Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 2
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 DV
Vesturfarasetrið á Hofsósi í kröggum:
Milljónatugi vantar
- svo reksturinn komist á sléttan sjó, segir framkvæmdastjórinn
„í sumum efnum gengur rekstur
Vesturfarasetursins ágætlega. í öðr-
um mætti hann ganga betur,“ segir
Valgeir Þorvaldsson, bóndi að Vatni
og frumkvöðuil Vesturfarasetursins
á Hofsósi í Skagafirði, í samtab við
DV. Hann segir að rekstur Vestur-
farasetursins sé mjög erfiður vegna
skulda og nánast ómögulegt að reka
það áfram við þær aðstæður að allar
tekjur þess fari í fjármagnskostnað.
„Við erum að fást við ailt of þungan
bagga vegna uppbyggingarinnar,“
segir Valgeir. Hann telur að setrið
hafi kostað alls um 60 milljón krónur
í heildina, en 20-30 miiljónir króna
vanti til að reksturinn komist á slétt-
an sjó.
Vesturfarasetrið er í eigu hlutafé-
lagsins Snorra Þorfinnssonar ehf., en
meðal eigenda þess eru ýmis þekkt
fyrirtæki, svo sem Sjóvá-Almennar,
Kassagerð Reykjavíkur, Skeljungur
og fleiri.
Valgeir er framkvæmdastjóri Vest-
urfarasetursins og segir hann að
þrátt fyrir mjög góða aðsókn og góð-
ar viðtökur gesta, þá sé framtíð set-
ursins ótrygg og stór hluti af starfi
hans felist í því að semja við lánar-
drottna í þeirri von að fleiri aðilar
komi að því að styrkja það. „Það var
ailtaf hugmyndin frá upphafi að þeir
aðilar sem stýra fjármagni í landinu
tækju á málum með okkur. Það hef-
ur tekist að nokkru leyti en það vant-
ar bara fleiri," segir hann. Hann tel-
ur að framtíð setursins velti á því að
fleiri styrktaraðilar komi að málinu
og leggi því fé. Aðsóknin hafi verið
góð í sumar og um 5-6 þúsund
manns komiö í heimsókn en fúllur
aðgangseyrir er 350 krónur. „Hver
einasti maður sem komið hefur hér
inn er ánægður með það starf sem
hér er unnið. Ég held að það yrði
mikið tjón ef við neyddumst til að
loka,“ sagði Valgeir Þorvaldsson.-SÁ
Guðrún Karlsdóttir og barnabarn
hennar, Friðrik Þór Ólason, sem bund-
inn er hjólastól. DV-mynd S
Vagnstjóri hjá SVR:
Neitaði að aðstoða
- sagði okkur að taka leigubíl, segir Guðrún Karlsdóttir
„Drengurinn, sem er bamabam
mitt, er oft hjá mér uppi í Gaukshól-
um. Hann var þar í gær en eftir hádeg-
ið þurftum við saman í bæinn og ætl-
uðum að taka strætisvagn nr. 12 eins
og svo oft áður. Það er stundum nokk-
uð erfitt að koma hjólastólnum upp í
vagnana og vagnstjóramir hafa alltaf
aðstoðað mig við að lyfta hjólastólnum
upp í vagninn. Vagnstjórinn sem ók
hins vegar vagni nr. 12 kl. sjö mínútur
gengin í tvö í gær neitaði hins vegar
aðstoð sinni og sagði að við ættum
frekar að taka leigubíl en að vera að
ferðast i strætó," segir Guðrún Karls-
dóttir prentsmiður, amma Friðriks
Þórs Ólasonar, fjórtán ára fatlaðs
drengs sem bundinn er við hjólastól.
„Ég get ekki annað en sagt frá þessu
því að mér fmnst þetta vera svo gróf og
ruddaleg framkoma af hálfú vagnstjór-
ans að það taki ekki nokkm tali,“ seg-
ir Guðrún. „Ég veit að bílstjóramir
eiga að hjálpa fólki sem er með bama-
vagna inn í vagnana og ég held að þeir
hljóti að geta hjálpað fótluðum á sama
hátt líka. Þeir hafa alltaf gert það áður
og tekið á móti okkur meö hjálpsemi.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég verð fyrir
svona viðmóti frá vagnstjóra," segir
Friðrik Þór Ólason við DV.
Ekki náðist í Lilju Ólafsdóttur, for-
sfjóra SVR, en Hörður Gíslason, að-
stoðarmaður hennar, sagði að megin-
reglan væri sú að SVR flytti ekki hjóla-
stóla, heldur ræki sérstaka þjónustu á
þessu sviði fyrir borgina, Ferðaþjón-
ustu fatlaðra. Rök fyrir því að taka
ekki hjólastóla í strætisvagna væm
þau helst að erfitt væri að koma hjóla-
stólum inn í vagnana, þá verði að festa
í bílinn. Sé einstaklingur í hjólastól
einn á ferð sé auk þess spuming um
ábyrgð á því að skilja hann eftir á
áfangastað í misjöfnu tíðarfari og við
misjafnar aðstæður.
Nú flytja strætisvagnar böm í bama-
vögnum. Spurður um muninn á því að
flytja bam í bamavagni í fylgd fúllorð-
ins eða bam í hjólastól í fylgd fullorðins
sagði Hörður það vera erfiða spumingu
og vitnaði aftur til þeirrar reglu SVR
sem hann sagði vera meginreglu, að fyr-
irtækið flytti ekki hjólastóla. -SÁ
Bókmenntaverðlaun Tómasar:
Borgin bak við
orðin verðlaunuð
Bjarni Bjarnason rithöfundur tekur hér við verðlaununum úr hendi
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. DV-mynd Teitur
í gær vom afhent bókmenntaverð-
laun Tómasar Guðmundssonar í þriðja
sinn. Alls bárust 33 handrit í sam-
keppnina; skáldsögur, smásögur, leik-
rit og ljóð. Dómnefnd um verðlaunin,
sem skipuð var Soffiu Auði Birgisdótt-
ur bókmenntafræðingi, Steinunni Jó-
hannesdóttur rithöfúndi og Helga Ing-
ólfssyni rithöfundi, var sammála um
að óvenjumikið hefði borist af góðum
handritum og hefði hún gjaman viljað
verðlauna fleiri en eitt handrit. Það
var þó skáldsaga Bjama Bjamasonar,
Borgin bak við orðin, sem hreppti
verðlaunin að þessu sinni. í yfírlýs-
ingu frá dómnefnd kemur ffarn að sag-
an sé „sérstæð og bæði áleitin og
spennandi". En það sem sérlega vakti
aðdáun dómnefndar var „hinn vandaði
og persónulegi stíll sem einkennir alla
ffásögnina."
Bjami Bjamason hefur áður getið
sér gott orð á sviði skáldskaparins og
skemmst er að minnast skáldsögu
hans, Endurkomu Maríu, sem kom út
árið 1996 og var tilnefhd til íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
Bjami hlaut 300.000 krónur í verð-
laun og hann hefur þegar gert samning
við Vöku-Helgafell um útgáfú bókar-
innar. -ÞHS
Taívanska sendinefndin vill meiri viðskipti við ísland:
Viljum kaupa hrogn, kavíar og lýsi
DV, Vestnrlandi:
Taívanska sendinefndin,
sem hefur verið stödd hér
á landi undanfama daga,
heimsótti útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akra-
nesi í gær en afurð eins
frystitogara fyrirtækisins
er flutt til Taívans. Sendi-
nefndin heimsótti einnig
matvælafyrirtækið ís-
lenskt-franskt eldhús og
smakkaði á framleiðslu fyrirtækis-
ins en að því búnu fór hún til
Stykkishólms og skoðaði sjávarút-
vegsfyrirtækið Sigurð Ágústsson hf.
DV náði tali af Yung-Teh Lin,
deildarstjóra i sjávarútvegsdeild
landbúnaðarráðuneytisins í Taívan,
sem var að vonum ánægður með
dvölina á íslandi. „Þið ís-
lendingar hafið töluvert af
náttúrulegum auölindum í
fiski og fiskiðnaður ykkar
er mjög þróaður. Við höf-
um skoðað mikið af fyrir-
tækjum og okkur hefur lit-
ist vel á það sem þið hafið
að bjóða. Nú þegar kaupum
við af ykkur grálúðu og
loðnu og við höfum skoðað
þau fyrirtæki sem eru með
þá framleiðslu. Af öðrum
vörum sem við höfum
áhuga á eru hrogn, kavíar og þá
erum við spenntir fyrir lýsi. Eins
höfum við verið að leita að skurðar-
vélum. Við höfum ekki séð skurðar-
vélar sem henta okkur, við skerum
fiskinn ekki beint heldur á ská en ef
svoleiðis vélar væru til staðar þá
myndum viö kaupa þær. Þá höfum
Yung-Teh Lin, deild-
arstjóri í landbún-
aðarráðuneyti Taív-
Taívanska sendinefndin í húsnæöi HB hf. DV-mynd Daníel
við áhuga á að kaupa flskiker.
Það sem þið þurfið helst að huga
að er gæði og verð sem er mjög mik-
ilvægt. Heimsóknin hefur verið góð
og ég vonast til þess að við getum
aukið viðskiptin við ísland. Taívan-
ar geta aftur á móti selt íslending-
um beint alls kyns tækjabúnað sem
í dag er fluttur frá okkur t.d. til
Bandaríkjanna og annarra landa og
svo seldur hingað til lands. Þá get
ég nefnt til dæmis tölvubúnað og
alls kyns tækjabúnað," sagði Yung-
Teh Lin. -DVÓ
stuttar fréttir
Sótt í bankabréf
Hlutabréf í ís-
landsbanka
hækkuðu um
12,6% í átta
viöskiptum í
gærmorgun
fyrir alls 6,9
milljónir
króna. Svo
virðist sem fjárfestar hafi trú á að
samningar takist milli íslands-
banka og ríkisstjómarinnar um
kaup bankans á öllu hlutafé Búnað-
arbanka íslands hf. Viðskiptavefúr
Vísis sagði frá.
Maöur slasast í bílveltu
Maður var fluttur lítiUega
meiddur á slysadeUd eftir bQveltu
á mótum Hringbrautar og Njarðar-
götu í hádeginu. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í Reykjavík
eru tUdrög slyssins óljós en bUinn
þurfti að draga í burtu með krana-
bU.
Afskrifar hlutafé
Vegna erfiðleika í upphafi
rekstrar hefur stjóm Lyfjaverslun-
ar íslands hf. ákveðið að byija að
afski'ifa hlutafiáreign sína í lit-
háska fyrirtækinu Dsanta UAB á
þessu ári, verði ekki horfúr á arö-
bærum rekstri tU framtíðar hjá því
í árslok. Bókfært verð eignarhlutar
Lyfjaverslunar tslands hf. í Dsanta
UAB er nú 136 mUljónir króna sem
er 25,91% hlutafjár í félaginu.
Morgunblaðið sagði frá
Tjaldað á bílastæöi
Útlendingar sem gist höfðu á
tjaldsvæðinu í Laugardal tóku sig
þaðan upp á fóstudagsnótt og fluttu
á efra bUastæði Kringlunnar þar
sem lögregla hafði afskipti af þeim.
Jaröboranir í gróða
Hagnaður Jarðborana á fyrstu sex
mánuðum ársins var 33,6 milljónir
en var á sama tíma í fyrra 30,6 millj-
ónir. HeUdarveltan fyrstu sex mán- '
uðina var 264,5 miUjónir og jókst um
22%. Viðskiptavefur Vísis sagði frá.
Skuldabréfaútboö
Landsbanki
íslands mun sjá
um skuldabréfa-
útboð Samherja
fyrir hálfan
mUIjarð króna.
Bankinn sölu-
tryggir sölu
skuldabréfanna
og verður sótt um skráningu á VL
Samheiji mun nota fjármagnið tU að
fjármagna kaup á 49,5% eignarhlut í
Deutsche Fischfang Union GmbH.
Kafbátur
Kanadískur kafbátur lagðist
við Faxagarð í gær. Áhöfn hans
tekur þátt í fjölþjóða NATO-æf-
ingu og verður hér á landi í fjóra
daga. Vísir sagði frá.
Hagnaður
Afkoma Tanga hf. á Vopna-
firði batnaöi á fýrstu sex mánuð-
um ársins 1998 miðað viö fyrstu
6 mánuði ársins 1997. Hagnaður
fyrstu sex mánuði 1998 nam 85,3
milljónum króna en 49,5 mUIj-
óna króna hagnaður varð af
rekstrinum fyrstu 6 mánuöi árs-
ins 1997.
Fær námsstyrk
Þorsteinn
Pálsson sjávar-
útvegsráð-
herra afhenti í
gær tveimur
námsmönnum
styrki tfi fram-
haldsnáms.
Hærri styrkur-
inn, 750 þúsund krónur, var
veittur Ólöfu Ýrr Atladóttur sem
er í meistaranámi í Bretlandi.
Myndarugl
Þau leiðu mistök urðu í DV í
gær að birt var röng mynd með
frétt um nýja brú yfir öxará við
ValhöU. Myndin sýnir hins vegar
tölvuteikningu af tveimur fyrir-
hugðum göngubrúm, yfir Öxará
við Almannagjá. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
SÁ/JHÞ/RR