Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Qupperneq 26
2s iungt fólk
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 D V
„Okkur langaði til
að vinna við tónlist í
sumar. Þess vegna
bárum við úpp til-
lögu við íþrótta- og
tómstundaráð
Reykjavíkurborgar
og Hitt húsið. Hún
gekk út á að við
myndum vera á
launum hjá Reykja-
víkurborg, eins og
um bæjarvinnu væri
að ræða. En í stað
þess að reyta arfa
myndum við æfa
saman i tvo mánuði
og ljúka því tímabili
með tónleikum.
Samningar tókust,
við erum búnar að
æfa í sumar og bráð-
um kemur afrakstur-
inn í ljós.“
Þetta sögðu fjórar
eldhressar ungar
stúlkur, þær Sólrún
Sumarliðadóttir,
Stund milli stríða í Tónlistarskólanum, f.v.: Álfheiður Hrönn, Sólrún, Valgerður og Hildur. DV-mynd E.ÓI.
að spila sömu tón-
list í kirkju og á
kaffihúsi. Við þessu
hafa þær séð og
verða með margvís-
leg verk á efnis-
skránni eftir því
hvað hentar hverju
sinni. Tónlist þeirra
á að höfða að miklu
leyti til ungs fólks.
Og nú nálgast
tónleikarnir óð-
fluga. Þá þarf að
undirbúa vel, t.d.
hvað varðar auglýs-
ingar, útvegun á
húsnæði og fleira á
þeim nótum. „Það
er mikil vinna fólg-
in í þessu, en þetta
er allt að skríða
saman,“
sögðu stúlkumar
fjórar hvergi bangn-
ar.
Umræddir tón-
leikar verða þann
Valgerður Ólafsdóttir, Álfheiður
Hrönn Hafsteinsdóttir og Hildur Ár-
sælsdóttir: Þær ákváðu í vetur að út-
vega sér sumarstarf sem sameinaði
það tvennt að vera launað og ánægju-
legt - og það tókst. Þær settu saman
strokkvartett, sem hlaut heitið
Anima, sem er latneskt heiti yfir
anda, sál, eitthvað sem er lifandi. Það
tók þær langan tíma að finna nafn og
voru skoðanir mjög skiptar þar til
þær duttu niður á Anima. Það var
samþykkt einróma.
Helgarblaðið hitti þær stöllur
snemma morguns í vikunni í hús-
næði Tónlistarskólans, en þar hafa
þær haft æfingaraðstöðu í sumar.
Þær hafa allar stundað nám við Tón-
listarskólann undanfarin ár, auk þess
sem þær hafa verið í menntaskóla-
námi. Hinu síðamefnda hafa þær all-
ar lokið, nema Hildur sem á eftir tvö
ár í MH. Þær þekktust því úr tónlist-
inni, en höfðu þó aldrei spilað fjórar
saman áður. Þær sögðu að samstarfið
í sumar hefði verið gott. „Það hefur
þó gengið á ýmsu, því þetta er svo
náið samstarf. Okkur hefur lent sam-
an og stundum hefur allt farið í háa-
loft. Ef fiórar manneskjur vinna sam-
an á hverjum einasta degi, og þurfa
að einbeita sér eins og einn maður,
þá getur komið upp pirringur."
Nóturnar fuku
Þær sögðu að það væri mesta furða
hve vel þeim hefði gengið að halda sig
inni við æfingarnar í góða veðrinu í
sumar.
„Við gerðum raunar eina tilraun
tO þess að æfa úti. En þá kom rok og
nóturnar fuku. Við náðum þeim og
reyndum þetta ekki aftur.“
Það er ekki alveg gefið að það henti
19. ágúst nk. í ÍR-húsinu, öllum opnir
og aðgangur ókeypis. Þann 22. ágúst
verður svo menningarnótt í Reykja-
vík. Þá mun Anima spOa á ýmsum
stöðum í borginni, svo sem kirkjum,
fyrirtækjum og kaffihúsum, frá kl.
13.00-23.30 um kvöldið. Þar með er
sumarstarfinu að mestu lokið, og
vetrarpuðið tekur við. Sólrún og Val-
gerður ætla að halda áfram í Tónlist-
arskólanum og hvOa sig á öðru námi.
Álfheiður Hrönn fer út tO Bandaríkj-
anna, þar sem hún fer í háskóla og
verður einnig í tónlistamámi. HOdur
heldur áfram í MH. -JSS
Hún tók sér frí frá hagfræðinni í Háskóla íslands:
Kennir við „sjómannaskóla"
Guðrún Mjöll er nýfarin til Ghana þar sem hún ætlar að kenna í eitt ár.
DV-mynd E.ÓI.
Það er stór ákvörðun að standa upp
af skólabekk í Háskóla íslands í miðj-
um klíðum og fara úr landi. Og svo
bætir hugmyndaflugið um betur, því
hér er ekki verið að tala um
skreppitúr til Norðurlanda heldur
ársdvöl i Afríkuríkinu Ghana. Guð-
rún Mjöll Sigurðardóttir ætlar að
hafa þennan háttinn á og verður
raunar nýfarin frá Fróni þegar þetta
kemur fyrir augu lesenda.
Það er á vegum Alþjóðlegra ung-
mennaskipta, AUS, sem hún fer í
þennan leiðangur. Um er að ræða
vinnuskipti ungmenna og mun hópur
ungs fólks fara tO hinna ýmsu staða
veraldar á vegum samtakanna á
þessu ári. Guðrún MjöU er sú eina
sem fer til Ghana, nánar tOtekið hafn-
arborgarinnar Tema. En hvers vegna
þangað?
„Ég sótti um Afriku nánast eins og
hún leggur sig. Mig langaði að fara
þangað tO að kynnast menningu, gild-
ismati fólksins og upplifa nýja lifnað-
arhætti. Ég vildi því fara á staðinn tO
að vinna með fólkinu í einhvern tíma
tU þess að komast inn í daglegt líf
þess. Ég hafði engan áhuga á að fara
þangað sem ferðamaður."
Hellingur af sprautum
Þótt ekki væru nema tveir dagar í
brottfór þegar helgarblaðið ræddi við
Guðrúnu MjöU, þá var hún sallaróleg
yfir því langa ferðalagi sem fram und-
an var. „Ég held að ég átti mig ekkert
á því enn hvað það er að vera þarna í
heilt ár. Þess vegna sækir enginn efi
um réttmæti þessarar ákvörðunar að
mér. Raunar eru aUir hissa á því
í Ghana
hvað ég er róleg. En auðvitað er ég
svolítið kvíðin, maður væri ekki al-
veg heilbrigður ef það væri ekki.“
Hún var búin að vera á þönum við
undirbúninginn undanfarna daga,
fara í „heUing af sprautum" og lesa
sér tU um fyrirheitna landið. Þá hafði
hún haft samband við fólk, sem hafði
áður farið tU Ghana á vegum AUS.
Hún hefst handa fljótlega eftir að
hún kemur út. Fyrst fer hún á tveggja
vikna tungumálanámskeið. „Vonandi
verð ég heppin og fæ að læra það
tungumál sem talað er í Tema. Opin-
bera tungumálið er enska, en svo eru
46 tungumál í gangi í landinu og þar
af eru 9 skrifleg. Af þessum 9 eru 6
kennd. Ég hef mikinn áhuga á að
læra eitthvert tungumál landsmanna
og geta fylgst með því sem er að ger-
ast í kringum mig.“
Ferðaþránni svalað
Eftir tungumálanámið fer Guðrún
MjöU að kenna í skóla einum i Tema.
„Hann heitir Marine Preparatori
School. Ég hef verið að grínast með
að þýða þetta sem stýrimannaskóla.
En líklegast verð ég að kenna í
grunnskóladeildinni. Ég mun búa
með breskri stelpu heima hjá skóla-
stjóranum.
„Þegar Guðrún MjöU hefur upp-
frætt Ghanabörn um tíma ætlar hún
að snúa heim og taka aftur til við
hagfræðina. „Mér líkar vel í henni,
þó ég hafi aUtaf verið með hugann við
ferðalög." -JSS
... í prófil
Erna Kaaber
fréttamaður
Erna Kaaber var nýlega
ráðin ritstjóri Stúdenta-
blaðsins en hún hefur ver-
ið í afleysingum í sumar á
fréttastofu Bylgjunnar og
Stöð 2. Hún er í Prófll.
FuUt nafn: Erna Guðrún
Kaaber.
Fæðingardagur og ár:
23.05.73.
Maki: Enginn.
Börn: Emilla Sara Ólafs-
dóttir.
Starf: Fréttamaðm-, verð-
andi ritstjóri.
Skemmtilegast: Að tala
við fólk og lesa bækur.
Leiðinlegast: Að vaska
upp.
Uppáhaldsmatur: Humar
og krabbi.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Fallegasta manneskjan:
Dóttir mín.
Uppáhaldslíkamshluti:
Augun.
Hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni: Fer eftir mál-
efnum.
Með hvaða teiknimynda-
persónu myndir þú vilja
eyða nótt: Skugga.
Uppáhaldsleikari: Hilmir
Snær.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Sade.
Sætasti stjórnmálamaður-
inn: Ögmundur Jónas-
son.
Uppáhaldssjónvarpsþátt-
ur: Frasier.
Leiðinlegasta kvikmynd-
in: Man ekki hvað hún
heitir, ég slökkti á
henni þegar hún var
hálfnuð.
Sætasti sjónvarpsmaður-
inn: Get ómögulega gert
upp á milli allra þessara
myndarlegu starfsfé-
laga.
Uppáhaldsskemmtistaður:
22.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór: Ró-
leg og yfirveguð.