Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Page 23
MANUDAGUR 27. JULI 1998
31
Loftsteinsleit á Grænlandi
í síðustu viku lagði sjö manna
leiðangur vísindamanna á Græn-
landsjökul til að leita að loft-
steini sem féll þar til jarðar 9.
desember síðastliðinn. í leiðang-
urshópnum, sem stjórnað er af
dönskum verkfræðingi sem unn-
ið hefur á Grænlandi með danska
hernum, eru stjörnufræðingur og
fjarskiptasérfræðingur, auk
manna sem vanir eru fjalla- og
jöklaklifri. Áætlað er að leiðang-
urinn standi i fjórar vikur en allt
veltur þó á veðri sem er mjög
breytilegt á þessu landsvæði.
Rok, rigning og þoka geta sett
strik í reikning leiðangurs-
manna.
Til að byrja með verða tekin
snjósýni til að reyna að staðsetja
hrapstaðinn betur. Nú er vitað
að hann er á ákveðnu 50 ferkm
svæði á jöklinum, nærri þorpinu
Paamiut, en hringinn þarf að
þrengja enn meir ef takast á að
finna eitthvað sem talandi er um.
í byrjun ágúst eru svo mestar lík-
ur á að hægt verði að finna stóra
hluta úr steininum því þá nær
bráðnun jökulsins hámarki.
Þetta var enginn smáhlunkur
sem féll til jarðar í lok síðasta
árs því samkvæmt mælingum
danskra visindamanna var hann
á bilinu 30 til 100 tonn að þyngd
þegar hann kom inn í gufuhvolf
jarðar. Gervihnettir bandaríska
hersins staðfestu síðar mælingu
Dananna.
Fyrsti leiðangurinn að hrap-
staðnum var farinn í lok júní en
þá komust menn lítt áleiðis
vegna veðurs og annarra hindr-
ana. Hins vegar tókst þeim þá að
ná sýnum sem staðfestu að þeir
væru ekki langt frá sjálfum lend-
ingarstaðnum.
-KJA
Á Grænlandi leitar nú sjö manna hópur aö 30 til 100 tonna loftsteini sem féll þar í desember síðastliönum.
y Umdeildar tilraunir á öpum:
1145 desíbela hávaða
Mikil mótmæli hafa verið við
Kaliforníuháskólann í San
Francisco í Bandaríkjunum
vegna tilrauna sem dr. David
nokkur Chung fyrirhugar að
gera þar á sex öpum. Tilraunirn-
ar byggjast á að svæfa apana og
láta þá dúsa í allt að 145 desíbela
hávaða í tvær klukkustundir.
Siðan hyggjast rannsakendur
drepa apana að nokkrum mán-
uðum liðnum og kryfja heila
þeirra. Þannig er ætlunin að
rannsaka hvernig heili þeirra
breytist í kjölfar þess skaða sem
verður við hávaðann og hvernig
mögulegt sé að „endurþjálfa"
apaheilana til að bæta fyrir
skaðann.
Ýmsir liffræðingar, sem vinna
með apa og önnur svipuð dýr,
hafa fordæmt tilraunirnar og
segja þær ómannúðlegar og til-
gangslausar. Betri aðferðir
þekkist nú þegar til að rannsaka
heyrnarskaða að þeirra mati og
því algerlega ónauðsynlegt að
leggja þessar pyntingar á apana.
Almenningur komst fyrst á
snoðir um tilraunirnar þegar dr.
Chung ætlaði að kaupa feikilega
öfluga hátalara sem venjulega
eru notaðir fyrir hljómleika á
íþróttaleikvöngum. Eiganda raf-
tækjabúðarinnar, sem Chung
leitaði til, fannst fyrirætlanir
hans hins vegar svo ógeðfelldar
að hann neitaði að selja honum
græjurnar og gerði dýravernd-
unarsinnum aðvart. Eftir það
hafa mótmæli við háskólann
verið daglegt brauð. Ekki er
hins vegar enn vitað hvort há-
skólayfirvöld afturkalla leyfi
Chungs til rannsóknarinnar í
kjölfar þeirra. -KJA
Sex apar í San Francisco eiga ekki gott í vændum ef dr. David Chung fær aö
ráöa.
Leitað að lífi í geimnum
- NASA vinnur að fimm ára áætlun
Fyrir stuttu hélt NASA, geim-
rannsóknarstofnunin í Bandaríkj-
unum, ráðstefnu þar sem saman
voru komnir rúmlega 100 sérfræð-
ingar í geimrannsóknum. Umfjöll-
unarefnið var líf úti í geimnum og
var niðurstaða ráðstefnunnar að
spumingin væri ekki hvort til væri
líf úti í geimnum heldur miklu frek-
ar hvernig mannkynið ætti að finna
það. í kjölfarið er byrjað að vinna
að fimm ára áætlun um hvernig að
rannsóknunum skuli staðið.
„Við vitum að sumt af því sem
við tölum um núna og næstu 20 árin
hljómar eins og vísindaskáldsaga í
eyrum margra,“ segir David Morri-
son, sérfræðingur hjá NASA og
stjórnandi ráðstefnunnar. „Eitt af
verkefnum okkar er að fá fólk til að
trúa því að um veruleika sé aö
ræða.“
Undir yfirborði eins af tunglum Júpiters hefur fundist vatn sem eykur líkur
á aö þar sé líf að finna.
Undanfarin ár hafa ýmsar upp-
götvanir gefið vísbendingar um að í
geimnum sé að finna líf. Til dæmis
hafa vísindamenn komist að því að
hér á jörðinni eru til lífVerur sem
lifa við gífurlega erfiðar aðstæður. 1
ísklöppum á Suðurskautinu, í hver-
um og inni í grjóti hafa fundist
harðgerð lifsform. Ekki er ólíklegt
að líf sé að finna á plánetum sem
annars virðast ekki til þess fallnar
að hýsa líf fyrst hægt er að lifa á svo
óheppilegum stöðum.
Vísbendingar hafa einnig fundist
í geimnum. Geimfarið Galíleó fann
merki um vatn undir yfirborði Evr-
ópu, eins fylgitungla Júpíters.
Einnig hafa nýlega fundist plánetur
utan okkar eigin sólkerfis og er það
álit vísindamanna að líf geti jafnvel
fundist á sumum þeirra.
-KJA
MMC Space Wagon '93,5
d., ssk., ek. 98 þús. km, grár.
> Verð 1.260.000.
MMC Lancer 4x4 st. '97,5
d., 5 g., ek. 17 þús. km, i
vínrauður. Verð 1.490.000.
Skoda Felica LSi '97,5 d.
5 g., ek. 18 þús. km,
svartur, álfelgur.
Verð 680.000.
VW Golf GL '95,5 d., 5 g.
ek. 61 þús. km, grænn.
Verð 930.000.
MMC Lancer GLXi '91,5
d., ssk., ek. 86 þús. km, \
brúnn. Verð 660.000.
VW GolfCL '89,3 d., 5 g.,
ek. 84 þús. km, grár, einn
eigandi. Verð 390.000.
Toyota Litace '91,5 d., 5 g.
' ek. 98 þús. km, rauður.
Verð 590.000.
Borgartúni 26, símar 561 7510 & 561 7511
i
*
\