Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Síða 21
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
29
Símtöl á Netinu eru framtíðin
Að mati margra verður 1998
minnst sem ársins þegar símtöl á
Netinu slógu loks í gegn. Ráðgjaf-
arfyrirtækið IDC í Evrópu býst
t.d. við að gömul og rótgróin
símafyrirtæki muni innan
skamms hefja harða gagnárás á
ný símafyrirtæki sem byggt hafa
á símtölum í gegnum Netið.
I Bandaríkjunum hafa ýmis ný
símafyrirtæki nú þegar skákað
eldri fyrirtækjum með þvi að
bjóða upp á ódýr símtöl gegnum
Netið. í Evrópu hefur þróunin
hins vegar verið mun hægari þar
til á þessu ári. „Fyrir um sex
mánuðum var nær ekkert að ger-
ast í þessum málum í Evrópu, fyr-
ir utan prófanir ýmissa símafyrir-
tækja á netsímakerfum," segir í
skýrslu IDC.
í dag er hins vegar annað uppi
á teningnum því ekki er nóg með
- byltingin er þegar hafin
að fjöldi „nýrra“ símafyrir-
tækja séu á leiðinni inn á net-
símamarkaðinn heldur er
Qöldi rótgróinna fyrirtækja
einnig á leið í slaginn. í þeim
hópi eru fyrirtæki eins og
Deutsche Telecom, Swisscom,
Telenor, Telia og Tele Dan-
mark. Að mati IDC er þetta
ótvírætt merki um að netsím-
inn muni verða mikilvægur
hluti símamarkaðarins á
næstu mánuðum.
Eitt það mikilvægasta hvað
þetta varðar er svo einnig að
hljómgæði símtala í gegnum
Netið með sæmilegum mótöld-
um á nýjustu einkatölvunum
hafa batnað. Um þessar mund-
ir eru hljómgæðin álíka góð
(eða slæm) og í venjulegum
GSM-símum.
KJA
Spurningin er orðin sú hvort gamli sím-
inn sé í útrýmingarhættu nú á tímum
GSM-síma og símtala á Netinu.
Áhugasamir geta nú kynnst innstu leyndarmálum froska en þau hafa verið
gerð opinber á Netinu.
Netmet á boltasíðu
Þann 30. júní var hin opinbera heima-
síða heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu heimsótt 70 milljón sinn-
um sem er netmet. Fyrra metið átti
hin opinbera heimasíöa vetrarólym|>-
íuleikanna í Nagano meöan á þeim
leikum stóö. Á tímabilinu 10. júní til
6. júlí mældust heimsóknir á síðuna
vera yfir milljaröur. Þeir sem skoðuöu
síöuna á þessu tímabili voru rúmlega
10 milljónir manna frá 170 löndum.
Slóð metsíöunnar er:
http://www.france.com
Bowie í net-
bransann
tslandsvinurinn
David Bowie var
fýrsta poppstjarn-
an til aö selja
hlutabréf í sjálf-
um sér. Nú ætlar
hann aö hella sér
af fullum krafti í
netbransann.
Þann 1. septem-
ber opnar fyrir-
tækiö BowieNet
sem mun veita
viöskiptavinum
sínum aögang og
þjónustu á Net-
inu. Fyrir utan
venjulega net-
þjónustu fá viö-
skiptavinir einnig
aögang aö ýmsu
efni Bowies sem
hvergi er hægt aö finna annars staö-
ar. Þar á meöal veröa áöur óútgefin
lög, myndbönd og myndir af goðinu.
Þeir sem skipta viö BowieNet fá þar
aö auki netfang sem endar á
©davidbowie.com
Comoroeyjar í samband
Hinar einangruöu Comoroeyjar á Ind-
landshafi tengdust Netinu í fyrsta
sinn fyrir stuttu. Tengingin kostaöi
litlar 15 milljónir íslenskra króna og
var hún fjármögnuð af hinni ríkisreknu
póst og símastofnun heimamanna.
Nú þegar hafa sextíu einstaklingar
og fýrirtæki fengiö sér tengingu viö
umheiminn. „Nú hefst nýtt tímabil í
sögu Comoroeyja, þrátt fyrir þær efna-
hagslegu þrengingar sem viö eigum
viö aö etja," sagöi Ali Toihir Mohamed,
forstjóri Pósts og síma þeirra
Comoromanna, viö þetta tækifæri.
Þrátt fyrir aö tenging á Comoroeyjum
sé meö því ódýrasta sem gerist á
Indlandshafi hefur hinn almenni
Comorobúi
ekki efni á
slíkum mun-
aði.
Öldungar
gegn klámi
Oldungadeild
bandaríska
þ i n g s i n s
samþykkti í
síðustu viku
tvö frumvörp
sem eiga aö
vernda börn
fýrir klámi og
ö ð r u m
ósóma á
Netinu. Ýms-
ir telja þó að
hin nýju lög
skeröi hinn
stj ó r n a r-
skrárbundna
rétt Bandaríkjamanna til tjáningar-
frelsis. I fýrsta lagi herti öldungadeild-
in reglur sem skuldbinda dónalegar
netsíöur til aö tryggja aö börn fái ekki
aögang aö ósómanum. í ööru lagi
voru sett lög um aö skólar og bóka-
söfn sem þiggja opinþert fé séu skuld-
bundin til aö setja upp hugbúnaö sem
síar út heimasíður sem óheppilegar
teljast fýrir ungviðið. -KJA
______________________
Líffræði fyrir klígjugjama:
Froskar
krufðir með
lyklaborði
Vísindamenn við Stanford-há-
skólann í Bandaríkjunum tilkynntu
nýlega að þeir hefðu hannað „sýnd-
arfrosk" sem kligjugjamir nemend-
ur gætu hér eftir kruflð á Netinu.
Þannig losna þeir við allt blóð og
jukk sem venjulega fylgir krufning-
um á rannsóknarstofum.
Froskurinn er til húsa á heima-
síðunni „Frog Island“ þar sem net-
verjar geta skoðað sýndarfroskinn
frá öllum sjónarhornum. Með
ákveðnum skipunum má svo rífa
hluta húðarinnar burt svo innri líf-
færi skepnunnar sjáist betur.
Froskurinn er fyrsta afurð Virtu-
al Creatures-verkefnisins sem unn-
ið er í Stanford. Parvati Dev, stjórn-
andi verkefnisins, vonast til að
halda verkefninu áfram og hanna
fleiri sýndardýr til krufningar og
jafnvel hluta af mannslíkamanum.
En mun krufning á Netinu koma í
stað hefðbundinnar krufningar?
„Nei, það er hæpið,“ segir Dev og
glottir. „Að minnsta kosti myndi ég
ekki vilja meðhöndlun læknis sem
hefði aldrei snert alvörulíkama."
Hugsunin bak við sýndarkrufn-
ingu er að veita nemum sem ekki
stefna á nám í náttúrufræðum meiri
möguleika á að átta sig á starfsemi
lifvera. Margir þeirra forðast líf-
fræði eins og heitan eldinn vegna
þess að þeim er illa við blóðið sem
krufningunum fylgir. Sýndarfrosk-
urinn kemur þeim hins vegar til
hjálpar og hjálpar þeim að átta sig á
aðalatriðum. Hinir verða eftir sem
áður að venjast alvöru blóði. Frog
Island er að finna á heimasíðunni
http://summit.stanford.edu
/creatures
-KJA
Áskrifendur
fiTf'
Wrfm) m
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
a\tt millí hlrniH'
^dL
Smáauglýsingar
irarai
SSO 5000
< öðkaupsveislur — útisamkomur — skemmtanir—tónleikar—sýningar — kynningar og fl. og fl. og fi.
9°
- æislutjöld
,.og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburo -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
Nýr möyuMki
Veisluna nánast
hvar sem er.
Rent a tent tjöldin eru
virkilega falleg. Þau eru
sterk og auðveld í upp-
setningu. Mismunandi
stærðir frá 12-300
manna.
Leigjum einnig borð,
bekki/stóla. Vinum
þínum finnst gaman
í tjaldveislu.
Hvað með
brúðkaupið?
Tjtldalsigan
Skemuitilegt hf,
Dalbrekku 22, sími 544 5990
eða rúnnaðir
• Sturtuhorn
• SturUjfwðar
• Baðkars, stui
Viö Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
ánud. - föstud. kl. 9-18, laugard
Mönduð vara
r
„ a
ð3stæðustu verðoo^
HADuflflOSUIf} . 0 raðííreTöskír