Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 4
4 fréttir LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 J3'V Yfirdýralæknir ráðleggur Norðlendingum nánast að vakta folaldsmerar: stuttar fréttir Lækning komi skjótt - ef þær veikjast, annars fer illa - fyrirbyggjandi að láta hrossin drekka „Á meðan sóttin gengur yflr þarna fyrir norðan verður að auka eftirlit þar með hrossum. Það þarf að fylgjast mjög vel með merum sem eru kastaðar. í raun að vaka yfir þeim dag og nótt eins og nýbornum ám. Ef þær verða klumsa vegna hitasóttarinnar á að hafa samband við dýralækni strax. Það er lækning við sóttinni en hún þarf að koma skjótt. Ann- ars getur farið illa,“ sagði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir við DV um hitasóttina sem nú herjar illa á folaldsmerar í Húnavatns- sýslum og víðar á Norðurlandi. í kjölfar fréttar DV í vikunni um a.m.k. 30 dauðar folaldsmerar í A-Húnavatnssýslu, þar af sex á einum bæ, ræddi Halldór við dýralækna nyrðra. „Þetta er óskemmtilegt. En þetta er eins og vitað var að mjólkandi merar gætu farið verst út úr hitasótt- inni,“ sagði Halldór. „Við vorum búnir að vara við þessu. Það er „Það er lækning við sóttinni en hún þarf að koma skjótt," sagði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir um hitasóttina sem nú herjar illa á folaldsmer- ar í Húnavatnssýslum og víðar á Norðurlandi. DV-mynd Birgir mikilvægt að fylgjast með hross- unum sem allra best. Það er mjög fyrirbyggjandi at- riði að hrossin fái nóg af vatni. Þau þurfa að drekka mjög mikið. Þegar hrossin fá sóttina stífna þau upp, það lokast á þeim kjaft- urinn og þau geta hvorki drukkið né étið. Þá þarf að koma kalki í hrossin - vatnið og AB-mjólk eru fyrir- byggjandi aðgerðir. Sýklalyf hafa hins vegar ekkert að segja í þenn- an vírus sem aðra nema önnur veiki sé komin með hitasóttinni,“ sagði Halldór. Hann sagði að þótt sóttin virð- ist leggjast verr í hross fyrir norð- an en hún gerði þegar hún geisaði sunnanlands þá sé ekki um það að ræða að hitasóttarvírusinn sé að breyta sér. „Menn vissu fyrir- fram að sóttin gæti lagst verst í folaldsmerar," sagði yfirdýra- læknir. -Ótt Útflutningur til nokkurra Asíulanda - flskur sem hlutfall af heildarútflutningi er sýndur sem % - íslendinpr eiga í vaxandi mæli viöskipti við Asíuþjóðir: Utflutningur til Taívans og Kína eykst mikið Úflutningur á fiskafurðum til Taí- vans hefúr aukist jafnt og þétt á síð- ustu þremur árum eftir því sem fram kemur í skýrslu Hagstofu íslands um útflutning Islendinga. Árið 1995 var flutt út fyrir 1858 milljónir, árið 1996 fyrir 1972 milljónir og á síðasta ári nam útflutningur alls 2041 milljóna króna. Er fiskur langstærsti hluti alls útflutningsins, eða 99,1 prósent. Búist er viö að útflutningur komi til með að aukast jafnt og þétt á næstu árum, ekki síst eftir komu taívönsku sendi- nefndarinnar hingað til lands og vænt- anlega fór íslenskrar viðskiptasendi- nefhdar til Taívans í lok október. Vit- að er að Taívanar hafa mikinn áhuga á íslenskum sjávarafurðum og ekki síst tölvuhugbúnaði tengdum sjávarút- vegi. Útflutningur til Japans hefur dregist nokkuð saman frá árinu 1995 en þá nam hann 13.232 mifljónum. Hann fór svo niður í 12.369 mifljónir árið 1996 og svo afla leið niður í 8.696 á síðasta ári. Mikil samkeppni er á fisk- markaðnum á heimsvísu og er talið að sífellt fleiri sæki inn á Japansmarkað. Skýrir það hina miklu lækkun á þessu markaði. Úflutningur hefúr verið að aukast til Kina jafnt og þétt síðustu ár, aílt frá 164 milljónum árið 1995 upp í 526 milljónir árið 1997. Skv. heimildum DV hefur svo enn frekari aukning orð- ið á útflutningi til Kína fyrri hluta þessa árs. íslensk sendinefnd mun einnig heimsækja Kína í lok október. Aðallega er um að ræða sölu á rækju og loðnu. íslensk fyrirtæki hafa ekki átt í miklum viðskiptum við Kóreuog hafa þau farið minnkandi síðustu ár og eru ekki bundnar mikl- ar vonir við þann markað. -hb Taívanska sendinefndin fyrir framan höfuðstöðvar ísienskra sjávarafurða. Mikill áhugi er hjá Taívönunum á frekari viðskiptum við ísland. DV-mynd S. Apple-umboðið hf.: Var metið á 50 milljónir Samkvæmt heimildum DV mátu eigendur Apple-umboðsins við- skiptavild fyrirtækis síns upp á rúmlega 50 milljónir króna í upp- hafi samningaumleitana ACO hf. um kaup eða samruna fyrirtækj- anna. Bjami Ákason, framkvæmda- stjóri ACO, vildi í morgun hvorki staðfesta né afneita þessari tölu. Eins og fram hefur komið tókust samningar ekki og málinu lyktaði þannig aö ACO fékk umboðið beint frá Evrópudeild Apple en Apple-um- boðið hf. hefur veriö lýst gjaldþrota ásamt Radíóbúðinni og Bónus rad- íói sem eru í eigu sömu aðila. Fyrsta Apple-tölvusendingin til ACO kom til landsins með flugi í nótt og er væntanleg í verslun fyrir- tækisins nú í dag. Bjami segir að viðbrögð Apple-Macintosh-eigenda við nýjum umboðsaðila Apple hafl verið mjög sterk og jákvæð og fólk hafl greinilega beðið hinnar nýju tölvulínu með mikilli eftirvænt- ingu. -SÁ Hagyrðingamót á Seyðisfirði DV, Seyöisfirði: Hið árlega landsmót hagyrðinga verður haldið í Herðubreið á Seyðis- flrði 15. ágúst nk. Nafnkunnir hag- yrðingar víðs vegar af landinu munu kveða hver annan í kútinn svo stíft að menn munu vart vatni halda. Hákon Aðalsteinsson verður veislustjóri og sýndi hann fram- kvæmdastjóram Á Seyði hvemig vemir menn snara fram vísu án þess að roðna hið minnsta og fær hún að fljóta með. Gamla kroppinn gleddi mest glaður mjög ég yröi ef ég gœti faðmaó flest fljóð á Seyðisfirói. Árni Mathiesen: Ein af mörgum hugmyndum „Þessi hugmynd er ein af mörgum sem hafa verið ræddar. Ég útiloka hana ekki. Ég veit ekki hversu lík- leg hún er en ákvörðun verður tek- in í samhengi við aðrar ákvarðanir varðandi sölu á bönkunum. Meira er ekki hægt að segja um þetta mál að svo stöddu," segir Ámi Mathiesen alþingismaður aðspurður um kaup íslandsbanka á Búnaðar- bankanum. -RR Búist er við að um eða yfir 200 manns komi á mótið. 1 boði verður 28 rétta hlaðborð, söngur, glens og grín að hætti Seyðfirðinga en Vík- ingasveitin frá Hafnarfirði mun sjá um danstónlistina, Fjöimargar listsýningar era víða um Seyðisfjaröarkaupstaö en þeim lýkur 16. ágúst. Dagana 15. og 16. ágúst verður aukasýning á þríviðum verkum leikskólabarna á Austurlandi sem unnin era úr mjölpokum, fiskiköss- um og umbúðum utan af neysluvör- um heimilanna. Verkin voru send inn til sýningar á menningardegi barna. Þátttakendur vora frá leik- skólanum Hádegishöfða í Fellabæ, Sólvöllum á Seyðisfirði og leikskól- anum á Djúpavogi. Ný stjórn ísiandspósts Bjöm Jósef Amviðarson, sýslumaður á Akureyri, er orðinn stjómar- formaður ís- landspósts hf., en Jenný Stefan- ía Jensdóttir, fráfarandi formaður, hefur látið af setu í stjóminni að eigin ósk þar sem hún er að flytjast úr landi. Jón Ásbergsson framkvæmda- stjóri hefur tekið sæti í stjóm fyr- irtækisins. Hross með Norrænu Tuttugu og fjögm- hross vom flutt út með ferjunni Norrænu sl. fimmtudagsmorgun. Flest hafa ver- ið seld til Danmerkur en nokkur fara til Þýskalands. Hrossin vom öll í 10 daga í sóttkví vegna hrossasótt- arinnar. Bylgjan sagði frá 22,5 milljóna gróði Hagnaður af rekstri Lyfiaversl- unar íslands hf. var 22,5 mifljónir króna á iyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt árshlutareikningi 30. júní 1998. Það er í samræmi við rekstraráætlun ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 24,4 millj- ónum. Morgunblaðið sagði frá. Gleraugu á Esjuna Stefán Geir Karlsson myndhst- armaður hefur sótt um styrk til þess að setja risastór gleraugu á Esjuna. Tilefnið er að Reykjavík verðm' ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Tilboðið gott í Morgun- komi Fjárfest- ingarbanka at- vinnulifsins segir að í fljótu bragði virðist kauptilboð ís- landsbanka í Búnaðarbanka vera nokkuð gott. íslandsbanki bjóði verð sem samsvari 1,82 sinn- um bókfært eigið fe. Bankastjóri Fjárfestingarbankans er Bjami Ár- mannsson. Heimboð bænda Bændur á 24 bæjum viðs vegar um landið bjóða heim öllum sem koma vilja til þeirra á sunnudag- inn kl. 13-20. Þetta er fimmta sum- arið sem shkt heimboð stendur. Þaö er hugsað til þess að gefa þétt- býlisbúum innsýn í búrekstur og sveitalíf, segir í frétt frá Upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins. Breytingar í New York Flugleiðir verða að flytja af- greiðslu sína á Kennedyflugvehi í New York á næstunni. Verið er að breyta hús- inu þar sem hún er nú. TO boða stendur að vera þar áfram eða að semja við annað flugfélag um að taka við afgreiðslunni. Rætt hefur verið við flugfélög um það, m.a. British Airways, að sögn Einars Sigurðssonar framkvæmdastjóra við viðskiptavef Vísis. 270 stöðvaðir Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 270 ökumenn í umferöarátaki sem stóð frá klukkan 01.30 til klukkan 03.00 í nótt. Fimm ökumenn reynd- ust ökuskírteinislausir, einn var staðinn að því að aka gegn rauðu Ijósi og þrír voru grunaðir um ölv- un við akstur. Einn þeirra mældist undir leyfflegum mörkum en ákæra verður gefin út á hendur hinum tveimur. Kolrassa í Manchester íslenska hijómsveitin Bellatrix, sem margir þekkja undir nafhinu Kolrassa krókríðandi, mun á næst- unni spha á tónlistarráðstefiiunni In the City sem haldin er árlega í Manchester í Englandi. Sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Beha- trix hafa sveitir eins og Oasis, Elastica og Kula Shaker vakið fyrst á sér athygli á In the City-ráð- stefnunni í Manchester. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.