Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1998, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 1998
45
Tryggvi Ólafsson sýnir f Hallgríms-
kirkju.
Málverk
í kirkju
Tryggvi Ólafsson kom í eina af
mörgum ferðum sínum til heima-
lands síns i byrjun júlí og hafði með
sér málverk sem sett voru upp í
Hallgrímskirkju en Tryggvi hefur,
eins og kunnugt er, verið búsettur í
Kaupmannahöfn í nærri 40 ár.
Hann hefur samt oftsinnis sýnt hér
á landi og er skemmst að minnast
sýningar hans i Norræna húsinu í
fyrra. Myndirnar, sem hann sýnir í
Hailgrímskirkju, eru allar málaðar
fyrir þetta ákveðna tilefni. meðal
annars er ein mynd sem nefnist
Flug og má tengja hana við það að
hann kom fljúgandi til landsins.
Sýningin mun gleðja listunnendur
fram á haust.
Sýningar
Ungir myndlistarmenn
í Kringlunni
Á laugardaginn var opnuð í sýn-
ingarrými Kringlunnar og Gallerís
Foldar sýning á útskriftarverkum
tveggja ungra myndlistarmanna,
Höddu Fjólu Reykdal og Helgu
Fanneyjar Jóhannesdóttur. Þær út-
skrifúðust báðar í vor frá grafík-
deild MHÍ og vöktu lokaverkefni
þeirra verðskuldaða athygli fyrir
fáguð og vönduð vinnubrögð og er
hluti þeirra á þessari sýningu. Verk
Höddu eru þrykkt með þurmál og
einþrykki af koparplötu en verk
Helgu eru tölvuprent.
Bubbi á Kaffi Reykjavík:
Sögur
Undanfarin mánudags- og miðvikudagskvöld
hefur Bubbi Morthens haldið tónleika á Kaffi
Reykjavík þar sem hann hefur tekið fyrir eldri
plötur sínar. Hann byrjaði að sjálfsögðu á ís-
bjamarblús og hefúr tekið röðina síðan. Hefur
tónleikaröð þessi vakið verðskuldaða athygli og
flutningur Bubba á klassískum perlum verið
kærkomin upplyfting fyrir aðdáendur hans sem
eru fjölmargir. í kvöld er komið að Sögum af
landi og mun hann flytja lög af þeirri ágætu
plötu ásamt nýju efni. Á miðvikudagskvöld
Skemmtanir
mun Bubbi svo flytja efni af Ég er í bland við
nýtt efni. Tónleikarnir í kvöld og á miðviku-
dagskvöld hefjast kl. 21.30 og er eins gott að
vera tímanlega því uppselt hefur verið á flesta
tónleikana.
Dan og Ken á Gauknum
Lifandi tónlist er sem fyrr í öndvegi á Gauki
á Stöng og í kvöld er það hinn ágæti fiðluleik-
ari Dan Cassidy, sem meðal annars leikur í
hljómsveitinni Pöpum, sem mætir á staðinn
ásamt félaga sínum Ken og munu þeir sjá gest-
um fyrir léttleikandi þjóðlagapoppi.
af landi
Bubbi Morthens heldur áfram aö syngja lög af eldri plötum.
Sums staðar
rigning
Austangola og dálitil súld eða
rigning verður við suðurströndina
Veðrið í dag
en annars hæg breytileg átt, skýjað
og sums staðar rigning vestanlands
þegar líður á daginn. Hiti verður á
bilinu 6 tU 12 stig norðanlands en 9
tU 18 stig sunnan tU.
Veðrið kl. 12 á
hádegi í gær:
Akureyri alskýjaö 10
Akurnes alskýjaó 10
Bergstaöir alskýjaö 7
Bolungarvík rigning 5
Egilsstaöir 11
Kirkjubœjarkl. rign. og súld 10
Keflavíkurflugvöllur skýjaö 10
Raufarhöfn skýjaö 8
Reykjavík úrkoma í grennd 10
Stórhöföi skýjaö 9
Bergen rigning 14
Helsinki hálfskýjaö 20
Kaupmannahöfn skýjaö 19
Osló alskýjaö 16
Stokkhólmur 15
Algarve heiöskírt 28
Amsterdam skýjaö 20
Barcelona mistur 29
Dublin skúr á síö.kls. 16
Halifax súld 19
Frankfurt skýjaö 24
Hamborg skýjaö 19
Jan Mayen þoka í grennd 7
London skýjaó 20
Luxembourg skýjaó 22
Mallorca heiöskírt 31
Montreal léttskýjað 16
New York hálfskýjaö 24
Nuuk þoka í grennd 5
Orlando heiöskírt 26
París skýjaö 24
Róm heiöskírt 30
Vín skýjaö 25
Washington skýjaö 23
Winnipeg heiöskírt 9
Gullfoss og gljúfrið
Flestir láta sér nægja að ganga niður að
Gullfossi og upp á brúnina en varla er það
nægjanlegt ef menn vUja kynnast um-
hverfmu. Helst þarf að ganga aðeins upp
með ánni á vesturbrúninni og svo niður
með gljúfrinu niður undir Brattholt. í leið-
inni er hvammurinn Pjaxi sem fært er í.
Umhverfi
Þó er ekki fyrir aUa að komast þar niður
og upp aftur. Vegalengdir eru ekki miklar
en gott er að eyða þama 3-4 tímum í að
skoða vel þær náttúrugersemar sem þarna
eru.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir Einar
Þ. Guðjohnsen.
Berglind Rós
eignast
Á myndinni má sjá
tvær systur, sú eldri, sem
passar vel upp á systur
sína, heitir Berglind Rós
og er tveggja ára. Litla
systir, sem fengið hefur
Barn dagsins
systur
nafnið Tinna Karen,
fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 3. júní síð-
astliðinn. Hún var við
fæðingu 3655 grömm að
þyngd og mældist 50
sentímetra löng. Foreldr-
ar systranna eru Leifur
Heiðarsson og Harpa Þor-
geirsdóttir.
Jennlfer Anlston lelkur unga stúlku
sem kýs frekar að búa meö homma en
barnsfööur sínum.
Óvenjulegt sambýli
Regnboginn sýnir rómantisku
gamanmyndina The Object of my Af-
fection. Leikstjóri hennar er
Nicholas Hytner sem leikstýrði
myndinni The Madness of King Ge-
orge. Jennifer Aniston leikur aðal-
hlutverkið, rómantíska stúlku sem
hefur eigin skoöanir á lífinu. Paul
Rudd leikur hommann George Han-
son sem Nina býður að búa í her-
bergi í íbúð sinni þegar sambandi
hans og sambýlismanns hans lýkur.
Þeim kemur vel saman og má
hkja sambúðinni við
ekta hjónaband - ef
Kvikmyndir
kynlífið er undanskilið,
Samband þeirra fer í
taugarnar á kærasta Ninu, lögfræð-
ingnum Vince, og honum verður
um og ó þegar hún tilkynnir honum
að hún sé ófrísk og ætli að ala bam-
ið upp með sambýlismanni sínum,
George.
Fyrir utan Jennifer Aniston og
Paul Rudd má nefna að Nigel Hawt-
home leikur í myndinni en hann
fékk óskarstilnefningu fyrir leik
sinn í The Madness of King George.
Nýjar kvikmyndir:
Bíóhöllin: Armageddon
Bioborgin: Six Days, Seven Nights
Háskólabíó: Blúsbræöur 2000
Kringlubió: Borg englanna
Laugarásbíó: Mercury Rising
Regnboginn: Mimic
Stjörnubíó: Skotmarkið
Krossgátan
Lárétt: 1 ýlfur, 8 mark, 9 afl, 10 spil,
11 deila, 13 bardagi, 14 fugl, 15 eyri,
16 inn, 18 drabb, 20 eyða, 21 fisk, 22
hræddir.
Lóðrétt: 1 litlar, 2 grein, 3 skel, 4 átt,
5 rugling, 6 keyrði, 7 bæta, 12 argi,
14 ákafar, 17 lík, 18 dreifa, 19 þyngd.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 hvöt, 5 bás, 8 víl, 9 rask, 10
er, 11 varla, 13 raust, 15 óp, 16 fæð, 18
síga, 20 ilma, 22 nam, 23 hamra, 24 ei.
Lóðrétt: 1 hverfi, 2 víra, 3 ölvuð, 4 A—
trassar, 5 bar, 6 ás, 7 skap, 12 lóga, 14
tína, 17 æla, 19 ami, 21 mm.
Gengið
Almennt gengi Ll 24. 07. 1998 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 71,100 71,460 72,170
Pund 117,460 118,060 120,320
Kan. dollar 47,510 47,810 49,120
Dönsk kr. 10,4560 10,5120 10,4610
Norsk kr 9,4000 9,4520 9,3900
Sænsk kr. 8,9710 9,0210 9,0420
Fi. mark 13,1020 13,1800 13,1120
Fra. franki 11,8800 11,9480 11,8860
Belg. franki 1,9312 1,9428 1,9325
Sviss. franki 47,3200 47,5800 47,3300
Holl. gyllini 35,3300 35,5300 35,3600
Þýskt mark 39,8500 40,0500 39,8500
ít. líra 0,040280 0,04053 0,040460
Aust. sch. 5,6600 5,6960 5,6660
Port. escudo 0,3892 0,3916 0,3894
Spá. peseti 0,4690 0,4720 0,4694
Jap. yen 0,505200 0,50820 0,508000
írskt pund 100,090 100,710 100,310
SDR 94,850000 95,42000 95,910000
ECU 78,6300 79,1100 78,9700
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270