Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 6 Útlönd stuttar fréttir Dökk útlit Grænfriöungar draga upp held- ur dökka mynd af ástandi um- hverfismála áriö 2000. Þeir segja að 25 þúsund tegundir plantna og dýra gætu þá heyrt sögunni til, ef ekkert verður að gert. Fjölmenni hjá Castro Fidel Castro Kúbuleiðtogi hélt upp á 72 ára afmælið sitt á fimmtudag. Sama dag birtu stjómvöld í landinu töiur yfir fjölda ferðamanna sem sækja landið heim. Skemmst er frá því að segja að þar gengur allt eins og í lygasögu því fyrstu sjö mánuði ársins komu þangað meira en 800 þús- und ferðamenn. Vegaræningjar teknir Lögreglan í Lyon í Frakklandi hefur handtekið átta unga menn sem grunaðir eru um að hafa ráð- ist á og rænt ökumenn á af- skekktum þjóðvegum. Þá eru þeir grunaðir um að hafa nauðgað konu á sjötugsaldri. Kratar með forustuna Þýskir jafnaðarmenn hafa enn forskot á flokk Kohls kanslara samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum. Margir kjósendur hafa þó ekki enn gert upp við sig hverj- um þeir greiða atkvæöi sitt í kosningunum í næsta mánuði. Fleiri dráp í Alsír Sextán óbreyttir borgarar í Al- sír féllu í árásum skæruliða bók- stafstrúarmanna í fyrrinótt, að sögn opinberu alsírsku fréttastof- unnar APS. Kannski á laugardögum Svo kann að fara að áfengis- verslanir í Svíþjóð verði opnar á laugardögum, ef félagsmálaráð- herrann fær einhverju ráðið. Sænska „ríkiö" hefur verið lokað á laugardögum i sextán ár. Kabila fær rafmagn Lifiö i Kinshasa, höfuðborg lýð- veldisins Kongó, þriðja stærsta lands Afriku, komst í samt lag aftur í gær eftir tæplega sólarhrings raf- magnsleysi. Uppreisnar- mönnum sem berjast gegn Laurent Kabila forseta er kennt um aö hafa valdið rafmagnsleysinu. Forsetar í símanum Clinton Bandaríkjaforseti og Jeltsín Rússlandsforseti ræddust lengi við í síma í gær. Clinton hvatti starfsbróður sinn til að taka ærlega til hendinni á næstu dögum svo koma mætti rúss- nesku efnahagslífi í samt lag. Danmörk: Hægir á góðærinu Heldur hefur verið að draga úr uppsveiflu undanfarinna ára í dönsku efnahagslífi. Það er einkum útflutningsiðnaður Dana sem hefur fengið að kenna á efnahagskrepp- unni í Asíu. Þá hefur launaskrið í dönsku atvinnulífi einnig verið meira en í samkeppnislöndunum, það rýrir samkeppnisstöðuna. Þetta má lesa út úr hálfsárs milliuppgjöri og efnahagsspám danskra banka og hagsmunasamtaka. Samtök iðnað- arins í Danmörku spá því að áfram muni draga úr hagvexti á þessu ári og því næsta og hann verði 2-2,5% á ársgrundvelli. Ríkisstjórnin er heldur bjart- sýnni í efnahagsspám sínum en iðn- aðargeirinn. Spámenn hennar reikna með því að hagvöxtur verði 2,5%. Enn bjartsýnni eru samtök launþega sem telja aö hann verði minnst 3,1%. -SÁ Clinton undir feld vegna Lewinsky-málsins: Ihugar að viður- kenna náin kynni Bill Clinton Bandaríkjaforseti íhugar nú hvort hann eigi að viður- kenna einhvers konar náin kynni við Monicu Lewinsky þegar hann ber vitni fyrir ákærukviðdómi á mánudag. Þetta kom fram í blaðinu New York Times í gær. Heimildarmenn sem standa nærri forsetanum sögðu sjónvarps- stöðinni NBC í gær að helstu ráð- gjafar Clintons væru flestir að komast á þá skoðun að forsetinn ætti að viðurkenna einhvers konar samband viö Lewinsky. Forsetinn hefur hins vegar ekki enn ákveðið sig. Clinton sagði í vitnisburði vegna málsins sem Paula Jones höfðaði gegn honum fyrir kynferðislega áreitni að hann hefði ekki átt í kyn- ferðislegu sambandi við Lewinsky. Sá framburður byggðist á tiltekinni skilgreiningu dómarans á hvað kynferðislegt samband væri. Að sögn New York Times telja ráðgjaf- ar forsetans að sú skilgreining nái ekki yfir ýmsar athafnir, svo sem munnmök. Því gæti forsetinn hald- ið fast við fyrri orð sín. Heimildarmaður úr herbúðum Lewinsky sagði NBC að það gæti haft öfugar afleiðingar miðað við það sem ætlað var. Embættismenn í Hvíta húsinu vildu ekkert tjá sig um fréttir þess- ar í gær. „Það verða miklar vangaveltur þangað til á mánudag og við mun- um ekkert tjá okkur um þær,“ sagði embættismaður við frétta- mann Reuters. Ráðgjafar forsetans eru á einu máli um að hann eigi að ávarpa þjóðina og segja henni allt af létta eftir framburð sinn á mánudag þar sem vitnisburði hans yrði ein- hvem veginn lekið út til fjölmiðla. Flestir Bandaríkjamenn mundu ekki missa trúna á forsetann þótt hann viðurkenndi að hafa haft kynmök við Lewinsky, að því er kemur fram í skoðanakönnun CNN. Á meöan íslendingar hafa þurft aö dúöa sig eins og aö hausti nú síöustu daga hafa ítalskir sóldýrkendur brugöiö á leik á baöströndum landsins. Þessi mynd var tekin á ströndinni viö borgina Ravenna. Almennur frídagur var á ítal- iu í gær og því margt um manninn viö sjóinn. Á ítölskum baöströndum tíökast sá siöur aö gusa vatni yfir náungann honum aö óvörum og þaö fékk þessi unga og föngulega kona aö reyna. Henni varö sjálfsagt ekki meint af. Dómstóll í Burma sneri við blaðinu: Útlendingar reknir úr landi Dómstóll í Burma sneri heldur betur við blaðinu í gær þegar hann leysti átján útlendinga úr haldi skömmu eftir að mennirnir höfðu verið dæmdir til fimm ára fangelsis- vistar fyrir að dreifa áróðursritum fyrir lýðræðissinna í höfuðborginni Rangoon. Sjónarvottar sögðu aö dómstóln- um hefði borist bréf frá innanríkis- ráðuneyti Burma um að fangarnir skyldu látnir lausir. „Þeim var sleppt til að stuðla að góðum samskiptum Burma og land- anna sem tengdust málinu," sagði sjónarvottur. Skilyrði fyrir lausn fanganna var að þeir brytu ekki aftur af sér. Gerðu þeir það þyrftu þeir að taka út fulla refsingu. Sendiráðum við- komandi var falið að flytja mennina úr landi á sunnudag. Aðstandendur átjánmenninganna lýstu yfir ánægju sinni með lausn þeirra. Lýðræðissinninn og stjómarand- stöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi hefur setið í bifreið sinni ffá því á miðvikudag þegar herinn meinaði henni aö heimsækja stuðningsmenn sína úti á landi. Hún hefur nú feng- ið sólhlífar, garðstóla og tímarit sér til hægindaauka. m Kauphallir og vöruverð erlendis ; New York Loncion Frankfurt Tokyo Hong Kong 9000 8500 ^ 8459,50 FT-8E100 6000 DAX40 Nlkkel 180 HangSong - j ■' 4000 170 ~ 6300 5500 'o 160 Va 15000 m Dow Jonet M J J A 5000 «• | jqqq4H 5507,3 2000 5458,22 150 '^vSÍ/ » 140 15“3’93 W M J J A v-=55’—a 7224,69 M J J Á M J j‘ A A ] Karl Bretaprins segist sakna hennar Geri Karl Bretaprins skrifaði Geri Halliwell hjartnæmt bréf þegar i hún yfirgaf kvennasveitina frægu Kryddpí- urnar og sagð- ist mundu sakna hennar, að því er breska blaðið Mirror skýrði | frá í gær. „Kæra Geri. Ég vildi bara skrifa þér fáeinar línur og segja þér hversu mjög það hryggði mig { að þú skyldir yfirgefa hinar stelp- umar í Kryddpíunum. Ég renni í grun að ég sé ekki sá eini sem i finnur til hryggðar," sagði Karl s meðal annars i bréfi sinu. Geri var ávailt mjög kumpán- | leg þegar þau Karl hittust á góð- f gerðarsamkomum. Hún lagði í ' vana sinn að reka honum remb- S ingskoss og einu sinni kleip hún hann í rassinn. Lengstu göngin Norðmenn eru stórtækasta | gangagerðarþjóð veraldar. Á milli bæjanna Aurland og Lærdal í Vestur-Noregi er verið að ■ sprengja 24,5 km löng göng sem f verða tilbúin árið 2001 (lengdin svarar til fimm og hálfra Hval- j fjarðarganga). Þetta verða lang- ’j lengstu jarðgöng heims. Fyrst var sprengt í þessum göngum 15. mars 1995. j í byrjun nýrrar aldar verður | erfiðasti farartálminn á leiðinni frá Ósló til Björgvinjar orðinn einn sá auðveldasti. í stað þess aö aka yfir Filefjell verður ekið í gegnum fjallgarðinn. Gervitungl : er notað til að fylgjast með stefnu bormanna inni í fjallinu og ekki ; meira en 15 sm frávik verður á stefnunni þegar endar ná saman. Lengstu veggöng heims eru nú | Gudvanga í Noregi, 11,4 km, Mont Blanc í Frakklandi, 11,6 j km, Arlberg í Austurríki, 13,9 km, og St. Gotthard í Sviss 16,9 km. Nýnasistar þramma samt Danskir nýnasistar ætla að halda kröfúgöngur í dag þótt bæði lögregluyfírvöld og dóms- málaráðuneyti landsins hafi bannað göngur þeirra í Koge, Kaupmannahöfh og Hróarskeldu. „Þetta eru samhæfðar pólitísk- ar aðgerðir gegn okkur og því verðum við að finna einhver ráð. Við vitum ekki enn hvað það verður, enda mundum við ekki segja frá því fyrirfram," sagði Jonni Hansen. Dómsmálaráðuneytið úrskurð- aði í gær að bann lögregluyfir- valda í Koge við fyrirhugaðri fjöldagöngu nasista um bæinn bryti ekki í bága við ákvæði stjómarskrárinnar um funda- frelsi. Albright til sprengjustaða Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, ætlar I til Kenýa og Tansaníu um I helgina og 1 skoða verksum- merki eftir 1 sprengjutilræð- in þar í síðustu viku sem urðu 1 um 250 manns að bana. Rannsóknarmenn frá banda- rísku alríkislögreglunni FBI leita : nú á tilræðisstaðnum í Naíróbi í Kenýa að vísbendingum um hverjir hafi staðið að sprengjutil- | ræðunum. Svæðið hefur verið girt af með hárbeittum vír og gæta kenýskir hermenn þess. Fimm menn eru nú í haldi lögreglu vegna tilræð- isins en enginn hefur enn verið ákærður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.