Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 10
ssur LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 JU&’V 10 Herrifflar pússaðir upp fyrir keppni Hins íslenska byssuvinafélags: Rosalegir hólkar! Hið íslenska byssu- vinafélag, HIB, nefnist félagsskapur áhuga- manna um skotíþrótt- ina og skotveiöi sem starfrœktur hefur veriö á höfuöborgarsvœöinu síöastliöin sex ár. Þetta er ekki fiölmennur hóp- ur, meölimir aöeins 32 og allt karlar, enda eru inntökuskilyröi nokkuö ströng. Nýirfélag- ar eru teknir inn einu sinni á ári og þá fer fram leynileg kosning hjá þeim sem fvrir eru. Nokk- ur dœmi eru um að umsóknum hefur veriö hafnaö af ýmsum ástœöum! Meölimir HIB koma úr öllum áttum og rœöur eng- inn klíku- skapur för. Sá yngsti er þrítug- ur og sa elsti um sjötugt. greinum, líkt og í öllum keppnum frá 1992, var Eiríkur Bjömsson tannlæknir. í verðlaun var glæsileg- ur farandbikar sem Landhelgisgæsl- an gaf HÍB á sínum tíma. Það er fall- byssukúla á standi. Gripurinn er svo þungur að hann hefur verið uppi á hillu hjá Eiríki öll þessi ár, honum hefur ekki fundist taka þvi að mæta með hann í mótið! „Þetta era rosalegir hólkar sem taka mikið á en eru ótrúlega ná- kvæmir miðað við aldur. Maður er búinn í öxlunum eftir kannski 60-70 Elsta byssan i keppninni var frá 1900, smíðuð í Þýskalandi af Mauser fyrir sænska herinn. Eigandinn heldur hér stoltur á henni, Karl Bjarnþórsson, kallaður Karl Gústaf af félögunum. Riffillinn er úr sænsku gæðastáli, cal. 6,5x55, af gerðinni Mauser M96. „Við erum í þessu fyrst og fremst til að skemmta okkur og öðrum. Við virkjum alla í félaginu og menn verða að hafa áhugann fyrir hendi. Við erum alls ekki í þessu til að berjast fyrir aukinni byssueign, eins og sumir vh’ðast oft halda. Frekar viljum við gera það erfiðara að menn fái byssuleyfi. Það eru allt of mörg byssuleyfi gefin út í dag,“ sagði Sigurður. Óhefðbundið félag Starfsemi HÍB er vissulega óhefð- bundin og þeir sögðu markmiðið einmitt vera það að bjóða upp á eitt- hvað annað en skotfélögin væru með. Sem dæmi um þetta halda þeir „svartfuglakvöld" og leigja víkinga- skipið íslending undir veisluhöld. Meðal sérstakra gesta í síðustu skot yfir dag- inn,‘ sagði Jó- hann Vil- hjálmsson byssusmiður í samtali við helgarblaðið en hann er einn af forvíg Félagið stend- ur fyrir fjöl- mörgum uppá- komum, bæði opnum sem og ein- göngu fyrir meðlimi. Gildir þá einu hvort um er að ræða skotkeppnir, veiðiferðir eða villibráðarkvöld. Eitthvað er að gerast nánast í hverj- um mánuði. Þannig fara fram í dag árlegir Skemmtiskotleikar á at- hafnasvæði Skotfélags Reykjavikur Leirdal þar sem öllum er heimil þátttaka. Elsta byssan frá 1900 Á dögunum fór einnig fram árleg, opin keppni, þ.e. herrifflakeppni. Þangaö mættu 11 fílefldar skyttur með fornar byssur sem allar voru eldri en frá síðari heimsstyrjöld. Sú elsta var frá árinu 1900 af Mauser- gerð og sést nánar á einum af með- fylgjandi myndum. Keppt var í þremur greinum. I fyrsta lagi var skotið standandi af 100 metra færi, þá standaði af 300 metra færi með opnum sigtum og loks liggjandi af 300 metra færi með sjónauka. Sigur- vegari í samanlögðum þremur Eiríkur Björnsson tannlæknir sigraði samanlagt í her- rifflakeppninni og það ekki í fyrsta sinn. Hann hefur ætíð sigrað frá því keppnin var fyrst haldin fyrir sex árum. Eiríkur fýrar úr rússneskum Sniper-riffli frá Mos- in Nagart. Riffillinn var notaður í seinni heimsstyrjöld- inni og er sá eini hér á landi, að því best er vitað. ismönnum Hins íslenska byssuvina- félags. Við hittum hann að máli ásamt tveimur öðrum forsprökkum, þeim Sigurði Stefnissyni, tilvonandi formanni, og Arnari Lúðvíkssyni, fráfarandi formanni. Af hjartans lyst Þeir lögðu á það ríka áherslu að félagar í HÍB væru fyrst og fremst í þessu fyrir sportið, eða eins og Arn- ar minnti á hvert markmið allra skotfélaga væri: Að iðka veiði og skotsport af hjartans lyst. Keppendur á opinni herrifflakeppni Hins íslenska byssuvinafélags. Engin byssa yngri en síðan í seinni heimsstyrj- öldinn, flestar af gerðinni Mauser. Nokkrar skyttur mættu ekki til keppni, sem láta hana annars ekki fram hjá sér fara, en hér eru keppendurnir, frá vinstri: Gissur Skarphéðinsson, Kristmundur Skarphéðinsson, Jón Guðmundsson, Haf- steinn Pálsson, Hannes Haraldsson, Sigfús Tryggvi, Jóhann Vilhjálmsson, Arnfinnur Jónsson, Sigurður Stefnisson, Eiríkur Björnsson og Karl (Gústaf) Bjarnþórsson. DV-myndir S Ein þriggja greina í keppninni var að skjóta liggjandi með sjónauka á 300 metra færi. Hér munda þeir Gissur, Eiríkur, Jón og Jóhann riffl- ana. Einbeitingin leynir sér ekki í andlitunum. veislu var leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir og sögðu þeir aldrei að vita nema að Lolla ætti eftir að ger- ast félagi í HÍB. Hún uppfyllti ýmis upptökuskilyrði! Næsta stórveisla HÍB er upp- skeruhátíð skotveiðimanna sem þeir eru að undirbúa á Broadway í haust í samráði við eigendur veit- ingastaðarins. Þar er von á 600 manns og án efa má búast við ein- hverri vænni villibráð á matseðlin- um. Eins og áður sagði fara Skemmtiskotleikar HÍB fram í dag í Leirdalnum. Þeir hefjast kl. 9.30 og eru opnir öllum skyttum. í keppn- ina hafa mætt allt að 40 manns. Hér er óhefðbundin keppni á ferðinni þar sem skyttum er gert eins erfitt fyrir og hægt er. Sem dæmi var keppendum eitt árið gert að taka armbeygjur á milli skota og hlaupa um með gervigæsir. Þeir sem mæta í dag munu án efa sjá skemmtileg og óvenjuleg tilþrif. -bjb >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.