Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Síða 31
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
39
Fréttir
Gula hjólið í Reykjanesbæ:
Vistvænt og heilsubætandi
DV, Suðurnesjum:
Skúli Skúlason, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Ólafur Thordersen bæjarfulltrúi, Björk Guöjónsdóttir bæjarfulltrúi, Stefán Bjarkason,
íþrótta- og tómstundafulltrúi, og Gísli Hlynur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar á Suöurnesjum, voru þau fyrstu sem hjóluðu
á gulu hjólunum ásamt krökkum í Reykjanesbæ. DV-mynd Ægir Már
„Viö rennum blint í sjó-
inn með hverjir muni nota
hjólin en við höfum trú á því
að almenningur eigi að geta
notað þau,“ sagði Skúli
Skúlason, forseti bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær er fyrsta
bæjaifélagið á íslandi sem
tekur í notkun hið svokall-
aða gula hjól sem hefur gef-
ist vel bæði í Bandaríkjun-
um og Evrópu. „Það eiga
allir bæjarbúar þessi gulu
hjól sem verða ellefu talsins
tÚ að byrja með. Þau verða í
fyrstu höfð í níu biðskýlum
hjá almenningsvögnum í
bæjarfélaginu. Hugmyndin
er að þeir sem þurfa
að bregða sér á milli
staða geti gripið hjól
og skilið það eftir á
næstu biðstöð. Hjólið
er vistvænt og
heilsubætandi og við
hvetjum íbúa til að
notfæra sér þau,“ sagði
Skúli.
Atvinnuleysistrygginga-
sjóður og Reykjanesbær
hafa styrkt umrætt verkefni.
Tveir starfsmenn hafa und-
anfarið unnið við að gera
upp gömul hjól sem gefín
voru í verkefnið og munu
þeir fylgjast með hjólunum.
Forsvarsmenn bæjarins
telja að notkun hjólanna
muni hvetja bæjarbúa til
áframhaldandi hjólreiða á
eigin hjóli, auka samábyrgð
í bæjarfélaginu og þeir telja
að notkun á ónýtum hjólum
og þjófnuðum á hjólum bæj-
arbúa muni fækka, svo eitt-
hvað sé nefnt.
-ÆMK
HB hf. Akranesi:
Styrkir fatlaða
DV, Akranesi:
Haraldur Böðvarsson hf. og
íþróttasamband fatlaðra hafa gert
með sér samning um samstarf og
stuðning HB við ÍF vegna þátttöku
fatlaðs íþróttafólks á ólympíuleik-
unum í Sydney árið 2000.
Árangur fatlaðra íþróttamanna
hefur vakið athygli á undanfömum
ámm og hafa þeir unnið glæsta
sigra, bæði á ólympíuleikunum og
öðmm stórmótum fyrir fatlaða. Nú
þegar er undirbúningur fyrir
ólympíuleikana í Sydney hafinn,
m.a. með stuðningi Haraldar Böðv-
arssonar.
Fram undan er þátttaka í stór-
mótum fatlaðra, s.s. heimsmeistara-
móti fatlaðra í sundi, frjálsum
íþróttum og borðtennis. Því er þessi
stuðningur HB ómetanlegur fyrir
íþróttamenn sem með langtíma-
markmiðum búa sig undir þátttöku
á ólympíuleikum fatlaðra.
Samningur HB og ÍF gildir fram
yfir ólympíuleika fatlaðra í Sydney
eða til ársins 2001. Það er ástæða til
þess að hvetja fleiri fyrirtæki til að
gera slíkt hið sama og HB gerði því
fatlaðir íþróttamenn hafa unnið
mörg og stór afrek á undanfórnum
árum og vissulega er rétt að hvetja
þá til enn frekari dáða. -DVÓ
Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri HB hf., og Sveinn Áki Lúövíks-
son, formaöur fþróttasambands fatlaöra, undirrita samstarfs- og styrktar-
samninginn. DV-mynd Daníel
Skálanes, KróksQaröarnesi:
Þekktast fyrir óbarinn harðfisk
DV.Vestfjörðum:
„Það hefur verið verslun hér frá því
vegurinn var lagður hér um 1952.
Kaupfélag Króksfjarðar hefur rekið
þessa verslun frá upphafi. Ég hóf störf
við verslunina 1972 og tók svo við úti-
bússtjórastarfinu af tengdafóður mín-
um 1977 og hef sinnt því síðan," sagði
Katrín Ólafsdóttir, útibússtjóri Kaup-
félags Króksfiarðar í Skálanesi.
Kaupfélag Króksfjarðar hefur frá
upphafi rekið verslunina á Skálanesi,
milli Kollafjarðar og Gufufjarðar.
Fyrsti útibússtjóri verslunarinnar var
Jón Jónsson, bóndi í Skálanesi, sem
sinnti starfmu þar til tengdadóttir
hans tók við.
Verslunin í Skálanesi er einna
þekktust fyrir harðfiskinn sem seldur
er þar óbarinn í heilum strengslum og
lausri vigt. í versluninni er þannig
fiskur kallaður „alvöru harðfiskur".
Allar götur frá opnun verslunarinnar
hefúr verið steinn utandyra til að
berja fiskinn á eftir smekk hvers og
eins og lánar verslunin ferðalöngum
slaghamar til verksins sem er orðinn
slitinn af áralangri þjónustu við við-
skiptavini.
Unga fólkið sem nú leggur land und-
ir fót stoppar líkt og foreldrar og af-
amir og ömmurnar í þessari vinalegu
smáverslun þarna í strjálbýlinu enda
margt annað að fá en harðfisk og
reyktan rauðmaga. Verslunin hefur á
boðstólum allt það sem lítil kaupfélög
geta boðið, auk þess að vera með bens-
ínsölu sem er nú að verða sjaldgæfara
í strjálbýlinu eftir að farið var að
stefna að því að fækka óarðbærum
bensínstöðvum.
„Ég er búin að heyra það allt frá þvi
að ég byrjaði 1972 að til stæði að loka
bensínsölunni hérna svo að ég er
löngu hætt að trúa því. Margt ferða-
fólk sem hefur verið á síðustu bensín-
dropunum þykir hafa himin höndum
tekið þegar það kemur héma enda
langt á milli bensínstöðva. Það er líka
gaman að sjá hvað maður þekkir svip-
mótið á mörgu ungmenninu sem kem-
ur hér við eftir að vera oft búin að sjá
þau koma sem böm með foreldrum
sínum. Verslunin gengur vel, þetta er
þó auðvitað fyrst og fremst sumar-
verslun enda strjálar ferðir hér að
vetrum en maður veit ekki hvað verð-
ur með framtíðina. Það er mokað
hérna hálfsmánaðarlega ef ekki er
mikill snjór.“
-GS
KAlPFliIAG
khóksijarmh
C'TIBU
Hjöruliðskrossar
Viðurkenndir
bílavarahlutir.
60 hyikí
CO-ENZYME
Katrín Olafsdóttir, útibússtjóri Kaupfélags Króksfjaröar í Skálanesi, hefur
undanfarinn aldarfjóröung þjónaö feröamönnum jafnt sem sveitungum sín-
um. DV-mynd GS
Viðvarandi æska
fj^ii
LJheilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, ARtireyri
Subaru Impreza GL '96, ek.
38 þús. km, 5 g., álfelgur,
spoiler, saml., CD. Verð
1.150.000.
MMC Galant GLSi Super
Saloon '91, ek. 112 þús. km,
ssk., rafdr. í öllu, sóllúga,
álfelgur. Verð 870.000.
Toyota Touring GLi '93, ek. 65
þús. km, 5 g., álfelgur, rafdr.
rúður, fjarst. saml., þjófav. Verð
1.080.000.
Land Rover Discovery dísil
'97, ek. 25 þús. km, 5 g. Verð
2.390.000. ATH. skipti.
Toyota Landcruser VX '93, ek.
144 þús. km, ssk., sóllúga,
álfegur, samlæs. Verð 3.300ÚOC
ATH. skipti. Ákv. bílalán. \
NYJA BiLAHOLLIN
\ J