Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
17
svona gerðum við ekki. Túrismi
gengur út á að láta ferðamenn
eyða peningum en þarna er við-
horfið allt annað. Við reyndum að
komast að því hver meðallaun í
Mosvku væru. Túlkurinn sagði
okkur að t.d. ritarar hjá hinu opin-
bera væru með um 200 dollara á
mánuði sem eru um 14.000 krónur.
Hún sagði jafnframt að fólk sækti
mjög í vinnu hjá erlendum fyrir-
tækjum því þá væru launin miklu
hærri.“
Síðasta daginn þurftu Anna og
Hilmar pening og fóru í banka um
hálftíu um morguninn. Hilmar
rétti gjaldkeranum passann og 50
dollara seðil og bað hann að
skipta. Gjaldkerinn varð flaumósa
og vísaði honum í burtu. Hilmar
fór þá til næsta gjaldkera en allt
fór á sömu leið og svo koll af kolli.
Hilmar sótti því túlk og bað hann
að athuga málið. Ástæðan fyrir
þessu var einföld. Það voru ekki
til neinar rúblur i bankanum og
gjaldkerarnir áttu ekki von á þeim
fyrr en klukkan 11!
Annað sem Önnu og Hilmari
þótti eftirtektarvert var að hvergi
Islenska fjölskyldan hafði góðan tíma til að skoöa sig um í Moskvu og sjá
m.a. hinar geysistóru, skreyttu byggingar sem prýða borgina.
Hilmar Ævar, Anna Heiða og Hilmar Ævar yngri við veglega klukku í Moskvu. Hjónunum
datt í hug að láta soninn standa uppi á brún klukkunnar svo hann sæist betur á mynd-
inni. En hann var ekki fyrr kominn þar upp en öryggisverðir þustu að úr öllum áttum og
tilkynntu að þetta væri bannað.
Hilmar með 6 metra langa veiðistöng sem hann fékk í verðlaun. Slíkar stang-
ir eru notaðar við veiðar í Miðjarðarhafinu. Á þeim er ekkert hjól, heldur er
girnið bundið í endann, sett á flotholt og spúnn. „Svo fær maður sér bara
bjórkönnu, sest niður og bíður í rólegheitum," sagði Hilmar. DV-mynd E.ÓI.
á almennum snyrting-
um var salernispappír
að sjá. í sirkus sem þau
heimsóttu var hvori
slíkur pappír né hand-
þurrkur. Skýringin er
sú að svo mikill skort-
ur er enn hjá fólki að
það hirðir allan pappír
um leið og hann er sett-
ur fram.
„Við þóttumst þó viss
um að þetta væri með
öðrum hætti á
Moskvuflugvelli sem er
alþjóðlegur flugvöllur
með mikilli umferð.
Við gáðum að því að
gamni okkar og þá gaf
á að líta. Rúllurnar
voru á stöngum á vegg
fyrir framan dyrnar.
Biðraðir voru við sal-
ernin og fólk þurfti
fyrst að fara og ná sér í
pappír og fara síðan
inn. Það lá við að það
væri flautað ef einhver
tók of mikið.
Þrátt fyrir svona at-
riði virtist okkur borg-
in fremur vestræn.
Miðað við þá ímynd
sem Moskva hafði verið
í augum okkar áður en
við fórum, að hún væri
grá og dimm borg, fólk-
ið gengi um þungbúið
með uppbretta kraga og
skýluklúta, hokið und-
an okinu, þá mættum
við allt öðru. Fólkið var
léttklætt, brosandi og
alúðlegt. Þarna virtust
allir brosa nema þeir
sem höfðu einhverja
ábyrgð, t.d. öryggis-
verðir og bankastarfs-
menn. Þeim stökk
aldrei bros á vör. Túlk-
urinn sagði það talið
bera vott um léttúð og
kæruleysi ef fólk í
ábyrgðarstörfum væri
skælbrosandi.“
Sjónvarpið virðist
gegna stóru hlutverki í
daglegu lífi Moskvubú-
ans ef marka má það
sem bar fyrir augu Önnu og Hilm-
ars.
„Við tókum eftir því að hvar
sem við fórum var fólk að horfa á
sjónvarp allan liðlangan daginn.
Klukkan tíu á morgnana mátti sjá
öryggisverði sem sátu og horfðu á
sjónvarpið. Það er mikið af íburð-
armiklum skemmtiþáttum og svo
virðist sem verið sé að hafa ofan af
fyrir fólkinu."
Það kom Önnu og Hilmari því
ekki á óvart þegar fram kom að
CCC-Blitz hefur áhuga á að fram-
leiða fleiri þáttaraðir með erlend-
um gestum. Þar munu íslendingar
vera ofarlega á blaði. Þess vegna
voru Hilmar og Anna beðin leyfis
til að fá að vísa útvöldum á tölvu-
netfangið þeirra ef fólk vildi fá
staðfestingu því líklega yrði erfitt
að fá fólk til að trúa því að því
stæði til boða frí ferð til Moskvu!
Ef einhvern langar til að vita
meira þá er netfangið hjá Önnu og
Hilmari: ah@mmedia.is -JSS
é^Listasmiðjan keramikhús
Höfiim flutt starfscmi okkar iir Hafiiarfirði
í Skcifitna 3a Reykjavík. Verið velkomin
luíWÍ'
„iif síiti
Skcifan 3a
108 Reykjavik
Siini: 588-2108
Útsala
Sumarúlpur - Heilsársúlpur
Stuttar og sídar kápur
Mörkinni 6 - sími 588 5518
Haustsprengja
Heimsferða til
Benidorm
2. og 9. sept.
frá kr.
29.932
Nú getur þú tryggt þér hreint ótrúlegt tilboð
Heimsferða í haustsólina til Benidorm í
haust og smellt þér í eina viku eða tvær
til þessa vinsæla áfangastaðar frá aðeins
29.900 kr.
✓
Ibúðargisting í hjarta Benidorm, þaðan
sem er örstutt á stöndina, og veitinga- og
skemmtistaðir allt í kring. Og á meðan á
dvölinni stendur nýtur þú traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr. 29,932
M.v. hjótt með 2 börn, 2-11
ára, vikuferð Mariscal, 2. og
9. sept.
Verð kr. 39.932
M.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, 2 vikur Mariscal, 2. og
9. sept.
Verðkr. 39.960
M.v. 2 í íbúð, vikuferð 2. eða
9. sept.
HEIMSFERÐIR
£
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
www.heimsferðir.is