Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Blaðsíða 29
37 JL>V LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 Qklgarviðtalið /embley er væntanleg eftir helgi frá virtu plötufyrirtæki: Alda kynntist Malcolm fljótlega eftir að hún kom til London 1989 og síðan hafa þau eytt nóttu og degi í að koma sér áfram í tónlistinni. Árangur erfið- isins virðist loksins vera að skila sér. DV-mynd Vífill Prunner sig á því hver syngur það,“ segir Alda en hún hefur verið að fá góða dóma í tónlistartímaritum að und- anfornu. Þannig segir í einu þeirra að lagið Real Good Time sé mest grípandi lag ársins í Bretlandi. í nýjasta hefti tímaritsins Smash Hits fær lagið hæstu einkunn og í Live & Kicking, sem er vinsælt rit á meðal unglinga í Bretlandi, er sérstaklega mælt með laginu sem helsta smell sumarsins. Wembley eins og hvert annað „gigg" En hvernig skyldi það hafa kom- ið til að hún söng á Wembley við einn stærsta íþróttaviðburð Breta á ári hverju, leikinn um Góðgerðar- skjöldinn? Hún segir ástæðuna lík- lega liggja í því hvað lagið fékk mikla spilun í Bretlandi í kringum HM. Ósjálfrátt hafi það verið tengt við fótboltann án þess að það hafi verið ætlun þeirra Malcolms. Beiðn- in kom á faxi frá Wembley til plötu- fyrirtækis hennar og að sjálfsögðu sagði hún já! „Þetta var alveg meiri háttar reynsla og á eftir að hjálpa mikið við markaðssetninguna. Annars var ég mest hissa á hvað allir i kringum mig voru stressaðir, einkum fólkið frá plötufyrirtækinu. Það ætlaði ekki að trúa því að það væri komið á Wembley. Ég fann ekki fyrir neinu stressi. Þetta var eins og hvert annað „gigg“ hjá mér,“ segir Alda sem fengið hefur góða reynslu í því í sumar að syngja fyrir framan þúsundir manna. Um hverja ein- ustu helgi hefur hún komið fram á útitónleikum um allt Bretland ásamt nokkrum öðrum listamönn- um. Tónleikarnir kallast Road Show og að sögn Öldu mæta á bilinu 40-60 þúsund manns á hverja þeirra. Þeim er sjónvarpað og útvarpað beint um Bretland. „Það er rosalega erfltt að komast að á tónleikum sem þessum. Þú verður t.d. að hafa gott plötufyrir- tæki á bak við þig og eitthvað til að selja,“ segir Alda sem á dögunum söng fyrir 60 þúsund manns í Leeds. Hún segir tilfmninguna hafa verið stórkostlega að heyra alla taka und- ir með henni og syngja Real Good Time. 23. ágúst er „D-dagurinn" Eins og kom fram í upphafi er breiðskífa væntanleg frá Öldu hjá Wild Star. Platan inniheldur ellefu lög og kemur út um miðjan nóvem- ber næstkomandi og skömmu áður kemur út önnur smáskífa. Upptök- um vegna þesscirra platna er lokið. Alda og Malcolm semja öll lögin á breiðskífunni utan eitt og á smáskíf- unni eiga þau allt efnið. En fyrst er það smáskífan Real Good Time sem kemur í búðir í London 17. ágúst, eða núna eftir helgina. Skiljanlega er Alda spennt yfir því. „Sérstaklega bíð ég spennt eftir breska listanum sem kemur út 23. ágúst, sunnudaginn eftir viku. Sjálf fæ ég að vita útkomuna tveimur dögum áður og get varla beðið. Það eru allir búnir að segja okkur að lagið stökkvi beint í hóp fimm efstu en ég reyni að halda mér enn á jörð- inni,“ segir hún. Aðspurð hvort draumurinn sem hún hafði með sér í farteskinu til London væri að rætast segist Alda vona það. Hún vill þó sjá til þar til breski listinn birtist þann 23. Útlitið sé að minnsta kosti gott. „Kannski Þekkirðu Björk? Tónlistarbransinn í London er líklega einn sá erflðasti í heimi. Þangað streyma listamennirnir og taka þátt i stóra lottóinu. Alda seg- ist aldrei hafa farið út hefði hún vit- að hversu erfitt þetta er. „Að fá einhvem til að hlusta á demóið er erfitt og að fá plötusamn- ing er enn erfiðara. En þó að hann sé í höfn þá er heimsfrægðin ekki handan við hornið. Margir kubbar í púsluspilinu verða að hitta sam- an á sama tíma.“ Hvort það hafi hjálpað henni eitthvað að vera frá íslandi líkt og Björk segist Alda varla geta sagt það. Það hljómi kannski áhugavert í nokkrar sekúndur en síðan ekki meir. Plötusamningar komi ekki sjálfkrafa með því að segjast vera frá íslandi. Þú verðir að hafa eitt- hvað fram að færa. „Ég er búin að vera í viðtölum í blöðum, útvarpi og sjónvarpi og allir vilja tala um ísland. Mér finnst það líka skemmtilegt og geri mikið mál úr því. Ég tala oft um tröll og íslendingasögurnar og allir halda að sjálfsögðu að ég sé snar- rugluð," segir Alda og hlær en vegna hársins hefur tröllaímyndin fest við hana. Til marks um það hefur hún alltaf lítil tröll með sér í ferðatöskunum Af skiljanlegum ástæðum kynn- ir eða markaðssetur hún sig ekki undir fullu nafni, Alda Björk Ólafs- dóttir, heldur notar eingöngu Alda. Hún segir Bretana eiga nógu erfitt með að bera það fram. „Björk“ Albúm smáskífunnar sem væntanleg er í plötuverslanir í Bretlandi eftir helgina. Nú þegar hafa selst hátt f 200 þúsund eintök af plötunni f forsölu þannig að lagið á eftir að ná hátt á breska listanum. Þeir sem vilja fræðast nánar um Öldu geta kynnt sér heimasíðu hennar. Slóðin er: http://www.alda.is stendur að sjálfsögðu ekki i þeim. Alda er stundum spurð hvort hún þekki ekki nöfnu sína en reyndar finnst henni minna um það en hún átti von á. „Þegar lætin byrjuðu hjá mér hélt ég að allir myndu spyrja um Björk en svo hefur ekki verið. Enda er Björk bara Björk og ég er bara Alda. Svo einfalt er það.“ Söng fyrir Stormsker „Bara Alda,“ segir hún, stúlkan sem fæddist í Kópavoginum 1966 en ólst upp í Reykjavík. Hún er elst þriggja barna Ólafs Þórs Tryggva- sonar og Svanhvítar Erlu Hlöð- versdóttur, sem eitt sinn ráku verslunina VPK í Vesturgötu. Systkinin eru Sigrún Björk og Hlöðver Þór. Þrettán ára fluttist hún með fjölskyldunni til Svíþjóð- ar og bjó þar um skeið. Kom aftur til íslands og byrjaði snemma að syngja með hinum ýmsu hljóm- sveitum. Árið 1987 stofnaði hún Stjórnina með Grétari Örvars, eins og áður sagði, en einnig var hún í sveitum með tónlistarmönnum eins og Mána Svavarssyni og Sveini Kjartanssyni. Þá hefur hún sungið mörg lög fyrir Sverri Stormsker, t.d. Bless, Búum til betri börn og Vömbin þagnar. Eft- ir að hún flutti til London hefur hún ekkert unnið með íslenskum tónlistarmönmnn, að undanskildu einu lagi sem hún söng fyrir Stormskerið. Músík og aftur músík „Ég hef eingöngu einbeitt mér að ferlinum í London. Við Malcolm höfum fórnað gríðarlega miklu til að ná þangað sem við höfum náð. Lífið snýst um músíkina, ekkert annað kemst að. Oft hefur á móti blásið en við höfum aldrei gefist upp. Þau hafa verið nokkur nei-in sem við höfum fengið að heyra og væntingar oft breyst í vonbrigði. Éinhvern veg- inn höfum við staðið upp og haldið áfrarn," segir Alda sem þessa dagana heyrir mun oft- ar en áður ,já“ þegar í völundar- hús tónlistarmarkaðarins er kom- ið. Eftir að á plötusamning er kom- ið hjá stóru fyrirtæki líkt og Wild Star þá mætti ætla að þrýstingur aukist um að þau komi stöðugt með nýja og nýja smelli. Alda seg- ist ekki óttast þennan þrýsting, þau Malcolm eigi heilan helling af lögum á lager auk þess sem hann sé mjög klár lagahöfundur. Getur ekki verið betra Fyrst svona vel gengur sem sóló- isti er ekki fráleitt að spyrja hvort það hafi verið mistök að eyða fyrstu árunum í London með öðr- um í hljómsveit. Alda er ekki sam- mála þessu og telur þetta hennar örlög. Hún hafi þurft að ganga I gegnum þessa reynslu til að kom- ast á þann stað sem hún er á núna. „Ég tek allt öðruvísi á hlutunum núna en ég gerði áöur. Syng á tón- leikum og fer í viðtöl án þess að vera vitund stressuð. Ég er heldur ekki viss um hvað hefði gerst hefði ég fengið stóra tækifærið fyrir fimm árum. Þá hefðum við líklega ekki haft frábæra plötu tilbúna,“ segir Alda. Hún segist varla geta lýst því hvað þau voru heppin að ná samn- ingi við Wild Star. Þetta sé eina fyrirtækið sem geti tryggt tónlist- armanninum mikla spilun í út- varpi, þ.e. á stöðinni Capitol Radio. „Plötufyrirtæki eins og Warner, Sony, IMA eða Virgin geta alls ekki tryggt þér mikla útvarpsspil- un í Bretlandi. Wild Star á þar vinninginn,“ segir Alda sem er að- eins ein þriggja söngkvenna sem eru á samningi hjá fyrirtækinu. Það er stefna Wild Star að hafa fáa en góða listamenn á sínum snær- um. „Þetta getur ekki verið betra,“ segir söngkonan íslenska og hefur líklega aldrei áður verið jafn ham- ingjusöm. Verkefnin fram undan hjá Öldu og Malcolm eru æði mörg. Fyrir utan viðtöl í fjölmiðlum eru það tónleikar og aftur tónleikar því fylgja þarf útkomu smáskífunnar eftir af fullum krafti. Skömmu eft- ir að við töluðum við hana fór hún til Skotlands vegna upptöku fyrir sjónvarpsþátt og í dag lá leiðin til Þýskalands til að koma þar fram á tónleikum í beinni útsendingu. Alda reiknar með að vera með annan fótinn í Þýskalandi á næst- unni til að koma sér á framfæri þar. „Kannski kemst ég til íslands einhvern tímann í haust til að anda að mér fersku lofti áður en lætin byrja á ný vegna breiðskíf- unnar,“ segir þessi eldhressa söng- kona sem áreiðanlega hefur ekki sungið sitt síðasta. -bjb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.