því er þörf á að
setja samhæfðar öryggisreglur
sem ná til allra fyrirtækja sem
stunda viðskipti á Netinu. Að öðr-
um kosti mun netverslun ekki ná
að blómstra eins og efni standa til
í framtíðinni.
-KJA
Apple-fyrirtækið hyggst setja
nýjustu gerð Macintosh-einka-
tölva, iMac, á markað nú í haust.
Þar með hefur fyrirtækið stór-
sókn inn á einkatölvumarkaðinn
eftir mögur ár á þeim vígstöðv-
um, en PC-tölvurnar hafa verið
nær einráðar undanfarin misseri
á þessum griðarstóra og sívax-
andi markaði.
Tom Boger, sem stýrt hefur
þróun iMac, fer ekki leynt með
fyrirætlanir fyrirtækisins: „Við
ætlum að selja milljónir á millj-
ónir ofan af iMac á næstu mán-
uðum.“
Mikill áhugi á Islandi
Tölvan kemur á markað í
Bandarikjunum þann 15. ágúst
næstkomandi og í kjölfar þess
kemur hún í verslanir á megin-
landi Evrópu í byrjun september.
Von er svo á gripnum hingað til
lands um miðjan september að
sögn sölumanna hjá Apple-um-
boðinu. Á þeim bænum er búist
við gríðarlegri sölu því áhugi al-
mennings hefur verið mikill og
nú þegar eru komnar í hús um 40
pantanir á iMac. Ekki er
orðið alveg ljóst hve
mikið iMac mun
koma til með að
kosta, en verðið
verður þó
nær örugg-
lega undir
150.000
kr. Það
er verð
sem
Macin-
tosh-
notend-
ur hafa
sjaldan séð
áður því eins og flestir
vita hafa Makkarnir alltaf verið
í dýrari kantinum.
En það er ekki bara verðið
sem gerir iMac aðlaðandi fyrir
tölvunotendur. Tölvan verður
geysiöflug og sagt er að PowerPC
750 örgjörvinn geri hana öflugri
en margar stærstu PC-vélar.
USB-tengin hafa einnig vakið
talsverða lukku en þau gera
mönnum kleift að tengja ýmsan
aukabúnað við tölvuna. Þar á
meðal verður svokallað USB
Superdrive, en það er diskadrif
sem getur lesið og skrifað á
tölvudisklinga, hvort sem þeir
þessi
nýja tölva yrði ekki
út undan þegar leikir verða
framleiddir í framtíðinni.
Ekki er auðvelt að spá fyrir
um hvernig það muni takast.
Sennilega bíða stærstu framleið-
endurnir með að leggja mikið
fjármagn I að vinna leiki fyrir
markað sem óvist er hvort nái
nokkurn tímann heppilegri
stærð. En bíða tölvuleikjaunn-
endur með að kaupa iMac þang-
að til almennilegir leikir verða
framleiddir fyrir hana? Þá gæti
Apple verið í vanda.
-KJA
Langar þig að vita hvemig
stemningin er í Honolulu á
Hawaii? Þú getur séð gestina á
Aloha-Café sötra kaffið sitt í
beinni á http://www.aloha-
cafe.com/ns2/cafe-cam.html
Heimurinn í beinni
Beinar útsendingar frá ýms-
um stöðum alls staðar í heim-
inum er að finna á
http://www.earthcam.com
Þar er t.d. sýnt frá Friðarleik-
unum sem nú fara fram i New
York.
Sippubönd
Áhugafólk um sippubönd
getur sótt upplýsingar varð-
andi hina göfugu íþrótt, sipp, á
heimasíðunni http://www.
heartfoundation.com.au/
jumprope.htm
Ungir folar
Þær (eða þeir) sem hafa
áhuga á ungum og spennandi
karlkynsstjörnum geta horft og
lesið nægju sína á
http://www.ymshomepage.com
Heimatilbúið pínugolf
Nokkrir félagar tóku sig
saman og bjuggu til 18 holu
pínugolfbraut í kjallara eins
þeirra. Myndir af brautinni og
lýsingar á einstökum holum
má finna hér:
http://www.contrib.andrew.
cmu.edu./-wall/course
-KJA
eru forsniðnir fyrir PC eða Mac.
Margir munu vilja nýta sér það
því eitt það byltingarkenndasta
við iMac-tölvuna er að hún er
ekki með innbyggt diskadrif. Að
mati Macintosh manna eru slík
drif að verða úrelt þar sem hug-
búnaður fæst nú orðið nær ein-
göngu á geisladiskum og fólk
notar Netið í síauknum mæli til
að færa gögn milli tölva.
Leikirnir skipta máli
Það sem skiptir gríðarmiklu
máli fyrir vinsældir iMac á
einkatölvumarkaðnum er það
hvort tölvuleikir séu framleiddir
í einhverjum mæli fyrir Macin-
tosh. Á síðustu árum hafa PC-
tölvurnar verið í fararbroddi
hvað hönnun vinsælla tölvu-
leikja varðar en Makkarnir oftar
en ekki verið mun aftar á mer-
inni. Því þurfa forráðamenn
Macintosh að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að fá
leikjahönnuði til að vinna leiki
sína með iMac í huga.
Á E3-leikjaráðstefnunni, sem
fram fór í Atlanta í Bandaríkjun-
um fyrir stuttu, kom í ljós
að Macintosh ætlar að
heQa öfluga sókn inn á
leikjamarkaðinn. Þar
var iMac kynnt sér-
staklega fyrir
stærstu leikjafram-
leiðendunum eins
og t.d. Electronic
Arts og Lucas
Arts og þess
farið á leit að
Tískukóngur á
útopnu
Jean Paul Gaultier hefur ný-
lega opnað heimasíðu og er
forvitnilegt að sjá hvað hann
hefur fram að færa. Áhuga-
samir geta skoðað hana á
http://www.jpgaultier.fr
Allir á Hellu
Það vita það kannski ekki
allir en á Hellu búa yfir 600
manns. Þessar og fleiri upplýs-
ingar um Rangárvallahrepp
má finna á heimasíðunni
http://www.rang.is/rang
Helvíti er í Noregi
Það hlaut að vera, það var
eitthvað bogið við frændur
okkar. Loksins kom skýringin,
Helvíti er í Noregi og heima-
síða þess er
http://www.gonorway.no/hell
Kaffi Honolulu
í