Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Page 22
22
^sérstæð sakamál
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
en skyndilega benti hann á sand-
bakka í gili og sagði: „Ég held að það
sé þama!“
Þyrlan lenti og undir þunnu sand-
lagi fannst likið af Lindu Sobek. í
fyrstu varð ekki séð á hvem hátt hún
hafði látist. Hvergi var neina áverka
eða hnífstungur að sjá. Var því ljóst
að bíða yrði niðurstöðu rannsóknar
réttarlækna.
Eitt var þó ljóst. Saga Ratbuns um
að hann hefði fyrir slysni ekið á
Lindu gat ekki staðist. Þá hefðu sést
áverkar á líkinu.
Nær mánuður leið þar til réttar-
læknar sendu frá sér skýrslu.
Þar kom fram að Lindu hafði ekki
aðeins verið nauðgað heldur hafði
henni einnig verið misþyrmt áður en
hún var kyrkt en þó þannig að ytri
áverkar vora litlir sem engir.
Fyrir réll
Þann 1. nóvember 1996 var Charles
Rathbun leiddur fyrir rétt, ákærður
fyrir hafa myrt Lindu Sobek. Málið
var sótt hart af ástæðum sem vikið
verður að hér á eftir og gat verjandi
litið gert til að forða sektardómi. Því
ollu bæði beinar og óbeinar sannanir.
Rathbun fékk lifstiðarfangelsi.
Þótt máli Lindu væri lokið er máli
Rathbuns ekki lokið, eða svo segir lög-
reglan á Hermosa-strönd sem og rit-
höfundurinn Clifford L. Lineckers en
hann hefur sent frá sér bókina Death
of a Model (Dauði fyrirsætu). Þar held-
ur hann því fram að ferill Rathbuns sé
miklu ljótari en fram komi af þeim
dómi sem hann hafi fengið. Leiðir höf-
undur líkur að þvi að Rathbun hafi
ekki aðeins myrt Lindu heldur
Kimberly Pandelios og fleiri fyrirsæt-
ur sem hann hafi kynnst í starfi sínu,
en hafi horfið og telja verði látnar. Er
niðurstaða Lineckers því á þá leið að
Rathbun hafi gerst sekur um raðmorð.
Skýrir þessi grunur, sem lá fyrir áður
en réttarhöldin hófust, afstöðu sak-
sóknarans.
Lögreglan telur ekki að lengra verði
komist í rannsókn þeiira mála sem
um er fjallað í bókinni. Vísbendingar
skorti og því kunni eina vonin um að
upplýsa megi þessi hvörf að vera sú að
sá sem þau framdi lýsi yfir sekt sinni.
Elaine Sobek var tuttugu og sjö ára
ljósmyndafyrirsæta í Los Angeles.
Þann 16. nóvember 1995 hvarf hún
sporlaust. Að morgni þess dags ræddi
hún við móður sína í sima og sagði
henni að hún færi til fundar við þrjá
aðila þann dag. Fyrst myndi hún hitta
ljósmyndarann Chuck, síðan færi hún
í reynslupptöku vegna sjónvarpsþátt-
ar, sem hún hefði verið ráðin til að
leika í, og loks til annars ljósmynd-
ara.
í raun var þetta venjulegur dagur
hjá Lindu. Hún var eftirsótt fyrirsæta,
ekki síst af ljósmyndurum bíla- og lík-
amsræktarblaða, því hún var vel vax-
in og vel þjálfuð. Hún lét gjaman taka
af sér myndir í bikíni-fótum en hafh-
aði tilboðum um að sitja fyrir nakin
og bar fyrir sig trúarástæður.
Linda var lífsglöð og átti marga
vini. Hún hafði verið fremst í hópi
sem nefndi sig „The Raiderettes" en
um var að ræða stuðningshóp knatt-
spymuliðsins „The Los Angeles
Raiders". Vinir hennar vom einkum
úr hópi knattspymumanna og áhuga-
sams líkamsræktarfólks. Hún var alin
upp í Lakewood, útborg Los Angeles,
en leigði nú einbýlishús á Hermosa-
strönd ásamt tveimur öðrum fyrirsæt-
um.
Enginn kannaðist við nafnið
Linda mætti ekki til fúndar við síð-
ari aðilana tvo sem hún hafði nefnt
við móður sína. Hún kom ekki heim
um kvöldið og hringdi ekki til móður
sinnar næsta morgun. Þá urðu for-
eldrar hennar og vinir hræddir og
báðu lögregluna um aðstoð.
Lögreglan á Hermosa-strönd fær
margar tilkynningar um mannshvörf,
en hvarf Lindu vakti sérstaka athygli
af því hún var þekkt fyrir reglusamt
lifemi og fastar venjur. En það var
ekki einá ástæðan. Nokkru áður
höfðu fundist lík af ljósmyndafyrir-
sætum sem höfðu verið myrtar.
Vísbendingar í málinu vom fáar.
Linda hafði farið að heiman í hvítum
Nissan 240 SX sportbU tU að hitta ljós-
myndarann „Chuck“. En það gat vel
verið gælunafn sem Linda hafði gefið
honum því engin vinkvenna hennar
eða kunningja kannaðist við fyrir-
sætuljósmyndara með því nafni.
Nú liðu fimm dagar án þess að lög-
reglunni yrði nokkuð ágengt. En 21.
nóvember fann starfsmaður skóg-
ræktar tösku í ruslafötu í Angeles
Forest, stórum skógi. Linda hafði átt
töskuna.
Áköf en stutt leit
Þessi fundur varð tU þess að lög-
reglan ákvað að iáta hendur standa
fram úr ermum. Taskan hafði fundist
nærri þeim stað i skóginum þar sem
lík tveggja fyrirsæta, Kimberly Pand-
elios og Kym Morgan, höfðu fundist
grafm. Taliö var að sami maður hefði
myrt þær báðar en engar visbending-
ar höfðu komið fram um hver hann
gat verið.
Nú hófst mikU leit. Fyrir utan iög-
regluþjóna og skógarverði tóku
hundnið vina og kunningja Lindu
þátt í henni, aö nánustu ættingjum
hennar ótöldum. En leitin bar ekki ár-
angur og eftir hálfan annan dag var
Charles Rathbun.
henni að mestu hætt. Nokkrir vinir
Lindu héldu þó enn áfram að leita, og
það bar þann árangur að daginn eftir
fundu þeir snyrtitösku hennar, nærri
Clear Creek skógarvarðastöðinni, en
hún er fjóra kUómetrum frá þeim stað
þar sem handtaska hennar hafði fund- •
ist. í snyrtitöskunni var lítU bók yfir
stefnumót sem Linda hafði skráð hjá
sér en .blaðið yfir þau sem hún ætlaði
á 16. nóvember hafði verið rifið úr. í
snyrtitöskunni var hins vegar samn-
ingur við bUaieigu um Toyota Lexus
450 LX bU, dagsettur 16. nóvember.
Ljósmyndarinn finnst
Um það leyti sem samningurinn
fannst tiikynnti eigandi Danny’s-veit-
ingahússins I Torrance að hvítur
Nissan 240 SX sportbUi hefði staðið á
stæði veitingahússins í viku. Það
reyndist bUl Lindu.
Danny’s-veitingahúsið var kunnur
verustaður ljósmyndafyrirsæta í
vinnuhléum og ein af afgreiðslustúlk-
unum minntist þess að ljóshærð
stúlka hafði gengið út á stæðið þann
16. nóvember tU að ræða við ljós-
myndara. Hún hafði síðan
ekið burt með honum. Af-
greiðslustúlkan sagðist muna
það vel því maðurinn hefði
verið i spánnýjum Lexus 450
LX bU en þeir vora þá ekki
komnir á aimennan markað.
Loks hafði lögreglan eitt-
hvað tU að fara eft-
ir. Leigusamning-
urinn leiddi í ljós
að Lexus-bíllinn
hafði verið leigður
' ljósmyndara að
nafhi Charles Edg-
ar Rathbun en
hann vann einkum
við að taka myndir af vel
vöxnum fyrirsætum og
bUum, bæði fyrir auglýs-
ingabæklinga og bUatíma-
rit.
Erfiðar yfirheyrslur
Rannsóknarlögreglu-
maðurinn PaiU Saldana
hringdi tU Charles
Rathbun. Hann staðfesti
að hann hefði hitt Lindu
Sobek við Denny’s-veit-
ingahúsið. Hann sagðist
ekki hafa þekkt hana fyr-
ir.
Aðspurður um hvort
hún hefði farið með hon-
um í bílnum sagði hann
þaö ekki hafa gerst. Linda
hefði ekki hentað tU þess
verkefnis sem hann hefði
haft í huga og hefðu þau
kvaðst við veitingahúsið.
Saldana bað Rathbun
að koma tU viðræðna síð-
ar um daginn og féllst
hann á það en mætti ekki.
Er lögreglan kom heim tU hans var
hann ölvaður og veifaði skammbyssu.
Hljóp skot úr henni í handiegg lög-
reglukonu.
Eftir Jangar og strangar yfirheyrsl-
ur viðurkenndi Rathbun að hafa tekið
Lindu upp í bUinn. Hann hefði hins
vegar verið ókunnur bíinum og þegar
hann hefði ætlað að sýna Lindu hvers
bUIinn væri megnugur, meðan hún
stóð hjá og fylgdist með, hefði hann
misst stjóm á honum og ekið yfir
hana. Er honum hefði orðið ljóst að
hún var látin hefði hann fyUst skelfi
ingu, ekið með líkið á afskekktan stað
og grafið það. Hann gæti hins vegar
ómögulega munað hvar sá staður
væri. Síðar hefði hann kastað eigum
hennar á tvo eða þrjá staði. Sér hefði
hins vegar orðið það á að kasta samn-
ingnum mn bUinn um leið.
Þeim stóð ógn af honum
Charles Rathbun var fæddur og al-
inn upp í Michigan-ríki. Er hann var
táningur nauðgaði hann konu sem
hann reyndi síðan að myrða. Er það
mál var að baki gerðist hann ljós-
myndari og þótti góður en honum var
hvað eftir annað sagt upp af því að
fýrirsætur neituðu að vinna með hon-
um. Bám þær því við að þær þyldu
ekki augnatiilit hans.
Lögreglan komst að því að Rathbun
hafði myndað Lindu Sobek nokkrum
sinnum en einnig fyrirsætumar tvær
sem fundist höfðu myrtar. Hafði hann
sést oftar en
einu sinni á
Denny’s-veit-
ingahúsinu
með Kumberly
Pandelios. Er
þetta lá fyrir
þótti ijóst að
Rathbun heföi
myrt Lindu.
Ráðlegast var
þó talið að gera
honum ekki
grein fyrir því
og láta sem
sögu hans um
slysið hefði
verið trúað.
Líkið finnst
Þremur vikum eftir að Linda hvarf
bauðst Rathbun tU að aðstoða við leit-
ina að gröf hennar. Var lagt af stað í
lögregluþyrlu en með henni flugu
þyrlur með fféttamönnum og
nokkram vinum Lindu.
Flogið var nær aUt síðdegið án þess
að Rathbun gæti bent á nokkum stað,
Líkið borið úr gilinu.
Horfnu
Ijósmynda-
fyrirsæturnar